Morgunblaðið - 06.04.1965, Page 30

Morgunblaðið - 06.04.1965, Page 30
30 MQRGUNBLAÐID Þriðjudagur 6. apríl 1965 Islenzka Tapaði fyrir Dönum og Norömönnum með Htlum mun — og reyndist álika sterkt og lið þeirra ÍSLENZKA unglingalandsliðið í taahdknattleik lenti í 4. sæti á Norðurlandamótinu sem lauk í Nyköbing-Falster á sunnudag. í- við meiri vonir höfðu verið taundnar við liðið en það sýndi þó slíka frammistöðu í leikjum sínum að ekki verður kvartað. Svíar reyndust eiga sterkast ungl ingalandslið Norðurlandaþjóða, en lið Danmerkur, íslands og Nor egs reyndust mjög jöfn og að- eins heppnisatriði hvernig leikir þeirra fóru. Finnland átti lakasta liðið. íslenzka liðið lék tvo leiki á sunnudaginn. Það tapaði gegn Svíum 20:11 og það tapaði gegn Noregi 11:9. • Island — Svíþjóð Mbl. átti í gær tal við Axel Einarsson aðalfararstjóra ísl. Jiðs ins um tvo síðustu leiki íslend- inganna, gegn Svíum og Norð- mönnum. — Það er alveg óskiljanlegt, hve illa ísl. liðið stóð sig gegn Sviunum. Það var mínútum sam- an eins og aðeins eitt lið væri á vellinum. Byrjunin var ekki sem verst. íslenzka liðið hóf sókn og áður en mínúta var liðin stóð Jón Gautur einn og óvaldaður með knöttinn í höndunum á línunni — en skot hans var varið. Þetta var slæmt og liðið átti sig varla fyrr en Svíar höfðu skorað 3 eða 4 mörk hjá okkur. Miðað við leiki liðanna og getu leikmannanna er þetta óskiljan- legt. Að vísu átti Finnbogi slak- an leik í markinu; Svíarnir fundu hans veiku hlið og notuðu sér óspart — en samt, leikur liðanna gangur leiksins talaði 'ekki máli 10:2 fyrir Svía í hálfleik. En þetta breyttist allt í seinni hálfleik. Þá sýndi ísl. liðið að það var fyllilega jafnfætis hinu sænska bæði í línuspili, uppbygg ingu leiks og snjallri hugsun. Það kom þarna í ljós að pilt- arnir í þessu liði eins og allir aðrir ísl. íþróttamenn, sem utan hafa verið sendir, skortir reynslu — þeir eru vanir aðstæðum eins og þær eru heima en skortir æf- ingu til að geta sitt bezta við framandi aðstæður. í síðari hálfleik — þegar úr- slit leiksins voru reyndar ráðin — náðu ísl. piltarnir að sýna hvað í þeim bjó. Og þeir sýndu leik, sem var sízt lakari en Norð urlandameistaranna — og leik lyktaði með 20:11. (Síðari hálf- leikur fór 10:9 fyrir sænsku meistarana). — Var Geir passaður vel í þess um leik? spurðum við Axel. — Já. En Ágúst Ögmundsson kom mjög á óvart. Hann skoraði 4 mörk og sýndi slíkan leik og slík tilþrif að Norðurlandameist ararnir fengu ekki varizt. Hann greip mjög vel og átti sömuleið is mjög góðan leik í vörninni. Hann var bezti maðurinn hjá okk ur. — Markverðirnir — sem léku báðir í síðari hálfleik, áttu og góðan leik — en Finnbogi sem stóð í markinu allan fyrri hálf- leikinn var mistækur þá. • Noregur — fsland Um kvöldið léku íslendingar gegn Norðmönnum og Norðmenn unnu 11:9. Þarna náði íslenzka lið Danska liöið Gullfoss kemur á laugardag Leikur liér 4 leiki í boði KR DANSKA handknattleiksliðið I.F.j Gullfoss vann sig upp í 1. deild Gullfoss kemur hingað n.k. laug- í vor. Liðið kemur með nokkra ardag í boði KR. Liðið leikur 4 ’ styfktarmenn með sér og eru leiki, 2 á Háiogalandi og 2 á Keflavíkurflugvelli. Fyrsti leikurinn verður á sunnudag kl. 15.00 gegn KR að Hálogalandi, síðan leikur Fram á þriðjudagskvöld, einnig að Hálogalandi, á skírdag leika ís- landsmeistarar FH gegn Dönun- um á Keflavíkurflugvelli og á laugardag fyrir páska leikur landsliðið einnig á Keflavíkur- fluigvelli. Landsflakka- glsinan 26. apnl LANDSFLOKKAGLÍMAN verð- ur háð mánudaginn 26. apríl n.k. í íþróttahúsinu við Hálogland og hest kl. 8,15. Mun KR sjá um mótið og skulu þátttökutilkynn- ingar sendar félaginu c/o Sam- einaða, Tryggvagötu, fyrir 20. apríL þeirra á meðal danskir landsliðS' menn. Verður nánar skýrt frá skipan liðsins síðar í vikunni. lingaliöið í ið sér bezt upp — einkum framan af. Þá fengu hinir sterku Norð- menn allt ekki staðizt íslend- ingum snúning og í hálfleik stóð 6:2 fyrir ísland. Sigurinn blasti við. En á fyrstu mínútum síðari hálfleiks jöfnuðu Norðmenn og síðan stóð yfir æsispennandi bar- átta allt til leiksloka. Tókst Norð mönnum ætíð að jafna 1 marks forskot er íslendingar náðu unz 2—3 mínútur voru eftir að þeir náðu einnig forskoti og unnu leik inn 11:9. Enn var Ágúst Ögmundsson beztur og skoraði 4 mörk, Gísli Blöndal 1, Hilmar Bjarnason 1, Þórarinn Tyrfingsson 2 og Jón Gestur 1. • Úrslit. Síðan léku Finnar og Danir og unnu Danir 18:13. Þetta var bezti leikur Finnanna í mótinu. Stóð 8:5 í hálfleik. Úrslitaleikinn léku Danir og Svíar. Svíar unnu 16:7 og stóð 8:1 í hálfleik og þó höfðu Danir skorað fyrsta mark leiksins. Höfðu Svíarnir algera yfirburði og sýndu þarna að þeir eru lang*®1 bezta lið mótsins. Þeir eru yfir- leitt stærri og sterkari. og betur þjálfaðir en liðsmenn hinna lið- anna. — Eruð þið ánægðir með frammistöðuna? — Já. Liðið kom yfirleitt mjög vel frá leikjunum. Mér finnst, segir Axel Einarsson, að ísl. liðið hafi ekki átt nema einn lélegan hálfleik — gegn Svíum. fsl. lið- ið sýndi sig jafningja hins danska og norska og réði aðeins lán hvernig fór milli þeirra liða. Mætti t.d. ætla að ísl. liðið hefði unnið bæði þessi lið ef mótið hefði verið haldið á íslandi, þar sem okkar piltar njóta sín mun betur — en þetta er alltaf vanda mál er ísl. lið keppa við fram- andi aðstæður erlendis. Eftir mótið var haldin kveðju veizla í Nyköbing-Falster. Þar afhenti Axel Einarsson danska sambandinu leirvasa til minning ar um þátttöku íslendinga í mót- inu og handknattleikssamband- inu í Nyköbing-Falster leirskál. Öllum piltunum líður vel og þeir koma heim siðar í vikunni. Þorsteinn Hallgrímsson — ómissandi maður? Körfuknattleiksm'óti 5: ÍR-liiið býr sig undir missa Þorstein en vann slúdenta samt 93:49 Á LAUGARDAG og sunnudag fóru fram sex leikir í fslands- mótinu í körfuknattleik, allt fremur þýðingarlitlir leikir utan leikur ÍKF og Skallagríms í II. deild, sem lauk með sigri ÍKF eins og við var búizt og eru ÍKF- menn því búnir að sigra ■ deild- inni og bjóðum við þá velkomna í I. deild næsta vetur. Leikirnir á laugardagskvöld voru II. flokkur karla KFR—KR, hörkuspennandi leikur frá upp- hafi og höfðu KFR-ingar þó held ur yfirhöndina í hálfleik, 21:15. Um miðjan síðari hálfleik ná KR- ingar að jafna og komast fjögur stig yfir, en þá tekur bezti mað- ur leiksins, Þórir Magnússon hjá KFR, góðan sprett og færir lið- inu sigur, eins og oft áður. Hann lék mjög vel og skoraði samtals 25 stig, þar af 19 af 26 stigum Ágæt frammistaða ÍSLENZKA unglingalandslið- 2. sæti því lítill munur væri ið stóð sig með hinni mestu á liðum Dana, Norðmanna og prýði á mótinu. Þó liðið hafi íslendinga. „aðeins“ hlotið 4. sæti í keppn Karl lýstí ánægju sinni með inni, er frammistaða þess með ýmsar útfærslur liðsins á varn ágætum. arleikaðferðum og eins hefði Eitthvað á þessa leið fórust liðsmönnum tekizt að fram- þjálfara ísl. liðsins Karli G. kvæma það sem til hefði verið Benediktssyni orð er frétta- ætlazt í sókn — oftast nær. maður Mbl. átti tal við hann Liðsmennirnir hefðu öðlazt ó- í Kaupmannahöfn. Sagði hann metaniega reynslu. Úthaldið að með örlítilli heppni hefði hefði verið i lagi, og yfir fáu ísl. liðið eins getað komizt í að kvarta. liðsins í seinni hálfleik; einnig áttu mjög góðan leik þeir Rafn og Sigurður. Hjá KR var Krist- ján Steinsson langbeztur og skor aði 15 stig. II. deild: Skallagrímur, Borg- arnesi — Skarphéðinn. Leikurinn var einstefnuakstur frá upphafi að körfu Borgnesinga og endaði með algjörum yfirburðasigri Skarphéðinsmanna, 67 stig gegn 23. — I. deild: ÍR—ÍS. Eins og við var búist reyndust stúdentar lítil hindrun fyrir íslandsmeistara ÍR. Léku ÍR-ingar án Þorsteins mestan hluta fyrri hálfleiks, og er það liður í æfingu liðsins und- ir það að Þorsteinn yfirgefur lið- ið næsta haust, er hann fer utan til framhaldsnáms í verkfræði. Sýnilegt var að þótt yfirburðir ÍR væru algerir án hans vantaði kjölfestuna í liðið þegar hann var ekki inn á. Lokatölur urðu 93:49 fyrir ÍR. Sunnudagskvöldið bauð upp á tvo jafna leiki, milli ÍR a og KFR í II. flokki, þar sem ÍR- ingar höfðu algera • yfirburði á öllum sviðum og sigruðu með 69 stigum gegn 18, og bar að vonum mest á úrvalsleikmönnum IR, þeim Jóni Jóhassyni, Birgi Jak- obssyni og Antoni Bjarnasyni. Einnig varð leikur ÍS og Ár- manns yfirburðasigur fyrir Ár- mann, 61 stig gegn 35, en þó ekki fyrr en eftir að stúdentar höfðu haldið leiknum nær jöfnum í hálfleik en þá var staðan 18:20 fyrir Ármann. Beztir hjá Ár- manni voru Birgir, Sigurður og Davíð og hjá ÍS þeir Hjörtur og Logi. Eini leikurinn sem bauð upp á sæmilega keppni var leikur ÍKF og Skallagríms í II. deild; var lítill munur á liðunum og var barizt hart á báða bóga. Staðan var 23:18 fyrir ÍKF í hálfleik. Eftir hlé saxa Skallagrímsmenn heldur á en missa tökin á leikn- um undir lokin og ÍKF sigrar með tólf stiga mun, 49:37. — Þó ÍKF hafi með þessum leik tryggt sér sæti í I. deild næsta ár, og hafa sigrað alla keppinauta sína, er það álit margra að lið Skarp- héðins frá Selfossi sé það bezta í II. deild, en þeim tókst ekki að sigra ÍKF og hljóta því að dvelja í II. deild enn um sinn. Heyitdisi vera lotSna AKRANESI, 5. apríl — Heima- skagi landaði í morgun 13,4 tonn- um af þorski, er hann veiddi í þorskanót. S.l. laugardag lönduðu 10 þorskanetabátar samtals 44 tonnum. Fimm bátar voru á sjó á sunnudaginn, höfðu is meðferðis oig héldu sig út í Miðnessjó og á þeim slóðum. Síldin, sem sagt var að lóðað hefði á undan Portlandi, reyndist vera loðna er til kom. Kvað ný loðnuganga vera á ferðinni, að sagt er óhrygnd loðna. Loðnan I Síldar- og fiskimjölsverksmiðju- þrónum, sem nú er eftir, bræða þeir á fjórum dögum. Allt síðan verkfalli lauk hefir Síldar- og fiskimjölsverksmiðjan unnið með fyllstu afköstum. Sagt er að há- setahlutur á Höfrungi III. á loðnuveiðum, nemi allt að 50 þús. kr. M.s. Brúarfoss er hér í dag við hafnargarðinn og lestar frosinn fisik og lítilsháttar af hvalkjöti.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.