Morgunblaðið - 05.02.1965, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 05.02.1965, Blaðsíða 17
* Föstudagur 5. febrúar 19615 MORCU NBLAÐIÐ 17 Sjálfstæðismeim í Stykkis- hólmi halda árshátíð Friðjón Þórðarson, sýslumaður í Búðardal og frú. Stykkishólmi 28. janúar. LAUGAHDAGSKVÖiLDIÐ 23. janúar sl. efndi Sjálfstæðisfélag- ið Skjöldur í Stykkishólmi til árshátíðar, en frá upphafi vega þess hefir það verið f-astur liður í starfseminni að koma saman á árshátíð. Þessar hátíðir hafa verið þannig mikill liður í skemmtanalífi Hólmara og dag- skrá öll og tilhögun þannig að óhætt er að fullyrða að þetta eru jafnan beztu skemmtanir, sem völ eru á í Hókninum Árs- hátíðin hófst með borðhaldi kl. B um kvöldið. Var mikill matur og góður framreiddur og borð skreytt og mjög hátíðlegt um að Gunnar Troroddsen, fjármála- ráðherna, hélt aðalraeðu hátíða- haldanna. á öndverðum meiði í miklum átökum, fundu leiðir til sátta. Vék hann síðan að deginum í dag og gerði samanburð. Þá kom hann inn á kenningar komrnún- ista og efnishyggju þeirra. Gunn- ar sagði frá því er einn af dug- mestu mönnum ungra Sjálfstæð- ismanna árið 1930, Pétur Haf- stein, lét lífið í sjóslysi í des- ember og þá hefði verið efnt til minningarathafnar um hann í Varðarhúsinu í Reykjavík. Jón Þorláksson formaður flokksins hefði haldið minningarræðuna og kvaðst Gunnar aldrei gleyma Iþeirri ræðu og þeim sannfæring- arkrafti, sem þar var á bak við. Jón Þorláksson hefði reifað lífs- Árnl Helgason, umdæmisstjóri, stjórnaði árshátíðinni. litast í veizlusal sem var svo þétt setinn sem framast var unnt. Árni Helgason póst- og sím- stjóri stjórnaði fagnaðinum og í upphafi flutti Sigurður Ágústs- son alþm. ávarp og bauð gesti velkomna. Minntist hann þeirra Ólafs Thors fyrrum forsætisráð- herra, sem mörgum sinnum kom í heimsókn til Sjálfstæðisfélags- ins og Thor Thors, sendiherra, sem um mörg ár var þingmaður Snæfellinga og Snæfellingar eiga svo margar og góðar minningar um. Risu samkomugestir úr sæt- um í virðingu við minningu þeirra. Aðalræðu kvöisins flutti Gunn dar Thoroddsen fjármálaráð- herra. Hafði hún mikil áhrif á áheyrendur, sem lengi munu minnast hennar, Aðalinntak ræðu Gunnars var um efnis- hyggjuna annars vegar og lífs- viðhorf kristindómsins hinsvegar. 1 upphafi ræðu sinnar minnti Gunnar kristnitökunnar árið 1000 og hversu þeir, sem þá voru viðhorfin og mælt eitthvað á þessa leið. í náttúrunni sjáum við að ekkert verður að engu. Það líf, sem- fjarar út að hausti, rís aftur með vorgróðri. Hví skyldi þá ekki eins vera farið með sál mannsins. Lífsviðhorf manna,- sagði Gunnar, ráða oft miklu um það sem rnenn áorka og eins hvernig menn -vinna. Lífsviðhorf kristinna manna eru ein fær um að skapa ham- ingjusaman heim. Sjálfstæðis- menn tileinka sér þau lífsvið- horf og þau sannindi að hver verður að vera ábyrgur sinna gerða. Margt annað áthygíisvert sagði ráðherra og væri gagnlegt að ræða hans kæmi fyrir sjónir sem allra flestra á þeim rótléysistím- Um sem nú ríkja. Var ráðherra mjög fagnað er ræðunni lauk. Þá var fjöldasöng- ur við undirleik Víkings Jóhanns sonar. Því næst las Lárus Kr. Jónsson upp tvö kvæði eftir Davíð Stefánsson frá Fagraskógi en um það leyti hefði Davíð svo sem kunnugt er orðið 70 ára, ef hann hefði lifað. Árni Helgason söng síðan gam- anvísur með undirleik Hinriks Finnssonar verzlunarmanns. — Voru þær bæði úr bæjarlífinu og þjóðlífinu og skemmti menn sér konunglega við á að hlýða og honum þakkað með dynjandi lófataki. Þá sýndi Björn Pálsson flug- maður mjög áthyglisverðar og fallegar litmyndir víða af land- inu, og er aðdáunarvert hve Björn hefir náð sérstæðum mynd um á ferðum sínum um landið, en Björn kom á flugvél á laugar- dag til að geta tekið þátt í árs- hátíðinni. Var honum óspart fagn að af mannfjölanum, og þakikað í lokin ágæta sýningu og leið- sögn um landið. Þá vor.u borð tekin upp og dansað til kl. 2 um nóttina af krafti. Sjálfstæðisfélagið á nú á þessu ári 3ð ára afmæli og er því með elztu Sjálfstæðisfélög- um landsins. Hefir haldið uppi góðu starfi allan tímann. Lengst af hefir Ólafur Jónsson frá Ell- iðaey verið formaður félagsins eða í 11 ár. Aðrir formenn hafa verið Kristján Bjartmars oddviti, W. Th Möller, póstafgreiðslumað- ur, Hildimundur Björnsson vega- verkstjóri, Hörður Ásgeirsson, frystihússtjóri, Árni Ketilbjarnar son, verkamaður, Zakarías Hjar- arson, verzlunarmaður, Árni Helgason, stöðvarstjóri, Þórir Ingvarsson forstjóri og Jón ís- leifsson fiskimatsmaður, sem nú er formaður og hefir verið það 6 undánfarin ár. Sjálfstæðisfélagið hefir haldið marga fundi um landsmál og bæj armál, einnig staðið fyrir spila- kvöldum, og öðrum góðum fagn- aði, og eins og áður hefir verið sagt, hefir það verið stór liður í félagslífi Stykkishólmsbúa. Frú Ingibjörg kon>a Sigurðar Ágústssonar, og þeir þinginennirnir Jón Árnason ©g Sigurður Ágústsson. Elísabet Englandsdrottning er um þessar mundir í opinberri ■heimsókn í Ethiópíu. Hér sést hún ásamt Selassie keisara kanna heiðursvörð í Addis Ababa. De Murville / heimsókn París, 3. febr. — NTB. COUVE de Murville, utanríkis- ráðherra Frakklands. mun halda til Washington 17. febr. n.k. og er ráðgert að b.ann verði í Banda rikjunum í vikutíma, að því er talsmaður franska utanríkisráðu neytisins sagði í dag. Virðist því ljóst, að viðræður hins franska utanríkisráðherra við bandarísk stjórnarvöld muni verða mjög ítarlegar, og er talið af ýmsum í París að þetta kunni að verða upphaf nýs tíma nán.ari sam- skipta og samvinnu milli Was- hington og París. Bandarískir diplómatar hafa látið Iþá skoðun í ljós, að það sé góðs viti að tilkynningin um för de Murville hafi verið birt fyrst af franskri hálfu. Svo sem kunnugt er varð al- varlegur ágreiningur milli land- anna vegna tillögu Bandaríkja- manna um sameiginlegan kjarn- orkuvopnaflota NÁTO, en talið er að öldur hafi mjög lægt eftir viðræður Dean Rusk utanrikisráð herra Bandaríkjanna við de Gaulle Frakklandsforseta. Couve de Murville heimsækir Bandaríkin í boði Dean Rusk, og er búizt við að rætt verði m.a. um eftirfarandi: 1. Hugsanlegar breytingar á NATO. Húseign til sölu Tilboð óskast í hálfa húseign- ina Framnesvegi 17 Reykja- vík. Tilboðuni sé skilað á afgr. Mbl. eigi síðar en 15. febrúar nk., merkt: „Framnesvegur 17“. Réttur er áskilinn til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum. Nánari upplýs- ingar í síma 21375 kl. 6—7 e.h. á virkum dögum. GUSTAF A. SVEINSSON hæstaréttarlögmaður Þórshamri við Templarasund Sími 1-11-71 til USA 2. Vandamálin í Austurlöndum fjær, m.a. í Viet-nam, svo . og sambúðin við Kínverja. 3. Hvaða hlutverk Frakkland kunni að geta gegnt með það fyrir augum að bæta samkomulagið við Sovétrík- in og A-Evrópu. BRIDGE ÚRSLIT í 3. umferð á Reykja- víkurmótinu í bridge urðu þessi; Meistaraflokkur: Sveit Ingibjargar Halldórsdóttur vann sveit Róberts Sig- mundssonar, 68:58, 4-2. Sveit Ólafs Þorsteinssonar vann sveit Reimars Sigurðsson- ar, 131:98, 6-0. Sveit Gunnars Guðmundssonar vann sveit Jóns Stefánssoa ar, 95:90, 4-2. Sveit Halls Símonarsonar vann sveit Jóns Ásbjörnssonar, 151:66, 6-0. 1. flokkur: Sveit Eggrúnar Arnórsdóttur vann sveit Zóphaníasar Benediktssonar, 85:57, 6-0. Sveit Jóns Magnússonar vann sveit Péturs Einarssonar, 127:66, 6-0. Sveit Júlíönu Isebarn vann sveil Sigurbjargar Ásbjarnar- dóttur, 152:97, 6-0. Sveit Elínar Jónsdóttur vann sveit Dagbjartar Grímssoiv ar, 91:33, 6-0. Staðan er þá þessi: Meistaraflokkur: 1. sv. Gunnars Guðmundss. 16 st, 2. — Ólafs Þorsteinssonar 14 —• 3. — Jóns Stefánssonar 14—« 1. flokkur: 1. sv. Eggrúnar Arnórsd. 18 st 2. — Jóns Magnússonar 14—« 3. — Júlíönu Isebarn 13—* Næsta umferð fer fram nk. mið vikudagskvöld og verður spilað í TjarnarkaffL

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.