Morgunblaðið - 03.12.1964, Page 27
Fimmtudagur 3. des. 1964
MORGUNBLAÐIÐ
2r/
Veltur framtíð Argentínu
á gerðum Juan Perons?
Nafn hans er fjöldanum töfraorð —
Erfiðleikar Argentínu eru afleiðingar
óstjórnar hans, en almenningur virðist
ekki gera sér það ljóst
Juan Peron (fyrir miðju). Myndin er tekin á Spáni. Með hon
um er hin nýja eijinkona hans og lífvorður.
JUAN PERON, fyrrum ein-
valdur Argentinu, virðist ætla
að standa við það, sem hann
sa.jði fyrir nokkrum mánuð-
um. „Ég verð kominn aftur tii
Argeníínu áður en árið er lið-
ið“, sagði hann. Mikill órói
hefur gripið um sig þar í
landi. Er þess skemmst að
minnast að fyrir nokkrum
vikum bárust út lausafregnir
þess efnis, að Peron væri far-
inn frá Spáni, þar sem hann
hefur verið í útlegð. Er þessi
tiðindi spurðust í Buenos
ÁTres, varð uppþot í kaup-
höllinni, ráðherrar kallaðir
saman á ráðuneytisfund fyr-
ir birtingu, varalið löigreglu
kvatt út o.s.frv. Fregnirnar
reyndust að þessu sinni ekki
á rökum reistar, og margir
drógu andann léttar. — En
nú er Peron kominn til Súður-
Ameríku, þ.e. Brazilíu, og
virðist nú sem til tíðinda kunni
að draga innan skamms.
JÞað virðist vera nægilagt, að
nefna hinn 69 ára afdankaða
einvald á nafn, til þess að
upphlaup verði í Argentínu,
hvað þá að það sé staðreynd,
að hann sé kominn til 'ná-
grannaríkis. Menn hafa vitað,
að Peron hefur á undanförn-
um mánuðum rætt við sendi-
menn frá Perónistahreyfing-
unni í Argentínu, og enn-
fremur verið í sambandi við
ýmsa yfirmenn hersins, og
foringja annara flokka í
Argentínu. Mun því stjórnar-
völdum landsins vafalaust
finnast þau sitja á púður-
tunnu, sem sprungið getur í
loft upp fyrr en varir.
Landflótta fyrir 9 árum.
Níu ár eru nú liðin frá því
að Peron var velt úr sessi og
hann varð að flýja land.
Draumur hans um að gera
Argentínu að „fyrirheitna
landinu" fyrir hina fátæku,
„hina skyrtulausu“, hafði ekki
rætzt. Þessi draumur var að
mestu upp byggður af konu
hans, Evitu Peron, og hún var
nánast holdi klætt tákn hans
í auigum landsfólksins. En
skýjaborgirnar hrundu í rúst
er Evita Peron lézt af krabba-
meini, og þá tók að halla
undan fæti hjá Peron. Evita
var ekki aðeins stoð hans og
stytta, heldur er einnig mælt,
að hún hafi verið manni sín-
um slungnari í stjórnmálum.
Evita Peron
Er Evita Peron lézt fyrir níu
árurn, varð Peron sjálfur, sem-
ýmislegt kunni fyrir sér varð-
andi múgsálina eftir dvöl sem
hernaðarráðunautur sendiráðs
Argentínu 1 Ítalíu Mussolinis,
að flýja land oig á náðir ann-
ars einvalds, Franco á Spáni.
Má af þessu sjá, hvílíkt afl
tilvera Evitu Peron var.
Peron settist að í Madrid,
í lúxusíbúð í útjarðri borgar-
innar. Fyrir sex árum kvænt-
ist hann aftur, 28 ára gömlum
einkaritara sínum Isabellu
Martinez.
Isabella Martinez er í dag
meiriháttar vandamál fyrir
Peron. Hann hefur ekki farið
dult með það í kunningjahópi,
að snúi hann aftur til Argen-
tínu, geti hann ekki tekið hana
með sér, því Peron-helgisögn-
in þar í landi er ekki hvað
minnst terugd nafni Evitu
Peron, sem enn er nánast til-
beðin sem dýrlingur af Peron-
istum.
Mörg Ijón á veginum
En það eru mörg önnur
ljón á veginum til valdatöku
í Argentínu. Ef Peron kemur
aftur til landsins, bíða hans
ákærur fyrir landráð, mis-
notkun ríkisvaldsins, og í
ofanálag ein eða tvær kærur
fyrir siðferðisafbrot gagnvart
unglingum. Nú- velta menn
vöngum yfir því, hvað verða
muni um þessar kærur í því
tilviki að Peron komizt til
Argentínu, og hvort hugsan-
legt væri, að þær yrðu látnar
niður falla.
Hinsvegar er það talið Ijóst,
að ef Peron kemur fram á
sjónarsviðið í Angentínu nú,
mundi algjör upplausn og
ringulreið skapast í landinu,
og hætt yrði jafnvel við blóð-
ugri borgarastyrjöld. Og ein-
mitt nú eru skilyrði til þess,
að Peron nái völdum, honum
hagstæð. í fyrsta laigi hefur
hann að baki sér skipulagða
hreyfingu Peronista meðal
verkamanna. Hún telur a.m.k.
þrjár milljónir manna. Hin
brennandi spurning er hins-
vegar hvað herinn mundi
gera, því það var einmitt her-
inn, sem felldi Peron fyrir níu
árum. Og hvað segir stjórn
Ilias forseta?
Mörg og mikil vandamál
Vandamál þau, sem hafa
gert lýðræðisstjórnarfar í
Argentínu nær ómögulegt, eru
velflest arfur frá valdatímum
Perons. En annað hvort gerir
almenningur sér ekki grein
fyrir þeirri staðreynd eða
hann hreinlegar lokar aug-
unum fyrir henni.
Aðalvaldamálið liggur í þvf,
að helmingur íbúa Angentínu
lifir af eða á að lifa af land-
búnaði. Hinn helmingurinn
eru verkamenn, í öflugum
verkamannasamböndum. Á
valdatímum Peron^ hlúði hann
að verkamönnum á kostnað
landbúnaðarins. Peron byggði
upp iðnað, dýran og óhag-
kvæman iðnað, til þess að
öðlast stuðning verkamann-
anna. Landbúnaðarkreppa
sigldi í kjölfarið og svo hefur
farið fyrir Argentínu, þessu
mesta hveitiframleiðslulandi
heims, að grípa hefur orðið til
brauðskömmtunar oftar en
einu sinni. Verðbólga hefur
vaðið óbeizluð yfir landið,
gjaldeyrisforðinn gufað upp,
en það eina, sem verkamenn-
irnir virðast taka eftir, er að
verð á lífsnauðsynjum hefur
áttafaldast frá því að Peron
fór frá völdum.
Peronistahreyfingin
Peronistahreyfingin telur
um þrjár milljónir manna.
Hún er mjög vel skipulögð
og óbrotgjörn. En meðlimir
hennar hafa verið rændir
venjulegum mannréttindum,
oig þeir hafa þannig t.d. haft
mjög takmarkaðan kosninga-
rétt.
Á seinni árum hafa Peron-
istar fengið byr undii- báða
vængi í Argentínu, vegna
hinnar hroðalegu verðbólgu
og efnahagsmálaástandsins í
landinu. Auk þess hefur
hreyfingin fengið ungan, og
dugmikinn leiðtoga, hinn 43
ára Timoteo Vendor. Hann er
fyrrverandi foringi í sjóhern-
um, og leiðtogi samtaka málm-
iðnaðarmanna. Gælunafn
hans er „E1 Lobo“ — úlfur-
inn. Vandor hefur komið fyrr-
um leiðtoga Peronista, Andres
Framini, út úr spilinu. Hins-
vegar mun Peronistahreyfing-
in vera að nokkru klofin, því
Vandor hefur not fyrir Peron,
ekki mannihn Peron, heldur
helgisögnina Peron. Talið er
að Vandor hafi enigan áhuga
á að missa forystuhlutverkið
úr höndum sér. Það var vegna
þess, sem hann fór til Spánar
í ágúst sl. og settist þar á rök-
stóla með Peron, og samdi
um endurkomu hans til Argen-
tínu.
Margir um boðið.
En Peronistar eru ekki þeir
einu, sem telja sig hagnast á
endurkomu Perons. í Argen-
tínu eru ýmsir aðilar, sem
telja sér hag í að hann komi
til landsins.
Hin veika ríkisstjórn Illias
hefur áhuga á því, að því er
talið er, að Peron styðji hin
meira hægfara öfl innan
Peronistahreyfingarinnar, og
þannig geti hann e.t.v. stutt
stjórnina óbeint gegn hernum,
og unnið henni skilninig meðal
verkamanna.
Frondizi, fyrrum forseti
Argentínu, sem enn vonar að
sér muni aftur auðnast að
leika aðalhlutverkið í Argen-
tínskum stjórnmálum, hefur
einnig leitað til Perons um
hvort hugsanlegt væri að þeir
tveir gætu ruglað reitum sín-
um.
Loks ber æ meira á því, að
ungir forinigjar í hernum
styðji Peron, enda Þótt búizt
sé við, að herinn muni berjast
með öllum tiltækum ráðum
gegn því að Peron, sem herinn
setti af, nái völdum á nýjten
leik.
Enn einu sinni er Peron því
orðinn sá maður, sem framtíð
Argentínu virðist munu velta
á.
Syningar Kjortons Ó. Bjoninsonar
í Hnfnnrfirði og Kópavogi
— Kongó
Framhald af bls. 1
Tshombe, sem staddur er í Paris,
átti í dag fund með fréttamönn-
um. Lét hann svo um mælt, að
Kongóbúar væru eins og börn,
er villzt hefðu í myrkri og reyndu
að berjast áfram. Sagðist hann
kominn til Parísar til þess að
biðja Frakka um tæknilega að-
6toð — en hvorki fé né fallbyssur.
Skömmu eftir blaðamanna-
fundinn tilkynnti upplýsinga-
málaráðherra Frakka, að stjórn-
in hefði ákveðið að veita Korngó
áfram tæknilega aðstoð og menn-
ingarlega — og þá fyrst og
fremst til þess að endurskipu-
leggja stjórnarkerfi landsins.
Tshombe hafði rætt við de
Gaulle forseta í gær og lét svo
ummælt við fréttamenn, að for-
eetinn væri einstaklega vel að
sér um málefni Afríku. „Það er
»«
atkunna að hann elskar Afriku
og getur því ekki látið afskipta-
lausa þá þolraun, sem við nú
eigum í. Við lítum á Frakkland,
sem von og Ijós í myrkrinu, án
þess þó við vanmetum þá miklu
aðstoð, sem við njótum annar-
staðar frá“, sagði Tshombe.
Haft er eftir áreiðanlegum
heimildum, að Tshombe hafi
lagt fyrir frönsku stjórnina á-
ætlun, sem byggist á því að skipta
Kongó í þrjú „endurreisnar-
svæói“. Mun eitt þessara svæða
taka yfir Leopoldville-svæðið —
mið- og vesturhluta Kongó, •—
annað Katanga og hið þriðja
Stanleyville-svæðið, — norður
og norðausturhluta landsins. Þá
mun honum mikið í mun að end
urskipuleggja herinn og lögregl
una og vonast til að fá tii þess
evrópska ráðgjafa-
— Kjarnorkuher
Framhald af bls. 2
kjarnorkustyrk hefði þann kost,
að með henni væri spornað gegn
dreifingu kjarnorkuvopna — ein
stökum aðildarrikjum væri gert
kleift að taka þátt í kjarnorku-
vörnum, án þess að hafa eigin
kjarnorkuher. Hinsvegar væri
ekki þar með sagt, að þetta væri
eina leiðin til að ná slíku marki.
Þá kvaðst Brosio vantrúaður á,
að hættan á klofningi NATO út
af fyrrgreindum kjarnorkuher
væri eins mikil og margir vildu
vera láta. Hvatti hann til þess
að málið yrði reifað af skynsemi
en tilfinningar lagðar til hliðar.
í tillögu bandalagsins, sem sam
þykkt var í dag, segir, að kjarn-
orkustyrkur NATO ætti að vera
undir ströngu eftirliti stjórnmála
manna viðkomandi ríkja — og
skuli umfram allt miðað að því
að hindra frekari útbreiðslu
kjarnorkuvopna til einstakra
ríkja.
KJARTAN Ó Bjarnason kvik-
myndatökumaður hefir að und-
anförnu haldið um 90 sýningar
á nokkrum kvikmyndum sínum
víðsvegar hér á landi. Hafa þær
verið mjög vel sóttar og mesta at
hygli vakið mynd hans um Surts
ey og Norðurlandakeppni í hand
knattleik kvenna.
Síðustu sýningar Kjartans hér
á landi að þessu sinni verða í
Hafnarfjarðarbíói næstkomandi
fimmtudag 3. desember og föstu
ag 4. desember og í Kópavogs-
bíói þriðjudaginn 7. desember.
Kjartan mun ekki hafa tæki-
færi til að sýna myndir sínar hér
í Reykjavík að þessu sinni, því
hann er á förum til Noregs þar
sem hann mun hafa sýningar á
1 myndum sínum í vetur. 1
Á sýningarskrá Kjartans er
mynd frá Noregi, Vor í Noregi,
urlandkeppni í handknattleik,
Vetrarolympíuleikum 1964, skíða
myndir frá Noregi, Vor í Noregi.
heimsókn Philips prins til ís-
lands, fegurðarsamkeppnin 1964
og loks mynd frá Surtsey og
vertíð í Vestmannaeyjum.
2600 gærur sútaðar
SÚTUN hf. á Akranesi er búin að
starfa í 3 vikur á þessu hausti og
hafa verið sútaðar 2600 gærur,
samkvæmt upplýsingum frá
Guðna Einarssyni. Eru vikuaf-
köstin 750 gærur, en verða um
1 1000 gærur á viku eftir áramót.