Morgunblaðið - 22.10.1964, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 22.10.1964, Qupperneq 12
28 MORGUNBLADIÐ Fimmtudagur 22. okt. 1964 Baráttan um sögurnar K Huntford skrifar um handritamdlið FRAMTD9 fslendiitffasagu- anna verffur enn lögff fyrir danska þingið. Á hið ótnetan- lega handritasafn, sem nú er í Kaupmannahöfn, aff hverfa aftur til íslands? Þessi spurninig hefur háð sambandinu milli Danmerkur og íslands í mörg ár, og varð- ar í öðru landinu tregðu há- skólamanna, en þjóðarmetnað í hinu. ísland hefur aðeins verið sjálfstætt ríki frá 1944, en var frá 1360 dönsk ný- lenda. Þótt byggð íslands sé gömul og landið verið vagga gömlu ví'kinganna, eru þar engar gamlar byggingar né minnismerki, vegna þess áð sagan færði þvi ekki annað en timburkirkjur og torfbæi, sem ekki haía geymzt. Frum- handritin að gömlu sögunum eru einu minnisivarðarnir, sem íslendingar eiga um gullöld sína á sviði válda og merkra bókmennta á miðöldum. Merk ustu handritin, og þau sem snerta mest þjóðartilfinningu íslendinga eru í Kaupmanna- höfn. Eitt þeirra inniheldur lög þau, sem nútímalög ís- lands eru byggð á. Annað, svonefnd Flateyjarbók, segir frá því þegar Leifur Eiríksson fann Ameríku, 500 árum á undan Kólumbusi. Árið 1961 samþykkti danska þingið að skila handritunum — en þingið hafði ekki heim- ild til að ráðstafa þeim, og niðurstaðan varð langvinn og bitur deila stjórnmálamanna og lögfræðinga. Handritin tilheyra_ einka- stofnun, er nefnist Ámasafn (höfundur kallar það Magnes- son Trust), og þarf því ergnar námsheimild áður en þau verða afhent. Safn þetta dreg ur nafn sitt af Árna Magnús- syni, átjándu aldar íslend- ingi, er bjargaði handritunum frá glötun. Á þeim tímum höfðu íslendingar lítinn á- huga á sögu, en Árni Magn- ússon áleit íslendingasögurn- ar það miklsverðar að nauð- synlegt væri að geyma þær handa komandi kynslóðum. Leitaði hann handrita um allt fsland, og fann skinnblöð, sem einstök voru í sinni röð, í þakskeggjum bændabýla og á ótrúlegustu stöðum, ‘ m.a. í gluggum bæjanna. Árni Magnússon safnaði um 1700 handritum, þeirra á með- al Sæmundareddu og Heims- kringlu, sem flytur margar bezt þekktu frásagnirnar, og Noregskonungasögur, er segja vel frá stjórnmálaástandinu í heimi Engil-Saxa. Engin leið var til að vinna úr þessum handritum á íslandi, því þar var hvorki til borg, sem heit- ið gæti, né háskóli, og flutti því Árni Magnússon safn sitt til Kaupmannahafnar. Þar varð hann prófessor við háskólann og helgaði líf sitt rannsóknum á handritunum. Hann eftirlét Kaupmanna- hafnarháskóla safnið til varð- veizlu, og þar hefur það reynzt fræðimönnum margra þjóða mjög verðmætur sjóðui. Eftir því sem þjóðarkennd ís- lendinga vaknaði, óx áhugi þeirra á sögunum, og hófu þeir baráttu fyrir a'ð fá heim þenn an þjóðararf. Þessi vakning náði hámarki með fullveldi ís lands 1944, þegar gerðar voru formlegar kröfur um endur- heimt. Margir Danir viðurkenna að íslendingar eigi siðferðilegan rétt á að fá handritin, jafnvel þótt eignarréttur Dana sé ó- véfengjanlegur frá lagalegu sjónarmiði. En stjórn Árna- safns vill að handritin verði áfram í Kaupmannahöfn, þar sem þeir álíta að þau vérði aðgengilegri fyrir fræðimenn. Þegar danska þingið ákvað 1961 að skila handritunum, mótmælti safnaðarstjórnin og hótaði málaferlum. En áður en til þess kom ógiltu nokkr- ir þingmenn Íhaldsflokksins ákvörðun þingsins með til- vísun í stjórnarskránni þar sem svo er fyrir mælt að málinu skuli frestað til næsta Jöggjafarþángs. Nú, þegar nýja þingið er sezt á rökstóla, verður að legigja málið fyrir að nýju. K.B. Andersen, fræðslu- málaráðherra, lagði nýiega fram nýtt frumvarp, og ríkis- stjórnin leggur áherzlu á að fá það samþykkt fljótlega, svo unnt verði að afhenda hand- ritin á þessu tuttugasta ári sjálfstæðisins. Það kæmi vel fyrir sjónir, og yrði til þess að bæta samkomulagið milli þjó’ðanna, sem ekki er jafn gott og það gæti verið vegna gamalla nýlenduminninga ís- lendinga. Þar sem þingmeirihluti er tryggður, verður frumvarpið án efa að lögum, en ek'ki fyrr en eftir harðar deilur, því margir andstæðingar frum- varpsins á þingi vilja ekki láta fjarlægja þennan þjóðar fjársjóð frá Kaupmannaihöfn. Einnig verða langvarandi málaferli, því stjórn Árnasafns virðist ákvéðin í að láta ekki sinn hlut. Þeir segja að safn- ið sé einkaeign og ætla að sjá um að svo verði áfram. Allt er þetta mjög viðeig- andi, og þeir, sem sögurnar fjalla um væru án efa ánægð- ir. Því þegar þeir voru ekki að kljúfa hver annan í herðar niður, voru þessir forn-nor- rænu víkingar mestu málþófs menn, sem uppi hafa verið í heiminum. (Einikar. Observer). Andlitið Ansiktet. Sænsk frá 1958. 102 mín. Hafnarfjarðarbíó. Kvikmyndari: Gunnar Fischer. TónlLst: Erik Nordgren. Handrit og leikstjórn: Ingmar Bergman. Svensk Filmindustri. VIÐ grams í gömlum efnisskrám frá kvikmyndahúsum rek ég augun í skrá yfir mynd sem sýnd hefur verið eitt sinn í Tjarnar- bíói: Sumarástir, „hrífandi fögur sænsk mynd um ástir, sumar og sól.“ Ekki hefur þótt taka að nefna hverjir gerðu þessa mynd, leikstjóra ekki getið og óvíst nokkrir hefðu kannast við kauða og trúlega fáir séð myndina í öðrum erindagjörðum en kynn- ast nánar sænsku skerjagarðs- kynlífi. Nú er nafn þessa ónefnda leikstjóra letrað stórum stöfum oig orðið trygging fyrir hópferð- um í Hafnarfjarðarbíó, snobb eða ekki snobb. Andlitiff er tuttugasta mynd Bergmans, næst á undan Meyjar- lindinni, og ein margræðasta mynd hans. Hún hefst á einkar BergmansVu atriði: skuggamynd hvíla-ndi farandmanna og eykis ber við ljósan himinn. Þetta er kraftaverkalæknirinn dr. Albert Vogler (Max von Sydow) og „Dulræna heilsuleikhús" hans. Eitthvað dularfullt hvílir yfir öllu. Kerlingin, amma Voglers (Naima Vifstrand) tautar galdra þulur. Hljóð heyrist úr skóginum og Vogler finnur þar leikarann Spegel (Bengt Ekerot, lék dauð- ann í Sjöunda innsiglinu), drukk inn og dauðvona. „Ert þú svik- ari sem verður að dylja sitt rétta andlit?“' spyr leikarinn, en Vogler svarar ekki; hann er mál- laus. Hópurinn, sem raunar er eftirlýstur, er brátt stöðvaður og stefnt til heimilis Egermans kon- súls, þar sem Vogler er hafður að spotti. Læknirinn Vergérus (Gunnar Björnstrand) dregur mjög í efa hæfileika Voglers og ætlar sér að afhjúpa svik hans, en áhugi hans er aðeins vísinda- legur og vísindin geta ekki viður kennt þann kraft sem Vogler segist búa yfir. Vergérus efast réttilega um mál leysi Voglers og daginn eftir koma ýmis svik í ljós. Vogler heppnast þó dáleiðsluatriði, en það kostar hann — að því er virð ist — lífið. Vergérus fagnar því að geta krufið hann oig skoðað heila hans, en ekkert sérstakt kemur í ljós við krufninguna, en á eftir gerast undarlegir atburð- ir á líkskurðarloftínu og Vogler birtist Vergérusi ljóslifandi; það var ekki hann sem var krufinn, heldur leikarinn Spegel. En lækn innn viðurkennir aðeins að hann hafi gert sig smáskelkaðan, ann- að ekki. Vogler virðist hafa fall- ið á ódýrum töfrabrögðum og hann verður að betla þóknun úr hendi Vergérusar, sem gerir lít'ið úr list hans. En þá kemur boðberi frá Svíakonungi, sem heyrt hef- ur af Vogler og óskar að hann komi til hallar sinnar ag sýni hæfileika sína þar. Og dr. Vogler heldur af stað í sigurför við lúðraþyt og undrun spottara sinna. Margskonar skýringar hafa komið fram á myndinni, t.d. að Vogler sé ímynd Krists, en flest bendir þó til þess að Bergman hafi sjálfan sig í huga, afstöðu annarra og þá sérstaklega gagn- rýnenda gagnvart honum sjálf- um. En Bergman felur sig á bak við margar grímur og tákn mynd ar hans eru mörg og dulræð. Vogl er, sem tekizt hefur að skapa sér mikið álit, er álitinn argasti lodd ari þegar upp kemst um aðferð- rnar sem hann notar til að heilla fólk. Úr þessu virðist mega lesa: list er blekking eða listamaður verður oft að gripa til blekking- ar til að sanna tilverurétt sinn. Ef Vogler (Bergman) tekst að sannfæra áhorfendur sína og leyna þá aðferðum sínum, þá er hann listamaður, ef ekki þá er hann aumv,r loddari. En þá er listin ekkert nema blekking og listamaðurinn svikamiðill. Vogler trúCi eitt smn á hæfileika sína en Austurbæjarbíó hefur sýnt aff undanförnu frönisku kvikmynd ima „Skytturnar". Myndin er g erff eftir hinni heimsfrægu sögu eftir Alexandre Dumas en hún hefur veriff gefin út í íslenzkri þýffingu og má segja aff sú bók hafi veriff lesin upp til agna. Margar kvikmyndir hafa veriff gerffar eftir þessari sigildu sögu, en fullyrffa má aff fáar hafi tekist eins vel og þessi mynd, sem nú er sýnd. Myndin er tekin í litum og Cinema Scope. Hjálparsjóður æskufólks gefur út jólakort HJÁLPARSJÓÐUR æskufólks nefnist sjóður, sem stofnaður var fyrir tæpu ári, að til'hlutan Magnúsar Sigurðssonar skóla- stjóra. Sjóður þessi hefur nú afihent Biskupsskrifstofunni 300 þúsund krónur, en alls hafa verið lag’ðar 400 þúsund krónur í sjóð- inn. Fé þetta hefur safnast á ýmsan hátt. Ágóði af sýningu kvikmynd arinnar „Úr dagbók lífsins" hef- ur runnið í sjóðinn auk þess fé, sem safnast hefur vegna áskrifta í bókina „Réttið hjálparhönd". Ásikriftarlistar voru sendir til skipa, sem höfðu 10 manna áhöfn eða -meira. Hafa sjóðnum borizt um 100 þús. krónur frá áhöfnum 50 skipa. Verður á næstunni leit- að til stofnana og fyrirtækja og gefst þá starfsfólki fyrirtækjanna kostur á að skrifa nöfn sín í á- skriftarblað fyrirtækisins, en á- skriftarblöð þessi verða sfðar bundin í bók. Hefur sjóðnum einnig borizt fé með öðrum hætti. Hafa ein- staklingar og félög sent sjóðnum fé. er nú fullur efasemda. Hið sama hefur ef til vill búið í huga Berg- mans. En svo kemur uppreisn ærunnar, bréf konungsins. Það er dagsett 14. júlí. Bergman er fæddur 14. júlí 1918. Ef þessari túlkun er haldið áfram, er þá Vergérus hugmynd Bergmans um gagnrýnandann, sem neitar að láta sannfærast? Eru þjónustu- píurnar á bæ Egermans sem trúa á ástarlyf ömmunnar og taka iygasögunum með einlægni, ímynd almúgans gagnrýnislausa? Hver er þá konungurinn? Lista- gyðjan eða Oscarsverðlaunin? Það getur hver sem er haldið áfram með dæmið, eða sett það öðruvísi upp, en Bergman er með svörin og fastheldin á þau. Andlitið er ekki meðal beztu mynda Bengmans, en engu síður eftirtektar- og umtalsverð, líkleg tii að valda ólíkum skoðunum og útskýringum sem hún og víða hefur gert. Hún má nefnast at- hyglisverð sjálfsvörn eða sjálfs- réttlæting heldur en fullburða listaverk. Myndin hefst í dimm- um dularþrungnum stíl, en end- ar nánast í galsa. Hún er einhvers konar sambland af hrollvekju, sálkönnum og erótískum útur- dúrum í farsastíl. Meðferð hlut- verka er eins og í flestum mynd um Bergmans; mjög vönduð og i höndum þess einvalaliðs sem hann hefur ávallt á að skipa. Minnisstæðust verður þó Nakna Wifstrand. Kvikmyndunin er víða fögur og eftirminnileg, þó gætir stundum óhreyfanleika myndavélarinnar um of, eins og oft hjá Bergman og ýmsar upp- stillingar gera það að verkum að þessi mynd, ef fráskilin er Flísin í auga kölska, sýnir fremur oðr- um tengsl Bergmans við leikhus- ið Pétur Ólafsson. Markmið sjóðsins er, eins og flestum er kunnugt, að styrkja eða aðstoða munaðarlaus, van- rækt e’ða nauðstödd börn eða æskufólk. Nú hefur sjóðstjórnin ákveðið að gefa út jólakort til styrktar sjóðnum. Hefur Halldór Péturs- son teiknað kortin og eru mynd- irnar úr - sögu munaðarlausra barna. Með tilkomu þessara jóla korta geta menn í senn fengið ódýr og smekikleg kort og styrkt gott málefni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.