Morgunblaðið - 06.04.1965, Qupperneq 31

Morgunblaðið - 06.04.1965, Qupperneq 31
MORCU N BLAÐIÐ 31 Þriðjudagur 6. apríY 1965 Kosygin og Brezhnev fagnað í Póllandi l»essi mynd var tekin fyrir fraraan hiff glæsilega D.A.S.-hús. F. v. Auðunn Hermannsson framkv^tj. happadrættisins, Jóhannes Þórðarsson vélstjóri, J óhanna Martcinsdóttir, Sigríður Helgadóttir umboðsm. happdræddisins og Baldvin Jonsson framkv.stj. happdrættisins. Þversuma miðans er 13 Stutt samtal við hjVitnin, sem unnu DAS-húsið Varsjá, 5. apríl (NTB-AP) * LEIÐTOGAR Sovétríkj- anna, Alexei Kosygin, for- sætisráðherra, og Leonid Brezhnev, aðalritari kommún istaflokksins, komu til Var- sjár í dag, og er opinber til- gangur ferðar þeirra að end- urnýja vináttusamning Sovét ríkjanna og Póllands. Samn- ingurinn, sem var undirritað- ur 1945, var til 20 ára, og verð ur nú framlengdur um jafn langan tíma. | Tilkynnt hefur verið, að sovézku leiðtogarnir muni ræða við pólska leiðtoga meðan á heimsókninni stend- ur og er gert ráð fyrir að þeir ræði fyrst og fremst á- greininginn innan kommún- istahreyfingar heimsins og á- standið í Víetnam. Með Kosygin og Brezhnev í förinni eru m.a. Andrei Gromy- ko, utanríkisráðherra, Juri And- ropov, sem er sérfræðingur um mál er varða sambúð Sovétríkj- anna og annarra kommúnista- rikja í Evrópu, og Nikolai Kry- lov, marskálkur, yfirmaður eld- flaugasveita Sovétríkjanna. Hef- ur koma Krylovs til Varsjár vak- ið sérstaka athygli. Hann gegnir lykilembætti innan Varsjár- bandalagsins og ferðast mjög sjaldan með leiðtogum Sovét- ríkjanna. Sovézku gestunum var ákaft fagnað, er þeir komu á brautar- stöðina í Varsjá í morgun. — Meðal þeirra, sem þar tóku á móti þeim voru Wladyslaw Go- mulka, leiðtogi pólska komm- únistaflokksins, og Josef Cyran- kiewich, forsætisráðherra. Um 5 þús. manns höfðu safnazt saman við brautarstöðina, þar á meðal skólabörn og verksmiðjufólk, sem hafði fengið frí í tilefni dags ins. Leiðtogarnir óku i opnum bif- reiðum um göturnar og á gang- stéttunum stóð fólk, sem veifaði fánum og klappaði í kveðjuskyni. Við móttökuna á járnbrautar- stöðinni, minnti Gomulka á er- indi sovézku gestanna til Var- sjár og sagði, að vináttusamning- urinn við Sovétríkin 1945 hefði tryggt landamæri Póllands, og endurnýjun hans nú myndi efla samstarf rikjanna, báðum til hagsbóta. Vináttusamningurinn til næstu 20 ára verður undirritaður á fimmtudagskvöldið, en sovézku gestirnir halda heimleiðis á föstu dag. A LAUGARDAG s.l. var dregið í happdrætti D.A.S. og var þá m.a. dregið um stærsta vinning ársins, sem er stórt og glæsilegt einbýlishús að Sunnubraut 36 í Kópavogi. Vinningurinn kom á miða númer 1024 en eigandi hans er Jóhannes Þórðarson véi- stjóri á ms. Kvndli. Við heim sóttum Jóhannes og konu hans Jóhönnu Marteinsdóttir á heimili þeirra Brávallagötu 18 og röbbuðum við þau stundar korn um þetta mikla happ. Við byrjuðum að sjálfsögðu að spyrja hin.nar sígildu spurn ingar, hvort vinningurinn hafi ekki komið mjög á óvart. — Jú, að sjálfsögðu kom þetta okkur mjög á óvart en þó held ég að við höfum tekið þessu með mestu geðró. — Hafið þfð átt m.iða lengi í happdrættinu? — Já, við höfum verið með allt frá byrjun en aðeins átt þennan eina miða og aldrei unnið á hann áður. Þess vegna áttum við eiginlega ekki von á að vinna á hann núna frem- ur en vanalega. — Ætlið þið að fllytja í nýja húsið? — Nei, þetta er alltof stórt hús fyrir tvær fullorðnar mann eskjur. Ætli maður reyni ekki að selja það og haldi áfram að búa hérna á Brávallagötunni. — Hvað er verðmæti þessa vinnings talfð vera? — Framkvæmdastjóri happ drættisins sagði okkur að hús ið væri virt á tvær milljónir. Gólfflötur hússins er 151.8 fermetrar auk þess fylgir því bílskúr og nær fuMfrágengin lóð. — Hafið þið nokkuð ákveð- ið hvernig þið ætlið áð ráð- stafa þessum tveimur milljón um? — Nei, það er nógur tími til stefnu, því afsalið fer ekki fram fyrr en eftir tvær til þrjár vikur. En ég held að þetta happ eigi ekki eftir að valda neinum straumihvörfum í lífi okkar. Ég mun halda áfram mínu vélstjórastarfi á Kyndlinum en hjá Shellfélag- inu hef ég verið í 34 ár og er fyllilega ánægður með starfið þar. Þáð var aftur á móti heppni að ég skyldi vera í smáfríi einmitt rtúna en ég fer strax út aftur með næstu ferð. Auðvitað notar maður þessa peninga eitthvað en það er of snemmt að segja nokkuð ákveðið, hvérnig þeim verður ráðstafað. — Ætlið þið að bæta við miðum fyrst þetta hefur gefiS svona 'góða raun? — Nei ætli það. Ekki nema vfð fáum annað hús í viðbót, þá ætti maður að hafa efni á því. — Hafa nokkrir hugvits- menn í peningakröggum hringt til ykkar og boðið sam starf. — Nei það hefur engum hug kvæmst það ennþá en aftur á móti hafa verið stöðugar símahringingar frá vinum og vandamönnum er hafa viljað óska okkur til hamingju með þetta lán. — Nú er þversumma þessa númers 13. Völduð þið þáð vegna þess? — Nei, það var algjör til- viljun sem réði þvi að við feng um þetta númer en núna er- um við hins vegar orðin sann- færð um að 13 sé alls ekki slæm tala. 1: Hægviðri c,g frost norðanlands. Grænlandi þokast hingað aft- Um hádegi í gær var hæg ur og mun vindur verða aust- NA-átt um allt land. Norðan- anstæður hér á landi og held- lands var 4-10 st. frost og víða ur mildara norðan lands. í lítil snjómugga. Sunnan lands þessu veðurlagi eru lítil breyt- var víðast léttskýjað og 2-5 ingar á hafísnum. st. hiti. Háþrýstisvæði yfir MIG-flugvélum beitt til varnar í N-Vietnam Bandaríkjamenn segjast hafa misst 21 flugvél i N-Vietnam frá 7. febr. Hefur lítt látið á sér kræla Sauðárkróki, 5. apríl. FYRIR svo sem þrem vikum varð vart inflúenzu hér í bæn- um. Heita má að síðan hafi veik- in ekki náð neinni teljandi út- breiðslu, og serh dæmi um það er þess að geta, að fjarvistir nem enda í skólunum eru ekki meiri nú en undir venjulegum kring- umstæðum. Hefur flenzan því enn sem komið er ekki fært venjulegt líf bæjarbúa úr skorð- um, en ef.tir fregnum að dæma héðan, sem birzt hafa í höíuð- borginni, gæti almenningur hald ið að veikin herjaði mjög hér um slóðir. Akranes SJÁLFSTÆÐISFÉLAG Akraness heldur almenn- an fund í kvöld i félagsheijnili templara. Fund- urinn hefst kl. 20,30. Fundarefni: Ingólfur Jónsson samgöngumála- ráðherra, ræðir stjórnmálavið- viðhorfin. Þá fer fram kosning fulltrúa á landsfund Sjálfstæðis- flokksins. Sjálfstæðisfólk er hvatt tif að fjölmenna. Saigon 5. apríl AP-NTB • Bandarískar flugvélar héldu í dag áfram loftárásum á vegi, járnbrautarlínur og ratsjárstöðv- ar í N-Vietnam. Að sögn her- stjórnarinnar í Saigon var ein bandarísk flugvél skotin niður, en útvarpið í Hantoi segir fjórar hafa verið skotnar niður. Ekki áttu þar þó í hlut MIG-orrustu- flugvélar frá N-Vietnamher eins og í gær, er þær skutu niður a.m.k. tvær bandarísk.ar flugvél- ar af gerðinni F 105 Thunderbird. Árásirnar í dag beindust eink- um að járnbrautarlínu sem ligg- ur þvert yfir N-Vietnam, en einn ig var sprengjum varpað á ýmsa mikilvæga vegi og brýr. í gær beitti N-Vietnamher flugvélum í fyrsta sinn gegn flug vélum Bandaríkjamanna og S- Vietnamhers. Voru það MIG- þotur 15 og 17, sem talið er, að hafi verið settar saman i Kína. Að sögn herstjórnarinnar í Saig- on voru skotnar niður tvær bandarískar flugvélar af gerðinni F 105 Thunderbird, sem eru með hraðfleygustu og sterkustu her- flugvélum. Stjórnin í Hanoi telur feng sinn hafa verið mun meiri — eða 19 flugvélar bandarískar og kínverska fréttastofan Nýja- Kína segir N-Vietnam hafa skotið niður 57 óvinaflugvélar á laugar- dag og sunnudag. Atburður þessi" kom af stað bollaleggingum blaða um að átök in í Vietnam væru nú að komast á nýtt stig og enn alvarlegra en verið hefur. Og þó ekki hafi ver- ið beitt MIG-vélum í dag, er uggur um þetta engu minni. Á það er bent, að her N-Vietnam, hafi að öllum líkindum haft MIG flugvélar til umráða, þegar áður en Bandaríkjamenn hófu loftárásir á N-Vietnam. Sennileg- ast er talið að þær séu fengnar frá Kina, því ekki er til þess vitað, að Rússar hafi nýlega sent flugvélar til N-Vietnam enda líklegra að þær hefðu þá verið af nýjustu gerð — MIG-19. Hinsvegar herma fregnir frá Moskvu, að Rússar hafi sent loft- varnaflugskeyti til N-Vietnam. Séu þau fimm metrar að lengd og auðveld í meðförum. Fylgir fregninni, að sovézkir sérfræð- ingar séu komnir til N-Vietnam til að kenna þar meðferð þessara vopna. Að því er fregnir frá Saigon herma hafa Bandaríkjamenn misst 21 flugvél frá því þeir hófu loftárásir á N-Vietnam 7. febrúar sl. Ellefu flugmönnum hefur tekizt að bjarga, en 14 eru látnir, týndir eða teknir til fanga. Sakaöir um njósnir Washington, 5. aprfL NTB-AP. * BANDARÍSKA leynilög- reglan skýrði frá því í dag, að handteknir hafi verið tveir menn, grunaðir um að afla leynilegra upplýsinga um bandarískar landvarnir og selja í hendur Rússum. Menn þessir eru Robert Lee Johnson, liðþjálfi, fiá Alexandria í Virginia, og James Allen Mint- kenbaugh frá Kaliforníu. Þeir eru sagðir hafa starfað með Rússa einum, Vitali Gurjoumov, sem áður fyrr var starfandi við sovézka sendiráðið í París en er nú i Sovétríkjunum. Að sögn FBI gengu bæði Jóhn- son og Mintkenbaugh í þjónustu Rússa árið 1953, en þeir voru þá báðir í her Bandaríkjanna í Berlín. Báðir eru sagðir hafa tek- ið peningagreiðslum af Rússum, 200—300 dollurum á mánúði hverjum um tima, auk þess sem Mintkenbaugh hafi verið á njósna námskeiði í Moskvu

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.