Morgunblaðið - 18.11.1964, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 18.11.1964, Blaðsíða 19
* Miðvikudagur 18. nóv. 1964 MORGUNBLAÐIÐ 19 j ( / í t I ii Dr. Ben}amín Eiriksson: Á Skerðingsfjalli ÁÐUR en ég fór til útlanda í byrjun september hitti ég Hákon Bjarnason skógræktar- stjóra, og sagði honum að ég ætlaði að koma við í Noregi. Hann sagði þá, að ég yrði að fara og heilsa uppá Elías Mork prófessor við skógrækt- arstofnunina, sem staðsett er að Ási, þar sem landbúnaðar- háskóli Norðmanna er, og fá hann til þess að sýna mér til- raunasvæði fyrir fjallaskóg, sem hann hefði við Skærings- fjell uppi á Kili. Hann þurfti ekki að hvetja mig lengi, því að ég hefi áhuga á skógrækt. Nálægt Atna, sem er jám- brautarstöð í Austurdal, ligg- ur háslétta \ með nokkrum sveitabæjum, en aðal'lega selj- um. Þar er allstórt vatn sem heitir Hirsjön. Af hásléttu þessari rís fjall sem heitir Skæringsfjell, og mun áður hafa heitið Skerðingsfjall. Nafn sitt dregur fjallið af stalli eða öxl sem er á fjall- inu. Við fjallsræturnar stend- ur hótel, sem heitir Skærings- fjell Hotel. Þarna liggur til- raunasvæði fyrir fjallaskóg, og hafa starfsmennirnir til umráða nokkur bjálkahús, eigi langt frá hótelinu. Til- raunirnar fara fram á all- miklum svæðum í fjallshlíð- inni, en auk þess eru þarna veðurathugunarstöðvar. Þess- ar stöðvar eru tvennskonar, annars vegar fyrir allmennt veðurfar og hins vegar fyrir það sem ef til vill mætti nefna hagaveður (micro- klima). Forstöðumaðurinn hefur í langan tíma verið pró- fessor Elías Mork, einn afr fremstu skógræktarmönnum Noregs. Hann var nýlega á ferð hér á íslandi í boði Skóg- ræktar ríkisins, ásamt tveim- ur öðrum norskum skógrækt- armönnum. Prófessor Mork tók mér með þeirri tegund gestrisni og höfðingsskapar, sem aldrei fyrnist. Hún ein- kennist af nærfærnislegum skilningi á manninum og þörf- um hans. Slík gestrisni kostar mikla fyrirhöfn. Að morgni gengum við á fjallið. Skógurinn þarna ein- kennist fyrst 0(g fremst af því, að furan er á undanhaldi fyrir greninu. Búskapur og skepnu- hald er í grendinni og því nokkur beit. Landið er bezt fal'lið til ræktar furu, en hún nær sér ekki á strik, vegna þess að grenið þolir betur skuggann. Hins vegar ber grenið ekki fræ nema saman fari tvö heit sumur. En sum- staðar æxlast það með því að jarðlægar greinar skjóta rót- um og mynda ný tré. Þarna mátti sjá þyrpingar trjáa, sem til voru komin á þennan óvenjulega hátt. Með gróður- setningu furu má fjórfalda afköst landsins á þessu svæði. í rúmlega 900 metra hæð yfir sjávarmáli stóðu þarna fallegustu þyrpingar af þin (lasiocarpa) og þeirri viðar- tegund sem við köllum þöll (tsuga), hvorttveggja aðflutt- ar tegundir gróðursettar í til- raunaskyni. Með hundrað metra hæðar bili gengum við framá litlar veðurathugunar- stöðvar, sem settar höfðu ver- ið upp til þess að rannsaka hagaveðrið. Þeigar upp á öxlina kom var þar tilraunareitur. Verið var að rannsaka vindþol skógar- ins. Öxlin á fjallinu er að mestu leyti nakin. Það kom mér á óvart að sjá, að sú teg- undin, sem þolað hafði vind- inn á þessum stað, var lerki. Lerki þetta var komið frá öðr- um stað í Noregi, sem ég man nú ekki hver er, en þangað frá Mið-Evrópu. Ég segi að mér hafi komið þetta á óvart, vegna þess að hjá okkur sunnanlands vex lerkið vel í nokkra hæð, en eftir það hættir því að fara fram Oig virðist líða illa af einhverjum ástæðum. Eftir þessu ætti vaniíðanin að stafa af öðru en næðingnum. Ann- ars er rétt að bæta því við, að svæði með samfelldum lerki- skógi (eða öðrum skógi) er ekki til ennþá á Suðurlandi, og því varlegt að draga álykt- anir. Þarna hafði einnig ver- ið gróðursett skógarfura, broddgreni og rauðgreni. En ekkert af þessu þreifst, aðeins lerkið. Hins vegar sáust merki þess, að blágrenið (Engelmani) mundi vaxa vel og vera tiltölulega harðgert. Skógurinn og sauðféð Á einum stað sá ég til- raunareit sem var þannig að samskonar skógarplöntur höfðu verið gróðursettar inn- an girðingar og utan. Þarna gengur sauðfé og nautpening- ur í skóginum að sumrinu frá seljum í grenndinni. Mork prófessor sagði, að af hverj- um hundrað plöntum, sem gróðursettar hefðu verið inn- in girðingarinnar, hefðu 70 lifað og komizt upp, en fyrir utan- aðeins 14, á hverju máli lands (málið er einn tíundi úr hektar). Auk þessu voru trén utan girðingar miklu ljótari en innan. Ég sagði honum að skógræktarmenn á fslandi litu yfirleitt á sauð- kindina sem mikinn óvin og sama hefði ég orðið áskynja í Svíþjóð þegar ég hefði verið þar sem stúdent. Sauðkindin æti nýgræðinginn. Skógurinn véx ekki upp fyrir henni. Land sauðkindarinnar verður því með tímanum skóglaust og nakið. Mork sagði að sauð- féð æti ekki greni eða furu, ef það fengi nægilegt fóður frameftir vorinu. Með því að fóðra sauðféð lengur fram- eftir verða lömbin stærri. Bóndinn fær meiri arð eftir féð og það lætur skóginn nokkurn veginn í friði. Reynslan í Noregi væri sú, að auk þess fengju bændur miklu betri beit í skópinum, heldur en á landi þar sem skóginn vantar. Á íslandi mynduð þið fá betra veðurfar og betri gróður, ef þið hefðuð skóg, sagði hann. Ef til vili er þetta fær leið fyrir okkur á íslandi, að girða meðan verið er að gróður- setja, en flytja svo girðinguna þegar skógurinn er kominn í seilingarhæð, eða jafnvel fyr. Hugsanlegt er einnig að gróð- ursetja í opið land, ef bænd- urnir fengjust-tibað fóðra féð fram eftir að vorinu, þvi að það er að vorinu sem barr- skóginum er hættast. Mork sagðist álíta að íslendingar myndu fara að flytja út trjá- við eftir 60-80 ár. Ég sagðist álíta það fullmikla bjartsýni. S'kógurinn yxi. Það væri ekki vandinn. Þó værum við enn að leita fyrir okkur í flestu sem lyti að skógræktinni. En menn væru ekki reiðubúnir til neinna stórátaka enn sem komið væri. Vandamál okkar væri tvíþætt, fyrst og fremst það að rækta nægilegan við hana okkur sjálfum, en jafn- framt því að fá bændurna til þess að gera skóginn að þætti í landbúnaðinum. Lega lands- ins gerir landbúnaðinn erfið- an, en aðstöðuna má bæta stórleiga með skógrækt. Þá sagði Mork að fyrir aldamótin hefðu norskir skógræktar- menn reynt að fá bændurna til þess að skilja það, að þeir ættu að gróðursetja skóg. Það mundi margborga sig. Þetta hefði algjörlega fallið á dauf eyru, og kenningin ekki mátt heyrast. En eftir að félögin sénri áttu trjákvoðu- verksmiðjurnar og sögumyll- urnar fóru að gróðursetja í land það, sem þau áttu, þá fóru bændurnir smám saman að taka þetta upp. En það tók 30 ár að fá þá til þess. Og jafnvel enn í dag eru til menn í Noregi sem vilja ekki heyra að skógurinn sé gróður- settur, heldur vilja að hann sái sér sjálfur. Ég sagði prófessornum að ég áliti að bað yrði engin veruleg framför í skógræktinni á ís- landi sem þætti landbúnaðar- ins, fyrr en bændurnir tækju sjálfir að sér að sjá málunum farborða. Vandinn væri að fá bændur til þess að tala við bændur um málið. Það myndu þeir fyrst gera þegar þeir stofnuðu sitt eigið skógræktar félag, er gæti miðlað skiln- ingi og þekkingu meðal þeirra á þessu mikilvæga máli. Þá minntist ég á aðra leið, en hún væri sú, að stofna skógræktardeild við bænda- skólann á Hvanneyri. Það leið meira en mannsaldur frá því að íslendingum var frjálst að verzla, þangað til að þeir fóru að sýna það framtak að verzla sjálfir. Það er hryggi- legt að vita að hugsun og framtak skuli ekki vera örara nú en það var fyrir heilli öld. Það er á þessu sviði eins og svo mörgum öðrum, að sjón er sögu ríkari. íslenzkir bænd ur hafa yfirleitt aldrei séð skóg. Flestir þeirra munu einhverntíma hafa séð leifar af birkikjarri, en það er líka allt og sumt. Þeir, eins og aðrir lands'menn, eru fáfróð- ir um skóginn. Þá skortir alla reynslu af skógi. Þá væri enn ein fær leið, sýnikennsla, sem væri í því fólgin að gera bú- jörð úr garði þannig, að hún sýndi hvernig styðjast má við skóginn í búskapnum. Skóg- urinn tekur tíma að vaxa. Ein- hvern tíma verður að byrja. Ríkið á nóg af jörðum, sem haegt er að taka undir slíka sýnikennslu. Fátt væri betur hægt að gera við fjármagnið en það, að leggja það í að rækta upp og gera slíkar jarðir þannig úr garði, að með tímanum yrðu þær til fyrir- myndar, bæði um jarðrækt og skógrækt. Ef fé væri ekki fáanlegt á annan hátt, mætti nota fjármagn það, sem fjár- festingarlánastofnanirnar ráða yfir, í þessu skyni. Til að byrja með mætti láta nægja að taka eins og eina jörð í hverjum landsfjórðungi, rækta hana upp og gera hana úr garði eins og jarðir ættu að vera. Þá er einnig til nóg af eyðijörðum, sem myndi henta, sem þessar stofnanir gætu fengið keyptar, ef ríkið vill ekki hafa fongöngu. Svona framkvæmd, ásamt skógræktarfélagi bænda, myndi geta komið hreyfingu á málið. Hinir fáu þeirra, sem hafa nægilegan skilning á skógræktinni, myndu geta orðið til þess að hrinda mál- inu áfram, ef ekki í bráð þá í lengd. Gróðursetning Þarna voru nokkrir reitir fyrir gróðursetningartilraunir. einkum íjarlægðartilraunir. Hvað á að vera langt á milli plantnanna? Ég sagði Mork að ég áliti að enn sem komið væri hefðum við allt of litla örugga þekkingu á því hvern- ig ætti að gróðursetja. Hann sagði að skógurinn ætti ekki að standa of þétt, vegna þess að þá kæmist sólin ekki að jarðveginum til að hita hann. Ég sagði honum að á íslandi yrðum við að gróðursetja all- þétt til þess að fá nægilegt Hann sagði að þétta gróðursetningu þyrfti ekki nema í jöðrunum. Þá sagði hann að ekki mætti gróðursetja djúpt þar sem jarðvegur væri kaldur og veðurfar kalt. Ég sagði hon- um að eitt vandamál okkar væri holklaki. Hann sliti ræt- ur plantnanna á vorin. Slíkar plöntur eru auðþekktar á því að greinarnar verða barrlaus- ar, en nýjar greinar með nýju barri koma upp við stofninn á trénu. Plantan er að mestu laus í jarðveginum. Þegar tekið er í hana kemur hún upp viðstöðulaust. Mork sýndi mér tvær gróðursetningaraðferðir, sem ég álít að geti haft mikla þýð- ingu fyrir okkur íslendinga. Hin fyrri er sú, að með haka er rótuð grunn hola og lítil um sig, naumst meira en 2-4 cm á dýpt, síðan er plant- an sett ofan í moldina, greitt úr rótunum til allra hliða og síðan rótað yfir. Við gróður- setningu í stöðinni sá ég að notuð var gróðurmold, til að setja ofan á plönturnar, enda jarðvegur þarna næsta grýtt- ur og rýr að áliti okkar ís- lendinga, að ég held. Plantan situr mjög grunnt, næstum því ofan á jörðinni. Ég sagði við Mork að ég mundi vera hræddur um að plantan yrði laus. Hjá okkur mundi storm- urinn velta henni um koll. Hann sagði að það væri ekki hætta á því. Jurtirnar ættu að festa sig sjálfar. Það sem gerði þessi aðferð ákjósan- lega væri sú staðreynd, að sól- in hitar yfirborðið, og með þessari aðferð fá ræturnar meiri hita en annars. Sé rót- unum stungið djúpt ofan i kalda moldina, þá er plantan lengi að ná sér. Ég hefi rekið mig á það, að plöntur sem settar hafa verið grunnt, eða verið lausar ein- hverra hluta vegna, vaxa furðu vel, ef látinn er svolítill jarðvegur ofan á þær, án þess þó að ræturnar séu látn- ar neðar í moldina. Mork sannfærði mig því á stund- inni. Hina aðferðina á að nota þar sem hætta er á holklaka. Þá er stungin torfa, ekki mik- il, t.d. 20 cm. á veg 4-5 cm. þykk. Síðan er gert skarð í eina hliðina inn í miðja torf- una og henni snúið við. Plat- an er síðan látin ofan á jörð- ina (ekki í holuna sem hnaus- inn var tekinn úr), heldur ofan á grasio og breitt úr rótunum. Torfan er síðan .látin öfug utan um legginn á jurtinni. Jurtin festir sig svo fljótlega og grasið sem rotnar á milli torfunnar og yfirborðs- ins örvar vöxt hennar. Ég álít að báðar þessar að- ferðir geti haft hina mestu þýð.ingu fyrir gróðursetningu skógar á íslandi. Erfiðið, sem fer í að gera miklar holur, sparast, og skóginum fer bet- ur fram. Þá minntumst við á áburð. Mork sagði að það ætti ekki að setja tilbúinn áburð í holur við gróðursetningu. Það á yfirleitt ekki að nota áburð við gróðursetningu. En á fyrsta ári eftir gróðursetningu á að dreifa áburði í kringum jurtina, dálítið frá henni. Hann minntist á að nú væri í framleiðslu í Þrándheimi sérstakt tæki til þess að dreifa áburði í kringum plöntur. Nefndi hann það Wibes- Framhald á bls. 21. SONDERBORG GARN Thulegarn, Camping, Gloria höfum við til í miklu litavali. — Úrvals-handprjónagarn frá SÖNDERBORG-verksmiðjununi. Verzlunin HOF Laugavegi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.