Morgunblaðið - 18.11.1964, Síða 28
BOUILLON
TENINGAR
lELEKTROLUX UMBOÐIÐ
* LAUOA VEGI 69 sími 21800
Samstaða Framsðknarmanna
og kommúnista á ASl-þingi
Unnið að laffningu hitaveit uæðar í Grensásveg. Hún verður
eennilega tekin í notkun í n æsta mánuði.
ÞrNG Alþýðusamhandsins hélt
áfram í gær. Á fundinum var
alger samstaða með kommúnist-
um og Framsóknarmönnum um
kjör forseta og ritara þingsins
eins og verið hefur á síðustu
þingum. Var Björn Jónsson kos-
inn þingforseti með 198 atkvæð
um, en Eggert G. Þorsteinsson
hlaut 156 atkvæði. Auðir seðlar
voru 2 og ógildur 1. Við umræð-
ur um skýrslur stjórnar ASÍ forð
uðust forystumenn lýðræðis-
sinna allar deilur um málefni
sambandsins í þeirri von, að
unnt verði á þessu þingi að ná
málefnalegri einingu innan verka
lýðssamtakanna. Meðal tillagna
á þinginu í dag var frumvarp
'miffstjórnar ASÍ að fjárhags-
áætlun fyrir tvö næstu ár, þar
sem gert er ráð fyrir nær tvö-
faldri hækkun á skatti sam-
bandsfélaga til ASL
Fundurinn í gær hófst kl. 2
e.h. í upphafi fundar voru tekin
til afgreiðslu kjörbréf 5 nýrra
fulltrúa og kjörbréf fyrir 2 vara
fulltrúa. Voru þau öll samþykkt
samhljóða. Enn er eftir að af-
greiða kjörbréf tveggja fulltrúa
og verða þau tekin fyrir í upp-
hafi fundar í dag.
Þessu næst var gengið til kosn
Víða kalt í húsum — tafir
á hitaveituframkvæmdum
inga forseta og ritara. Var Björn
Jónsson kjörinn forseti, sem
fyrr segir. Fyrsti varaforseti var
kjörinn Óskár Jónsson og annar
varaforseti Jón Snorri Þorleifs-
son. Tillaga um aðra menn kom
ekki fram. Þá voru kosnir ritarar
þeir Tryggvi Emilsson, Sigurjón
Pétursson, Jón Bjarnason og
Björgvin Brynjólfsson. Ekki
voru tillögur um aðra menn.
Að lokinni kosningu forseta
og ritara hófust umræður um
skýrslu og reikninga stjórnar
ASI, sem lögð voru fram við
setningu þingsins. Fyrstur tók
til máls forseti ASÍ, Hannibal
Valdimarsson. í ræðu sinni rakti
hann hið markverðasta í starfi
stjórnarinnar sl. tvö ár og þá
einkum þróun kaupgjalds- og
kjaramála á þeim tíma.
Einkanlega ræddi hann þau
átök, sem orðið hafa á undan
förnum árum um kjaramál verka
lýðsfélaganna, og þá sérstaklega
úrskurði dómstólanna um ágrein
ingsatriði þeirra við atvinnu-
rekendur.
Hannibal ræddi einnig um
væntanlega stofnun Sparisjóðs al
þýðu í Reykjavík og nágrenni.
Taldi hann rétt, að öll meiri hátt
ar verkalýðsfélög í Reykjavík og
nágrenni ættu aðild að sparisjóðn
um. hér væri um þýðingarmikla
stofnun að ræða, sem efla þyrfti
sem bezt. Kvað hann stofnfund
sparisjóðsins verða væntanlega
haldinn fljótlega að loknu sam-
bandsþingi.
Þá ræddi forseti ASÍ um Kjara
rannsóknarnefnd, sem skipuð er
fulltrúum launþega og vinnu-
veitenda og kvaðst vænta góðs af
störfum hennar í framtíðinni.
Um skattamálin sagði Hanni-
bal, að hann teldi litlar líkur til
að nokkuð verulegt ynnist á til
hagsbóta fyrir skiattgreiðendur
varðandi þau opinberu gjöld,
sem á voru lögð sl. sumar,
Fratnhald á bls. 27
Skortur hótelher-
bergja í Reykjavík
UM ÞESSAR mundir eru flest gistihús í Reykjavík yfirfull og hafa
orðið að vísa frá mörgum þeirra, sem nú sækja til borgarinnar utan
af landi til að sitja þing og ráðstefnur eða í innkaupaferð fyrir
jólin. Auk Alþýðusambandsþingsins, sem nú stendur yfir, mun á
föstudag og laugardag verða haldin í Reykjavík árleg ráðstefna
kaupfélagsstjóra um land allt, svo að enn kann ástandið að versna.
í FROSTINU undanfarna 2 daga
hefur hitun húsa víffa verið
mjög ábótavant á hitaveitixsvæffi
Reykjavikur. Fólk hefur leitt
ýmsum getum aff ástæffunum
fyrir þessu, en Morgunblaðið
sneri sér í gær til hitaveitustjóra,
Jóhannesar Zoega, og spurðist
fyrir um orsakirnar.
Jólhannes kva'ð miklar fram-
kvæmdir hafa verið í sumar við
hitaveitukerfi borgarinnar, sem
auk þess hefði verið stækkað
um ló% á síðastliðnu ári. Hefði
Rússarnir enn
fyrir austan
AÐSPURÐUR í gær, kvað Pétur
Sigurðsson, forstjóri Landhelgis-
igæzlunnar rússnesk skip enn
fyrir Suðausturlandi utan 12
mílna fiskveiðimarkana. í fyrra-
dag voru 7 móðurskip á þessum
slóðum, en fiskiskip í nánd við
þau voru færri en gerzt hefur að
undanförnu.
Slys um borð í
Jóni Þorlákssyni
StEINT í. fyrrinótt varð slys um
borð í togaranum Jóni Þorláks-
syni, sem var að veiðum undan
Jökli, Andrés Straumland,
Iháseti, sem var að vinna við
togspilið, varð milli víra og hlaut
af því meiðsli einkum á höfði.
Togarinn hélt þegar til Reykja-
víkur og kom þangað um kl. 16
í gærdag. Var Andrés fluttur á
slysavarðstofuna oig síðan í
sjúkrahús. Hafði hann kjálka-
brotnað og hlotið auk þess fleiri
áverka, sem enn voru í rannsókn
í gærkveldi.
þessum framkvæmdum átt að
vera að fullu lokið í septemiber-
mánuði, en tafir orði'ð á af-
greiðslu tækja og verkinu ekki
lokið nú, er kuldakastið kom í
opna skjöldu. Hitaveitustjóri
skýrði frá þremur eftirfarandi
atriðum, sem hann kvað valda
vandræðunum:
1) Vesturbæjarstöðin nýja við
Fornhaga hefur ekki enn tekið
til starfa, þar sem helztu tæki
hennar komu ekki til landsins
fyrr en nú fyrir nokkrum dög-
um. Nokkur hundruð hús hafa
veri'ð tengd Vesturbæjarstöðmni
en aðeins einfaldri tengingu
ennþá, þannig að bakrennslis-
vatnið tapast. Sennilega verður
þetta þó komið í lag og stöðin
tekin í notkun eftir næstu helgi.
2) Komið hefur verið upp svo-
kölluðum lofteyðingartækjum við
borholurnar. Ekki hefur verið
hægt að taka þau í notkun ennþá,
þar sem staðið hefur á sjálfvirk-
um ventli (loka) sem stillir þryst
ing í millidælustöðinni. Þetta
gerir það að verkum, að meiri
mótþrýstingur er á holunum og
minna vatnsmagn fæst úr þeim.
Þessu verki verður sennilega lok
ið innan hálfs mánaðar.
Við þetta bætist það, að meðan
unnið er að þessari breytingu á
millidælustö'ðinni, er ekki hægt
að nýta varastöðina við Elliða-
ár, sem tengd er kerfinu. og hef-
ur varmamagn, sem samsvarar
um þriðja hluta alls varmamagns
Hafnfirðingar
HJARTA og æðaverndarfélag
Hafnarfjarðar efnir til fundar í
kvöld, miðvikudag, í Góðtempl-
arahúsinu kl. 20,30. Prófessor Sig
urður Samúelsson flytur erindi á
fundinum.
hitaveitusvæðanna í Reykjavík
og Mosfellssveit.
3) Dælan í borholunni við
Laugarnesveg, sem er hin stærsta
í Reykjavik, er biluð og starfar
aðeins með nokkrum hluta sinna
venjulegu afkasta. Viðgerð henn-
ar verður lokið nú í vikunni.
Aukning hitaveitunnar tefst
vegna tilrauna með dælur.
Ennþá eru óvirkjaðar í borg-
arlandinu 4 stórar holur og nokkr
ar smærri. Vatnsmagnið úr öllum
þessum holum nemur um 30%
þess, sem fyrir er. Virkjunin hef
ur dregizt á langinn, sökum þess
að verið er að reyna nýjar dælur.
Hefur enn ekki verið úr því skor
ið hverjar henti bezt við heitustu
holurnar.
F orsætisráðherra
segir f rá Israelsför
ANNAÐ KVÖLD verður kirkju-
kvöld í Hallgrímskirkju, og hefst
það kl. 8.30 — Bjarni Benedikts-
son, forsætisráðherra, segir þar
frá ferð sinni til ísrael. Þá syntg-
ur Svala Nielsen einsöng með
undirleik Páls Halldórssonar, en
Hallgrímskórinn aðstoðar.
Þetta er annað kirkjukvöld
Hallgrímskirkju á þessu hausti.
AÐALFUNDUR Larxclsmála-
félagsins Varðar verður hald-
inn í Sjálfstæðishúsinu í
kvöld og hefst kl. 8.30.
Að loknum venjulegum
aðalfundarstörfum
Morgunblaðið átti í gær tal við
Konráð Guðmundsson, forstjóra
Hótel Sögu. Konráð kvað hótelið
ekki vera alveg fullt, en mun
meira væri að gera en í fyrra á
sama tíma. í nóvember í fyrra
hefði nýtingin aðeins verið 48%,
en nú yrði hún að minnsta kosti
60%. Öll ódýrari herbergin væru
nú upptekin, en nokkur hinna
stærri og dýrari laus. í Hótel
Sögu eru 90 herbergi með um
150 rúmum. Upptekin voru í
gær 70 herbergi með um 100
manns.
Konráð kvað ástæðuna fyrir
því, að ekki eru öll herbergi leigð
á Sögu, þótt skortur sé á húsnæði
Gunnar G. Schram.
Gunnar G. Schram, ritstjóri,
ræðu, og fjallar þar um stjórn
arskipti þau, sem nýlega hafa
orðið í austri og vestri.
fyrir aðkomufólk um þessar
mundir, líklega vera þá, að mörg-
um muni ekki kunnugt um af-
slátt þann, sem hótelið veitir
gestum að vetrarlagi, en hann
næmi frá 20 til 50% frá sumar-
verði.
Skrifstofustjóri Hótel Borgar,
Jón Magnússon, sagði, að gisti-
húsið væri yfirfullt og hefði orð-
ið að vísa mörgum frá. Hann
kvað hvert herbergi yfirleitt
hafa verið leigt undanfarin ár,
nema helzt í desember og janú-
ar. Á Hótel Borg eru 46 herbergi
með gistirými fyrir 75 manns.
Ingólfur Pétursson, hótelstjóri
á City Hotel, kvað miklu meira
en yfirfullt, þar sem 23 gesturn
hefði verið komið fyrir í her-
bergjum úti í bæ. Minnti nóvem-
bermánuður helzt á hásumarið,
þegar setið væri um hvert her-
bergi, sem losnaði. Reyndar kvað
Ingólfur alltaf vera fullt á City
Hotel nema um jólaleytið. 44 gest
ir væru nú í gistihúsinu í 28 her-
bergjum. Auk íslendinga, sagði
Ingólfur, að talsvert væri um er-
lenda langdvalargesti, sem flest-
ir hefðu verið fengnir um tíma
til tæknilegrar aðstoðar ýmsum
fyrirtækjum í Reykjavik. Þá
væru alltaf nokkrir gestir, sem
hér hafa nokkurra daga viðdvöi
á leið yfir Atlantshafið með flug-
vélum Loftleiða.
Á Hótel Skjaldbreið var allt
troðfullt, að sögn hótelstjórans,
og mörgum hafði verið vísað frá.
Hann kvað hvert herbergi hafa
verið leigt síðan í vor, að örfáum
undantekningum, þegar gestir
hefðu ekki komið á þeim tíma,
sem þeir höfðu pantað. Á Skjald-
breið er rúm fyrir 60 manns í 30
herbergjum.
Þá var einnig fullt á Hótel Vxk,
að sögn starfsfólksins. Þar gista
38 manns í 25 herbergjum hótels-
ins, þar á meðal danska hand-
knattleiksliðið Ajax.
Varðárfélagar eru hvattir
flytur til að íjölmenna á fundinn.
Aðalfundur Varðar