Morgunblaðið - 05.02.1965, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 05.02.1965, Blaðsíða 2
MORGUHBLAÐIÐ FSstuáagur 5. febrúar 1965 Tvíourasysturnar Guðrún og Sigríður Jónsdætur. „Eg ætiaði ekki að trúa þessu" sagði Sigríður G. Jónsdóttir sem hlaut hæsta vinninginn í happdrætti DAS Þ A Ð hlýtur að vera afar skemmtileg tilbreyting, að fá einn góðan veðurdag tilkynn- irngu um, að í dag sé maður heilli íbúð auðugri en í gær. En því miður eru slíkir lukk- unar panfílar ekki á hverju strái. Það var af þessum sök- um að við lögðum leið okkar upp í Bogahlíð 13 og hittum þar að máli Sigríði G. Jóns- dóttir, en hún varð einmitt fyrir þessu happi. Hún átti fjóra miða í Happdrætti DAS, og á miðvikudaginn bárust henni þær fréttir, að miði hennar, númer 2087, hefði fært henni stærsta vinning- inn, sem var íbúð eftir eigin vali að verðmæti 500 þúsund kr. Sigríður er skipsþerna á Heklunni og hefur starfað í átta ár hjá Rikisskip ásamt tviburasystur sinni, Guðrúnu, en hana hittum við einnig fyr- ir í Bogahlíð 13, því þær syst- ur leigja þar saman. „Ég ætlaði varla á trúa því, að þetta væri satt,“ svaraði hún, þegar við spurðum hana hvernig henni hefði orðið við. „Við vorum eiginlega ný- komnar í land, þegar forstjóri DAS sagði mér þessar fréttir, og eins og ég sagði áðan, ég ætliaði alls ekki að trúa þessu.“ „Er búið að ákveða hverniig á að nota vinninginn?" spurð- um við. „Við höfum nú ákveðið að setjast að í nýju íbúðinni, þeg ar við erum búnar að velja hana, en forstjórinn sagði ökkur, að það lægi ekki svo mjög á því.“ „Hefurðu unnið áður i happ drætti, Sigríður?" „Nei, ég hef ekki unnið áð- ur, en aftur á móti hefur Guð- rún unnið þrisvar í happdrætt inu, tvisvar tíu þúsund krónur og einu sinni fimm þúsund krónur. Annars er þetta í ann að skipti, sem stórvinningur vinnst af skipsmanni á Hekl- unni. I fyrra skiptið var það Sigurður heitinn bryti, en hann vann stórt einbýlishús inni í Alftamýri.“ „Hvernig líkar ykkur sjó- menskan. Þið hafið ekki hugs að ykkur að hætta henni?“ „Nei, alls ekki. Sjórinn á mjög vel við okkur, og þar að auki erum við orðnar svo rótigrónar þarna, að við eig- um erfitt með að hætta. Áður en við byrjuðum hjá Ríkisskip, unnum við 13 ár sem afgreiðslustúlkur hjá Mjólkursamsölunni, svo við virðumst eiga erfitt með að skipta um starf.“ „Og þið eruð auðvitað ákveðnar í að halda áfram að spila í happdrætti?" „Já, það erum við.“ svara þær báðar og það er ekki svo furðulegt, því fæstir geta stát- að af því að spila í happdrætti og látið það skila gróða." Landsspítalinn fær stórgjöf Minningargjöf Bjarna Þorlákssonar trésmiðs SUNNUDAGINN 31. janúar sl. var landlækni, Sigurði Sig- urðssyni, afhent minningar- gjöf til Landsspítala Islands að upphæð rúml. 623 þús. krónur. Tildrög eru þau er hér segir: Hinn 29. apríl 1956 lé*t hér í Reykjavík Bjarni Þorláksson, trésmiður, Grettisgötu 35, ókvænt ur og barnlaus. Hann kvað svo á í erfðaskrá, er hann gerði að viðstöddum fulltrúa borgarfóget- ans í Reykjavík, 3. apríl 1956, að af eftirlátnum eignum sínum skyldi stofna sjóð, er bæri nafn foreldra hans, Ingibjargar Bjarnadóttur og Þorláks Jónsson- ar hreppstjóra, Þórukoti, Álfta- nesi, og móðursystur hans, Sig- ríðar Bjarnadóttur, húsfreyju, Hliði, Álftanesi. Fé sjóðsins skyldi, að öðru hhitverki hans loknu, varið til „kaupa á herbergi eða herbergj- um í líknarstofnun, svo sem spít- ala eða elliheimili, og skal her- bergið bera nafn mitt og þeirra venzlamanna, er í 1. gr. getur“, segir orðrétt í erfðaskránni. Á sjóðnum hvíldi sú kvöð, sam kvæmt 2. lið erfðaksrárinnar, að nákomin frændkona gefandans, sem verið hafði ráðskona hans í 36 ár, skyldi njóta framfærslu- eyris úr sjóðnum, meðan hún lifði. Nú hefur svo skipazt, að af sjóðnum er leyst þessi kvöð, og er fé hans því nú laust til af- hendingar. Samkvæmt erfðaskrá Bjarna Þorlákssonar skyldu þeir Gizur Bergsteinsson, hæstaréttardóm- ari, og Jónas Guðmundsson, fyrr- verandi ráðuneytisstjóri, vera stjórnendur minningarsjóðsins. Þeir hafa nú ákveðið að verja sjóðnum til greiðslu kostnaðar við fjögurra manna sjúkrastofu í nýbyggingu Landsspítala íslands, sem nú er nær fullgerð, og hefur landlæknir og þeir aðrir, sem þar um fjalla fyrir hönd Lands- spítalans, fallizt á að veita fénu viðtöku, en það er afhent kvaða- lpust að öðru en því, að fest verði upp í sjúkrastofunni hag- lega gerð silfurtafla, sem á er svohljóðandi áletrun: „Sjúkrastofa þessi er gefin til minningar um hjónin Þorlák Jónsson hreppstjóra, Þórukoti, Álftanesi, f. 29/6. 1840; d. 22/7. 1877 og Ingibjörgu Bjarnadóttur f. 10/12. 1841; d. 17/9. 1928, svo og Sigríði Bjarnadóttur hús- freyju, Hliði, Álftanesi, f. 24/11. 1833; d. 15/6. 1910. Gefandi: Bjarni Þorláksson trésmiður, Grettisgötu 35, Reykja vik f. 31/1. 1873; d. 29/. 1956.“ Töfluna og áletrunina hefur Framhald á bls. 27. Dæmdar 860 þús. krónur í slysabætur Piltur lamaðist við fall í súrheysgryfju EINHVERJAR hæstu skaðabæt- ur vegna slyss voru dæmdar i Hæstarétti nýlega, þegar eiganda búsins Saltvik á Kjalarnesi var gert að greiða ungum pilti, sem varð fyrir slysi í súrheysturni þar 860,5 þús. kr., sem er um 60% af tjóni piltsins, en hann lamaðist upp að herðablöðum. Var allt tjónið talið vera 1,4 millj. kr., en pilturinn ber 40% þess sjálfur. Við þetta bætast svo vextir á upphæðina síðan slysið varð, og verða skaðabtæurnar með því á aðra milljón kr. Málsatvik eru þau að 16 ára piltur, Viðar Guðnason, var að aka heyi í hlöðu sumarið 1959. í hlöðunni var votheysgryfja og á henni barmur, 150 sm. á hæð. Ók hann dráttarvél, sem dró hey- vagn. Af vögnunum var mokað yfir í heyblásara, sem síðan blés heyinu inn í hlöðuna. Voru tveir menn við þetta verk. Skyndilega hætti heyblásarinn að starfa, án þess að hreyfillinn stöðvaðist og mun stífla hafa valdið. Votheysgryfjan, sem hér um ræðir, var rétt við hlöðuopið. Þegar heyið hætti að fara gegn- um blásarann, stökk Viðar upp á vegg súrheysgryfjunnar og mun hafa ætlað að endanum á rörinu á heyblásaranum, en það lá yfir gryfjuna. Hann steig út Hijfníng d sin- lóníutónleikum SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT ís- lands hélt tónleika í Háskólabíói í gærkvöldi, var húsið troðfullt og geysileg hrifning ríkti á hljóm leikunum. Stjórnandi hljómsveit arinnar var Gustav König, en einleikari var Rögnvaldur Sigur- jónsson, píanóleikari. Viðfangs- efni hljómsvéitarinnar voru tvö: Fyrst var Píanókonsert nr. 1 i d-moll, op. 15 eftir Brahms, lék Rögnvaldur Sigurjónsson þar einleik, og var honum ákaft fagnað. Síðara viðfangsefm Sin- fóníuhljómsveitarinn var Sin- fónía nr. 7 í a-dúr, op. 92 eftir Beethoven. Bæði hljómsveitar- stjóra og einleikara bárust blóm- vendir. Sjálfstæðismenn á Akureyri VÖRÐUR, félag ungra Sjálfstæð- ismanna á Akureyri, heldur kvöldverðarfund í kvöld, föstu- daginn 5. febrúar, kl. 19.15 í Sjálfstæðishúsinu, litla sai. Jón E. Ragnarsson, stud. jur., frá sjtórn Sambands ungra Sjálf stæðismanna, flytur erindi, sem hann nefnir: Viðreisnin heldur áfram. Félagsmenn eru hvattir til þess að sækja fundinn og koma stund víslega. Tunnuverksmiðian á Siglu- firði hefur störf að nýju SIGLUFIRÐI, 4. febrúar. — Nýja tunnuverksmiðjan, sem verið hefur í byggingu sl. sumar og vetur, hefur störf í dag. Gert er ráð fyrir að hún verði farin að vinna með fulium afköstum öðru hvoru megin við næstu helgi. Fyrir nokkru var skipað hér á iand töluverðu magni af tunnu efni og viðbótarefni er væntan- legt í marzmánuði næstkomandi. Við tunnuverksmiðjuna mun starfa rösklega 40 manna hópur og gert er ráð fyrir að verksmiðj an muni starfa fram á vorið, eftir því sem aðstæður leyfa. Þetta er steinbygging í hólf og gólf og fyllstu varúðar gætt í hvívetna, enda hafa hvorki meira né minna en 4 verksmiðjur hér orðið eldi að bráð. Er næsta úti- lokað talið að slíkt geti endur- tekið sig í þessum húsakynnum. Fyrirhugað er að reisa allstórt stálgrindahús, geymsluhús við verksmiðjuna og stendur til að það komi innan skamms. af, en ofan á gryfjuna höfðii verið lagðar bárujárnáplötur, sétu létu undan er hann steig á þær. Féll pilturinn 5 m. niður og slas- aðist þannig að hann lamaðist al- veg upp að herðablöðum. Er hana talinn 100% örýrkí. Pilturinrt vdr1 séndúé til Amet'- íku og reyndar á honum læknis- aðgerðir, sem báru einhvern árangur, en voru dýrar, kostuðu yfir hálfa milljón króna. Þá er örorkutjónið metið á rúma millj- ón kr. og ofan á það bætast bæt- ur fyrir þjáningar og lýti og þes* háttar. Niðurstaða hæstaréttar er sú» að pilturinn hafi að vísu farið I nokkru fljótræði út á bárujárns- plöturnar, en það hafi þó verið stórfellt gáleysi af hendi ráðs- mannsins á búinu að leggja slíka burðarmagnslausa þekju yfir gryfjuna. Var sök þannig skipt, að eigandi búsins, Stefán Thor- arensen, var talinn eiga að bera 60% af tjóni drengsins, en hanti sjálfur 40%. Allt tjónið var talið vera kr. 1.437.592,91 og af því fær Viðar því 1 bætur kr. 860, 555,70. Upphæð þessi á þó eftir að hækka vegna vaxta síðan slys- ið varð og fer þá vafalaust á aðra milljón. Þá var eiganda búsins gert að greiða málskostnað. Eigandi búsins i Saltvík mun ekki hafa verið tryggður fyrir slíkum slysum fremur en bænd- ur eru yfirleitt. í undirrétti hafði eiganda bús- ins verið gert að greiða 25% tjónsins eða upphæðina 313 þús. en Hæstiréttur hækkaði bæði prósentuna og upphæðina. Trofim Lysenko. Lysenko r w * ■ onao Moskvu, 4. febr. (NTB). LÍFFRÆÐINGNUM umdeilda Trofim Lysenko, hefur verið vikið úr starfi sem forstöðu- maður erfðafræðistofnunarinn ar í Moskvu. Kemur þetta fram í grein, sem formaður sovézku vísinda akademíunnar, Mstislav V. Keldysh, ritar í Pravda í dag. Ræðst hann þar einnig mjög á Lysenko, sem hann segir eiga sök á því að rannsóknum á'sviði líffræði hafi lítið mið- að áfram að undanförnu. Segir Keldysh að sovézkir vísindamenn, undir forustu Lysenkos, hafi einskorðað sig við eigin skoðanir í líffræð- inni í stað þess að taka tillit til þróunar, sem átt hefur sér stað á því sviði. En skoðanir þeirra brutu oft í bága við niðurstöður, nýjustu rann- sókna og staðreynda, er sann aðar hafa verið með tilraun-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.