Morgunblaðið - 06.11.1964, Side 12
12
MORCUNBLAÐIÐ
Fðstudagur 6. nóv. 1964
Útgefandi: Hf. Árvakur, Reykjavík.
Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson.
Ritstjórar: Sigurður Bjarnason frá.Vigur
Matthias Johannessen.
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson.
Útbreiðslustjóri: Sverrir Þórðarson.
Ritstjórn: Aðalstræti 6.
Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480.
Áskriftargjald kr. 90.00 á mánuði innanlands.
í lausasölu kr. 5.00 eintakið.
VIÐBRÖGÐIN VIÐ
KOSNINGA ÚRSLIT-
UNUM
Cegja má, að viðbrðgðin við
kosningaúrslitunum í
Bandaríkjunum hafi verið
nokkuð á einn veg. Hvar-
vetna, bæði austantjalds. og
vestan, var því fagnað, að
Johnson forseti skyldi vinna
stórsigur og þannig tryggt, að
utanríkisstefna Bandaríkj-
anna mundi verða svipuð héð-
an í frá og hingað tiL
Óttinn við sigur Goldwat-
ers víða um heim byggðist á
því, að með valdatöku hans
yrði allt í óvissu um utan-
ríkisstefnu Bandaríkjanna.
Stóryrði hans í kosningabar-
áttunni, einkum í sambandi
við utanríkismál, voru líka
þess eðlis, að hann var naum-
ast talinn hæfur forseti
Bandaríkjanna.
Fjöldi bandarískra áhrifa-
manna, sem telja sig íhalds-
menn og aðhyllast margt það,
sem þing repúblikanaflokks-
ins boðaði í innanríkisstjórn-
málum, sýndi þá víðsýni að
snúast gegn Goldwater vegna
hinna ábyrgðarlausu skoðana
hans og sleggjudóma, og öfl-
ug bandarísk blöð, sem talin
hafa verið íhaldssöm, börð-
ust gegn kosningu hans.
Bandaríska þjóðin gerði
sér grein fyrir forystuhlut-
verki sínu í alþjóðastjórn-
málum. Menn sáu að óverj-
andi var að taka þá áhættu,
sem samfara var vali Gold-
waters í forsetaembætti og
þess vegna fylktu þeir sér um
Johnson.
Almennt telja menn ekki,
að Lyndon B. Johnson verði
talinn meðal merkustu for-,
seta Bandaríkjanna, en hann
er farsæll stjórnmálamaður,
og menn gerðu sér réttilega
grein fyrir því að með kjöri
hans væri ekki tekin sú á-
hætta, sem Bandaríkjamenn
mega ekki leyfa sér.
BARNASKAPUR
Tiyfenn minnast þess, að fyrir
nokkrum árum tóku
Framsóknarmenn upp á því
að reyna að tileinka sér
Kénnedy Bandaríkjaforseta.
Sögðu þeir að stefna Fram-
sóknarflokksins væri nánast
hin sama og hann hefði mark-
að o.s.frv. Gerðu menn að
vonum að þessu góðlátlegt
grín og Framsóknarforingj-
arnir sáu sjálfir að þetta var
heldur broslegt og létu af til-
tækinu.
En fleiri eru nú orðnir
barnalegir en foringjar Fram-
sóknarflokksins. Þannig gef-
ur að líta í ritstjórnargrein
Alþýðublaðsins í gær, að
Johnson Bandaríkjaforseti sé
maður, sem fari „braut hóf-
legrar jafnaðarstefnu í flest-
um innanríkismálum“.
Naumast þarf að eyða að
því orðum, að báðir hinir
bandarísku stjórnmálaflokkar
eru borgaraflokkar, sem af-
neita sósíalisma, enda hefur
jafnaðarstefna aldrei fest ræt
ur í bandarískum stjórnmál-
um, þótt margar tilraunir
hafi verið gerðar til að boða
hana í því ríki sem öðrum.
Út af fyrir sig má segja að
menn geti látið sér í léttu
rúmi liggja, þótt Alþýðublað-
ið gamni sér við að ímynda
sér að sósíalistar eigi andlegt
samneyti með bandarískum
stjórnmálaleiðtogum. Menn
brosa bara að barnaskapn-
um.
Á hinu er rétt að vekja at-
hygli, að ritstjóri Alþýðu-
blaðsins, sem jafnframt er
formaður útvarpsráðs, um-
gekkst hlutleysisreglur út-
varpsins á þann veg, er hann
tók saman þátt um banda-
rísku kosningarnar, að láta
að því liggja, að Johnson for-
seti væri vinstri maður og
stefna hans „lýðræðislegur
sósíalismi“.
Naumast trúir Benedikt
Gröndal, ritstjóri, sem hefur
talsverð kynni af Bandaríkj-
unum, slíkri fásinnu. Þess
vegna hefði hann líka sem
formaður útvarpsráðs átt að
varast að falla í þá gryfju að
halda þessu fram.
PÓLITÍSKUR
DAUÐADÓMUR
k næstu vikum og mánuð-
um má gera ráð fyrir að
umræður um væntanlegar
stórvirkjanir og stóriðjufram-
kvæmdir hér á landi fari vax-
andi, enda kemur senn að
því að íslendingar taki ákvarð
anir um framkvæmdir á
þessu sviði. Eru umræður
raunar þegar hafnar á Al-
þingi, þar sem Framsóknar-
menn flytja tillögur um það
að stjórnarandstæðingum,
þar á meðal kommúnistum,
sé gerð glögg grein fyrir þess-
um málum og samráð við þá
haft.
Kommúnistar hafa lýst sig
andstæða stóriðjufram-
kvæmdum og raunar upplýst,
að tilboð þeirra um „gaffal-
iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiillllillillilliiiiillllllillllllllllllliliiiiiiMiiíiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimii
I 3
Skýrsla um mis-
ferli Krúsieffs
NEW Tork Herald Tribune
skýrffi nýlega frá því, aS nú
sé verið að koma í umferð í
Sovétríkjunum skýrslu um
sannleikann bak við valda-
afsal Nikita S. Krúsjeffs.
Skýrslan, sem er í 29 atrið-
um, ákærir Krúsjeff um ein-
ræði, frændsemisfylgi og að
hafa komið af stað kreppu-
ástandi í sovézkum landbún-
aðarmálum svo að eitthvað sé
nefnt.
Við lestur hinnar 40 síðna
skýrslu um hina svonefndu
glæpi Krúsjeffs vaknar með
manni mynd af rustalegum,
fyrirferðarmiklum og sjálfs-
elskufullum manni. Hann er
jafnvel ásakaður um að hafa
reynt að troða konu sinni,
Nína Krúsjeff
Nínu inn í virðingarstöður.
Þær heimildir, sem blaðið
segist hafa um skýrslu þessa
virðist benda til þess að gallar
Krúsjeffs séu ýmsir og þeir
helztu þessir: ófullkomleiki
persónunnar, frændsemisfylgi,
sjálfsdýrkun, mistök í milli-
ríkjaviðskiptum, mistök í fjár-
málum og misferli í sambandi
við stjóm flokksins.
Sú ásökun, að Krúsjeff hafi
verið frændsemisfylginn á
ekki aðeins við um Nínu konu
hans. Er gefið í skyn að hann
hafi látið son sinn fá ýmis
verkfræðistörf, sem hann átti
ekki skilið, og einnig á hann
að hafa komið Rödu, dóttur
sinni í ritstjórnarstarf, sem
hún átti ekki skilið. Hann er
einnig ásakaður um að hafa
notað tengdason sinn, Alexei
Adshubei til ýmissa óleyfi-
legra starfa, svo sem heim-
sókna til Vestur-Þýzkalands
síðastliðið sumar.
Krúsjeff er ásakaður um að
reyna að líkja stöðu forsætis-
ráðherra við hina valdamiklu
aðstöðu forseta Bandaríkj-
anna. Að því er sagt er hefur
hann unnið að því að
„centralisera" stjórn Sovét-
ríkjanna og með því að vinna
að breytingu stjórnarskrár-
innar.
Skýrslan nefnir nokkur af
þeim mistökum, sem Krúsjeff
á að hafa gert í utanríkismál-
um, en hann á að hafa gert
alvarlegar skyssur, bæði í
Kúbumálinu og í Súezmálinu.
Stefna hans í málum varð-
andi Kína hefur verið röng og
Krúsjeff
hefur kostað Kreml missi
stuðnings annarra kommún-
istaflokka, stendur í skjalinu.
Loks eru nefnd nokkur mál
í sambandi við málefni flokks-
ins, sem Krúsjeff hefur látið
til sín taka, og það með litlum
sóma að áliti þeirra, er skýrsl-
una sömdu. Er hann ásakaður
um að hafa rekið nokkra
háttsetta menn og sett í stað
þeirra menn, sem höfðu
hvorki reynslu né hæfileika
til þess að gegna störfum
hinna. Á Krúsjeff að hafa
reynt að ná flokknum undir
sína stjórn í stað þess að
honum yrði stjórnað af
mangra manna stjórn, eins og
eftirmenn hans predika nú.
jiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimmiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiMiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiíiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiu
Valið í þingnefndina,
er fjalla á um handritin
bitasöluna" til Rússa, eins og
Hannibal Valdimarsson komst
að orði, sé sett fram í þeim
tilgangi að reyna að hindra
stórið j uf ramkvæmdir.
Menn reiknuðu ekki með
stuðningi kommúnista við
þessi stórmál fremur en ann-
að, sem til framfara horfir,
en hins vegar mun af athygli
verða fylgzt með afstöðu
Framsóknarflokksins og
hvers einstaks af forystu-
mönnum hans.
Og það verður ekki ein-
ungis í nútíð, sem forvitni-
legt verður talið hverja af-
stöðu menn taka, heldur mun
einnig í framtíðinni verða
litið til þeirra umræðna, sem
nú eru að hefjast, og þá
munu menn og flokkar verða
metnir eftir því, hvort þeir
láta stjórnast af stórhug og
framsýni eða smásálarskap og
þröngsýni.
Stóriðjan kemur, en spurn-
ingin er aðeins um það, hvort
einhverjir stjórnmálamenn
kveða upp yfir sjálfum sér
pólitískan dauðadóm við um-
ræður um hana.
Einkaskeyti til Morgunblaðs
ins frá Kaupmannahöfn,
4. nóvember: —
DANSKA þingið hefur valið 11
menn í nefndina, sem fjalla á
um frumvarpið um afhendingu
handritanna. Af hálfu Sósial-
demól f ata eiga þeir sæti í nefnd
inni Wilhelm Dupont, sem hafði
framsögn um frumvarpið, Peter
Nielsen, framsögumaður flokks-
ins um stjórnmál, Niels Matthia-
sen, flokksritari, Erling Olsen,
háskólakennari, Börge Schmidt,
bókavörður í bókasafni verkalýðs
hreyfingarinnar, Poul Nilsson og
G. Chr. Hougaard. Af hálfu rót-
tækra á fyrrv. menntamálaráð-
herra, Helveg Petersen sæti í
nefndinni.
fhaldsmennirnir í nefndinni
eru allir mótfallnir afhendingu
handritanna. Þeir eru: Poul Möll
er, Edvard Jensen, lýðháskóla-
stjóri, sem við fyrstu umræðu í
þinginu lýsti sig andvígan'afhend
ingunni, og Ellen Strange Peter-
sen, blaðamaður, en hún er gift
prófessor við háskólann í Árós-
um.
Erik Eriksen, formaður Vinstri
flokksins, á sæti í nefndinni og
auk hans af hálfu flokksins,
framsögumaður hans um hand-
ritamálið, Ib Thyregod, Per
Möller, ritstjóri og Börge Did
erichsen, háskólakennari, sem
mælti gegn afhendingu við
fyrstu umræðu. Af hálfu Sósíal
íska þjóðarflokksins á formaður
hans, Aksel Larsen, sæti í nefnd
inni. Formaður nefndarinnar hef
ur ekki verið valinn.
Eessastaðakirkju
færð Guðbrands-
biblía
Á ALDARAFMÆLI Erlends
óðalsbónda Björnssonar á Breiða
bólsstað á Álftanesi, hinn 3. nóv.
afhenti dr. ing. Jón E. Vestdal
og kona hans Bessastaðakirkju
Guðbrandsbiblíu að gjöf. Þetta
eintak er kjörgripur, í góðu
standi, fögru bandi og með
silfurspennum.
Tóku forseti íslands og pró-
fastucinn á móti gjöfinni með
þakklæti og virðingarorðum um
Erlend óðalsbónda.
Auk gefenda voru önnur böra
Erlends viðstödd kirkjuathöfn-
ina, og að henni lokinni var
gengið til stofu á Bessastöðum.