Morgunblaðið - 16.03.1965, Side 2

Morgunblaðið - 16.03.1965, Side 2
MQRGUNBLAÐIB Þriðjudagur 15. tnarz 1965 rír ungir menn reyndu að aka upp á Snæfellsjökul Komust í 1000 metra hæð — urðu að snúa við sökum mikiHar ísþoku ÞRÍR un?lr menn frá Ólafs- vík Jögðu af stað þaðan klukk an 8 sl. sunnudagsmorgun á Willisjeppa til að aka upp á Snæfellsjökul. Þeir voru Hjálmtýr Júlíusson, bifvéla- virki, Stefán Alexandersson, bifvélavirkjanemi og Jón Júlí usson, bróðir JHjálmtýs. Morgunblaðið átti í gaer tal við Hjálmtý um ferðalag þeirra félaga og sagðist hon- um svo frá: — Við héldum frá Ólafsvík á Willisjeppa um kl. 8 um morguninn og fórum suður fyrir Arnarstapa og þar upp á jökulhálsinn. Fórum við fyrst að sæiuhúsi Ferðafélagsins og ókum þaðan upp á jökulinn sjálfan. — Við ætluðum okkur upp á hæstu brún hans, en Snæ- fellsjökull er 1447 metrar að hæð. En þegar við vorum komnir í ca. 1000 metra hæð vat komin svo mikil ísþoka, og svo þétt, að við neyddumst til að snúa við, því við sáum lítið fram fyrir bílinn. — Hallinn var svo mikill þarna, að það var með naum- indum að hægt væri að snúa jeppanum við, en það bless- aðist nú allt saman. — Við fórum til baka, þar sem gömlu mennirnir kalla Jökulshálsheiði, og niður með Gerðubergi og utan í fjalls- snjúk, sem heitir Hrói og er fyrir ofan Ólafsvík. Þaðan ókum við svo að rafveitu- stíflunni og komumst þar á þjóðveginn. Við komum aftur til Ólafsvíkur kl. 5 síðdegis. — Við ætluðum að gamni okkar að reyna að komast upp á jökulinn í bíl, en það hefur ekki tekizt til þessa. Menn hafa þó ekki komizt akandi eins hátt og við núna. Menn hafa yfirleitt orðið að snúa við við sæluhúsið. Það er eng- inn efi á því, að við hefðum komizt upp á jökulinn, ef þok an hefði ekki skollið á. — Við erum að spekúlera i að reyna aftur ef veður leyfir. Willisjeppinn reyndist alyeg prýðilega. — Það var skínandi færi og klaki yfir öllu og hann var svo mikill á jöklinum, að þar var varla stætt. Illmögulegt eða útilokað er að fara niður jökulinn hinum megin, því brattinn er svo mikill þar. Verkfall löju á Akureyri hafið * Scimtöl við form. Iðju o«j frkvstj. F.fl.l. Akureyri, 15. marz. FÉLAG íslenzkra iðnrekenda fyrir hönd nokkurra verksmiðja bér á Akureyri og Iðja, féla? verksmiðjufólks á Akureyri eiga nú í vinnudeilu, sem ekki hefur tekizt að leysa, og kom vinnu- stöðvun til framkvæmda nú í morgun hjá 5 iðnfyrirtækjum hér Fram-fundur I Hafnarfirði LANDSMÁLAFÉLAGIF Fram í Hafnarfirði heldor fund n.k. miðvikudagskvöld kl. 9. Þing- menn Reykjaneskjördæmis hafa framsö-ju um þingmál. Ennfrem- ur verða kosnir fulltrúar á Landsfund Sjálfstæðisflokksins. Sjálfstæðisfólk, fjölmennið. Spilakvöld SJÁLF STÆÐISFÉLAG Garða- og Bessastaðahrepps heldur næsta spilakvöld sitt miðviku- daginn 17. marz n.k. að Garða- holti. Verðlaun eins og venjulega. KÓPAV0GUR SPILAKVÖLD Sjálfstæðisfélag- anna er annað kvöld kl. 29,JO í Sjálfstæðishúsinu, Kópavogi. í bæ. Þau eru Klæðagerðin Am- aro, Fatagerðin Burkni, Súkku- laðiverksmiðjan Linda, Kex- verksmiðjan Lorelei og Sana, gosdrykkjadeild. Eftir þvi sem næst verður komizt, eru fimm til sex tugir iðnverkafólks í verk- fallinu. Vegna. þess að vinnudeilda þessi er með nokkuð óvenjuleg- um hætti risin, hefur Mbl. snúið sér til beggja deiluaðilja oig beðið þá að skýra málið frá sínum sjónarmiðum. Jón Ingimarsson, formaður Iðju, komst svo að orði um deil- una: — Hinn 20. janúar sl. náðist samkomulag milli Iðju og Vinnu- málasambands samvinnufélag- anna, og að því er við þá töldum, einnig við Fél. ísl. iðnrekenda. í þessu samkomulagi fólst, að Vinnumálasambandið samþykkti að stytta vinnuvikuna úr 49% stund í 48, eða um lVz klst., með óbreyttu kaupi, En til þess að samræming fengist á kauptöxt- um Iðju, sem hingað til hafa ver- ið mjög mismunandi eftir vinnu- stöðvum, þurftu aðrir iðnrek- endur á Akureyri að hækka kaup hjá sér um 3% til þess að hver vinnutímaeininig væri alls staðar í sama verðgildi. Fulltrúi Fél. ísl. iðnrekenda var viðstaddur samningsgerðina og lýsti sig samþykkan samningunum, en kaus hins vegar ekki að undir- rita þá, af því að framkvæmda- stjóri F.Í.I. var væntanlegur hingað norður innan fárra daga. Þegar hann kom, var þessu sam- komulagi hins vegar hafnað af félagsins hálfu. — Samningaviðræður hafa farið fram í Reykjavík og einnig hér á Akureyri fyrir milligöngu Framhald á bls. 21 Féðegur afli á Suðumesjum Keflavík, 15. marz. AF Suðurnesjum eru yfirleitt daufar fréttir af aflabrögðum. í Keflavík hefur verið mjög lé- legur afli undanfarið, bæði í net og nót. Hann hefur komizt hæst upp í 15 til 16 tonn. Aflahæstu bátarnir eru Lómur, Keflvíking- ur og Ingiber II. f Grindavík hefur afli einnig verið mjög lítill. Hafa bátar ver- ið með 4—12 lestir í róðri, og veiða þó bæði í net og nót. Það sem af er vertíð eru aflahæstir í Grindavík Þórkatla (380 tonn) og Hrafn Sveinbjarnarson II (379). Afli Sandgerðisbáta hefur verið frekar lélegur líka. Flestir bátar á Suðurnesjum eru nú hættir línuveiðum en róa ein- göngu með net og þorskanót. — Hsj. Tollverðir í Reykjavík taka í sínar vörzlur áfengi fyrrverandl áhafnar Jarlsins. w' Afengið upptœkt í annað sinn JARLINN kom til Reykjavikur s.l. laugardag. Þá tóku tollverð- ir í Reykjavík i sinar vörzlur nokkur hundruð flöskur af á- fengi, sem var um borð í skipinu. Blaðið átti tal við Unnstein Beck tollgæzlustjóra í gær, og sagði hann, að hér hefði ekki verið um tilraun til smygls að ræða. Tollgæzlustióri sagði, að hér væri um sama vínið að ræða og fundizt hefði í skipinu í Kaúp- mannahöfn. Hefði það verið af- hent skipverjum aftur, er mála- rekstri gegn þeim ytra var lok- ið. Eitthva'ð af víninu hefðu skip verjar þó drukkið á leið heim. Tollgæzlan hefði tekið vínið í sínar vörzlur, vegna þess að skip verjar sjálfir hefðu verið eig- endur þess, en áhöfnin hefur nú öll gengið af skipinu. Enda þótt vínið hefði tilheyrt birgðum skipsins, hefði það eigi að síður verið gert upptækt, þar sem um óeðlilega miklar birgðir heíði verið að ræða. Þá gat tollstjóri þess, að ekk- ert annað áfengi hefði fundizt í skipinu við komuna til íslands, en mikil leit hefði verið geið í því í Keflavík síðustu viku. Áfengi Jarlsmanna i tollvörugey mslunni í Reykjavik. Uppgripaafli €rumlarfi.báta Grafarnesi, 15. marz. AÐ undanförnu hefur netaafli Grundarfjarðarbáta verið mjög góður og nálgast það að vera landburður suma dagana. Hafa farið saman góðar gæftir og nokk uð jafn afli allra bátanna, en hér leggja upp í vetur 7 til 8 bátar. Ráðstefna ungra Sjálfstœðismanna um ,Vísindi og tækni' CM siðustu helgi var haldin í Hafnarfirði ráðstefna ungra Sjálf stæðismanna um „Visindi og tækni“. Ráðstefnan var haldin af hálfu Sambands ungra Sjáifstæð- ismanna, og fimm félaga ungra Sjálfstæðismanna. Var hún, mjög fjölsótt og þótti takast vel i hvi- vetna. Ráðstefnuna setti Árni Grétar Finnsson, formaður S.U.S. Þá flutti ávarp Matthías MaUiie- sen, .alþm. Erindi fluttu Sveinn Einarsson verkfræðingur; dr. Bjarni Helgason og próf. Magnás Magnúsoon, og störfuðu umræðu- hópar á ráðstefnunni um einstaka málaflokka. Stjórnandi ráðstefn- unnar var Þórir Einarsson við- skiptafræðiragur. Nánar verður sagt frá þessari tnerku ráðstefnu í blaðinu síðar. UM hádegi í gær var austan- og norðaustan kaldi um allt land og vægt frost norðan- lands, en 2 til 5 stiga hiti syðra. Snjókoma var á annesj- um austanlands, en bjartviðri vestanlands. Lægðarmiðja var um 800 km suður af Vest- mannaeyjum á hreyfingu NNA-eftir. Hlýtt er nú um Bretlandseyjar og Mið-Ev- rópu, 10 til 12 stig, en fremur kalt vestanhafs, 9 til 12 stiga frost á Nýfundnalandi og 2 stiga frost í New York. Aflahæsti báturinn, Farsæll, skip stjóri Sigurjón Halldórsson, hef- ur fengið yfir 40 lestir í róðri. Algengasti afli undanfarna daga hefur annars verið 15 til 30 lestir á bát. Mjög hefur reynzt erfitt að gera aflanum þau skil sem skyldi, er á land er komið. Hefur því safnast allmikið fyrir frá degi til dags en alir vinna að nýtingu aflans nótt sem dag, og nú er fólk farið að þreytasfc og afköst þess minnka. Gripið var til þess ráðs í gær að aka nokrkum tugum tonna af fiski að vinnuhælinu að Kvíabryggju, en vistmenn þar tóku að sér að gerð og spyrða fiskinn í skreiðar verkun. Er að þessu hið mesta hagræði, þar sem til hreinna vandræða horfði með verkun afl ans, sakir skorts á vinnuafli. Jafn vel hafði komið til tals að senda fisk á bílum til Reykjavíkur, svo sem Ólsarar hafa orðið að gera að undanförnu til Akraness. Ur öllum verstöðvum Breiða- fjarðar berast fréttir um mikinn afla, enda fjölgar skipum nú ört á miðum Breiðafjarðarbáta. Samgöngur eru nú greiðar um allt héraðið og hafa millilanda- skip lestað hér í Grundarfirði að undanförnu útflutningsvörur frá öðrum verstöðvum á Snæfells- nesL

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.