Morgunblaðið - 24.04.1965, Side 10
f 10
MORGUNBLAÐIÐ
Laugardagur 24. apríl 1965
Á landsfundi er fdlk úr öllum stéttum
Bjartsýnn á framtíö
STYRKUR Sjálfstæðis-
flokksins hefur jafnan ver-
ið í því fólginn, að innan
vébanda hans eru karlar
og konur úr öllum stéttum
hins íslenzka þjóðfélags.
Nú, þegar flokkurinn held-
ur landsfund til að marka
stefnu sína á næstu árum,
eru það einmitt fulltrúar
allra stétta, karlar og kon-
ur á öllum aldri, sem þann
fund sækja til að marka~
stefnu flokks síns og þar.
með þjóðarinnar allrar.
Morgunblaðið hefur spjall-
að við nokkra af þessum
ágætu fulltrúum o" fara
þau hér á eftir.
Stálskipasmíðastöð á ísafirði
eykur atvinnumöguleika
— Rætt v/ð Merselius Bernharðsson
FYRST hitti Morgunblaðið að
máli Marselíus Bernharðsson
skipasmið á ísafirði og bað
hann að skýra frá helztu hags
munamálum ísfirðinga.
— Aðaláhugamál mitt er að
koma á fót á ísafirði stál-
skipasmíðastöð. Skipasmíðar
hafa nú um nokkurt skeið leg
ið að mestu niðri á Vestfjörð-
um, verið lítið annað en smá-
vægilegar viðgerðir á skipum.
En með tilkomu stálskipa-
smíðastöðvarinnar þá mundu
atvinnumöguleikar á Vest-
fjörðum stóraukast hjá flest-
um stéttum, svo sem vélsmið-
um, járnsmiðum, rafvirkjum
og reyndar hjá flestum öðrum
iðnstéttum þar. Þess vegna er
það einlæg ósk mín að mér
muni takast að koma á stofn
á ísafirði stálskipasmiíðastöð
og ég er sannfærður um að
það mundi marka nokkur
tímamót í atvinnumálum Vest
fjarða. Annars held ég að at-
vinnumöguleikar hjá öðrum
stéttum á Vestfjörðum séu
ágætir og þeir mundi engan
veginn minnka með tilkomu
stálskipasmíðastöðvarinnar.
— Mesta hagsmunamál okk
ar Vestfirðinga hefur í langan
tíma verið að fá bætt úr sam-
göngumálunum og nú birtir
stórlega yfir þeim með hinu
mikla láni er fékkst frá Við-
reisnarsjóði Evrópu til lausn-
ar á þeim málum og benda
allar líkur til þess, að nú ræt-
ist verulega úr því vandamáli.
— Mér lízt vel á þennan
landsfund okkar það sem kom
ið er, hann er fjölmennur og
Marselíus Bernharðsson,
skipasmiður.
auðsjáanlega góður andi með
al fulltrúanna.
Fuglalíf á Mývatni
verði verndað
- Rætt við Kristján bónda að Vogum
i Mývatnssveit.
Meðal hinna fjölmörgu
bænda á landsfundi Sjálfstæð
isflokksins er Kristján Þór-
hallsson, bóndi í Vogum í
Mývatnssveit. Við hittum
hann snöggvast að máli í gær
og barst þá fyrst í tal bygg-
ing kísilgúrverksmiðju vfð
Mývatn.
— Ég hef aldrei verið bjart
sýnn á þær ráðagerðir. Stafar
það mest af því, að mér er
enn í fersku minni, hversu
ilia tókst til varðandi brenni-
steinsvinnsluna, en hún fór í
handaskolum vegna óheppi-
legra vinnubragða, auk þess
sem margvísleg óhöpp steðj-
uðu að. Hins vegar hafa fari'ð
fram ýtarlegar rannsóknir á
því, hvort heppilegt muni
reynast að reisa kísilgúrverk
smiðju. Vona ég að ekki verði
ráðizt í þær framkvæmdir
nema af fullri skynsemi að
fenginni niðurstöðu rannsókn
anna. Ef sú er raunin, að mikil
verðmæti eru í Mývatni, tel
ég auðvitað sjálfsagt, að þau
verði nýtt til útflutnings, og
má vafalaust hafa af því mikl-
ar gjaldeyristekjur.
— Hvernig hefur tíðarfarið
verið hjá ykkur í vetur?
— Tíðarfar hefur yfirleitt
verið mjög hagstætt. Nokkurn
snjó setti niður í desember og
fram á þorra, en síðan var
snjólétt allt fram til páska,
en þá var miki’ð fannkyngi.
Samgöngur hafa verið ágæt-
ar, sumarfæri á Vegum.
— Hafið þið stundað silungs
veiði í vetur?
— Ágæt 'silungsveiði hefur
verið í net undir ís í vetur.
Silungurinn hefur verið mjög
göður. Hann hefur að mestu
leyti verið reyktur og fluttur
á markað tii Akureyrar og
Reykjavíkur. Menn hafa tals-
Patreksfjaröar
— Rætt við Jóhannes
Árnason, sveitarstjóra
Kristján Þórhallsson í Vogum
verðar tekjur af veiðinni, enda
þótt veiðitæki séu öll orðin
dýr. Enn er mikill ís á Mý-
vatni, sennilega 70 — 90 cm.
þykkur.
— Hefurðu trú á því að
Mývetningar hafi miklar tekj
ur af ferðamannastraumnum
í framtíðinni?
— Já, á því er ekki nokkur
vafi, enda er Mývatnssveit
einhver vinsælasti staður sem
ferðamenn koma á á landinu.
Það sem einkum háir því að
hér geti orðið um verulegan
atvinnuveg að ræða, er eink-
um það, að ferðamenn koma
til okkar eingöngu yfir há-
sumarið. Einhverjar ráðstaf-
anir þarf að gera til þess að
lengja þann tíma, sem ferða-
menn eyðá við Mývatn.
— Er ekki fremur dauft
yfir félagslífi í Mývatnssveit_
yfir veturmánuðina?
— Nei, síðuT en svo. í Mý-
vatnssveit er ágætt og fjöl-
breytt félagslíf. Ungmenna-
félagið gekkst fyrir sýningum
á leikritinu „Ævintýri á
gönguför", og var það frum-
sýnt þann 13. þ.m. Leikstjóri
er Birgir Brynjólfsson, en
leikarar allir héðan úr Mý-
vatnesveit. Hafa þeir sýnt leik
ritið fjórum sinnum heima, en
eru nú á sýningaferð um Eyja
fjörð og fara sfðan til Húsa-
víkur.
— Þegar við ræddum um
Mývatnssveit, barst fljótt í
tal hið einstæða fuglalíf þar
í sveitinni.
— Nokkrar deiluT hafa ver
ið um vatnshæð Mývatns
vegna Laxárvirkjunar. Fyrir
nokkrum árum kusu landeig-
endur nefnd, sem gerði tillög-
ur um það hversu hátt vatns-
borðið skyldi vera. Stjórnend
ur Laxárvirkjunnar hafa hins
vegar talið ráðlegt að hafa
vatnSborðið verulega hærra
en Mývetningar vildu. Fyrir
tveimur árum kom það fyrir
MEÐAL landsfundarfulltrú-
anna er Jóhannes Árnason
sveitarstjóri á Patreksfirði. Jó
hannes er fæddur á Patreks-
firði og hefur búið þar ávallt
síðan, að undanteknum þeim
árum, sem hann dvaldi við
nám. Að loknu lögfræðinámi
vorið 1963 gerðist hann sveit-
arstjóri á Patreksfirði.
— Hversu margir íbúar eru
á Patreksfirði núna, Jóhann-
es?
— Þeir eru nú um eitt þús-
und. Á síðustu 5 árum hefur
íbúunum farið fjölgandi og
hefur verið mikið um íbúðar-
byggingar á því tímabili.
Næstu árin þar á undan stóð
íbúatalan í stað og þá var
lítið um húsbyggingar.
— Hvað er helzt að frétta
af samgöngumálum ykkar?
— Um samgöngurnar er
það að segja, að þær hafa
síður en svo verið góðar und
anfarin ár, einkum að vetr-
arlagi. Hins vegar er nú
mikil bjartsýni ríkjandi
meðal bæjarbúa í þessum
efnum vegna hinna nýju Vest
fjarðaáætlunar, sem ríkis-
stjórnin hefur nú lagt fram
til úrbóta í samgöngumálum
í þessum landshluta. Hvað
Patreksfjörð og nágrenni
snertir eru aðalframkvæmd-
irnar samkvæmt áætluninni
bygging nýs flugvallar í svo-
kölluðum Sandodda við Pat-
reksfjörð. Þar eiga stærri
flugvélar að geta lent, og
mun þetta að sjálfsögðu verða
mjög þýðingarmikil sam-
göngubót fyrir héraðsmenn.
— Einnig er í áætlun gert
ráð fyrir mjög bættum sam-
göngum á landi þannig að
greiðfært verði meginhluta
árs milli kauptúnanna
þriggja, Patreksfjarðar,
Tálknafjarðar og Bíldudals,
og um nærliggjandi sveitir, en
á þessu svæði eru um 2000
íbúar. Þá er og gert ráð fyrir
í ofviðri að ísinn braut upp.
Stórir jakar spilltu þá stór-
lega vatnsbökkunum og varp
hélmum. Augljóst er, að ef
slíkt endurtekur sig oft er
fuglalífinu bráður háski bú-
inn. Tel óg að Náttúruverndar
ráð eigi að beita sér fyrir að
gerðar verði ráðstafanir til
verndar fuglalífi á Mývatni,
sem er algerlega einstakt í
sinni röð á Xslandi, og þótt
víðar væri leitað.
— Hverjar eru helztu frétt-
ir af búskapnum?
— Merkast í búskaparhátt-
um okkar er það, að nú þegar
er búið aö rýja mikinn hluta
sauðfjárins. Ég er þeirrar
skoðunar, að í framtíðinni
verði sá háttur á hafður, að
rúningur fari fram að mestu
leyti í marzmánuði. Það er
miklu hentugra bæði vegna
þess, að illa hefur oft gengið
að heimta fé til rúningar, eftir
að því hefur verið sleppt á
vorin, og svo líka vegna þess,
að ullin er miklu betri vara,
ef sauð'kindin er rúin áður
en henni er sleppt úr húsL
Jóhannes Árnason
sveitarstjórL
að vegurinn um Barðastrrnd-
arsýslu til Reykjavíkur verði
bættur þannig, að hann verði
fær mun lengur en nú er.
Aðalframkvæmdin er lagning
vegar með sjó fyrir Þing-
mannaheiði, sem nú er helzti
þröskuldurinn á þessari leið
og teppist í fyrstu snjóum á
haustin,
— Eru miklar framkvæmd-
ir fyrirhugaðar í Patreks-
firð'i?
— Mörg undanfarin ár
hafa stærri skip átt mjög
erfitt um vik með að hafa
viðkomu á Patreksfirði vegna
þess hve innsiglingin í höfn-
ina er erfið í slæmum veðr-
um. Hefur það margoft komið
fyrir, einkum að vetrarlagi að
skipin hafa ekki getað siglt
inn í höfnina, og hefur þá
orðið að flytja farþega og vör
ur í bátum út á fjörð. Er slíkt
ástand gjörsamlega óforsvar-
anlegt í 1000 manna bæ.
— Utbætur á þessu ástandi
hafa verið eitt aðalbaráttu-
mál Patreksfirðinga á síðustu
árum, og hafa forráðamenn
hreppsins lagt á það megin-
áherzlu, að fullnægjandi úr-
lausn fengist. Haustið 1963
hófst verkfræðilegur undir-
búningur að áframhaldandi
framkvæmdum við Patreks-
höfn, og er því starfi nú lok-
ið með því að gerðar hafa
verið 3 tillögur um heildar-
skipulag inni í höfninni, þ.e.
nýtingu hafnarinnar fyrir
fiskiskipaflotann og uppbygg-
ingu fiskiðnaðar við höfnina.
— í hinni nýju Vestfjarða-
áætlun er gert ráð fyrir fram
kvæmdum við Patrekshöfn
fyrir 17 milljónir króna á
næstu 4 'árum, þar af a.m.k.
4 millj. á þessu ári. Fram-
kvæmdirnar, sem hafa verið
ákveðnar á þessu ári, eru
lenging hafnarbakkans út
með innsiglingunni um 60
metra til að bæta aðstöðu
stærri skipa til að hafa við-
komu í höfninni og athafna
sig þar.
— Patrekshöfn er hins
vegar þegar góð bátahöfn og
verður enn betri með fram-
kvæmdum þeim, sem gerðar
verða á næstu árum, enda
er nauðsynlegt að framkvæmd
Framhald á bls. 23