Morgunblaðið - 18.11.1964, Blaðsíða 16
16
MOHCU NBLAOID
Miðvikudagur 18. nóv. 1964
Við bjóðum yður eins og ávallt áður
stórt og smekklegt úrval af kápum frá
beztu tízkuhúsum Evrópu.
Nýjar sendingar koma vikulega — allt
Verið velkomin að líta á
til jóla
vetrartízkuna í
&
Eldri snyriilegur maður
óskast til léttra starfa
Hotel Borg
Álftamýrarskóli
nýjasti barnaskólinn
— Álftir
Fraimha.ld af bls. 6
teljast sérstakur ruddaskapur og
ekki samboðið siðuðum mönnum
að haga sér á þennan hátt.
Fyrst minnzt hefur verið á
fugla má geta þess, að grágæsin
hefur valdið miklu tjóni hér í
haust, bæði á nýrækt og jafnvel
í kartöflugörðum. Gæsin er hér í
stórum flotum, bæði haust og
vor, og er orðin sannkölluð
plága.
Allmargt fé vantar ennþá af
fjalli, þótt búið sé að gera tvær
leitir og verður farið í þriðju
leit nú bráðlega. En Landmanna-
afréttur er stór og erfiður yfir-
ferðar og tekst sjálfsagt sjaldan
að gera hann með öllu að sauð-
lendu. I haust komu nokkrar
kindur útigengnar, enda var síð-
asti vetur mildur.
Hinn 20. sept. sí. voru Haga-
kirkju í Holtum færðar veglegar
gjafir, var það vandað orgel, gef-
ið til minningar um hjónin Þor-
leif Oddsson og Friðgerði Frið-
finnsdóttur, er bjuggu að Þver-
læk, gefið af börnum þeirra.
Þann 21. sept. voru hundrað ár
liðin frá fæðingu Þorleifs ,en
hann lézt árið 1922 en kona hans
lézt fyrir nokkrum árum háöldr-
uð. Einnig voru gefnar biblía og
12 sálmabækur til minningar um
Kristólínu, dóttur þeirra hjóna,
er látin er fyrir nokkru, gefið af
börnum hennar. Eru þetta hinar
fegurstu gjafir og bera vott um
ræktarsemi við minningu látinna
ástvina.
M. G.
ÓIAFUR STEPHENSEN
LÚGGILTUR SKJALAÞÝÐANDX
ENSK BRÉFAVIÐSKIFTI
HAFNARSTRÆTI 22 SÍMl 21285
GABOON - SPÖIMAPLÖTUR
í GÆR var borgarstjóra, borgar-
ráði, fræðsluráði og fleirum boð-
að skoða hinn nýja barnaskóla
við Álftamýri í Reykjavík.
Við þetta tækifæri flutti Jónas
B. Jónsson fræðslustjóri stutta
ræðu um skólann.
Skólinn er teiknaður í Teikni-
stofunni Tómasarhaga 31. Verk-
takar fyrsta áfanga byggingar-
innar voru Magnús K. Jónsson
og Magnús Árnason bygginga-
meistarar. Vinna við byggingu
skóJans hófst í marz 1963 og var
lokið í byrjun september sl.
Húseígendur
Ung hjón með tvö börn, óska að taka á leigu íbúð
eða góðan sumarbústað, til langs tíma í nágrenni
Reykjavíkur. Góðri umgengni og viðhaldi lofað.
Skilyrði að rafmagn sé fyrir hendi. Tilboðum sé
skilað á afgreiðslu biaðsins fyrir 25. nóvember
merkt: „Beggja hagur — 9342“.
Nýkomið:
Gaboon: 16, 19, 22, og 25 m/m.
Stærðir: 4x8‘ og 5xl0‘
i Novopan: 8, 12, 13, 15, 18,
19 og 22 m/m.
Hörplötur: 8, 12, 16, 18, 20
og 22 m/m.
Bipan: 22 m/m
(spónlagt m/birki)
Birkikrossviður: 4,5 og
6 m/m.
Furukrossviður: 4, 6 og 8 m/m
Gatað harðtex: 1/8”, 4x8’.
Olíusoðið harðtex 1/8”, 4x9’
Trétex — 4 x 8‘, 4 x 9‘
og 4 x 10*
Teakspónn.
Eikarspónn.
Hljóðeinangrunarplötur.
Lím fyrir hljóðeinangrunar-
plötur:
PATTEX-lím: (sem límir allt)
Teakolía:
Plastlakk: (glært)
Plastplötur: (vinyl) á gólf.
Harðplast á borð og veggi
Slípimassi:__________________
f þeim hluta hússins, sem full-
gerður er, eru 8 almennar
kennslustofur og þrjár sér-
greinastofur í kjallara. Hverri
stofu fylgir snyrti'herbergi, sem
innangengt er í. Auk þess eru
fatahengi í stofunum. Er þetta
haft þannig til þess að umferð
um ganga skólans verði minni
meðan á kennslu stendur. Auk
þess verður gangavarzla óþörf,
þegar þessi háttur er hafður á.
Kennslustofur skólans eru
mjög rúmgóðar, 75,5 fermetrar
að gólffleti og er í hverri þeirra
Vöruafgreiðsla
v/Sheilveg
Simi: 2-44-59.
Skrifstofan
Hallveigarstíg 10
Sími: 2-44-55.
Gestir heimsækja einn bekk Álftamýrarskóla. Á m yndinni má m. a. sjá Kristján Benediktsson, borgar
ráðsmann, Geir Hallgrímsson borgarstjóra, Guðmu nd Vigtússon borgarráðsir.ann, Ragnar Júliusson
skólastjóra, Helga Elíasson fræðslumálastjóra, Auði Auðuns form. fræðsluráðs og Jónas B. Jónsson
fræðslustjóra.
hægt að koma upp litlu leiksviði
fyrir bekkjarskemmtanir. í skól-
anum er völ fullkomnustu
kennslutækja.
Nú þegar eru rúmlega 500
börn í skólanum í 20 bekkjar-
deildum, og því þrísett í 4 stof-
ur.
Alls starfa 17 kennarar við
skólann. Skólastjóri er Ragnar
Júlíusson, en yfirkennari Krist-
ján Sigtryggsson.
Borgarstjóri, Geir Hallgríms-
son, hélt stutta ræðu. Færði hann
öllum iþeim þakkir, er að bygg-
ingu þessa skóla hafa staðið.
Sagði hann, að á síðasta ári
hefði verið veittar 34 milljónir
króna til skólabygginga. Nú
væri það sýnt að nauðsynlegt
yrði að auka þetta framlag ríkis
og bæjar. Sagði hann, að stefna
yrði að því að ekki yrði nema
tvísett í hverja kennslustofu.
Hann árnaði síðan kennurum
skólans heilla í starfi sínu.
Kennslustofa í Álftamýrarskóla,