Morgunblaðið - 13.11.1964, Page 26
26
MORGUNBLAÐIÐ
Föstudagur 13. nóv. 1964
Æ' jr
ISI efnir til landshappdrætt-
is allur ágóði fer i sölulaun
Ráð til að bæta fjárhag íþrótia-
félaga um allt land
ÍÞRÓTTASAMBAND ÍSI.ANDS hefur hafið Landsihappdrætti þar
sem vinningar eru 3 fólksbifreiðir að verðmæti um hálf millj.
króna. Tilgangur happdrættisins er áð efla hið félagslega starf út
um borg og bý. Hverí. íþróttafélag og hvert ungmennafélag innan
ÍSÍ fær miða til sölu og fyrirkomulag er þannig að íþróttafélögin
fá strax við sölu helming andvirðis miðanna í sölulaun — o^Vneira
síðar ef á daginn kemur að hagnaður af happdrættinu er meiri
en 50%.
Aðfaranótt þriðjudags keppa þeir
Cassius Clay og Sonny Liston um
heimsmeistaratitilinn. Fleiri trúa á
sigur Listons en Clay treystir
á guð og segir:
Happdrætti þetta getur því nú
þegar orðið félögunum, hvort
sem þau eru stór eða smá, og
hvort sem þau starfa í Reykjavík
eða á yztu annesjum til góðs f jár
hagslegs framdráttar og er slíkt
aðeins undir dugnaði við sölu
komið.
ÍSÍ sér um framkvæmd.
XSÍ tekur á sig með fram-
kvæmd happdrættisins mikið um
stang við alla framkvæmd en
Iþróttafélögin geta boði'ð byggð-
arlagsmönnum sínum kost á þátt-
töku í stóru happdrætti, þar er
til mikils að vinna því vinningar
eru tvær bifreiðir af .Oonsul Cor-
tina gerð og ein Wolkswagenbif-
reið allar af árgerð 1965. Dregið
verður 30. des. n.k.
Stjórn ÍSÍ ræddi við frétta-
AJAX á
sunnudag
Forsala hafinn
A SUNNUDAGINN er fyrsti leik
ur Danmerkurmeistaranna frá
Ajax hér. Leikurinn verður í
íþróttahúsinu á Keflavíkurflug-
velli á sunnudaginn og hefst
kl. 4.
Forsala aðgöngumiða að leikn
um er hafin og er hjá Lárusi
Blöndal á Skólavörðustíg og í
Vesturveri; í verzl. Hjólið í Hafn
arfirði og í Keflavík 1 Sundhöll
Keflavíkur. í Sundhöllinni í
Kefiavík stendur forsaian fram
yfir hádegi á sunnudag.
Ferðir verða frá BSÍ á sunnu
daginn kl. 2,30.
menn í gær og gaf svohljóðandi
greinargerð fyrir málinu.
Þrátt fyrir mjög mikinn og
góðan stuðning Ríkisvaldsins vi'ð
íþróttahreyfinguna, á hún mj'ög
í vök að verjast fjárhagslega.
Allt hið fjötþætta íþróttastarf
kostar mikið fé og eigi íþrótta-
samtökin að vera þess umkomin
að taka móti þeim ungmennum,
sem eiga og þurfa að bætast í
raðir íþróttaæskunnar á næst-
unni, þá þarf hún aukið fé til
íþróttastarfsins.
Þess vegria var á fþróttaþingi
Framhald á bls. 27
Ég f lögra sem f ugl og sting sem f luga
AÐFARANÓTT þriðjudags
(ísl. tími) keppa þeir Cassius
Clay og Sonny Liston öðru
sinni um heimsmeistaratitil-
inn í hnefaleikum. Hafa báðir
æft vel og spenningurinn fyrir
leikinn er að ná hámarki. Veð
mál standa 11:9 Liston í hag.
Hið stóra vikulega íþrótta-
blað „Sports Illustrated“ er á
öðru máli og segir: Það verð-
ur án efa Clay sem vinnur og
hann sigrar á rothöggi í 7.—
14. lotu. — Blaðið bætir því
við að einu sigurmöguleikar
Listons felist í að gera út um
leikinn í fyrstu lotunum. Því
lengur sem leikurinn standi,
þeim mun minni verða sigur-
vonir Listons.
Liston hefur æft vel — og
að sögn miklu betur en fyrir
síðasta leik þeirra. Á síðustu
æfingu í gær, lamdi ha'nn þrjá
„æfingamótherja" í gólfið og
áður hafa margir „æfinga-mót
herjar“ hans orðið að fara í
sjúkrahús til aðgerðar vegna
opinna sára og meiðsla er þeir
hlutu undan höggum Listons.
Fréttamenn segja að Liston sé
líkamlega sterkari nú en síð-
ast, en verki heldur hægfara í
athöfnum.
Cassius Clay leggur höfuð-
áherzlu á aukinn hraða. Sjálf-
ur segist hann ætla að fljúga
í hringnum eins og fiðrildi
en stinga eins og býfluga. Og
svo bætir hann við: „Annars
treysti ég á guð — og vona
að hann verði í horninu hjá
mér. Vinni ég, er það guðs
vilji, tapi ég, þá er það líka
hans vilji.“
Cassius Clay hefur heldur
ekki látið af gorti sínu. Þegar
þeir tveir mættust í læknis-
skoðun, þá mætti Clay í sín-
um slopp og hafði bætt á hann
áletrun með stóru letri:
„Bjarnarbani“. Þetta var til að
storka Liston, en Clay hefur
margoft lýst honum sem stór-
um birni.
—O—
Þá vann Torino finnska liðið
Haka með 1—0 í Helsingfors.
Það var fyrri leikur liðanna í
Evrópukeppni bikarmeistara.
Úvenjuleg útborsun
hjá Glasgow Rangers
Fjárupphæðin sem Glasgow
Ranigers greiddi St. Mirrein
fyrir Þórólf Beck, 20 þúsund
pund eða 56 þúsun/d dalir (2V2
millj. ísi. kr) er með þvx
hæsta sena Glas-|xw Rangers
hefur nokkru sinni greitt fyr
ir leikimann, segir í fréíta-
skeyti frá AP til Mbl. — Og
þó er það sMo, að Rangers sem
er nær árlegur „fastur gest-
ur“ 1 Evrópukeppnum meist-
ara- eðia bikarliða kaiupir sára
sjaldan reynda menn frá öðr-
um liðum.
Það gietur svo farið að Þór-
ólfur Beck hljól' eldskim sína
í búningi Glasgow Rangers á
laugardaginn, en þá mætir
Rangiers í mjög mikilvægum
leik í skozku deildinni móti
liðinu sem þar hefur nú for-
ystu, Kilmarrjock.
AP segir að viðræður félag
anna xxim kaup og söíu á Þór-
ólfi hafi steðið síðasta mán-
uðinn. Blaðið hefur eftirfar-
andi eftir Þórólfi Beck: „Ég
hef ekki verið í of góðri þjálf
un það sem axf er þessu
keppnistímabili, en mun án
efa vinna það fljótt upp hjá
Glasgow Rangars.“
Kiinglukosloii
giunaðui um
giæsku
JÚGÓSLAVNESKA frjálsíþrótta
sambandið hefur gripið ti‘l ó-
venjulegra ráðstafana út af ein-
um Olympíukeppenda Júgóslava.
Hefur sambandið fyrirskipað ná-
kvæma rannsókn varðandi afrek
kringlukastarans Daka Rado-
sevic áður en hann var valinn í
Olympíuliðið.
Forsagan er sú að Radosevic
hafði aldrei ná'ð því lágmarki
sem júgóslavneska OL-nefndin
setti eða 57.00 m. Svo gerðist
það 22. sept. að hann var sagður
hafa kastað 58.43 m. — og sett
með því júgóslavneskt met.
Skyndifundi var skotið á hjá
júgóslavnesku OL-nefndinni og
þar ákveðið að senda Radosevic
til Tokíó. í keppnkmi þar kast-
aði hann 52.71 m.
Nú vill sambandi'ð nákvæma
rannsókn á afrekinu 58.43 og er
sérstakt ráð skipað til að komast
til botns í sannleiikanxxm um
það.
Heimslið - England
í kvöld og á mámidagskvöld-
ið gefst Hafnfirðingum kostur á
að sjá knattspymumyndina
frægu sem tekin var af leik
„heimsliðs" og landdiðs Eng-
lendinga 1963. Leikinn unnu
Englendingar með 2 mörkunr.
gegn 1. Lcikurinn var háður í
tilefni af 100 ára afmæli brezka
knattspyrnusambandsins.
Leikur þessi þótti afbragffis-
góður. Að vísu ijorðuðust heims-
liðs menn návígi við hina hörðu
Breta, en nákvæmni sending-
anna og uppbygging leiks er
með snilldar.jv'ip hæstlaunuðu
atvinnumanna heims. Myndin
fýsir þessu vel og er ósvikin
þeim er áhuga hafa á knatt-
spyrnu.
Myndin er sýnd í Hafnarfjarð-
arbíó ofangreinda daga kl. 7.
M0LAR
FRANSKA íþróttablaðið L’
Equipe ræðir um hinn naunxa
sigur Frakka yfir Noregi, 1—0,
með vonbrigðum og áhyggjum.
Blaðið segir að í fyrri hálfleik
hafi lengst af aðeins verið um
það að ræða hve stór franski
sigurinn yrði, en í þeim síðari
hafi franska liðið fallið gersam-
lega og leikur þess verið svo
úrræðalaus að nálgazt hafi
hreina uppgjöf.
SKOZKT úrvalslið vann í gær
Tottenham með 6—2. Leikurinn
fór fram í London til ágóða fyrir
fjölskyldu Tottenham-leikmanns
ins John White sem lét lífið er
eldingu laust niður í júlímán-
uði.
Skozka liðið var eiginlega
landslið að Dennis Law undan-
sköidum sem lék með liði sínu
Manch. Utd. í Borussia.
Peter Snell OL-meistarinn
í 800 og 1500 m og heimsmethafi
í 800 m, 880 yarda hlaupi og
enskri mílu (1609 m) setti
heimsmet í 1000 m hlaupi í gær.
Hljóp hann á 2.16.6 mín. og
bætti eldra met um 1/10 úr sek.
Hann var 15 m á undan næsta
manni. Á þriðjudag reynir
Snell að hæta met sitt í mílu-
hlaupi á sama velli í Auckland.