Morgunblaðið - 20.01.1965, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 20.01.1965, Blaðsíða 16
16 MCRGUNBLADIÐ Miðvikudagur 20. jan. 1965 BIRGIR GUÐGEIRSSON SKRIFAR UM HLJÓMPLÖTUR AÐ svo miklu leyti, sem nokkuð verður fullyrt um slíkt, er óperan „Carmen'* eft- ir Bizet vinsælasta ópera í heimi. Þetta verk var flutt í fyrsta sinn 3. marz 1875 við geysilegar óvinsældir. Þrem mánuðum síðar dó tónskáldið úr hjartabilun tæplega þrjá- tíu og sjö ára að aldri. Ekki leið á löngu að óperan næði hylli fólksins. Sagt er, að Bis- marck hafi séð hana tuttugu og sjö sinnum. Liszt, Wagner og Nietsche höfðu hana í miklum hávegum og Tchaikov sky sagði, eftir að hafa séð hana og heyrt árið 1876, að innan tíu ára yrði hún vin- sælasta ópera í heimi. Vin- sældir þær, sem „Carmen" hlaut skömmu eftir andlát tón skáldsins hafa ekki einungis haldizt æ síðan heldur aukizt ár frá ári, og nú þegar þetta er skrifað í ársbyrjun 1965, hafa þrjár hljóðritanir á þessu meistaraverki Bizet komið á markað með nokkurra mán- aða millibili. Seinasta hljóðritunin á „Carmen“ var gefin út skömmu fyrir áramótin síð- ustu og fer þar Maria Callas með aðalhlutverk. Callas er eins og við vitum skapmikil listakona og kunn fyrir alls konár óhljóð, sem að hennar sögn eiga að vera persónu- einkennum viðkomandi hlut- verks til framdráttar. Þessi hljóðritun hefur ekki borizt til landsins ennþá, en er örugg lega athyglisverð. Önnur hljóðritun á „Carmen" kom út á vegum E>ecca með Regina Resnik í aðalhlutverki. Resnik er fyrir all nokkru búin að missa röddina að verulegu leyti og er þessi hljóðritun m.a. þess veigna lítt girnileg til eigu. Þriðja hljóðritunin kom út í vetur á vegum RCA undir stjórn Herbert von Karajan þar sem Leontyne Price og Franco Corelli fara með aðalhlutverkin. Þessi hljöðritun er svo mörgum kost um prýdd, að rétt er að huga nokkuð nánar að henni. Dálítið undarlegt er það, hve menn skiptast í tvo hópa að því er hljómsveitarstjór- ann Herbert von Karajan varð ar. Engu er líkara en sumum þyki fínt að skíta hann út og lasta. Aðrir hafa hann í svo miklum metum, að þeir telja hann öðrum núlifandi hljóm- sveitarstjórum fremri. Álit hinna síðamefndu er örugg- lega nær sanni. Afstaða þeirra, sem lasta Karajan er talsvert skiljanleg hvað sin- fóniska tónlist áhrærir. Gam- alreyndir tónlistarunnendur eru að öllu jöfnu þrælavanir að heyra sinfóníur Brahms og Beethovens fluttar af mönn- um eins og Weingartner, Walter, Furtwángler, Kousse- vitsky, Toscanini o.s.frv. Við þann hrikalega samanburð finnst þeim Karajan heldur smár. En heyri þeir hann stjórna óperu, mundi efalaust margur endurskoða álit sitt á Karajan sem hljómsveitar- stjóra. f óperuflutningi er Herbert von Karajan næsta makalaus. Reyndar höfum við ekki ýkja mörg sýnishorn með fyrr- greindum hljómsveitarstjór- um, þar sem þeir stjóma óper um. En þó all nokkur. Hvað sem öðru líður mun óhætt að staðhæfa, að Karajan nái meiri nákvæmni f flutningi en nökkur hinna. Það hefur reyndar oft verið sagt, að hug ur og hjarta Karajans sé fyrst og fremst óperan, og af hljóm plötum að dæma, er það ekki fjærri lagi. Sem dæmi má nefna heilan aragrúa af óperu-hljóðritun- um og skulu hér nokkrar taldar: „Brúðkaup Figaros", „Töfraflautan“ og „Cosi fan tutte“ eftir Mozart, „Rósa- riddarinn“, „Capriccio“ og „Ariadne auf Naxos“ eftir Richard Strauss. Beztu óper- ur Verdis þ.e.a.s. „Falstaff“ ög „Othello“ að ógleymdri óperu Humperdincks „Hans og Gréta“. Það raunalega við þessa upptalningu er skortur á Wagner-óperum. Að vísu er til gömul og góð upptaka á „Meistarasöngvur- unurn" auk þriðja þáttar „Valkyrjunnar“ og þar með ekki meir. Það er grátlegt, að Dacca skyldi ekki fá Karaj- an til þess að stjóma sínum frábærlega hljóðrituðu Wagn- er-upptökum. Við getum að- eins beðið og vonað að úr því verði einhvem tíma bætt. Hljóðritun RCA (tæknifræð- ingar Dacca sáu um hana) á „Carmen" verður, þegar allt kemur til alls að teljast ein bezta ef ekki bezta hljóðrit- un, sem út kom á árinu 1964. Fer þar allt saman. Stórbrot- inn flutningur, makalaus hljóðritun og glæsilegur frá- gangur. Þessi upptaka kom hingað til lands í örfáum ein- tökum og mun gersamlega uppseld. Dómar erlendis voru ágætt sýnishorn þess, að krit- ik er fyrst og fremst smekks- atriði, þegar öllu er á botninn hvolft. Þannig fannst einum gagnrýnenda flutningur Kar- ajans allt of hæigur og ger- manskur, en öðrum fannst hann svo æsandi og spenntur í spilinu að hann hélt naum- ast út að hlusta á verkið. En flestir voru sammála um að þetta væri einhver skorkost- legasti flutningur, sem þeir hefðu heyrt á óperunni. Leontyne Price fer með hlutverk Carmen. Hennar fá- gæta raddfegurð nýtur sín í bezta máta. Sumum finnst röddin of fögur fyrir hlut- verkið, en slíkt er firra. Ann- ar eins flutningur hefur varla heyrzt síðan Conchita Super- via söng forðum, en þeir dag- ar eru löngu liðnir. Leontyne Price kemur manni vissulega talsvert á óvart hér a.m.k. við fyrstu heyrn, en hún vinn- ur sífellt á við frekari endur- tekningar. Víst er að Karajan hefur setið með hana klukku- tíma eftir klukkutíma við að þjálfa hana og skóla við flutning verksins. Price syng- ur hér oft nokkuð hásri rödd ag letilegri, en erótískt. Og hið síðastnefnda leggja þau Karajan og hún vitaskuld í samræmi við eðli og tilgang tónskáldsins, megin áherzlu á. Hvort Price gengur of langt hvað það varður, skal ósagt látið, en vissulega fer hún oft fram á hengiflugið. Franco Corelli syngur hlut- verk Don José af þeirri inn- lifun og raddfegurð, sem molar alla gagnrýni á með- höndlun hans á nótnagildi oig slíku, en því er mjög ábóta- vant Corelli, sem hefur ein- hverja fegurstu og volduig- ustu rödd, sem ítalskur tenór getur státað af nú í dag, syng ur hér (eins og í „Andrea Chenier“) af þeirri hjartans sannfæringu og innblæstri, að engum er verulega láandi, þótt hann sé með gæsahúð meirihluta þess tíma, sem Corelli gefur hljóð frá sér. Túlkun Corelli er frábær ag einstök. Robert Merrill fer með hlut- verk nautabanans Escamillo. Sá persónuleiki er leiðinlegur af hendi höfundar og Merrill gerir hann enn leiðinlegri. Röddin hörð og stíf, en jafn- Heibert von Karajan Karajan hlustar framt talin ein sú bezta við Metropolitan óperuna í New York, svo líklega mun mörg- un þykja hann ágætur í þess- ari upptöku. Minni hlutverk eru vel frambærilega sungin. Þegar allt kemur til alls, er það samt sem áður Karaj- an og Philharmóníuhljóm- sveitin í Wien sem mynda kórónu þessarar meistara- legu upptöku. Hlutur Karaj- ans er slíkur, að hinir þvæld- ustu hlutar óperunnar hljóma sem nýir og allt verkið í heild sem innblásið á staðn- um. Menn skyldu aðeins hlusta á upphafið, forleikinn, og svo endinn. Allt, sem þar er á milli er eins stórkost- leigt af hendi hljómveitartjór- ans. Sá sem af vandvirkni og opinni dómgreind hlýðir á þennan flutning, mun vissu- lega segja við sjálfan sig: Hví líkt feiknarlegt stórmál er Herbert von Karajan orðinn, sem hljómsveitarstjóri. Eins og áður var að vikið eru tóngæði upptökunnar frá- bær. Ég hefi naumast heyrt eins góða hljóðritun hvað þá betri. Ein nýjasta upptakan á „Le Sacre du Printemps“ („Vor- blót“) eftir Stravinsky er frá Deutsche Grammophon þar sem Karajan stjórnar Phil- harmóníuhljómsveitinni í Ber lín. Þetta er að líkindum tæknilega bezt gerða hljóð- ritun, sem hingað hefur borizt frá Deutsche Grammophon. Túlfcun Karajans og leikur þessarar undraverðu hljóm- sveitar er svo kynigimagnað- ur og yfirþyrmandi að við borð liggur að hin ágæta þriggja ára gamla hljóðritun undir stjórn höfundarins standi uppi sem smámál við hliðina á þessu „risafyrir- tæki“. Enskir gagnrýnendur, sem margir hverjir hafa um áratugabil gengið með ger- manahatur í maganum ag kannske víðar, finna þessum flutningi það til fðráttu að hann sé germanskur, en viður- kenna þó að hann sé í efsta gæðaflokki. Það sem þeim þyk- ir minus, getur okkur hæg- lega virzt plús. Eins og við vitum, seldist heildarútgáfa Deutsche Grammophon á sinfóníum Beethovens í stóru upplagi hérlendis og í heild munu hafa selst a.m.k. ein milljón eintaka að þeirri afbragðsút- gáfu. Skömrnu fyrir jól sendi Deutsche Grammophon frá sér annað albúm með ýmsum helztu hljómsveitarverkum Brahms undir stjórn Karaj- ans. Þær plötur eru seldar á mjög hagstæðu verði miðað við að allar sjö séu keyptar sem heild. Hver plata mun vera næstum 100 krónum ó- dýrari en gerist um aðrar og sambærilegar hljómplötur. Eftir fyrri reynslu að dæma af eldri hljóðritunum á sinfó- níum Brahms í meðförum Karajans, stenzt hann naum- ast samanburð við menn eins og Toscanini, Furtwángler eða Bruno Walter. Þess ber þó að geta, að upptaka sú, er Karaj- an gerði skömmu eftir sein- aista stríð á „Þýzkri Sálu- ,messu“ eftir Brahms, héfur oft verið talin hans stærsta afrek á sviði hljóðritunarinn- ar, „Þýzka Sálumessan" er í þessari nýju útgáfu og verður fróðlegt að kynnast henni nán ar. Því miður eigum við þess ekki kost að gera samanburð á flutningi Karajans á „Sálu- . messunni“ og fýrngreindra hljómsveitarstjóra, þar eð enginn þeirra skildi eftir sig arf til seinni sikynslóða á þeim skylningi og því innsæi, er þeir báru til þessa verks.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.