Morgunblaðið - 22.10.1964, Síða 26
26
MORCUNBLAÐIÐ
Fimmtudagur 22. okt. 1964
Vann maraþonhlaupið
í annað sinn í röð
ABEKE Bikila einn i foringja-
Uði Eþiópíukeisara vann það af-
rek fyrstur manna að vinna gull
verðlaun í Maraþonhiaupi á
tveim Ol-leikjum í roð. Og hann
gerði reyndar meira. Hann hljóp
vegalengdina 42.195 m á styttri
tíma en sögur fara af að nokkur
annar hafi gert það þó engin
hlaupaleið Maraþonhlaups sé
sambærileg vegna mismunandi
brauta. Hann tók forystu er um
10 km voru af hlaupinu og hélt
henni eftir það. Hann kom í
mark rúmlega 4 minútum á und
an naesta manni.
4 MÍN. Á UNDAN
Bikila var fagnað af meira
en milljón manns er hann
hljóp fyrstu Maraþonhlaupara
um skrúðgarða og útgötur
Tokíóborgar. Hann var langt
á undan, meira en 4 mínútur
á undan næsta manni er hann
hljóp inn á leikvanginn til að
Ijúka síðustu 130 metrum
. hlaupsins. Þar fékk hann verð
skuldað lof.
Næstur iqn á völlinn var
Japaninn og þá var eins og
áhorfendaskarinn fengi raf-
lost, svo mjög var fagn-
að. En iitlu síðar birtist Bret-
inn Hentley og var svo hress
og kátur að hann munaði ekki
um það að draga siðasta keppi
nautinn uppi og koma í mark
sem silfurhafi. Japaninn varð
þrátt fyrir það að vera sviptur
siifri og frá „aðeins” brons
frammi fyrir augum 80 þúsund
áhorfenda, þjóðhetja. Hann
var eini Japaninn sem hafði
hlotið verðlaun í frjálsíþrótta
keppni leikanna — og það í
síðustu greininni.
Körfuknutt-
leikur í kvöld
uð Húlogulundi
f KVÖLD kl. 20.15 fer fram
annar leikurinn um bikarinn
sem reykviska úrvalsliðið í
körfuknattleik ag Bandaríkja-
menn í varnarliðinu keppa
um og íslendingar unnu í
fyrra. Fyrsti leikurinn var á
Keflavíkurvelli og unnu ís-
lendingar óvænt með allmikl-
ura mun.
Nú teflir Beykjavík fram
landsliðsmönnunum sem fara
í Ameríkuíörina í desember
og má ætla að þarna verði um
mjög skemmtilegan leik að
ræða enda hafa þessir ísl.
piltar æft vel upp á síðkastið.
A undan leiknum fer fram
keppni unglingaúrvals Rvíkur
og yngri gegn skólaliði sunn-
an af KeflavíkurvellL
Veðrið var grátt og suddarign-
ing er keppni hófst í Tókíó á
míðvikudag, síðasta keppnisdag
í frjólsum íþróttum. 65 keppend-
ur voru mættir til Maraþon-
hlaupsins, hinnar klassiskustu
greinar af öllum sem í er keppt
á Ol-leikjum. Eins og vant er
var brunað af stað með miklum
hraða eins og markið væri
skammt undan. En mörgum sem
ætluðu sér að ná í gott „pláss“ í
byrjún varð það ljóst síðar meir
í hlaupinu að „kapp er bezt með
fðrsjá“ og nóg pláss er fyrir 65
menn á 42.195 m leið.
Úrslit:
Ol.meistari:
A. Bikila Epíópíu 2:12.11.2
- Bezti tími heims og Ol-leika
2. Heatley England 2:16.19.2
3. Tsuburaya Japan 2:16.22.8
4. Kilby England 2:17.02.4
5. Sueto Ungverjal. 2:17.55.8
6. Edelen Bandar. 2:18.12.4
7. van Driessche Belgíu 2:18.42.6
8. Kimihara Japan 2:19.49.0
9. Clarke Ástraliu 2:20.26.8
10. Wolde Eþíópíu 2:21.25.2
ítalir hjóla
mjög vel
ÞEIR féllust í faðma og kysst-
ust oft og innilega ítalirnir tveir
sem í gær sigruðu í tvímennings
hjólreiðakeppni á OL í Tókíó.
Sigurinn kom ekki á óvart, því
þeir höfðu unnið undanrásir og
undanúrslit.
í fjórmenningshjólreiðakeppni
(þ.e. 4 á einu hjóli) unnu Þjóð-
verjar og unnu ítali, sem þóttu
sigurstranglegastir.
Að þessu loknu hafa .ítalir
unnið tvenn gullverðlaun og alla
silfurpeningana fimm í hjólreið-
um á hjólreiðabraut
Bretinn Heatiey „stal“ silfur-
verðlaunum í maraþonhiaupi
af Japananum eftir að inn á
leikvanginn kom. ,
Ungverjor unnu
4. gullið í
skylmingum
UNGVERJAR unnu fjórðu gull-
verðlaun í skylmingum er lands
sveit þeirra vann sigur í skylm-
ingum með korðum. ítalir fengu
silfrið og Frakkar brons.
Ungverjar hafa með þessum
sigri unnið 4 af 5 skylminga-
greinum og þess er vænzt að
þeir vinni hið fimmta á föstudag.
ítalir hafa lengi haft yfirburði
í korðaskylmingum, en voru eins
og skuggi af sjálfum sér er þeir
mættu Ungverjum.
Mbl. fékk þessa mynd símsenda frá Tokíó í gær. Hún sýnir er
Eþiópíurnaðurinn Abeke Bikila slítur snúruna í maraþonhlaup-
inu rúmlega 4 mínútum á undan næsta manni. Hann vann lika
gull í Róm og er eini maðurinn, sem hefur unnið gull i þessari
greín tvo Ól-Ieika í röð. Enginn hefur heldur hlaupið vega-
lengdina, 42 km 195 m á skemmri tíma en hann í þetta sinn
eða rúmlega 4 klst. og 12 mín.
Ætla að sigra í Mexico
* sagði Bikila eftcr l\iaraþortsigurinn
HINN 32 ára gamli lífvörð-
ur Haile Selassies Abbesíukeis
ara, blés vart úr nös er
hann hafði sigra'ð í Maraþon-
hlaupinu. „Ég gæti hlaupið 10
km í viðbót á sama hraða"
sagði hann, er hann kom í
mark.
Eftir sigurinn talaði hann
við blaðamenn með hjálp
túlka. Þá sagði hann m.a.
„Þegar ég sá við „helminga
markið“ í hlaupinu (21 km
markið) hvexsu langt ég var á
undan, var ég viss um áð ég
myndi sigra. Hann sagði einn
ig að eini maðurinn sem hann
hefði óttast væri Rihadi írá
Marókikó sem varð annar á
Rómarleikjunum. „Þegar ég
vissi að hann yrði ekki með
nú, þá öðlaðist ég vissuna um
sigur í annað sinn.
Hann var spurður um af
hverju hann hef’ði hlaupið
berfættur í Róm og hann svar
aði:
„Til þess að verða frægur"
en bætti við. „Ég var heldur
alls ekki vanur að hlaupa á
skóm. En núna vil ég heldur
hlaupa á skóm.“
Hann var spurður um
keppinautana m.a. Clarke
heimsmethafa í 10 km hlaupi
sem hafði forystuna framan
af og svaraði: „Ég sá hann
hlaupa í 10 km hlaupinu og
sá hlaupalag hans. Ég veitti
honum enga sérstaka athygli
í Maraþonhlaupinu. En Japan
inn sem kom inn á leikvang-
inn á eftir mér þó hann væri
þar sigraður af Heatley er
góður hlauparL
„En ég vona að mér takist
að verja minn Qlympíutitil í
Maraþonhlaupi einnig í Mexi-
co. Það er takmarki'ð nú, sagði
Bikila sem einn manna hefur
sigrað í þessu hlaupi tvo 04-
leika í röð.
Tveir fóru 2,18 m. í fyrstu
tilraun en fyrra fall réö
Fimm tíma barátta í hástökki
buk með sigri heimsmeistaraxis
HÁSTÖKKSKEPPNIN í Tókíó
var afar hörð og gat raunar eng-
inn borið af öðrum til að hljóta
gullið. Einasti munurinn á tveim
ur fyrstu var sá, að Brummel frá
Sovétríkjunum fór 2,16 í 1. til-
raun en Thomas frá Bandaríkj-
unum í 2. tilraun. Báðir fóru 2,18
í fyrstu tilraun — en mismunur
inn á hæðinni 2,16 réði úrslit-
um. Þess var vænzt að heimsmet
hafinn Brummel myndi fá harða
keppni — en að hún yrði slík,
kom öllum á óvart. Það virðist,
sem að Thomas fyrrum heims-
methafi sé að harðna í keppni
— enn ekki siður kom það á
óvart, að landin hans, Rambo,
Keppni stóð í 5 klst. Byrjað
var á 1,90 og allir komust yfir
skyldi hreppa bronsverðlaun.
— auk þess sem margir slepptu.
Þegar á 1,95 byrjuðu erfiðleikar
sumra.
17 reyndu við 2,09 — en þá
hófst mannfallið fyrir alvöru.
Meðal þeirra, sem féllu úr keppn
inni var Pólverjinn Czernik og
Ástralíumaðurinn Sneazwell og
Skvortsov Sovétríkjunum. Czer-
nik gerði án efa taktiska skyssu.
Hann felldi 2,06 í fyrstu tilraun
og í stað þess að reyna aftur
sleppti hann — og átti þá ekki
nema tvær tilraunir við næstu
hæð 2,09. Pólverjinn hefur tví-
vegis í ár stokkið 2,20 metra og
var spáð verðlaunum samkvæmt
þvL
-- XXX ---
Svíarnir komu þægilega á ó-
vart vegna öryggis. Báðir fóru
2,06 og 2,09 í fyrstu tilraun og
það bjargaði báðum til stiga (6
manna).
Einu sem fóru 2,12 í fyrstu
tiiraun, voru Brummel og Shav-
lankadse.
Á 2,14 voru 5 menn eftir.
Fyrstur yfir frór Rambo USA
öllum á óvart. Síðan fór Svíinn
Pettersson einnig í fyrstu um-
ferð. Það ótrúlega lá í loftinu —
en allir hinir fóru yfir í næstu
tilraunum.
-- XXX ----
Á 2,16 skildust verðlaunamenn
irnir úr. Brummel fór yfir I
fyrstu tilraun en Thomas í ann-
arri. Hambo fór yfir í 3. tilraun.
Brummel og Thomas fóru yfir
2,18 í 3. tilraun. Hvorugur átti
möguleika á 2,20 m. Og fall
Thomasar í fyrstu tilraun á 2,lí
gerði út um gullið.
Úrslit:
Ol.meist.
V. Brummel Sovétríkin 2,1»
2. J. Thomas Bandaríkin 2,18
3. J. Rambo Bandaríkin 2,16
4. S. Petterson Svíþjóð 2,14
5. R. Shavlakadse Sovét. 2,14
6. Kjell Nilsson Svíþjóð 2,09
7. R. Drecoll Þýzkalandi 2,09
Framhald á bls. 8