Morgunblaðið - 05.02.1965, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 05.02.1965, Blaðsíða 1
28 síður Þriggja ára smygl- mái fellt niöur Olögleg stöðvun bifreiðarinnar, sem flutti írsku happdrættismiðana frá Goðafossi Newark, New Jersey, 4. febrúar — (AP) — BANDARÍSK yfirvöld hafa fellt niður ákæru á hendur þremur mönnum í New Jersey fyrir að hafa reynt, með að- stoð þriggja manna af áhöfn Goðafoss, að smygla til Banda ríkjanna írskum happdrættis- ntiðum að verðmæti rúmlega 6 millj. dollara í marz 1962. Var það aðstoðarsaksóknari Banda ríkjanna, J. Norris Harding, sem skýrði frá þessu í dag. Bandaríkjamennirnir þrír, sem viðriðnir voru mál þetta, eru Frank J. Gardner, fulltrúi hjá Nacirema félaginu í New Jersey, Harry T. Venable, vörubílstjéri, og Angelo F. Ferraro, forstjóri flutningafé- lagsins Ferraro Transport Co. Inc. Menn þessir voru handtekn- ir hinn 12. marz 1962 í Jersey City sakaðir um að hafa reynt að smygla í iand úr Goðafossi tveimur kössum með samtals 80 pökkum af írskum happ- drættismiðum. — Stjórnaði Gardner aðgerðum, en miðana átti að flytja með bifreið frá Ferraro-félaginu og var Ven- able ökumaðurinn. Lögreglan stöðvaði bifreiðina á bryggj- unni. íslenzku sjómennirnir þrír, sem talið var að Bandaríkja- mennirnir hafi fengið til að flytja happdrættismiðana frá írlandi, voru einnig handtekn- ir, en þeim leyft að halda heim viku síðar gegn tryggingu fyr- ir því að þeir kæmu til Banda- ríkjanna ef nauðsyn krefði til að bera vitni í málinu. Segir Norris Harding, sak- sóknari, að málið hafi verið látið niður falla vegna þess að málsgögn bentu til þess að lögreglan hafi ekki farið eftir settum regium, þegar hún stöðvaði bifreiðina með happ- drættismiðunum. Her sest vélbáturinn lngolfur frá Sandgerði logandi á hafinu út af Sandgerði, en eldur kom upp í honum í gærmorgun og flaug á skammri stundu um allt skipið. (Ljósm.: Helgi Hallvarðsson). — Sjá nánar frétt á baksíðu 'Karl-Birger Blomdahl hlýtur tónlistar- verðlaun N or ðurlandaráðs Osló, 4. febr. (NTB). SVÍANUM Karl-Birger Blom- dahl var í dag úthlutað tón- listarverðlaunum Norður- landaráðs að loknum fundi dómnefndar í Osló. En dóm- , nefndin er skipuð tveimur fulltrúum frá hverju Norður- landanna. Verðlaunin eru veitt fyrir óperuna „Aniara“, sem er sam in við söguljóð Harry Mar- tinssons, en það fjallar um sálarástand farþega i geim- skipi. Verðlaunin nema 50 þús- und dónskum krónum (um 311 þús. kr.), og er þeim nú úthlutád í fyrsta sinn. Sam- kvæmt reglugerð eru verð- Framh. á bls. 27 Hvetur til fimmvelda ráðstefnu með þátttöku Kína Það eru brotleg ríki en ekki stofnskráin, sem eiga sök á vanda SÞ, segir Johnson París og Washington, 4. febrúar — (AP-NTB) — DE GAULLE, forseti, hélt blaðamannafund í París í dag. Hvatti hann m.a. til að boðuð yrði fimmvelda ráð- stefna með þátttöku Kína til að endurskoða stofnskrá Sam- einuðu þjóðanna, að gull- trygging á gjaldeyri yrði tek- in upp í stað þess að miða við sterlingspund eða dollara, og sagði að endursamneining Þýzkalands væri mál, sem leysa bæri innan Evrópu „frá Atlantshafi til Úralfjalla, þ.e. án aðildar Breta og Banda- ríkjamanna. Síðar í dag ræddi John- son, Bandaríkjaforseti, við blaðamenn. Kvaðst hann ekki geta dæmt um ummæli de Gaulles fyrr en hann hefði lesið þau yfir, en benti hins vegar á að vandræði SÞ ættu ekki rót sína að rekja til stofn skrárinnar, heldur til þess að einstök lönd hafa ekki staðið við skuldbindingar sínar gagn vart samtökunum, og með því gerzt brotlegir við stofn- skrána. Framhald á bls. 8 Hélt kjördæminu DE GAULLE VILL ENDUR- SKOÐUN STOFNSKRÁR SÞ Kosygin kemur til Norður Vietnam á laugardag Hefur viðkomu í Peking þótt Kínverjar hafi ekkert við hann að ræða Moskvu, 4. febr. (AP-NTB) ALEXEI Kosygin, forsætis- ráðherra Sovétríkjanna, kom í dag til borgarinnar Irkutsk í Siberíu á leið sinni til Hanoi, höfuðborgar Norður-Vietnam. Á morgun, föstudag, kemur hann við í Peking og ræðir þar við kínverska leiðtoga. Mun hann einnig koma við í Peking á heimleiðinni frá Norður-Vietnam. Haft er eftir Chen Yi, varn- armálaráðherra Kína, að Kín- verjar eigi ekkert ósagt við Kosygin, en hafi hann eitt- hvað við þá að segja, muni þeir að sjálfsögðu hlusta. Framhald á bls. 2,7 AUKAKOSNINGAR fóru fram í þremur kjördæmum í Bretlandi í dag. Um miðnættið var kunn- ugt um úrslit í einu kjördæm- anna, Altringham og Sale við Manchester. Hélt íhaidsflokkur- inn kjördæminu, og hlaut Ant- hony Barber, fyrrum heilbrigð- ismálaráðherra, kosningu, en hann féll í öðru kjördæmi við kosningarnar s.l. haust. íhaldsflokkurinn hlaut að Iþessu sinni 20.380 atkvæði (hafði 24.982), Verkamannaflokkurinn 11.837 (14.945) og Frjálslyndi flokkurinn 7.898 (13.429). í hinum tveimur kjördæmun- um yerða úrslit kunn á morgun. Hiaut íhaldsflokkurinn báða þingmenn kjörna við sí'ðustu kosningar með miklum meiri- Ihluta atkvæða.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.