Morgunblaðið - 18.11.1964, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 18.11.1964, Blaðsíða 15
Miðvikudagur 18. nóv. 1964 MORGUNBIADIÐ 15 íslenzk stúlka í brúðkaupsferð á skipi, sem sökk við Finnland D A N S K A flutningaskipið Brita Dan strandaði og sökk laugiardagsnwrguninn 7. nóv. sl. fyrir utan hafnarhorgida Raumo, sem er í Finnlandi, norðan Álandseyja. Á skipinu var 81 manna áhöfn, þar af tvær konur. Þrír danskir sjó- menn druknuðu, en meðal þeirra sem björguðust var íslenzk stúlka, Anna Zeisel 19 ára gömul, sem var í brúð- kaupsferð með manni sínum, Walther Vogeley, 1. vélstjóra á skipinu. Brita Dan, sem er 3700 tonn að staerð, byggt árið 1961 fyrir útgerðarfélag J. Lauritzen, var á leið til Rauno frá Nörre- sundby til að sækja pappírs- vörur. Þegar það var statt fyr- ir utan borgina aðfaranótt laugardagsins 7. nóvember var hið versta veður, 9 vindstiga snjóstormur og mikill kuldi. Þarna er mikið skerjabelti og um 6 leytið um morguninn tók skipið skyndilega niðri á skeri. Það var strandað. Tuttugu mínútum síðar stönzuðu vélarnar, Ijósin slökknuðu, en neyðarljósum var komið upp. Sjór streymdi í ?lestar skipsins og síðar í velarúmið. Rokið ýtti skipinu af skerinu og inn á lón, um- lukt skerjum. Þar voru akk- erin látin falla. ókyrrð var mikil á lóninu þar sem sjórinn gekk yfir skerin. Neyðarskeyti voru send út og áhöfnin reyndi að dæla og ausa sjó úr skipinu, en það var til einskis. Til þess var lekinn of mikill. Gat hafði ekki kom- ið á þrjár fremstu lestarnar, þar sem skipið var tómt, og varð það til Iþess að skipið hélzt á floti í nokkrar klukku stundir. A n n a r björgunarbáturinn týndist við strandið og einn björgunarflekinn slitnaði frá skipinu og hvarf út í nátt- myrkrið. Fjórum tímum eftir strandið gaf skipstjórinn mönnum skipun um að yfir- gefa skipið og tókst nokkrum að bjarga sér á fleka og gúm- báti. Skip voru komin á stað- inn og tókst þeim að ná mönn um um borð. Hallinn á Brita Dan jókst stöðugt. Konurnar tvær kom- ust ásamt nokkrum mönnum í gúmbjörgunarbát og var bjargað. Klukkan eitt um dag inn, sjö tímum eftir strandið, gaf skipstjórinn fyrirskipun til hinna síðustu að fara frá borði. Var Brita Dan þá alveg komin að því að sökkva. Mennirnir stukku í sjóinn og reyndu að synda 1 burtu frá skipinu, en mikil olía var á sjónum umhverfis það og háði það mönnunum mjög. Þrír sjómannanna drukknuðu. — Brita Dan hvarf í sjóinn. Skipbrotsmennimir v o r u fluttir til Raumo og fengu inni á einu hótelinu þar, — nægan heitan mat og fatnað. Næsta dag var fólkið flutt Brita Dan, sem sökk við Finnlandsstrendur. 28 manns í litlrnn bátl — Þegar við fórum voru 10 menn eftir í Brita Dan, en rétt á eftir hentu þeir sér í sjóinn. Misstu eignir sinar í hafið — Við hjónin misstum mest af eignum okkar niður með skipinu. Maðurinn minn missti eignir fyrir 10 þúsund danskar krónur og ég fyrir 5 þúsund danskar. — Þetta var brúðkaupsferð- in okkar. Við giftum okkur 12. september sl. og fórum þann 24. september með Brita Dan, en maðurinn minn er 1. vél- stjóri á skipinu. Ég var skráð sem þerna, en vann ekkert um borð. — Við tókum aðeins eina brúðkaupsgjöf með okkur í ferðina. Þar var strokjárn, sem við fengum frá ömmu minni og afa, Sigríði Jónsdóttur og Lárusi Knudsen Sigmunds- syni. Við misstum það í hafið með Brita Dan. flugleiðis til Kaupmannahafn- ar. „Hafið þið frétt nokkuð?“ Sem fyrr segir var íslenzk stúlka um borð í Brita Dan, Anna Zeisel. Morgunblaðið átti í gær tai við móður henn- ar, Hrefnu Lárusdóttur,' og stjúpföður, Ólaf Halldórsson, en þau búa að Tunguvegi 36 í Reykjavfk. Frú Hrefna sagði, að laugar- daginn, sem skipið sökk, hefði síminn hringt um klukkan hálf átta um kvöldið og þá hefði Anna talað við þau frá Raumo í Finnlandi. Þegar þau hjónin hefðu verið búin að jafna sig eftir undrunina h.efði Anna spurt: „Hafið þið frétt nokkuð?“ Þegar þau hefðu sagt nei, hefði hún sagt ósköp stillilega: „Ja, skipið, sem við vorum á, er sokkið.“ Þau hjónin sögðu, að Anna hefði unnið hér heima í baka- Var sofandi í rúmi sínu Morgunblaðið fékk síma- númer Önnu hjá þeim frú Hrefnu og Ólafi, en hún býr nú hjá tengdamóður sinni í Kauipmannahöfn. Blaðið átti svo í gærkvöldi stutt samtal við Önnu og fer það hér á eftir: — Við vorum á leiðinni til Finnlands og nóttina sem við áttum að koma til Raumo var ég sofandi í rúminu mínu. Hrökk ég upp við það um sex leytið um morguninn, að skip- ið tók mikinn kipp. í fyrstu áttaði ég mig ekki á þvi, sem gerzt hafði og ætlaði að reyna að sofna aftur, en skipið tók þá að hendast til og varð það alltaf verra og verra. Ég datt út úr rúminu og átti ég erfitt með að fóta mig á gólfinu og datt aftur og aftur. Alvara á ferðum — Þá hringdu klukkurnar Löng brúðkaupsferð — Þetta var búin að vera alllöng brúðkaupsferð, því að við fórum fyrst til Finnlands, svo Ítalíu, Spánar, Þýzkalands og Svíþjóðar og vorum á leið inni aftur til Finnlands, þegar slysið varð. — Eg hef aldrei lent í öðru eins og þessu og ég geri ékki ráð fyrir því að fara á sjóinn aftur — ekki fyrst um sinn að minnsta kosti. — Við Walther ætlum að koma heim til íslands í sum- ar með fyrstu ferð Gullfoss í júlí. Maðurinn minn hefur aldrei komið til íslands og ég hugsa að margt komi honurn þar á óvart. — Eg bið svo að heilsa öll um heima. Tveir af áhöfninni, annar stýrimaður og kokkurinn, við kom- una til Kastrupflugvallar. Walther og Anna Vogley eftir komuna til Hafn ar — óvæntur endir á brúðkaupsferðinni. væri nein hætta á ferðum, en öll áhöfnin varð að fara upp strax. Fengum við björgunar- belti í brúnni og þar stóð ég á undirbuxunum og náttkjól. Vorum við þar svoiítinn tíma, en þegar ijóst var, að skipið Aðeins sjö þeirra varð bjarg- að. Þrír drukknuðu. — Við vorum í björgunar- bátnum í 4—5 mínútur, en var svo bjargað í lítinn bát, sem komið hafði á strandstaðinn. Sá bátur var gefinn upp fyrir að taka 10 manns, en hann hafði bjargað svo mörgum, að við vorum alls 28 um borð í honum. — Það tók bátinn um hálf- an annan tíma að sigla með okkur inn á höfnina í Raumo. Þar var okkur komið fyrir á hóteli og fengum við heitan mat og föt. rii G. Sandholts á Laugavegi, en farið til Kaupmannahafnar fyrir ári og unnið þar fyrst á einkaheimili, en síðan á elli- og hjúkrunarheimili í Gen- tofte. Hefði Anna komið heim hinn 23. maí í sumar og farið aftur til Hafnar 8. ágúst. um allt Skipið og vissi ég þá að hér var alvara á ferðum. Ég var dálítið hrædd, því ég var þarna ein í myrkrinu. Maðurinn minn var á vakt í vélarúminu, en hann kom upp til min strax og hann hafði stöðvað vélar skipsins. — Hann sagði mér að ekki var ekki komið að því a@ sökkva, fór ég niður aftur til að fara í föt. — Eftir nokkurn tíma var settur út gúmbátur og átti að setja okkur konurnar í hann, en við vorum tvær um borð. Þurfti að stökkva út í bátinn og þorðum við því ekki, en vegna veðurofsans var ekki hægt að koma okkur í bátinn á annan hátt. — Skipið hallaðist meira og meira og fórum við konurnar, maðurinn minn og fimm aðrir karlmenn um borð í björg- unarbát, sem tókst að setja út. Á leiðinni niður slóst hann mjög harkalega utan í skips- hliðina og héldum við að hann myndi brotna, en það bjarg- aðist.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.