Morgunblaðið - 22.10.1964, Síða 19
Fimmtudagur 22. okt. 1964
MORCU N BLAÐIÐ
19
á,_____
EINS og kunnugt er hefur
áhugi á laxa- og silungsrækt
farið mjög vaxandi hér á
landi á undanförnum árum,
enda veiðiáhugi mikill og
framboð veiðiáa hvergi nærri
nægjanlegt. Nokkrir menn
hafa farið utan til að kynna
sér fiskirækt í nágranna-
löndum okkar. Einn þeirra,
Guðmundur Á. Bang, 'nam
fyrst fiskirækt í Danmörku i
eitt ár, réðist síðan til starfa
við tilraunastöðina í Kolla-
firði og hefur síðan í vor unn-
ið við Norrfors Fiskodling,
eina fullkomnustu tilrauna-
stöð Svíþjóðar. Hér fer á eftir
kafli úr bréfi heim til íslands
frá Guðmundi:
Norrfors Fiskodling er á
svipaðri breiddargráðu og
suðurhluti íslands. Fiskirækt-
arstöð þessi er um 15 km. frá
háskólabænum Umeá, sem er
ein helzta borg í Vesterbotten
í Norður-Svíþjóð.
Hér var fyrst byggð klak-
stöð árið 1945 og var hún
stærsta laxaklakstöð í Evr-
ópu. Stöðinni var síðar breytt
í nýtízku fiskiræktarstöð, sem
tók til starfa 1960 og er því
ein af nýjustu og fullkomn-
ustu slíkum stöðvum í Sví-
þjóð.
Aðaláherzlan er lögð á
laxaklak og eldi á sjóbirtingi
Norrfors Fiskodling-tilraunastöðin.
(Jr klakstöðinni
og öðrum fisktegundum, sem
lifa í fersku vatni að ein-
hverju eða öllu leyti. Sjóeldi
kemur ekki til greina.
Margskonar tilraunir eru
gerðar hér með fóðrun seið-
anna og nákvæmlega fylgzt
með árangrinum. Árið 1960
unnu hér 7 manns við hin
daglegu störf, en nú aðeins
5, því stefnt er að því með
aukinni tækni, að færra fólk
þurfi til starfseminnar og
lækka þannig reksturskostn-
að stöðvarinnar.
Fólkið hér um slóðir virðist
mér fremur hæggert, duglegt
og iðjusamt, vel menntað og
fylgist vel með. Það er þægi-
legt í allri framkomu og mjög
gestrisið. Veðurfar er ólíkt
íslenzku veðráttunni, þar sem
hér gætir verulega megin-
landsloftslags, og munur
sumars og vetrar því miklu
meiri. í ár voraði seint og
fyrri hluti sumarsins var
fremur kaldur. Er líða tók á
sumar komst hitinn upp í 24
stig í forsælu á daginn, en oft
kólnaði verulega með kvöld-
inu. Að vetri til er mér sagt
að frost fari stundum upp í
30 stig.
Ekki er víðsýnt hér á ís-
lenzkan mælikvarða, því
hvorki sér til fjalla né sjávar.
Þó er náttúrufegurð mikil,
allt þakið ljósgrænum ökrum,
dölum og hæðadrögum. í
kring vex sígrænn barrskóg-
urinn, sem ber við bláan him-
in. Stöðuvötn og vatnsmiklar
ár marka tilkomumikinn per-
sónuleika í andlit landsins.
Guðmundur Bang.
Laxeldi
Þrær fyllast á
Austfjörðum
Ekkert lát á síldveiðunum
Vopnaflrði 17. okt.
S.l. þrjá sólarhringa hafa eft-
lrtalin 17 skip komið til Vopna-
fjarðar með 20,414 mál af síld.
Skipin eru Loftur Baldvinsson
- ÚTVARPIÐ
Framhald af bls 8.
fram margs konar fróðleikur.
Loftleiðir var formlega stofn-
eett 10. marz 1944. Annaðist fyrst
innanlandsflug, en 1946 keypti
það fyrstu millilandaflugvélina.
Síðar lét það Flugfélagi íslands
eftir innanlandsflugið, en gaf sig
eingöngu við flugi út og utan.
1952 hóf það reglubundnar ferð-
ir til Ameríku og Evrópu.
Nú er Loftleiðir orðið eitt vold
ugasta hlutafé-
lag landsins. Vel
gengni þess bygg
ist mikið á góðri
sætanýtingu, en
hún stafar aftur
af hinum tiltölu
lega lágu far-
gjöldum félags-
ins. Það sem ger
ir félaginu kleift
Sigurður að halda fargjöld
Magnusson. unum niðri, er
hinsvegar eink-
nm þaS, að flugvélar þess eru
ódýrari en hinar hraðskreiðu þot
ur SAS.
Sigurður vildi ekki trúa öðru
en ágreiningurinn vð S.A.S. jafn
aðist. Þetta væri í rauninni smá
mál í efnahagslegu tilliti fyíir
svo voldug samtök og sennilega
að mestu orðið þeim eins konar
metnaðarmál. Við skulum vona,
eð honum verði að trú sinni um
friðsamlega lausn.
Sveinn Kristinsson.
972 mál, Ásbjörn 1060, Bjarmi
II 1496, Viðey 1262, Sigurður
Bjarnason 1606, Náttfari 996,
Oddgeir 968, Súlan 902, . Ingiber
Ólafssort 1622, Faxi 1160, Ólaf-
ur Tryggvason 876, Elliði 1000,
Bergur 1058, Grótta 1536, Eldey
1142, Sólrún 1330, Loftur 3aldv-
insson 1428.
Þrær eru nú fuHar, en vinnsla
hófst á síldarbræðslunni á há-
degi í gær. Sigurvon frá Akra-
nesi kom hingað í morgun með
1700 mál, og fór sú síld í það
hólfið, sem losnaði í morgun.
Verksmiðjan hefur tekið á móti •
240,000 máium af síld í sumar.
Árið 1961 voru brædd hér rúm
230,000 mál, sem er það mesta,
sem áður hefur fengizt. — Veð-
ur er hér gott, logn og sólskin,
og skipin eru nú farin að sigla
norður til Raufarhafnar með síld
ina, þar sem allt er orðið fullt
hér eystra.
1 gær átti ég tal við einn
síldarskipstjóranna, og innti
hann eftir því hvort ekki mundu
þeir veiða alla síldina í sjónum
með hinni nýju tækni. Hann
svaraði því til, að síldanmagnið
á miðunum væri svo gífurlegt,
að ekki væri hægt að ímynda
sér það. Ennfremur sagði hann
að ef Rússarnir væru ekki á
þessu svæði, væri alveg sérstak-
lega auðvelt og skemmtilegt að
ausa síldinni upp.
— Sigurjón
Höfrungur II.
AKRANESI, 20. okt. — 1000
tunnur síldar bárust hér á land
í dag. Aflahæstur var Höfrungur
II. með 350 tunnur, Sólfari 250,
Anna 250 og Haraldur 150 tunn-
ur. Höfrungur I. fór út á veiðar
fyrir hádegi í dag, og er að hefja
veiðar með ýsunót.
Johnson harmar árásir
Goldwaters á Kennedy
Louisville, Kentucky, 10. okt.
NTB
Lyndon B. Johnson, Banda-
ríkjaforseti, hélt ræðu á koisn-
ingafundi í Louisiana í gær-
kveldi og lét þar meðal annars
í ljós hryggð sína og furðu yf-
ir þeim ummælum andstæðings
hans, að John F. Kennedy for-
seti hefði notað sér Kúbudeil-
una haustið 1962 í flokkspólitisk
um tilgangi. Ekki nefndi hann
nafn Barry Goldwaters, enda
var þess ekki þörf, því að mönn-
um var enn í fersku minni, er
hann í síðnsta mánuði sagði í
kosningaræ/Ju, að Kennedy hefði
miffiað hámark Kúbudeilunnar
við, að hún hefði sem mest á-
hrif á fulltrúa deildarkosning-
anna, seir. fram áttu að fara
nokkru síðar.
— „Ég er bæði hryggur og
furðu lostinn yfir þessu,“ sagði
Johnson — og bætti við — „og
sá, sem viðhetfur slíka staðhæf-
ingu nú, er Kennedy getur
ekki lengur borið hönd fyrir
höfuð sér, kveður upp með henni
dóm yfir sjálfum sér, sem öil-
um ætti að vera ljós,“
Tugþúsundir manna voru á
götum úti í Louisville meðan
Johnson ók um borgina. Þaðan
hélt hann förinni áfram til Nash
ville í Tennesee og einnig þar
fagnaði honum mikill mann-
fjöldi. Létu aðstoðarmenn John
sons í ljós ánægju yfir þeim við-
tökum, sem hann hefur fengið
í Suðurríkjunum — en þar var
talið líklegast, að menn sner-
ust gegn honum vegna afstöð-
unnar í kynþáttamálunum.
Johnson er nú á sex daga
ferðalagi og hyggst sækja heim
ellefu ríki. í öllum ræðum sín-
um hetfur hann gagnrýnt Barry
Goldwater framibjóðanda repu-
blikana harðlega — og lagt á-
herzlu á, að Bandaríkjamenn
eigi nú fyrir höndum að velja
á milli ábyrgðarleysis í utan-
ríkismálum og ábyrgrar raun-
sæsisstefnu.
Á Á ★
Goldwater hélt kosnirugaræðu
í Los Angéies í Californiu í gær
og sakaði Johnson um að tefla
djartft í sam&kiptunum við So-
vétríkin. — Stærsta hersýning,
sem haldin hefur verið frá þvi
á valdatíma Hitlers í Þýzkalandi
sagði hann m.a., var fyrir
nokkru haldin í Áustur-Þýzka-
landi — hún benti svo sannar-
lega ekki til þess, að kommú-
nistar myndu linast í sókninni"
— og hann bætti við — „við
mættum minnast þess, að kommú
snistaþjóðirnar hafa lýst þvi yf-
ir, að þær ætli sér að standa yf-
ir hötfuðsvörðum okkar. Gold-
water gagnrýndi harðlega við-
skiptin við Sovétríkin — sagði,
að Bandaríkjamenn væru hinir
hörðustu viðfangs í öllum við-
skiptum, nema við fjandmenn.
sína — þeim gæf-u þeir allt, sem
þeir óskuðu eftir.
★ ★ ★
Skoðanakannanir benda til þass,
að fylgi Johnsons forseta fari
vaxandi meðal Bandarúlkja-
manna. Samkvæmt síðustu Gall-
upskoðanakönnun hetfur John-
son nú 62% fylgi en Goldwater
32%. Áreiðanlegar heimildir, tfor
setanum nákomnar, herma að
hann sé sjálfur þeirrar skoðun-
ar, að fylgi Goldwaters eigi eft-
ir að aukast, — og muni úrslit
kosninganna líklega þau, að
hann vinni með 55% en Gold-
water fái 45%
„New York, Times“ skrifar, að
samkrvæmt skoðanakönnunum
Republikana-flokksins sjálfs,
hatfi fylgi Goldwaters aukizt úr
31% í 37% síðustu daga. Hins-
vegar segir blaðið, að hvergi
nema í bækistöðvum Gold-
waters sé að finna tölur er
bendi til sigurs hans.
OSTA- OG SMJORSALAN s.f.
smior
vr
A BRAUÐID