Morgunblaðið - 24.04.1965, Side 17

Morgunblaðið - 24.04.1965, Side 17
Laugardagur 24. apríi 1965 MORGUNBLADIÐ 17 Starfsemi Sjálfstæðisflokksins öflugri en nokkru sinni áður r jf llr greinargerð Þorvalds G. Kristjánssonar, fram- íkvæmdasfjóra Sjálfstæðisflokksins I gær ÞA0 lcom skýrt fram í ræðu I»orvalds Garðars Kristjánssonar á landsfundinum í gærmorgun, að starfsemi Sjálfstæðisflokksins stendur með meiri blóma nú en nokkru sinni áður jafnt í þéttbýli sem í sveitum landsins. Að lok- Innii skýrslu sinni um starfsemi flokksins, en fyrir henni gerði Þorvaldur Garðar grein í ýtar- legri ræðu, mælti hann eftir- farandi. En þegar á allt er litið, er það ekki skipulagið, sem er aðalat- riðið, svo mikilvægt sem það ann ars er. í>að. sem mest á veltur, er fiokksmennirnir sjálfir. Flokks starfið hvílir á persónulegu fram lagi flokksmanna hvers og eins. Það krefst óeigingjarns og fórn- :fúss starfs. Það krefst þess, að menn séu fúsir til baráttu. Það ikrefst þess að menn séu reiðu- búnir að leggja á sig óþægindi og fyrirhöfn. Það krefst stöðugr- ar árvekni, áhuga og elju. En til Iþessa finna menn ekki hvöt hjá sér, nema sannfæring fylgi því, að það, sem barizt er fyrir, sé þess vert að leggja allt þetta á sig fyrir. Þetta gera menn ekki nema fyrir hugsjón. Gleymum ekki -— flokksstarfið er hugsjóna- starf. En hugsjónastarf er aldrei neinum kvöð. Það hvetur hvern og eínn til átaka og dáða. Hug- sjón, sem rætist, er laun baráttu- mannsins. Styrkieiki Sjálfstæðisflokksins ihefir verið sá að standa á traust- um hugsjónagrundvelli. Hann het'ir átt hugsjónir, sem fól'k hef- lir viljað gera að sínum hugsjón- um, Hann hefir átt hugsjónir, sem fólk hefir þótt þess virði að berjast fyrir. Sá er styrkur Sjálfstæðisflokksins. Þessa fjöreggs þarf að gæta. IÞess skulum við alltaf vera minn ug. Sérstaklega ber að hafa það í huga á landsfundi flokksins. Á ilandsfundi ber að skýra og styrkja hugsjónagrundvöllinn. Á landsfundi á að skerpa glóð hug- sjónanna og gera að því báli, sem með endurnýjuðum krafti ilæsir sig um allt ísland. Þ e g a r Sjálfstæðisflokkurinn var stofnaður, var honum sett sú grundvallarstefna, eins og það var orðað, „að vinna í innanlands málum að viðsýnni og þjóðlegri umbótastefnu á grundvelli ein- staklingsfrelsis og atvinnufrelsis, með hagsmuni allra stétta fyrir augum“. Hér er ekki um marg- orða yfirlýsingu að ræða. Samt er skýrt mörkuð grundvallarstefn an. Hugsjónin er reist á gildi ein- staklingsins, hvar í stétt eða stöðu, sem hann er. Þetta er ikjarninn í stefnu Sjálfstæðis- flokksins. Flokkurinn hefir staðið vörð um einstaklingsframtakið. Hann ihefir skapað einstaklingnum svig rúm og aðstöðu til að beita at- orku sinni og hugviti í athafna- lífinu með glæsilegum árangri fyrir þjóðarbúskapnum. En ein- stakiingurinn er jafn mikils virði, iivar í stétt sem er. Sjálfstæðisflokkurinn hefur ekki iátið sér nægja að skapa athafnamönnum, atvinnurekend- unum, starfsaðstöðu, heldur og gætt hags launþeganna. Um leið og framtaki einstaklingsins hafa verið sköpuð skilyrði í atvinnu- rekstrinum, hefir launþegunum verið skapað atvinnuöryggi og félagslegt öryggi. Þess vegna hef- ir flokkurinn ekki hikað við að :láta hið opinbera annast atvinnu rekstur, ef einkaframtakið hefir á einhverjum tíma ekki reynzt fært um að annast hann. Flokk- urinn hefir unnið markvisst að eflingu trygginga og ahnars fé- lagslegs öryggis til hags laua- þegunum i landinu. Víðsýn umbótastefna Þannig hefir verið í fram- kvæmd hin víðsýna og þjóðlega umbótastefna flokksins. Flokkn- um hefir tekizt að aðlaga grund- vallarhugsjón sína aðstæðum á hverjum tíma án þess að missa sjónar af sjálfum kjarnanum, gildi einstaklingsins, hvar í stétt eða stöðu, sem hann kann að vera, Þetta er skýringin á því fylgi og trausti, sem flokkurinn hefir áunnið sér hjá þjóðinni. Þess vegna er Sjálfstæðisflokk- urinn í dag langstærsti og öflug- asti flokkur þjóðarinnar. Þess vegna hefir hann ráðið mestu um stjórn landsins í nær þrjá ára- tugi. Stjórnmálaflokkar eru venju- lega greindir í sundur eftir stefnu þeirra og markmiðum. En stjórnmálaflokka má og greina í sundur eftir útfærslu eigin stefnu og vinnubrögðum. Annars vegar þekkjum við stjórnmálaflokka, sem leggja áherzlu á ákveðið hugmyndakerfi og kennisetning- ar. Hugmyndakerfið og kenni- setningarnar kunna að hafa átt sína sfcoð í veruleikanum, Iþegar þær urðu til. En með því að halda fast við form, sem einu sinni gat verið gott, verður það úrelt vegna breyttra aðstæðna og nýs fcíma. Og það, sem meira er, að með því að ríghalda í formið, | er hætt við að misst verði sjón- ar af sjálfum kjarnanum. Stjórn- málaflokkar. sem þetta verður á, geta síður skírskotað til dóm- greindar fólks. Fólkið lifir í heimi veruleikans, en ekki heimi kennisetninganna. Afleiðingin verður sú, að slíkir stjórnmála- flokkar standa verr að vígi um baráttuna um völdin, sem einu sinni eru nú nauðsynleg, til að geta framkvæmt stefnuna. Sem dæmi um þessa tegund stjórnmálaflokka má nefna íhaldsflokkana á Norðurlöndum, sem tekizt hefir með fastheldni við úrelta íhaldsstefnu sína að gera sig nær áhrifalausa um landsstjórn í marga áratugi. Enn- fremur má nefna Verkamanna- flokkinn brezka, sem hefir verið svo fastheldinn á kreddubundinn sósíalisma að telja verður til und- antekninga, að hann fái stjórn- völd þar í landi, þótt svo hafi slysast til á sl. hausti. Þá má í þessu sambandi nefna Republic- anaflokkinn í Bandaríkjunum, sem hefir með úreltri ihalds- stefnu haldið sér utan ríkisstjórn ar í nokkra áratugi, þótt stríðs- hetjan Eisenhower gæti rétt hlut flokksins í bili. Og í fersku minni er hrakfallasaga þessa flokks á sl. hausti undir forustu Gold- waters, persónugerfings þeirra íhaldsmanna, sem sjá fyrirheitna landið 40 ár aftur í tímann með afnámi almannatrygginga og fé- lagslegs öryggis. Hins vegar höfum við stjórn- málaflokka, sem leggja áherzlu á að samhæfa og aðlaga grund- vallarstefnu sína breyttum að- stæðum á hverjum tíma. Fræg- asta dæmið um slíkan flokk er brezki íhaldsflokkurinn, sem á sér langa og glæsilega sögu, svo sem kunnugt er. Brezki íhalds- flokkurinn hefir — trúr grund- vallarhugsjónum sínum, .— oft í sögu sinni ekki hikað við að færa stefnu sína í nýjan búning í sam- ræmi við kröfur tímans. Það gerð ist t. d. eftir síðari heimsstyrjöld- ina, þegar flokkurinn tileinkaði sér hugsjón velferðaríkisins und- ir forustu ungra manna, sem höfðu víðsýni og frjálslyndi til að skilja tímanna tákn. í þessu sam- bandi má og minna á Demokrata- fliokkinn í Bandaríkjunum. En Þorvaldur Garðar Kristjánsson. báðirþessir flokkar hafa að jafn- aði verið við völd á undanförn- um áratugum. Til stjórnmálaflokka sem þess- ara, er leggja meira upp úr kjarnanum en forminu, verður Sjálfstæðisflokkurinn tvímæla laust talinn. Það sýnir okkur saga flokksins, starfsaðferðir hans og árangurinn af starfi hans. En hvaða ástæða er til að vera að leggja áherzlu á þetta nú? Það er alltaf ástæða til að gera það. Og ekki er það sízt, þegar fram undan eru fangbrögð við óvenju- erfið vandamál eins og ér í dag. Úrlausn margra þeirra get- ur ráðið sköpum um þróun okkar þjóðlífs í næstu framtíð. Stétt með stétt Mest er um vert að efla og viðhalda því trúnaðartrausti, sem skapazt hefir á undanförnum ára tugum milli Sjálfstæðisflokksins og hinna einstöku starfsstétta þjóðfélagsins. Eftir því sem það er greypt í vitund þjóðarinnar, að flokkurinn gerir ekki upp á milli einstakra stétta þjóðfélags- ins, þeim mun sterkari aðstöðu hefir hann til þess að vinna hin um einstöku stéttum með tilliti til hagsmuna þjóðarheildarinnar. Hér eins og svo víða annars staðar er samband fjármagns og vinnu eitt aðalvandamálið. Fjár magnið er nauðsynlegt, til þess að við getum haft framfarir, en vinnan skapar hins vegar fjár- magnið. Engar framfarir án fjár- magns — ekkert fjármagn án vinnu. Einkaframtakinu verður skilyrðislaust að búa það athafna frelsi, sem skapar möguleika til eðlilegrar fjármagnsmyndunar, Launþegarnir eiga skilyrðislaust rétt á svo miklum launum, sem framleiðslan getur borið. Þetta leiðir óhjákvæmilega af þeirri grundvallarhugsun, að einstakl- ingurinn sé jafn mikils virði, hvar í stétt eða stöðu, sem hann kann að vera. Því traustar, sem Sjálfstæðisflokkurinn stendur á þessari grundvallarskoðun, þeim mun betri aðstöðu hefir hann, til þess að skipa málum atvinnurek- enda og launþega eftir því, sem þörf krefur á hverjum tíma. Og í margbreytileik lífsins snerta vandamálin, sem jafnan er við að stríða, einstakar starfsstéttir, hvort sem það eru bændur eða sjómenn, atvinnurekendur, verka menn eða verzlunarmenn, iðnað- armenn eða embættismenn. Til lausnar vandamálunum þarf oft að gera stjórnarráðsfcaf- anir, sem koma við einstakar starfsstéttir og jafnvel skerða hagsmuni þeirra í bráð. Það er oft veikleiki lýðræðisins, að stjórnmálaflokkar skirrast við að gera ráðstafanir, sem nauðsynleg ar eru þjóðarheildinni af ótta við andúð einstakra hagsmúnahópa. Við iþekkjum þetta fyrirbrigði í ókkar þjóðfélagi. Við köiinúmst við það, þegar ekki er ráðizt til atlögu við vandamálin sjálf, or- sakir þeirra og meinsemd, heldur barizt við afleiðingarnar og sjúk- dómseinkennin. Það er stundum barizt hetjubaráttu við vind- myllurnar. Allt er þetta tilkomið af óttanum við einstakar stéttir. Þetta er skiljanlegt, þegar stétt- arflokkar eiga í hluta, stjórn- málaflokkar, sem hafa að yfir- lýstri. stefnu að vinna að hag einnar stéttar á kostnað annarr- ar. En slík vinnubrögð móta ekki flokk eins og Sjálfstæðisflokkinn, sem hefir að grundvallarstefnu að vinna að hag einstaklingsins, hvar í stétt eða stöðu, sem hann er. En til þess að Sjálfstæðis- flokkurinn njóti sem bezt þess- ara eðliseinkenna sinna, er ekk- ert þýðingarmeira en að leggja áherzlu á þessa grundvallar- stefnu. Það er leiðin til að skapa það almenna traust hjá hinum ýmsu stéttum þjóðfélagsins, sem þarf að vera fyrir hendi, til þess að flokkurinn sé fær um að leysa vandamálin. Hér er ég ekki að segja nein ný sannindi. Þetta er leiðin, sem Sjálfstæðisflokkurinn hefir farið Þetta er leiðin, sem Sjálfstæðis- flokkurinn hlýtur að fara. Hér skilur á milli Sjálfstæðisflokksins og armarra íslenzkra stjórnmála- flokka. Það er ekki einungis, að Sjálf- stæðisflokkurinn hefir skapað sér traust hjá öllum stéttum, heldur hefir flokkurinn sjálfur verið sá vettvangur, þar sem ólík sjónar- mið og hagsmunir einstakra stétta hafa verið samræmdir og úr mótuð heildarstefna flokksins í þjóðmálum og dægurmálum á hverjum tíma. Sameiningartákn þjóðarinnar Þéssi upþbygging og eðli Sjálf- stæðisflokksins hefir gert flokk- inn að öflugasta sameiningar- tákni þjóðarinnará undanförnum áratugum. Hinu íslenzka þjóðfé- lagi verður ekki stjórnað svo vel fari, nema með hagsmuni allra stétta fyrir augum. Spurningin er aðeins, hvernig verða hags- munirnir bezt samræmdir. Verð- ur það vel gert með samningum og pólitískum hrossakaupum fjandsamlegra stéttaflokka? Hef- ir ekki reynslan sýnt, að það verður bezt gert innan vébanda eins og sama flokks í samvinnu og gagnkvæmu trausti vina og flokksbræðra? Það er á þessu sviði, sem megin gildi Sjálfstæðisflokksins er fyrir hið íslenzka þjóðfélag. Okkar þjóðféíag getur ekki staðizt án slíks stjórnmálaflokks. Ekkerf. Iþjóðfélag þarf meir á því að halda en hið íslenzka, að hverj- um einstaklingi séu búin þaix skilyrði, að starfsorka hans, hug- vit og framtak njóti sín sem bezt. Fámenni okkar er slíkt, að vonin til þess, að við fáum hald- ið uppi sjálfstæðu menningar- þjóðfélagi, er bundin við gildi einstaklingsins. Hin fjölmennu þjóðfélög kunna að hafa efni 4 því að meta manngildið eftir stétt um. Við höfum ekki efni á þvL Við þurfum á öllu okkar að halda. Við höfum líka sérstöðu, þar sem er okkar veika ríkisvald. Við höfum ekki her til að skakka leik inn, þegar átök stéttanna keyra fram úr hófi, eins og önnur ríki hafa. Við verðum að leysa okkar mál eftir aðstæðum þeim, sera við búum við. Erlendar fyrir- myndir eru góðar og eftir þeim ber að sækjast. En þær hafa ekki hagnýta þýðingu fyrir okkur nema að því marki, sem þær styrkja okkar eigin þjóðfélags- byggingu. Svarið við okkar veika ríkisvaldi er samvinna stéttanna. Leiðin til þess er leið Sjálfstæðis- flokksins. Það er hin víðsýna þjóðlega umbótastefna með hags- muni allra stétta fyrir augum, eins og það var orðað, þegar flokkurinn var stofnaður. Það er sögulegt hlutverk Sjálf- stæðisflokksins að vera burðar- ás hins íslenzka þjóðfélags. Ef þessi burðarás brestur, er háetta á, að þjóðfélagsbyggingin riði til falls. Það er hætta á því vegna þess, að engir aðrir flokkar eða samtök í þessu landi geta gegnt þessu mikilvæga hlutverki. Engir aðrir leggja til grundvaltar stefnu sinni það, setn nauðsya- legást er, til þess að okkar ein- stæða tilraun, til að halda uppi frjálsu og fullvalda ríki svo fá- meiinrar þjóðar, takizt til fram- búðar. Ég segi tilraun, því að það er lítill reynslutími í líft þjóðar, síðan við íslendingar endurheimtum sjálfstæði okkaf. En tilraunin verður að takast Baráttan fyrir því er sjálfstæðis- baráttan í dag. Það er barátta. Sjálfstæðisflokksins. Þetta er okk ar barátta. Til grundvallar þess- ari baráttu liggja þær háleitustu hugsjónir, sem bærast í brjósti hvers ærlegs íslendings. Fyrir þessar hugsjónir er vissulega fórnandi þeim tíma, erfiði og fyrirhöfn, sem flokksstarfi okkar fylgir. Fyrir þetta ber okkur að varðveita og efla Sjálfstæðis- flokkinn sem víðsýnan og þjóð- legan umbótaflokk. Og' á þessum landsfundi skulum við enn á ný styrkja okkar fyrri heit að vinna flokknum allt, sem við megum. Aðmíráls- fiðrildi Þetta aðmírálsfiðrildi hefur vafa laust haldið að sumarið væri komið löngu fyrir páska, þegar það' fór að flögra um i skraut- legum búningi vestur á Bíldudal. En það fékk ekki lengi að flögra og galt óforsjálni sinnar. Frétta- ritari blaðsins á Bíldudal, Hann- es Friðriksson, sendi okkur það s vo. Það mun ekki atgengt að hitta fyrir svona sumarbúinn skordýr á Bíldudal í aprilmánuði. Verða Banda- ríkin bráðtfiti flugvélalaus? Tókíó, 21. apríl — AP ÚTVARPIÐ í Hanoi tilkynnái í dag að hermenn N-Viet Nara hefðu skotið niður tíu bandarísk- ar flug'vélar í gær, en ekki átta, eins og haldið hafði verið í fyrsfcu. Jafnframt sikýrði útvarpið frá því, að 220 bandarískar flugvélar hefðu alls verið skotnar niður yfir Viet NamlII

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.