Morgunblaðið - 18.11.1964, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 18.11.1964, Blaðsíða 8
8 MORGUNBLADIÐ Miðvikudagur 18. nóv. 1964 0PT-<í -wíjamTfl Rætt um menntaskóla FUNDIR voru í báðum deildum Alþingis í gær. Var þar einkum rætt um menntaskóla, en á dag- skrá Neðri deildar voru í senn frumvarp um tvo menntaskóla í Reykjavík og frumvarp um menntaskóla á Austfjörðum. GFRI DEILD Matsgjald á síld Emil Jónsson, sjávarútvegs- málaráðherra, mælti fyrir stjórn- arfrumvarp, sem útbýtt var í gær, um að heimilt skuli að taka af hverri útflutningsmet- inni tunnu af saltsíld mats- gjald, sem nemi 6 kr. Þetta gjald á að vega upp á móti stórhækk- uðum tilkostn- aði, sem orðið hefur við síldar- matið undanfarin ár. Var frum- varpinu vísað til 2. umræðu og sjávarútvegsmálanefndar. NEÐRI DEILD Menntaskólar Einar Ágústsson (F) gerði grein fyrir frumvarpi, sem hann er flutningsmaður að ásamt Ósk- ari Jónssyni um menntaskóla. í þessu frumvarpi er gert ráð fyr- ir því, að menntaskólarnir verði fjórir, 2 í Reykja vík, 1 á Akur- eyri og 1 á Laugarvatni. — Auk þess er þar gert ráð fyrir 1 menntaskóla á Austurlandi og 1 á Vestfjörðum, þegar fé er veitt til þeirra á fjár- sagði m.a., að hefði verið flutt á sL þingi, en hefði þá verið vís- að til ríkisstjórnarinnar af meirihluta menntamálanefndar. Skýrði hann síðan frá ástæð- unum fyrir frumvarpinu, og sagði þar m.a., að þeir, sem vit hefðu á, héldu því fram, að meðalfjöldi í menntaskólum ætti að vera um 300—400 en há- marksfjöldi um 500—600. Með tilliti til þess að nemendafjöldi Menntaskólans í Reykjavík væri á tíunda hundrað, væri augljós þörfin á því að koma upp öðrum menntaskóla í Reykjavík. Frumvarpinu var síðan vísað til 2. umræðu og menntamála- nefndar. Hækkun sekta við landhelgisbrotum Lúðvík Jósefsson (K) mælti fyrir frumvarpi um breyting á lögum um bann gegn botnvörpu- veiðum, en efni þess er í fyrsta lagi, að sektir við landhelgisbrot- um verði hækkaðar til mikilla muna frá því, sem nú er. f öðru lagi, að bannað verði að láta af hendi eða selja upptæk veiðar- færi þeirra, sem sekir hafa gerzt um botnvörpu- veiðar í land- helgi, fyrr en í fyrsta lagi eín- um mánuði eftir að sektardómur hefur verið kveðinn upp. í þriðja lagi er lagt til í frum- varpinu, að sett verði ótvíræð á- Eingland MÍMIR leiðbeinir foreldrum við val skóla í Englandi daglega kl. 1—7. Beztu skólar eru oft full- skipaðir ári fyrirfram svo að foreldrum er ráðlagt að leita upplýsinga snemma. Verið er nú að senda unglinga á skóla sem hef jast í janúar. MÍMIR, Hafnarstræti 15. Sími 2-16-55. lögum. Einar þetta frumvarp kvæði í lögin um það, að náist ekki í sekan skipstjóra á veiði- skipi, sem tekið hefur verið að ólöglegum veiðum, sé heimilt að dæma útgerðarfyrirtæki skips- ins og gera það á allan hátt á- byrgt fyrir landhelgisbrotinu. Lúðvík sagði ennfremur, að sektir væru nú algengastar 240— 260 þúsund krónur við þessum brotum. Þegar þessar upphæðir væru bornar saman við verð- mæti þeirra skipa, sem hér stunda veiðar og þann afla, sem þau fá, þá væru þessar upphæðir mjög lágar. Hann kvaðst hafa grun um, að hin tíðu landhelgis- brot undanfarið stæðu í nánu sambandi við það, hversu lágar sektarupphæðir væri um að ræða. Með þessu frumvarpi væri gert ráð fyrir, að sektirnar yrðu frá 780—1365 þúsund krónur. Hvað það atriði Varðaði, þar sem gert er ráð fyrir í því í frum varpinu, að þeir sem gerðust brot legir gagnvart lögunum, yrðu sviptir veiðafærum sínum í að minnsta kosti 1 mánuð, þá yrði það miklu meiri refsing fyrir veiðiþjófinn en sektarfjárhæðin, því að það þýddi, að veiðitúrinn væri ónýtur. í sambandi við þriðja atriðið minntist flutnings- maður á Millwood-málið svokall aða og sagði, að slíkt gæti alltaf endurtekið sig. Þórarinn Þórarinsson (F) sagði, að það væri mjög miður, að þetta frumvarp skyldi ekki verða að lögum á sl. þingi. Hin tíðu landhelgisbrot undanfarið gætu ekki hafa farið fram hjá fólki. Þau ættu vafalaust rót sína að rekja til þess, að refsingar fyrir þessi brot væru of mildar. Skoraði hann á þingmenn að samþykkja frumvarpið. Yar því síðan vísað til 2. umr; og sjávarútvegsmálanefndar. Menntaskóli Austurlands Eysteinn Jónsson (F) gerði grein fyrir frumvarpi, sem hann og aðrir þingmenn Austurlands standa að, um menntaskóla Austurlands að Eiðum. Sagði hann m.a., að það væri ekki Rakti hann síður nauðsyn- legt, en að blóm legt atvinnulíf væri til staðar að sjá fyrir menntastofnun- um um leið. síðan ýmis atriði greinargerðar, sem frumvarpinu fylgir og kvað þörf fyrir menntaskóla verða miklu stórkostlegri í næstu fram tíð, heldur en nú væri unnt að gera sér grein fyrir. Sagðist hann vera mjög ánægður með yfirlýsingu menntamálaráðherra, Gylfa Þ. Gíslasonar frá því um daginn, þar sem hann lýsti því yfir, að hann væri hlynntur því, að stofnaður yrði menntaskóli á Austurlandi. Frumvarpinu var síðan vísað til 2. umræðu og menntamála- nefndar. Verkfall opinberra starfsmanna Einar Olgeirsson og tveir aðr- ir þingmenn Alþýðubandalagsins eru flutningsmenn frumvarps um afnám laga um bann við verk- falli opinberra starfsmanna. Þar er einnig farið fram á, að undir- búið verði frumvarp um réttindi og skyldur starfsmannafélaga, er gegna þess konar störfum, að framkvæmd þeirra varði líf og heilsu almennings. Forsiða afmæl isblaðs Æskunnar, ur Gíslason ráðin að blaðinu. Guðmundur Gíslason lét af rit- stjórn eftir fjogur ár, en Margrét tók þá ein við ritstjórninni. Þvi starfi gegndi hún til ársloka 1941. í ársbyrjun 1942 tók Guð- jón Guðjónsson við ritstjórn og annaðist hana til ársloka 1955. Þá voru þeir Ólafur Haulour Árnason, Grímur Engilberts og Helgi Tryggvason ráðnir ritstjór ar. Helgi lét af starfi eftir eitt ár, en Ólafur um áramótin 1957. Þá var Heimir Hannesson ráðinn með Grími. Hann starfaði við blaðið í eitt ár, en síðan hefur Grímur Engilberts verið ritstjóri einn“. Þá er í blaðinu minningargrein um forsetafrú Dóru Þórhallsdótt- . ur og grein eftir hana, „Endur- minningar frá bernskuheimilinu í Laufási". Ennfremur er smá- sagan „Fyrirgefning“ eftir Ein- ar H. Kvaran, „Dóttir Mýrakon- ungsins“ ævintýri eftir H. C. Andersen, framhaldsagan „Dav- íð Copperfield“ eftir Dickens, Gítarnámskeið, Sjálfsævisaga Sigurðar Júlíusar Jóhannessonar fyrsta ritstjóra Æskunnar, fræðsluþættir ýmiskonar, fram- haldssagan „Litla lambið“ eftir Jón Kr. ísfeld, spurningar og svör, handavinnuhorn, mynda- sögur o. fL Barnabladid „Æskan" 65 ára Hér eru ritstjóri og framkivæmd astjóri Æskunnar á sýningunni í Lækjargötu 10. Krístján Guðmundsson framkvæmdastjóri blað» ins og bókaútgáfunnar t.v. og Grímur Engilbertsson ritstjóri una 9 ára skeið. Sýning effirprentana á frægum listaverkum og norskum bókum í Lækjargötu 10 UM ÞESSAR mundir er barna- blaðið „Æskan“ 65 ára. Það er fyrsta barnablaðið, sem gefið er út hér á landi og hið eina sinnar tegundar, sem alltaf hefir kom- ið út, og stundum eina blaðið, sem æska þessa lands hefir átt kost á. Fyrsta blaðið af Æskunni kom út 5. október 1897 og um alda- mót var upplag þess 1000 eintök, en er nú 11000 eintök. Afmælisblaðið nú er einkar fjölbreytt að efni og rita þar margir þjóðkunnir menn um blaðið og lflynni sín af því. Meðal þeirra er m.a. forsætisráðherra Bjarni Benediktsson, ýmsir menntamenn, skólamenn og rit- höfundar. Ritstjórar hafa verið allmargir frá upphafi og segir svo um þá í blaðinu: „Fyrsti ritstjóri Æskunnar var Sigurður Júlíus Jóhannesson skáld. Sigurður var ritstjóri frá 1897 til 1899, er hann fluttist af landi burt, en við tók Ólafía Jó- hannsdóttir, og annaðist hún ritstjórnina í rúmt ár eða þar til Hjálmar Sigurðsson tók við árið 1900, en hann lét af ritstjórn 1904, en það ár tók séra Friðrik Friðriksson við ritstjórn og var við hana til ársins 1909, er þeir Aðalbjörn Stefánsson og Sigur- jón Jónsson tóku saman við rit- stjórn og útgáfu fyrir Stórstúk- una. Þeir félagar önnuðust rit- Sigurður Júlíus Johannesson stjórn í sameiningu til ársloka 1922, en þá lét Aðalbjörn af starfi, en Sigurjón hélt því áfram til ársloka 1927. Þá voru þau Margrét Jónsdóttir og Guðmund- UM ÞESSAR mundir efnir Bókabúð Æskunnar til sýningar á ýmsum heimskunnum lista- verkum i skrifstofuhúsnæði sínu í Lækjargötu 10. Bókabúðin og barnablaðið Æsk»n hafa nýlega fengið skrifstofuliúsnæði til um ráða og hefir nú komið sér þar fyrir. Þá sýnir bókabúðin þarna einn ig nokkuð af norskum bókum og þá fyrst og fremst stórverk norsku meistaranna, Björnsons, Hamsuns, Lie o. fl., enn fremur mannkynssögu og alfræðibækur, sem Æskan hefir umboð fyrir. Bókabúðin hefir fyrst og fremst lagt sig eftir að hafa hér á landi ávallt fyrirliggjandi sem full- komnast úrval norskra bóka af útlendum bókum að vera. Eftirprentanir málverka em frá Dreyers Forlag í Noregi og hefir bókabúðin umboð fyrir það hér. Þarna getur að líta verk eft ir fremstu málara Norðmanna auk ýmissa heimsþekktra lista- manna, en hið norska útgáfufyr irtæki hefir á boðstólum fjöl- breytt úx-val heimslistaverka, sem ýmist eru til hér á landi hjá Bókabúð Æskunnar, eða hún getur með skömmum fyrirvara útvegað frá Noregi. Listaverkin eru unnin í Sviss og að því leyti einkar vönduð að öllum frágangi að þau eru ljósprentuð á mál- verkastriga. Myndirnar eru inn- rammaðar og með þeim má fá skilti með nafni listamannsins og öðrum upplýsingum um lista verkið.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.