Morgunblaðið - 24.04.1965, Page 8

Morgunblaðið - 24.04.1965, Page 8
8 MORGUNBLAÐID ■.V.^ÍUsWv.V Landsfundarfulltrúar heiffruffu minningu Ólafs Thors viff setningu fundarins, m.eff því að rísa úr sætum sínum. (Ljósm. Mbl. Ól. K. M.) — Ræða Bjarna Benedikfssonar Framhald af bls. 1. Nýsköpun atvinnuveganna. Aðild að samstarfi lýðræð- isþjóðanna. Stækkun fiskveiðilandhelg- innar. 10 ára rafvæðingaráætlun. Viðreisn og endurheimt frelsis í viðskiptum og til margháttaðra framkvæmda. Auðvitað lögðu ýmsir aðr- ir sitt af mörkum við fram- gang þessara mála, en án at- beina Ólafs hefðu ýms þeirra alls ekki náð fram að ganga og um önnur farið mun verr en raun varð á. Þegar fyrir andlát Ólafs gerðu flestir sér grein fyrir, að hann var mikilhæfasti stjórnmálamaður sinnar sam- tíðar á íslandi. Mest eigum við Sjálfstæðismenn samt honum að þakka. Hann heitti sér öðrum fremur fyrir því, að Sjálfstæðisflokkurinn var stofnaður með samruna í- haldsflokksins og Frjálslynda flokksins. Formaður flokks okkar var hann frá því á ár- inu 1934 þangað til á Lands- fundi 1961. Hann helgaði flokknum starfskrafta sína ekki einungis þau rúm 27 ár, sem hann var formaður hans, heldur engu að síður á und- an og á eftir. Umhyggjan fyrir velfarnaði Sjálfstæðis- flokksins hvarf aldrei úr huga Ólafs Thors né heldur ósk hans um að flokkurinn yrði vaxinn þeim vanda. að vera sannur forystuflokkur ís- lenzku þjóðarinnar. Öll eigum við Ólafi Thors meira að þakka en nokkrum manni öðrum og meira en mín fátæk legu orð fá lýst. Ég bið ykk- ur, háttvirtu fundarmenn, að rísa úr sætum, minningu hans til virðingar. [Fundarmenn risu ur saetum]. Ég þakka. Pi er þess aff geta, þótt mjög meff öðrum hætti sé, að nú horf- «m viff fram á að missa annan ágætan mann úr flokksstarfinu. Svo sem kunnugt er, þá hefur Gunnar Thoroddsen, fjármála- ráðherra, varaformaður flokks okkar, ákveðið að taka við stöðu sendiherra ísiands í Kaupmanna- höfn. Ég skal játa, að fyrst er ég heyrði þetta, þá kom mér sú fregn mjög á évart. Raunar er það svo, að flestir eða allir, sem standa í stjrónmálaþvargi til langframa, verða öðru hvoru leiðir á því. Að minnsta kosti hef ég oft spurt sjálfan mig að því, af hverju ég væri að eyða ævi minni í þessa látlausu togstreitu, svo árangurslítil og tilgangslaus sem hún á stundum virðist. Svar Ið, sem ég hefi gefið sjálfum mér, er þaff, að ég hafi ekki við neinn annan en sjálfan mig að sakast. Ef ég í raun og veru vildi hverfa að einhverju öðru, þá færi ég því fram af þeirri einbeittni, að enginn gæti haggað ákvörð- un minni. Þetta viðhorf var mér í huga, þegar við Gunnar Thoroddsen ræddum ákvörðun hans. Hann gerði mér grein fyrir því, sem ég raunar vissi fullvel, að hann er nú samfleytt í rúm 18 ár bú- inn að gegna tveim einhverjum vandasömustu og tvímælalaust argmestu embættum hér á landi, fyrst starfi borgarstjóra Reykja- víkur og síðan fjármálaráðherra íslands. Eðlilegt er, að sá, sem þvílíkur þungi hefur hvílt á, óski sér nokkurrar tilbreytingar. Fleira er eftirsóknarvert í lífinu en úrslitavöld og sú ábyrgð, sem þeim fylgir, þó að sjálfsagt sé að meta það traust, sem er for- senda þess, að manni hlotnist þvílíkur frami í lýðræðisþjóðfé- lagi. Víst er, að Gunnar Thor- oddsen nýtur í ríkum mæli trausts okkar Sjálfstæðismanna og raunar margra annarra. Hann þurfti ekki að segja mér frá ákvörðun sinni til þess, að ég lýsti jafnskjótt fullu trausti mínu á honum sem fjármálaráðherra. Hann vissi þegar áður, að hann naut þess, þvi að ég hefi oft látið uppi aðdáun mína á hinni glöggu yfirsýn, sem Gunnar Thoroddsen hefur yfir flókna þætti fjármál- anna og hans eindregna vilja til að halla á hvorugan, ríkissjóð né skattgreiðendur, f þeirra við- skiptum. >á hefi ég ekki síður kunnað að meta það, þegar Gunn ar Thoroddsen hefur hvað eftir annað umyrðalaust en vel vitandi um afleiðingarnar fallizt á, að ríkissjóður tæki á sig nýjar byrð- ar eða tekjumissi til að greiða á þann veg fram úr öðrum vanda. Vanda, sem mér virtist enn brýnni, en hagur rikissjóðs, þó að viðbúið væri, að fjármála- ráðherra teldi, að aðrir ættu fremur en hann að leysa. En hver maður hlýtur sjálfur að ráða sínum lífsháttum og þess vegna taldi ég mér ekki hlýða að setja þvert nei við þeirri ákvörðun Gunnars að breyta nú til. Þetta taldi ég mér því síður fært, þar sem sendiherrastaðan í Kaupmannahöfn er, eins og það mannval sýnir, er hana hefur skipað fyrr og síðar, ein hin þýð- ingarmesta, sem við höfum völ á. Enda er sizt orðum aukið, hversu mikið kapp við leggjum á góða og farsæla sambúð við okkar fyrrverandi sambands- þjóð. Val Gunnars Thoroddsens sem sendiherra í Kaupmanna- höfn er enn ein sönnun þess. >ví fer fjarri, að í þessari ákvörð- un felist, að Gunnar Thoroddsen sé horfinn af vettvangi islenzkra þjóðmála eða hyggist leggja hendur í skaut og hætta að vinna íslandi til heilla. Andstæðingar okkar reyna að láta í veðri vaka, að þessi breyt- ing stafi af sundurlyndi og óein- ingu innan forystuliðs flokksins. Engu slíku er til að dreifa. Að sjálfsögðu erum við allir frjáls- huga menn, og sízt með svo þræl- bundnar skoðanir, að ekki geti sitt sýnzt hverjum um einhver minniháttar atriði. En í öilu því, sem máli skiptir, hefur ríkt full- kominn einhugur innan flokks- ráðs, þingflokks og meðal ráð- herra flokksins hin síðari ár, nú jafnt og meðan við nutum for- ystu og leiðsagnar okkar ógleym anlega foringja, Ólafs Thors. Við minnumst síðustu orða hans I síð- ustu landsfundarræðunni, sem hann hélt hinn 25. apríl 1963. >á komst hann svo að orði: „Við vitum, að fortíðin varðar miklu, nútíðin meiru, en mestu þó framtíðin. >ess vegna stefn- um við alltaf andans sýn fram á veginn í leit að nýjum leiðum. að nýjum lindum, sem ausa megi af til velfarnaðar þjóðinni allri, en einkum þó æsku landsins. Við leggjum nú til atlögu með fangið fullt af stórhug, fjölmenn- ari, öflugri og orustuglaðari en nokkru sinni fyrr.“ >essi voru hvatningarorð Ólafs Thors til okkar í upphafi kosn- ingabaráttunnar 1963. ★ >essari síðustu kosningabar- áttu, sem háð var undir forystu Ólafs Thors, lauk svo, að Sjálf- stæðisflokkurinn hlaut 37.021 at- kvæði, jók atkvæðatölu sína um rúm 3.200 atkvæði og bætti hlut- fall sitt frá haustkosningunum 1959 úr 39.7% í 41,4%. í heild hlaut ríkisstjórnin nær 56% greiddra atkvæða, vann hlut- fallslega á og fékk stærri kosn- ingasigur en tíðkanlegt er í Norð ur- og Vestur-Evrópu, þar sem svipaðir stjórnarhættir eru og hér á landL Úreltur hugsunarháttur Úrslit í einstökum kjördæmum urðu misjöfn eins og gengur. Til þess liggja margháttaðar ástæð- ur. Óhagstæðust voru úrslitin þar 1 sem ósamkomulag var um fram- bjóðendur, eða á milli frambjóð- enda. Sums staðar hafa menn ekki enn til hlítar áttað sig á, að hin gömlu, litlu kjördæmi eru úr sögunni, rígur þeirra á milli þess vegna með öllu úreltur og getur ekki leitt til annars en ills. Frambjóðendur verða að hafa forystu um að bæta úr þessu. >eir eru því aðeins trausts verðir, að þeir kunni að vinna með öðrum og noti ekki ríg á milli sveita, sem nú eru ekki lengur sérstök kjördæmi sjálfum sér til ímyndaðs framdráttar. Eðlilegt er, að trúin á afturgöng- ur, leiði til afturfarar; látum and- stæðinga okkar, hvem með sín- um hætti, eina um fylgispekt við úreltan hugsunarhátt. Sækjum sjálfir eftir sigri og hann er væn- legastur, ef menn horfa fram og láta sátt og samlyndi ráða til styrktar góðu málefni. Báðir stjórnarflokkarnir höfðu lýst yfir því, að þeir mundu halda áfram samstarfi sínu, ef þeir hlytu til þess nægan þingstyrk við kosningamar. Ríkisstjórnin hélt því óbreytt áfram, en átti við ýmsa örðugleika að etja síð- ari hluta ársins 1963. Rétt fyrir þjóðhátíðina þá um sumarið var samið um almenna kaupgjalds- hækkun, 7%, sem eftir atvikum þótti í hóf stillt. Bættist hún þó hjá flestum ofan á svipaða hækk- un fyrr á árinu og samningar voru ekki gerðir lengur en fram á haustið. í júlí var kveðinn upp gerðardómur um kaup opinberra ; starfsmanna og var talið að með- altalshækkun hefði orðið um 45%. Hún hafði veruleg áhrif til að ýta undir gegndarlausar kaup- kröfur, þegar fram á haustið kom, Um þessar mundir varð og ljóst, að ýms önnur verðbólgu- merki uxu ískyggilega. Varð það til þess, að í september voru gerðar nokkrar ráðstafanir til að draga úr vexti verðþennslu. Komu þær að tilætluðu gagni, þótt síðar yrði, en hefðu betur verið gerðar fyrr. Gengi krónunnar >egar sýnt var, hversu háar kaupkröfur verkalýðsfélögin gerðu haustið 1963, óx mjög ótti manna um, að gengi krónunnar yrði ekki haldið óbreyttu, enda virtist kappspamlega unnið að því af sumra Jiálfu að breiða út og efla ótta um gengisfellingu. Var þá glöggt, að fram undan mundi vera úrslitaviðureign um öryggi krónunnar. >ess vegna samþykkti flokksráðsfundur Sjálfstæðismanna hinn 26. októ- ber 1963 svohljóðandi tillögu: „Flokksráðsfundur Sjálfstæð- ismanna telur að gera beri nauð- synlegar ráðstafanir til að tryggja gengi krónunnar og heit- ir á alla landsmenn að veita at- beina sinn til að þær ráðstafanir megi takast." í þessu skyni bar ríkisstjórnin fram lagafrumvarp á Alþingi um að banna verkföll til áramóta, svo að tóm gæfist til að aðilar áttuðu sig á afleiðingum kröfugerðar sinnar og færi gæfist til samn- inga. Alþýðusambandið brást hið versta við þessu frumvarpi, en þegar forráðamenn þess fengust til að heita því, að beita sér fyr- ir, að vinnufriður héldist, a.m.k. til hins 10. desember ,varð með atbeina Ólafs Thors að samkomu' lagi, að atkvæðagreiðslu um frumvarpið skyldi frestað. >essir friðarsamningar voru síðasta stjórnarathöfn Ólafs, því að kraftar hans voru á þrotum þeg- ar fyrir þessi átök, þó að hann vildi ekki hverfa frá völdum fyrr en nokkurt hlé yrði. Hann baðst því lausnar, og fól þingflokkur- inn mér að taka við stjórnarfor- ystu í hans stað og Jóhanni Haf- stein að taka við þeim ráðherra- störfum, sem ég hafði áður gegnt. Sú breyting varð hinn 14. nóv- ember 1963. Næstu vikur var ósleitilega unnið að undirbúningi samkomu- lagstilrauna. >ær urðu þó árang- urslausar og skullu verkföll á. >eim lauk með samningum rétt fyrir jól og giltu þeir samningar hér sunnanlands ekki lengur en um 6 mánaða skeið og enn skem- ur fyrir norðan. Almenn kaup- hækkun samkvæmt þeim var 14 —15% og lét nærri, að kaup- gjald í landinu hefði yfirleitt hækkað um 30% á árinu 1963 og þó mun meira til opinberra i starfsmanna, svo sem fyrr segir. Varð því ekki annað sagt en að í árslok horfði óvænlega í ís- lenzku atvinnulífi, og munu fá- ir þá hafa trúað því, að takast mundi til langframa að halda gengi krónunnar óbreyttu. Laugardagur 24. apríl 1965 J únísamkomulagið Ríkisstjórnin beitti sér fyrir löggjöf um nauðsynlega hjálp til útgerðarinnar og aðrar óhjá- kvæmilegar efnahagsráðstafanir. Var hún samþykkt í janúarlok 1964. Samtímis og síðar áttu sér stað manna á milli viðræður til að kanna, hvort unnt væri aS ná víðtæku samkomulagi um vinnufrið og a.m.k. slíkan hemii á vexti verðbólgunnar, að geng- isfalli yrði afstýrt. Alþýðusam- bandið gerði í apríl samþykkt um vilja sinn til að vinna að stöðv- un verðbólgunnar og svaraði rík- isstjórnin því þegar í stað, a3 hún vildi fyrir sitt leyti að þessu stuðla. Hófust þá þegar opinber- ar samningaumleitanir, sem lykt- aði hinn 5. júní með júnísam- komulaginu svokallaða. Efni þesa er alkunnugt, og skal ég ekki rekja það í einstökum atriðum. Vinnufriður um eins árs bil var aðalatriðið. Kauphækkunum skyldi haldið í hófi en binding kaupgjalds við verðlagsvísitölu tekin upp á ný og fyrstu ráð- stafanir gerðar til styttingar vinnutíma verkamanna, orlof lengt og undirbúnar víðtækar ráðstafanir til öflunar lánsfjár i íbúðabyggingar. Júnísamkomulagið hafði þegar í stað þau áhrif, að ótti um geng- isfellingu hvarf, enda stuðluðu góð aflabrögð og árferði að því, að auka traust manna á stöðug- leika íslenzku krónunnar. Ríkis- stjórnin átti einnig hlut að því, að samningar tókust um verð- lag landbúnaðarafurða. Okkur hafði þannig tekizt að fram- kvæma það, sem flokksráðsfund- urinn í október 1963 hafði fyrir okkur lagt, þótt erfiðlega virtist horfa um það í fyrstu. Á flokks- ráðsfundi haustið 1964, tæpu ári eftir að samþykktin um nauð- synlegar ráðstafanir til að tryggja gengi krónunnar hafði verið gerð, flutti Ólafur Thor* tillögu, sem samþykkt var í einu hljóði. Var það hans síðasta til- lögugerð í íslenzkum stjórnmál- um og hljóðaði syo: „Flokksráðsfundur Sjálfstæð- isflokksins, haldinn í Reykjavík 8.—9. október 1964, lýsir ánægju sinni yfir, að tekizt hefur að standa vörð um gengi íslenzku krónunnar, eins og flokksráðið lagði megináherzlu á í álytkun sinni í október í fyrra. Fundurinn fagnar þeim alhliða árangri, sem viðreisnarstefnan hefur áorkað í íslenzku þjóðfé- lagi, þar sem nú ríkir frelsi i stað fjötra og hafta áður, og tekizt hefur að endurvekja fjár- hagslegt álit íslendinga með öðr- um þjóðum. Fundurinn þakkar forystu rík- isstjórnarinnar um það viðtæka samkomulag, sem tókst milli launþega og atvinnurekenda sL vor og milli bænda og neytenda nú á þessu hausti, en hvort tveggja hefur treyst vinnufrið og samstarf stéttanna í þjóðfélag- inu. Fundurinn vekur þó athygli á, að framundan er að leysa ýmis vandamál, er leiða af þessu sam- komulagi og treystir fundurinn, að sem víðtækast samstarf geti um það skapazL Fundurinn leggur áherzlu á, að með vinnufriði verði unnt að ein beita orku þjóðarinnar að alhliða eflingu atvinnulífsins, þ.á.m. stór virkjunum og stóriðju, til þess að tryggja sífellt betri lífskjör og skapa skilyrði fyrir blómlegri menningu íslendinga í nútíð og framtíð.“ Bætt gjaldeyrisstaða Alhliða árangur viðreisnar- stefnunnar og aukið traust á krónunni lýsti sér m.a. í bættri gjaldeyrisstöðu. Hún batnaði á árinu 1964 um 281 millj. kr. og jafnframt lækkuðu vörukaupa- lán til skamms tíma erlendis um 78 millj. kr. Útistandandi lán er- lendis hækkuðu hins vegar 1 heild um 460 milljónir, en sú hækkun stafaði öll af auknura kaupum á skipum og flugvélum. Framhald á bls. 14.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.