Morgunblaðið - 03.12.1964, Side 21
Fimmtudagur 5. des. 1964
MORGU NBLAÐIÐ
21
FYRSTA Ólympíuskákmótið var
ihaldið í London 1927, en þar
unnu Danir sinn fraegasta sigur
er þeim tókst að ná öðru sæti.
Síðan hafa mótin verið haldin
í eftirtöldum borgum:
1928 Haag
1930 Hamborg
1933 Folkestone
1935 Varsjá
1936 Múnchen
1937 Stokkhólmi
1939 Buenos Aires
1950 Dubronvic
1952 Helsingfors
1954 Amsterdam
1956 Moskva
1958 Múnchen
1960 Leipzig
1962 Varna
1964 Tel Aviv
Islendingar hafa tekið þátt í
12 mótanna og staðið sig nokkuð
misjafnt, en beztur var érangur
Iheildarinnar fyrir stríð í Buenos
Aires, er þeir unnu B-riðil og
þar með forsetabikarinn. Eftir
stríð var frammistaðan bezt í
Amsterdam, en iþá komst sveitin
í A-riðil. Einnig má telja annað
sæti í B-riðli í Moskvu ágætan
árangur.
íslenzku þátttakendurnir í Tel
Aviv fóru mjög ilja af stað í
undanrásum mótsins, og höfn-
uðu í C-riðli úrslitakeppninnar.
Síðan úrslitakeppnin hófst hafa
þeir stöðugt sótt sig, og sigruðu
að lokum í riðlinum.
Eftirfarandi skák er tefld í
undanrásum og á ‘fyrstaborðs
maður íslands, Björn Þorsteins-
son, 1 höggi við Kanadamanninn
D. A. Yanofsky. Björn fær öllu
frjálsara tafl í byrjuninni, en í
miðtaflinu jafnast leikurinn
nokkuð, þar til Birni tekst að
flétta mjög skemmtilega, og
vinnur skiptamun. Þegar hér er
komið á Björn auðunna skák, en
nú fara taugarnar að segja til sín
og Birni tekst að sneiða fram hjá
öllum vinningsleikjum sínum og
tapar loks á tíma. Sorglegur
endir.
Hvítt: Björn Þorsteinsson, fsl.
Svart: D. A. Yanofsky, Kanada
Sikileyjarvörn
1. e4, c5; 2. Rf3, e6; 3. d4, cxd4;
4. Rxd4, a6; 5. Bd3, Dc7; 6. 00,
Rf6; 7. Rc3, b5; 8. De2, d6; 9. a3,
Be7; 10. f4, Rbd7; 11. Bd2, 0-0;
12. Hael, Bb7; 13. Khl, Rc5;
14. Hf3, Hfe8; 15. Hh3, g6;
16. Rf3, e5; 17. f5, d5; 18. fxg6,
fxg6; 19. Rg5, d4?
Yanofsky yfirsést hinn snagg-
aralegi 20. leikur Björns. Skárra
virðist 19. — Rxd3; 20. cxd3, d4;
21. Rdl (Ef 21. Rd5, Rxd5; 22.
exd5, Bxg5; 23. Bxg5, Bxd5) og
staðan er u. þ. b. í jafnvægi.
20. Bc4!, Kh8; Ef 20. — bxc4;
21. Dxc4f, Kh8; 22. Rxh7!, Rxh7;
23. Df7 og mátar eða vinnur
drottninguna.
21. Rd5, Bxd5; 22. Bd5, Ha7;
23. Rf7f, Kg8; 24. Rd6t, Kg7;
25. Rxe8f, Rxe8; Björn hefur
teflt ágætlega til þessa, en er nú
sennilega kominn í tímaþröng,
og gerir nokkra ónákvæma leiki,
sem leiða til algjörs skipbrots
fyrir hann. 26. Bh6f Sennilega er
sterkasta áiramhaldið hér 26.
Df2. Ef 26. — Rf6; 27. Dh4, Rcd7
og nú er 28. c3 einfaldast. Einnig
má benda á 26. c3 strax og svarta
staðan er gjörsamlega vonlaus.
26. — Kh8; 27. Hfl, Rf6; 28.
Hhf3, Dd6; 29. Df2. Afgerandi
virðist 29. Bf8!, t. d. Rxd5; 30.
exd5. Ef nú a) 30. — e4; 31. Hf7,
Kg8; 32. Df2!. b) 30. — Kg8;
31. Hf7! Leppar Be7 og vinnur
sbr a. c) 30. — Bxf8; 31. Hxf8f,
Kg8; 32. b4!, Rd7; 33. Hfl-f7f,
Kh6; 34. Dd2f, g5; 35. Hg8 og
vinnur. cl) 32. — Ra4; 33. Df3
ásamt Hf7f, Dxf7f og e. t.-v. De6
og vinnur. 29. — Rcd7; 30. Ba2?
Tapleikur eða því sem næst!
Bezt virðist hér 30. c3! og vinn-
ur að því er virðist fremur auð-
veldlega.30. — Rxc4; 31. De2?
Skárra var 31. Del. 31. — Ref6;
32. h3, Ha8; 33. Bd2, e4; 34.
Hf3-f2? Eftir 34. Bb4! er hugs-
anlegt að hvítur geti bjargað sér.
T. d. 34. — exf3^ 35. Dxe7, fxg2f;
36. Kxg2, Dxe7; 37. Bxe7 hefur
hvítur jafnteflis möguleika. —
Bezta svar svarts við 34 Bb4 er
e.t.v. 34. — De5 og staðan er
flókin og vandtefld. 34. — Rh5;
35. Bf4, Dxf4!; 36. Hxf4, Rg3f;
37. Kh2, Rxe2; 38. Hxe4, Bd6f;
39. g3, Rxg3 og hvítur féll á tíma
í þessari vonlausu stöðu.
IRJóh.
Látið ekki dragast að athuga
bremsurnar, séu þær ekki í
lagi.
Fullkomin bremsuþjónusta.
Orðsending til íbúa
Reykiavíkur og núgrennis:
Okkur er ánægja að tilkynna, að við höfum opnað kjörbúð að
Laugavegi 116
í Reykjavík þar sem áður var Egilskjör. Við munum hafa á boðstól-
um f jölbreytt vöruúrval og leggja sérstaka áherzlu á góðar kjötvörur.
Gjörið svo vel að líta inn
SLÁTURFÉLAG
SUÐURLANDS
Kjörbúðin Laugavegi 116 — Símar 23456 og 23457.
Smásala — Laugavegi 81.
/ kvöld
Franska dansmærin
Nadiana
GL AUMBÆR swii777
Bezt ú auglýsa í IVIorgunblaðinu
Jóla-bingó - Jóla-bingó - Jóla-bingó |
Kvennadeild Barðstrendingafélagsins í Reykjavík efnir til bingóskemmtunar í Sigtúni í kvöld, 1
t'immtudagskvöld kl. 9 síðdegis.
Fjöldi ágœtra vinninga — þar á meðal sjónvarp — Húsgögn
— Jólagjafir í miklu úrvali — Jólamatur og fl. —
Dansað til kl. 1. — Borðpantanir frá kl. 5 síðdegis. — Félagar fjölmennið og takið með ykkur gesti.