Morgunblaðið - 13.11.1964, Blaðsíða 2
MOfíGU N BLAÐIÐ
Fostudagur 13. náv. 19€4
Hægt er að hindra afhend-
ingu handritanna
- ef timinn er nú notaður til að /ræðo
dönsku þjóðina um málið, segir danskur
þingmaður i grein / Berlingske Tidende
Einkaskeyti til Mbl.
Kaupmannahöfn, 12. nóv.
EINN þingmanna íhaldsflokiks-
ins, Erik Ninn Hansen, lögfræð-
ingur, ritar í dag langa grein
í Berlingske Tidende þar sem
hann ræðir þann möguleika að
efnt verði til þjóðaratkvæða-
greiðsiu í Danmörku vegna hand
ritamálsins. 1 upphafi greinar-
innar slær höfundur eftirtöldu
fösiu um hver örlög handrita-
frumvarpsins muni verða í
danska þinginu: „Svo er helzt
að sjá af meðferð málsins á
fyrstu stigum þess, að drjúgur
meirihluti þingmanna muni
fylkja sér fast um afliending-
una. Andstæðingar afhending-
arinnar eru nokkru fleiri en 1961
að ég hygg, en þessi minnihluti
hefur enga raunverulega mögu-
leika á að hindra samþykkt lag-
anna.“
Ninn Hansen heldur áfram
með því að segja að engu að
síður geti andstaðan gegn af-
hendingu handritanna haft
áhrif á endanlega lausn málsins.
Hann telur einnig, að tími sá,
sem frumvarpið verður til með-
ferðar í þinginu, geti verið þýð-
ingarmikill varðandi málalokin,
ef rétt sé á honum haldið. Hann
bendir á að þeir 60 þingmenn,
sem 1961 óskuðu eftir því að
samþykkt laganna yrði frestað,
hefðu allt að einu getað farið
fram á þjóðaratkivæðagreiðslu
um málið, en þá hafi málið
gengið í gegnum þingið með slík
um hraða, að hindrað hafi öflun
nægra upplýsinga um það.
Ninn Hansen segir og, að frest
unin 1961 hafi frá bæjardyrum
andstæðinga afhendingarinnar
séð verið gerð sökum þess,, að
um eignarnám væri að ræða.
Eignarnámslög sé ekki hægt að
bera undir þjóðaratkvæði en
varðandi þau handrit, sem ekki
koma frá Árnasafni heldur
ríkisskjalasafninu, sé ekki um
Myndvefnaðar-
sýninw í Boga-
salnum
ÁSGERÐUR Búadóttir hefur að
undanförnu sýnt myndvefnað í
Bogasalnum. Hefur verið góð að
sókn að sýningunni og nokkur
teppi hafa selzt.
eignarnám að ræða. Ef þingið
breytti nú afstöðu sinni, og
héidi því fram að um eignar-
námslög væri að ræða, gætu
andstæðingar málsins krafizt
þjóðaratkvæðagreiðslu með til-
liti til þess, að handritagjöfin
sé ekki að öllu leyti eignarnám.
Hansen segir enn: „Formsatriði
þessa máls mega þó ekki vera
afgerandi. Ef með sanngirni má
ætla, að meirihluti þjóðarinnar
sé ekki sammála þingmeirihlut-
anum, hlýtur það einnig ^ð vera
sanngirnismál að efna til svo-
nefndrar leiðbeinandi þjóðarat-
kvæðagreiðslu.“
Ninn Hansen heldur enn
áfram og segir: „Því hefur áður
verið haldið fram að engrar and
spyrnu myndi gæta meðal þjóð-
arinnar varðandi afhendinguna.
Þessu sjónarmiði er m.a. fram
haldið af nefnd, sem skipuð var
í handritamálið 16. september
1957. Nefndin, sem á sér stuðn-
ingsmenn í röðum lýðháskóla-
manna, sendi 15. maí 1961 álit
til þingnefndarinnar, sem um
málið fjallaði. í álitinu, sem
undirritað var af Bent A. Koch,
ritstjóra og formanni nefndar-
innar, sagði m. a. svo: „Nefndin
telur sig sannfærða um, að ef
frá eru taldir einstakir þjóð-
ernissinnahópar og þröngur
hópur háskólamanna, muni
meðal dönsku þjóðarinnar ríkja
almennur skilningur á því, að
ísland fái nú handrit sín og þar
með endanlega viðurkenningu á
menningarlegu og stjórnmála-
legu sjálfstæðis landsins.“
Um þetta segir Hansen: „Bæði
að efni og útliti er þetta nefnd-
arálit ögrun við alla andstæð-
inga afhendingarinnar. Spurn-
ingin er nú aðeins sú, hvort and-
Ásgerður Búadóttir
Sýningunni lýkur nú um helg-
ina eða á sunnudagskvöld. Hún
er opin daglega frá kl. 2 til 10
síðdegis.
Ólofur Friðriks-
son latinn
ÓLAFUR Friðriksson, fyrrum
ritstjóri, lézt í sjúkrahúsi í fyrri-
nótt. Hann var fæddur á Eski-
firði 1886 og því 78 ára gamall
er hann lézt. Foreldrar hans
voru Friðrik Möller, póstmeistari
og Ragnheiður Jónsdóttir. Ólafur
var gagnfræðingur frá Akureyri
1903 og dvaldist við framhalds-
nám og ritstörf í Kaupmanna-
höfn 1906 til 1914. Ólafur tók
mikinn þátt í opinberum mál-
um, var forgöngumaður um stofn
un Alþýðuflokksins og Alþýðu-
sambandsins á sínum tíma og
ritstjóri Alþýðublaðsins um
skeið. Ólafur ritaði mikið um
æfina, auk greina í blöð og tíma-
rit skrifaði hann skáldsögur og
fékkst í tómstundum við nátt-
úrufræðiathuganir og gróðurtil-
raunir.
stæðingarnir geta vísað mati
Kochs ritstjóra á þjóðarviljan-
.um til föðurhúsanna og ryðja
þar með brautina til þjóðarat-
kvæðagreiðslu. Öll líkindi eru
á, að málalok verði þau, að hand
ritin verði afhent, ef þeir aðilar,
sem vilja að þau verði áfram
hér í landinu haida að sér hönd-
um. En það er hægt að hindra
að handritin verði afhent ef tím
inn verður nú notaður til þess
að upplýsa»fólkið. Hverjir vilja
taka það starf að sér? í hverjum
kaupstað og hverri sýslu er
hópur áhugasamra samborgara,
sem munu nota þennan vetur
til þess að leggja sitt af mörk-
um svo handritin megi verða
hér áfram, og þá um leið sinn
skerf til vísindani^a. Vilja menn
ekki nota þetta einstæða tæki-
færi til að skapa beint samband
milli þjóðarinnar og húmaní-
tískra vísinda í Danmörku?
Handritamálið getur orðið upp-
hafið að umfangsmiklum menn-
ingarframgangi og þjóðar-
fræðslu í þess orðs fyllstu merk-
ingu. Jafnframt mundi vinnast
endurnýjun á hinni stjórnmáia-
legu starfsemi, og þjóðaratkvæð-
ið mundi skipa þann sess; sem
margir okkar óska að það geri.“
— Rytgaard.
Thor Thors, Kristján Albertsson og Sigurður Bjarnason á þingi
S. Þ.
Kristján Albertsson talar
á hádegisfundi Varðbergs
NÆSTI hádegisfundur „Varð-
bergs“, fé ags ungra áhuga-
manna um vestræna samvinnu,
verður haldinn á laiugardaginn
kemur, 14. nóvember, í Þjóðleik
húskjallaranum og hefst hann
kl. 12.30.
Á fundinum mun Kristján
Albertsson rithöfundur flytja
ræðu og drepa þar á ýmsa þætti
alþjóðamála, en hann hefur sem
50. jólamerki Thor-
valdsenlélagíSMns
JÓLAMERKI Thorvaldsensfélags
ins er komið á markaðinn, en
félagið gefux ið venju út jóla-
merki til að
setja á jólapóst
inn, eins og það
hefur gert síðan
árið 1913. Þetta
er 50. jólamerk
ið, því árið 1917
týndist jóla-
merkjasending-
in í hafi af völd
um stríðsins, og
kom það merki því aldrei út. —
Merkið í ár teiknaði Eggert Guð
mundsson, listmálari. Það er
prentað með neonlitum, grunn-
urinn blár, og hægt að velja um
tvo bláa liti. Á honum er gylt
jólastjarna með áletruninni
„Friður á jörðu“ og 1964, og auk
þess eru á merkinu mynd af
kerti og fleiri áletranir: Jól, ís-
land og Barnauppeldissjóður
Thorvaldsensfélagsins. Er merkið
hið smekklegasta. Það er selt í
bókabúðum, pósthúsum og á
Thorvaldsensbazarnum.
Ágóðinn rennur að venju til
Barnauppeldissjóðs félagsins,
sem beitir sér fyrir ýmsum líkn'
arstörfum í þágu barna og er
þess skemmst að minnast að sjóð
urinn afhenti Reykjavíkurborg
vöggustofuna.
Blástursaðferð I Gagn-
fræðaskóla Akureyrar
Lionsklúbbur gefur æfingabrúðu
AKUREYRI, 12. nóv. — Lions-
klúbbur Akureyrar hefur gefið
Gagnfræðaskólanum á Akureyri
afar fullkomna brúðu til notk-
unar við kennslu í blástursað-
ferð við lífgun úr dauðadái. For
maður klúbbsins. Þórður Gunn-
arsson, forstjóri, afhenti gjöfina
á hádegisverðafundi í Sjálfstæð
ishúsinu í dag, en skólastjóri
veitti henni viðtöku og mælti
nokkur þakkarorð.
Er ætlunin að taka upp í skól-
anum kerfisbundna kennslu í
blástursaðferð, þannig að allir
nemendur, sem ljúka skyldu-
námi hljóti fræðslu og þjálfun
með hjálp brúðunnar. Auk þess
fái a.m.k. verðandi gagnfræðing-
írar greiða
helming tollsins
fyrir iðnaðinn
Dublin, 12. nóv. — (NTB)
írska stjórnin hefur ákveðið að
grípa til gagnráðstafana vegna
15% innflutningstollsins, sem
brezka stjórnin hefur ákveðið á
öllum innflutningi til Bretlands
að matvælum undanskildum. —
írska stjórnin hefur tilkynnt að
þess í stað muni hún greiða sem
svarar helmingi tollsins fyrir
írska iðnaðinn.
ar slíka þjálfun ár hvert.
— _ St. Eir.
kunmugt er haft náin afskipti af
þeim málum unj langit sikeið,
m.a. átt sæti í sendinefnd ís-
lands á allsiherjarþimgi Sartieiri-
uðu þjóðanna. Hann var einnig
á sínum tíma skipaður í nefnd,
sem stai'faði á vegum Sameín-
uðu þjóðanna að því að kanna
möguleikana á samieininigu
Þýzkaiands. Mun Krisitján rifja
upp ýmislegt það, sem gerzt he£
ur á sviði alþjóðastjórmmáLa og
-menningarmála á þeim lainiga
ferli, seim hann heifur fylgzt með
gangi þeira mála.
Auk félag'smannia í „Varð-
bergi“ gefst meðlirmum í „Sam-
tökum um vestræna sarmvimnu“
kostur á að taka þátt í fundinunu
Þetta er annar hádegisfundar
inn, seim „Varðberg" í Reykja-
vík efnir til á þessum vetri, en
slíkir fundir eru faistur liður í
starfsemi félagsins.
MMMIMMMMMIMIMMMMMMMI..MMIMMMMMMMMMM.,,i Itll
| Eldgos á |
| Kamtsjaka I
j Moskva, 12. nóv. — (AP) _ I
j FRÉTTASTOFAN Tass skýrði f
j frá því í dag að í nótt hefði =
j hafizt mjög kröftugt eldgos í \
j eldfjalli á Kamtsjaka-skaga. j
j Hér er um að ræða eldfjallið |
j Shiveluch. Gosið hófst með 1
j mikilli sprengingu kl. hálf tvö =
j í nótt (ísl. tími) og stóð fyrsta =
j hrinan í 2’/2klst. samfellt. —|
j Miklar jarðhræringar fylgdu |
j gosinu, og í morgun var 4 sm. I
: þykkt öskulag á stóru svæði i
j umhverfis eldfjallið. Strjálbýlt i
j er á Kamtsjaka, og ekki er tal i
j ið að eignum og mannslíf um i
j stafi hætta af gosinu.
UM HÁDEGI í gær var yf
irleitt kyrrt veður hér á
landi, en viða hrímþnika norð
an liands. Ný lægð er að nálg
ast suðvestan af hafi og er
því búizt við vaxandi SA-áfct
og rigningu í dag.
Veðurhorfur kT. 22 í gær-
kvöldi: Suðvesturmið A-kaldi,
eða stinningsikialdi fram eftir
degi á morgun, A-stonmur og
rigning með kvöildinu. Suð-
vesturland til Breiðafjarðax,
Faxaflóamið og Breiðaifj arðar
mið: A- eða NA-kaldi og bjart
viðri, þykknar upp með vax
andi A-átt annað kvöld. Vest
firðir og miðin: Al'lihvasist
NA, snjókoma norðan til.
Norðurland til Austfjarða og
miðin: NA-kaldi, þokulbft og
víða siydda eða rigning. Suð-
austurland og miðin: A-kaldi
og sums staðar skúrir fram
eftir degi, hvasis SA og rign-
ing annað kvöld. Austurdjúp:
NA-kaldi þokuloflt riorðan til,
en SV-stinningsikaldi og sikúr
ir syðst.
Horfur á laugardag: Aiist-
læg átt og skúraveður sunn-
anliands, sennilega hvöisis NA
átt og snjófjoma norðan til á
Veatfjörðum og á anmesjuim
NorðaniLainidis.