Morgunblaðið - 18.11.1964, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 18.11.1964, Blaðsíða 26
26 MORGUNBLADIÐ Miðvikudagur 18. nóv. 19® 2. deildar lið Vals hafði í fullu tré við dðnsku meistarana Liðin skildu |Öfn 27:27 að Hálogalandi í gær ANNARRAR deildar lið Vals og Danmerkurmeistararnir í handknattleik, Kaupmannahafnarliðið Ajax, skildu jöfn eft- ir allharða og í lokin mjög tvísýna baráttu. Skoruðu bæði kið 27 mörk. Reyndar má segja að Valsmenn létu sigurinn renna sér úr greipurrt fyrir sakir fljótfærni, því þeir höfðu mark yfir er 40 sek. voru eftir af leik, en skutu þá í óvissu, misstu knöttinn og fengu á sig mark, sem réði jafntefli leiksins. — Frammistaða dönsku meist- aranna verður að kallast slök í þessum leik. Liðið byrjaði vel og sallaði mörkum á Val í byrjun en einhvers tauga- óstyrks gætti hjá hinu unga Valsliði og vörnin var mjög opin í byrjun og Jón Ólafsson í markinu mistækur framan af. Þannig náðu Danir 6 marka forskoti á fyrstu 10 mín. leiks- ins og stóð þá 10-4. * VALSMENN TAUGAÓSTYRKIR Gekk allt á móti Val framan af og fyrir utan hina opnu vörn þeirra mistókust bæði Hermanni og Bergi vítaköst. Leit út fyrir stórsigur Ajax-manna. En Valsmenn létu ekki hug- fallast. Þeir skiptu um mark- vörð (Finnbogi kom inn í stað Jóns) og loksins tókst hinum snöggu og góðu skotmönnum þeirra að finna veilurnar hjá Dönunum. Tók nú að saxast á forskotið og í leikhléi höfðu Dan- ir 2 mörk yfir, 13-11. * JÖFN STAÐA Eftir þriggja mínútna leik í síðari hálfleik var stað- an jöfn, 13-13, og Sigurður Guðjónsson tryggði Val for- ystu 3 mín, siðar. Hófst nú hin harðasta barátta og varð tvívegis jafnt, 14-14 og 15-15. En nú hafði Valur tekið frum- kvæðið í leiknum og missti nú ekki forystuna lengi vel. — Komust Valsmenn tvívegis í 3 marka forskot. ★ SLAGSMÁL Á síðustu 8 mín. leiksins tóku Danir upp mjög harða leikaðferð, völduðu menn mjög fast og káfuðu og stimp- uðust. Valsmenn tóku á móti á sama hátt og leikurinn var á stundum alls ekkert líkur handknattleik, heldur bar Þorsteinn Hallgrímsson tryggði sigur lR yfir Ármanni. 69—53 er liðin mættust í Reykjavíkurmótinu í körfuknattleik sL sunnudag. Ljósm.: Sv. Þorm. 28 manns á hondknattleiksnóm- skeiði á Akureyri — leiðindasvip stympinga og káfs. Á þessari leikaðferð högnuð ust Danirnir, því hinir ungu og lítt reyndu leikmenn Vals gerðu sig í þessum hama- gangi seka um nokkurt kæru- leysi í sendingum og óðagot í markskotum. Tveim mínútum fyrir leiks- lok tekst Dönum að jafna, 26-26. Sigurður Dagsson skor- ar fyrir Vai og.virtist þá sig- urinn vera í hendi Vals. Þeir höfðu meira að segja náð knettinum aftur og sóttu meðan sekúndurnar liðu. Þá reyndi Bergur markskot í mikilli tvísýnu. Danir náðu knettinum, brunuðu upp og jöfnuðu. Valsmenn voru svo enn í sókn er leiktíma var lokið. Þá hafði Jörgen Eriksen verið vísað öðru sinni af velli fyrir tilburði til handalög- mála. * LIÐIN Beztu menn Dananna voru nú Jan Wichmann sem skoraði mjög er á leið leikinn. Framan af var Ove Ejlertsen máttarstólpi liðsins bæði í vörn og sókn. Þeir Peter Nielsen, Kurt Christiansen I og Ove Andersen áttu og góðan leik, en enginn Dananna býr yfir þeirri skothörku og snerpu sem íslenzkir handknattleiksmenn standa agndofa gegn. Þvert á móti virðist styrkur danska liðs- ins fyrst og fremst felast í sam- spili og samvinnu leikmannanna allra — en það hefur ekki nægt til sigurs móti stórskyttum Fram og hinu unga liði Vals. Hjá Val báru Sigurður Dags- son, Hermann Gunnarsson og Bergur hita og þunga leiksins, en hvergi var veikur hlekkur hjá Val eftir að þeir fengu þétt vörn sína í upphafi leiks. Þó skorti nokkuð á öryggi í samleik fyrir framan varnarmúr Dananna meðan verið var að finna smug- una til markskotsins. Markhæstu menn Vals voru Sigurður Dagsson 9, Bergur Guðnason 7 og Hermann Gunn- arsson 5. Af Dönum skoruðu mest Ejlertsen 8, P. Nielsen 6, Wichmann og Christiansen 4 hvor. Dómari var Magnús Pétursson og gerði margt vel, en auðvelt var að sjá oftar brotna „skrefa- regluna" en þau tvö skipti sem hann dæmdi samkvæmt henni. — A. SL Læknar fá Clay ekki til að þegja EINN af þeim starfsþáttum sem Handkniattleikssambandið lagði ríka áhrezlu á á s.l. ári var leið- beinendanámskeið. Hið fyrsta slíkra var haldið í Reykjavík 1963 og síðan stóð HSÍ að öðru í september s.l. á Akureyri. Var Ungmenna- og íþróttaféiögum á Norðurlandi og héraðssambönd- um boðin þátttaka og sóttu það 28 manns. Námskeiðið var haldið á Akureyri og sá Hermann Sig- tryggsson um allan undirbúning. Kennarar voru Karl Benedikts- son iandsliðsþjálfari IISÍ og Frí- mann Gunnlaugsson dómari. HSÍ greiddi allan uppihalds- kostnað þátttakenda meðan á námskeiðinu stóð svo og allan undirbúningskostnað. Mikil ánægðja ríkti meðal þátt takenda um námskeiðið og má fullyrða að það hafi orðið hand- knattleiknum til mikils gagns í framtíinni. Nýtt heímsmet Snells í mílu- hluupi NÝSJÁLENDINGURINN Peter Snell bætti í gær heimsmet sitt í míluhlaupi (1609 m ). Hljóp hann vegalengdina í Auckland á 3.54.1 en eldra heimsmet hans var 3.54.2. Annar varð Odlozil Tékkóslóvakíu á 3.56.4. Snell á heimsmetin í 800 m., 880 yarda hlaupi og 1000 m. hlaupi auk míluhlaupsins. Hann varð OL-meistari í 800 og 1500 m. hlaupum CASSIUS Clay er nú á bata- veigi og farinn að ganga lítil- lega um gólf í sjúkrastofunni. Blaðamönnum hefur enn ekki verið leyft að tala við hann og kona hans Sonji, lágvaxin en fögur, hefur bannað allar myndir af henni, en blaða- menn sækja mjög eftir viðtali og myndum af henni. Sam- kvæmt múhameðskum siða- venjum má eiginkona ekki koma fram í sviðsljósið um of. Yfirlæknar sjúkrahússins skýrðu blaðamönnum svo frá í gær að Clay yrði ekki fær um að keppa í hnefaleikum næstu sex mánuði. Aðgerðin hefði tekizt mjög vel og bat- inn væri hraður og góður. Harold Conrad auglýsinga- stjóri leiksins heimsótti Clay í gær. Hann sagði eftir á: „Hann talar allt of mikið. Læknarnir reyndu að fá hann til að þegja og kona hans reynir slíkt hið sama. Að sumu leyti er hann leiður — en á milli leikur hann á als oddi. Hann er farinn að hafa áhyggjur af sköttum ársins og öðrum fjármálum. Æfingarnar fyrir lei'kinn kosta hann 75 þúsund dali. Nú í fyrsta sinn þjaka hann fjárhagsáhyggjur. En í aðra röndina hefur hann gaman af því og gerir að gamni sínu“ sagði auglýsinga- stjórinn. Clay var klukkustund á skurðarborðinu og læknirinn sem aðgerðina framkvæmdi, dr. McDermott, segist hafa gert aðgerðina án endurgjalds. Læknirinn segir að Clay verði útskrifaður af sjúkrahúsinu um næstu helgi en verði síðan að hafa hægt um sig í 3 vikur Clarence X, talsmaður mú- hamedstrúarhreyfingar Clays segir að Clay hafi talað um það við sig að hann hlakki til að mæta „stóra birninum“ í hringnum áður en um allt of langt líður. Hann er ákafur í að komast til æfinga á ný.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.