Morgunblaðið - 18.11.1964, Síða 2

Morgunblaðið - 18.11.1964, Síða 2
2 MORGUNBLAÐID Miðvfkudagur 18. nóv. 1964 Unglingar eyði- leggja Ijósaperur I ÞaS var mokað og ýit klukkutímum saman, en það hafðist að k oma bílunum alla leið. Fjallamenn lentu í skafhríð og ófærð Voru 32 klst. í stað 8 úr Jökulheimum ÁTJÁN röskir fjallamenn, meðlimir í Jöklarannsóknar- félaginu og Flugbjörgunar- sveitinni lentu um helgina í kafhríð inni á öraefum og voru 32 klst. í stað 8 að brjótast á 6 jeppum úr Jökulheirrfum í Tungnaárbotnum og til Reykjavíiaar. Aðallega var veðrið vont á Búðarhálsi, en þar voru þeir 18 klst. að kom ast um 40 km vegakafla. Þeir félagar höfðu farið úr Reykjavík kl. 6 á laugardags- morgun áleiðis í Jökulheima, í þeim tilgangi að skipta um geymi í öðrum snjóbíl Jökla- félagsins og hafa hann tilbú- inn ef á þyrfti að halda í vet- ur, einkum með tilliti til þess að hlaup kann að verða í Grímsvötnum og þá vera þörf fyrir snjóbíl í Vatnajökuls- ferð. Bezta veður var á laug ardaginn, frost og snjólítið og komu þeir í Jökulheima kl. 5 síðdegis. Um það leyti byrj aði að snjóa og hélzt snjókiom an fram á nóttina. Á sunnudagsmorgun var ágætt veður. Þar sem farar- tækin voru jeppar, þurfti að fara yfir Tungnaá á nýju ferj unni og yfir brýrnar á Köldu kvísl og Þórisósi, sem báðar eru svo til nýkomnar. Var haldið sem leið liggur að Þór- isósi, en þá fór veður að versna. Ferðin gekk vel út yfir brúna á Köldukvísl. Úr því var veður slæmt. Skaf- bilur var svo mikill að ekki sá út úr augum og erfitt að finna slóðina eða greina skafl ana fyrr en í þá var komið. Varð að láta menn ganga á undan bílunum, en langt er þarna á milli stikanna, sem varða leiðina, sumar vantar og ekki eru á þeim glitaugu, svo þetta var mjög tafsamt. Voru þeir félagar staddir við Köldukvíslarbrúna um kl. 2 síðdegis, en voru ekl:i komnir að ferjunni á Tungnaá fyrr en kl. 8—3 næsta morgun. Þó er þetta aðeins um 40 km leið. Síðasta spölinn þurfti að draga 2 af 6 jeppunum. Mjög kalt var, a.m.k. 12 stiga frost. f förinni voru rösk ir menn, sem ekki varð um þetta. Þó kól einn á tá, án þess að veita því athygli nægi lega snemma. Við þessa erfiðleika gekk mjög á benzínbirgðir, og voru sumir jepparnir orðnir benz- Kláfferjan á Tungnaá á Haldi, þar sem fjallamenn fóru yfir með jeppa sina sex. — JLjósm. llaukur Hafliðason. inlitlir við Tungná. Fóru þeir Gunnar Guðmundsson á Scout-jeppa sínum og Guð- mundur Jónasson á Landrov er sínum þá niður að Galtalæk og sóttu benzín. Úr því gekk ferðin vel og voru þeir félag ar komnir til Reykjavíkmr um kl. 6 síðdegis á mánudag eftir 32 tíma stanzlausa ferð frá því þeir fóru úr Jökulheim- um. Venjulega eru Jökla- menn sem eiga skálann í Jök- ulheimum um 8 klst. að fara á milli. — Ráðherranefnd Framhald af bls. 1 mikilvægt, að nú væri i fyrsta sinn farið að ræða málið á breið um grundvelli af alvöru og festu. Benti hann á, að síðasta hálfa árið hefði ráðherranefndin fyrst og fremst fjallað um ýmis smá- atriði varðandi vandamálin, en ekki gefið aðalatriðunum nægi- legan gaum. Hann kvaðst hvorki vera bjartsýnn né svartsýnn á árangur viðræðnanna um land- búnaðarmálin. Pisani lagði áherzlu á, að það væri tilgangslaust fyrir Frakka að taka þátt í umræðum um hin smærri deilumál á sviði landbún aðarins, ef V-Þjóðverjar héldu fast við fyrri sjónarmið sín og neituðu að fallast á samræmingu kornverðsins. Ekki væri unnt að forðast stjórnmálalegar afleiðíng ar, ef V-Þjóðverjar stæðu ekki við gefin loforð. KRÖFUR ÍTALÍU Landbúnaðarráðherra Ítalíu, Mario Ferrari-Aggradi, sagði, að Étalir gætu líklegast fallizt á sam ræmingu kornverðsins fyrir 1970 sn aðeins með því skilyrði, að framlag ítala til landbúnaðar- sjóðs EBE yrði lækkað, enda væri framlagið hlutfallslega of hátt. Einnig krafðist hann þess, að samið yrði um markað fyrir olíu og fituefni og að nýir samn- ingar, sem gerðir hefðu verið um ávexti og grænmeti, gengju í gildi fyrir 15. janúar nk. Bæði fulltrúar EBE og land- búnaðarráðherra Hollands, lýstu áhyggjum -sínum vegna ummæla ítalska ráðherrans og sögðu að hínar nýju kröfur ítala gerðu erf iðara að ná samkomulagi um kornverðið. Fregnir frá Brússel herma, að 30. nóv., þegar ráðherranefnd EBE kemur saman á ný til við- ræðna um kornverðið, muni stjórn V-Þýzkalands gera ljósari grein fyrir afstöðu sinni og það muni auðvelda viðræður um mál ið. — Maður finnst Framh. af bis. 1 geta gefið neinar upplýsingar um tilgang ránsmannanna að svo stöddu. Fréttamenn sneru sér því til egypzka sendiráðs- ins í Róm, en talsmaður þess kvaðst ekkert vita um at- burðinn. Tveir starfsmenn sendiráðs- ins komu með kassann á flug- stöðina og sitja þeir nú allir í varðhaldi. Kassinn var merkt- ur utanríkisráðuneytinu í Kairó og á honum stóð, að í honum væru hljóðfæri. Þegar aka átti kassanum út að flug- vélinni heyrðist tollvörðunum þeir heyra stunur úr kassan- um, og höfðu orð á því við sendiráðsstarfsmennina, e n þeir sögðu að þetta heyrðist í hljóðfærunum. Tollverðirnir voru ekki ánægðir með skýr- inguna og kölluðu á lögregl- una. Þegar sendiráðsstarfs- mennirnir gerðu sér grein fyrir að lögreglan var á leið- inni, báru þeir kassann út í litla sendiferðabifreið og kom ust af stað í henni, þótt toll- verðirnir reyndu að stöðva þá. Skammt frá flugvellinum náði lögreglubifreið sendiferðabif- reiðinni og óku mönnunum á lögreglustöðina ásamt kassan- um og þar var hann opnaður. U M þessar mundir gengur faraldur meðal unglinga í bænum, þar sem þeir ráðast á ljósastaura og eyðileggja Ijósaperurnar. — Starfsmenn rafmagnsveitunnar hafa snú- ið sér til blaðsins og beðið það að koma því áleiðis til borgaranna að aðstoða við að kveða niður þennan vágest. Unglingarnir ráðast frekast á járnstaura og berjá í þá með grjóti eða öðru barefli og kemur þá svo mikill titringur á staurinn að gormur perunnar lætur sig og ljósið slökknar. Mest hefir borið á þessu að undanförnu í Vestur- bænum og þá einkum í Mela- hverfinu og Sólvallahverfinu, einnig hefir þessa orðið talsvert Stefán Filippusson látinn STEFÁN Filippusson frá Kálfa- fellskoti andaðist í gær í Hrafn- istu 94 ára að aldri. Neyðarástand barnafjölskyldu EINS og Morgunblaðið skýrði frá í gær kviknaði í húsinu að Lindargötu 44B aðfaranótt mánudags og urðu á því tals- verðar skemmdir. í kjallara hússins bjó Emil Richter ásamt fjölskyldu sinni, konu og fimm börnum. Konan liggur nú á fæðingarheimilinu við Eiríksigötu. Vegna brunans er fjölskyldan nú húsnæðislaus og hefur ekki tekizt að fá íbúð. Hér er því um neyðarástand að ræða og er fólk vinsamlegast beðið að hringja til Emils Richters í síma 3 67 61 ef það hefur nakkur tök á því að útvega honum og fjölskyldu húsnæði. vart á Fjölnisvegi og þar í kring. Fleiri staði mætti nefna þar sém. talsverð brögð eru að þessum skemmdarverkum. Til er að skóladrengir hafa gengið á Ijósa- staura í heilum götum og slökkt á þeim öllum á örskammri stundu. Síðan kvartar fólkið I hverfunum linnulaust yfir myrkr inu á götunum. Perurnar, sem fyrst og fremst verða fyrir barðinu á skemmdar- vörgunum, eru 300 vatta glóðar- perur. Veldur eyðilegging hverr- ar peru fjárhagslegu tjóni fyrir bæinn, sem nemur 60—70 krón- um á peru, auk hins beina tjóns og þeirrar hættu sem stafar af því að heilar götur eru myrkv- aðar. Hér í bæ eru settar upp 500—- 600 perur vikulega um þessar mundir; en að sjálfsögðu er þetta nokkuð breytilegt. Starfsmenn rafveitunnar fullyrða að minnsta kosti þriðjungur þeirra pera, sem skipt er um, séu eyðilagðar af skemmdarvörgum. Það eru eindregin tilmæli til íbúa hinna ýmsu+verfa í bæn- um að þeir láti lögregluna þegar í stað vita ef þeir verða varir við að unglingar eru að eyðileggja Ijósaperur götuljósa. Heimdallur LAUNÞEGAKLÚBBUR. Annað kvöld verður haldinn fundur í Launþegaklúggnum í Valhöll við Suðurgötu og . hiefst hann kl. 20:30. Þar mun Þórir Einarsson, viðskiptafræðingur, ræða við fundarmenn um: „Hlutverk nú- tíma verkalýðshreyfingar". — Á eftir verða kaffiveitingar og kvikmyndasýning. Allir ungir launþegar eru vel komnir í Launþegaklúbbinn. í SJÖTTU umferð fóru leikar svo í A-riðli: Rúmenía 2% — Holland lMs USA 2V2 — ísrael 1% V-Þýzkal. 2 % — Pólland 1 % USSR 3 — Búlgaría 1 Júgóslavía 1 — Spánn 0 + 3 bið Argentina og Ungverjaland bið Tékkóslóvakía 3 % — Kanada V2 í 5. umferð sigraði L. Schmidt P. Keres eftir 10 tíma tafl- mennsku og er það lengsta skák mótsins til þessa. Rússar töpuðu síðast á Ólympíumótinu í Moskvu 1956 með IV2—2Vfe hjá Ungverjum. C-riðill Sviss 3t4 — frland Vj Finniand 2% — Grikkland 1 Vz íran 3 — Tyrkland 1 Kólumbía 2Vs — Monaco IVz ísland 2V2 — Indland 1% Röð efstu þjóðanna eftir 6 um> ferðir í A-riðli: 1. USSR 16 V2 2. Rúmenía 15 3. Tékkóslóvakía 13 V2 4. Argentína 13 + 1 bið 5. V-Þýzkaland 13 B-riðill 1. A-Þýzkaland 18 Mi 2. Svíþjóð 17 3. Danmörk 15% C-riðill 1. Finnland 17 2. fsland 16 + 1 bið 3. Sviss 16 4. Kólumbía 16 5. Venezuela 14%

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.