Morgunblaðið - 24.04.1965, Síða 30
Sveitir Skarphéðins, sem nnnu í 5 og 10 manna sveitakeppni, Hafsteinn Sveinsson — sá er
fyrstur kom í mark af Skarphéðinsmönnum heldur á bikurunum tveim.
Kristleifur var fyrstur en
HSK vann 5 og
10 manna keppni
9. Sigurður Geirdal UBK 9.31,0.
33 menn hófu hlaupið af 37,
sem skráðir voru til keppninnar.
Allir sem hófu hlaupið luku því,
og 33. maður hafði tímann 11.20,0.
í þriggja manna sveitarkeppni
sigraði KR með 6 stig, önnur varð
sveit Breiðabliks í Kópavogi með
20 stig. Þriðja sveit HSK með 21
' stig og fjórða sveit ÍBK með 31 :
stig.
í keppni 5 manna sveitar sigr-
aði HSK með 35,5 §tigum. Önn- j
varð sveit Breiðabiiks með 40 ,
stig. Þriðja sveit Keflavíkur með
49,5 stig.
í keppni 10 manna sveitar sigr
aði HSK með 101,5 stigi, önnur !
varð sveit ÍBK með 108,5 stig. !
* VERÐLAUN AFHENT
Að keppni lokinni bauð ÍR
til kaffisamsætis í Tjarnarbúð.
Þar rakti Reynir Sigurðsson for
maður ÍR stuttlega sögu hlaups-
ins og minntist Helga Jónassonar
I frá Brennu, sem var aðalhvata-
maður að stofnun hlaupsins og
getur kallast hinn sanni „faðir
hlaupsins", sem nú er elzta erfða
venjan í íslenzkum frjálsíþrótt-
um.
Reynir afhenti Kristleifi Guð-
björnssyni styttu, sem Morgun- ;
blaðið gaf sigurvegara hlaupsins
í þetta 50. sinn til eignar. Síðan
tóku sigursveitirnar við verðlaun
um sínum og því loknu tóku
margir til máls og ræddu um
gildi víðavangshlaupsins, þökk-
uðu ÍR fyrir forustu þar um í
hálfa öld og skoruðu á viðstadda
og kunningja þeirra að mæta aft
ur til hlaupsins að ári liðnu.
Steindór Björnsson frá Gröf
afhenti formanni ÍR fjársjóð að
Kristleifur kemur að marki.
upphæð kr. 6.253,00, sem hann
óskaði að yrði höfuðstóll sem
yrði þess máttugur að geta með
vöxtum staðið undir kostnaði til
þess að allir þátttakendur í Víða
vangshlaupi ÍR mættu eignast
minnismerki um þátttöku sína í
hlaupinu.
GlæssEega minnst 50. Vlða-
*
vangslilaups IBt
VÍÐAVANGSHLAUP ÍR, hið 50.
í röðinni fór fram með miklum
glæsibrag á sumardaginn fyrsta.
Skráðir þátttakendur voru 37 en
33 hófu keppni og allir luku
henni og er það jafn mikill fjöldi
og nokkru sinni áður hefur að
marki komið í þessari elztu erfða
skálann og endaspretturnin var
Fríkirkjuvegurinn og Lækjar-
gatan, þar sem markið var fyrir
framan Menntaskólann.
Þúsundir manna horðu á enda-
sprett hlaupsins, og margt af því
fólki hafði einnig verið við upp
hafa þess.
Þessi r tóku þátt í fyrsta Víðavangshlaupinu í. v. Ólafur
Sveinsson, Jón Kaidal — sigurvegari fyrstu 2 árin. — Guðm.
Gíslason og Ott B. Arnar.
venju ísienzkra frjáisiþrótta. —
Sigurvegari í hlaupinu varð Krist
leifur Guðbjörnsson KR, hljóp
u.þ.b. 2,6 km á 8.38,7 min. KR
vann þriggja mannasveitakeppni
en Héraðssambandið Skarphéð-
inn vann sigur í 5 og 10 manna
sveitakeppni.
if ÚRSLITIN
Hlaupið hófst t Hljómskála-
garðnum kl. 2,15 og var hlaupið
SUður fyrir prófessorabústaðina
um mýrina og aftur inn í Hljóm-
Úrslit í hlaupinu urðu:
1. Kristleifur Guðbjörnsson KR
8.38,7. _
2. Agnar’Levý KR 8.41,7.
3. Halldór Guðbjörnsson KR
9.01,2.
4. Þórður Guðmundsson UBK
9.13.3.
5. Þórarinn Arnórsson ÍR 9.14,2.
6. Hafsteinn Sveinsson HSK
9.14.4.
7. Marinó Eggertsson UMÞ
9.15.4. '
8. Jón Sigurðsson HSK 9.24,4
Þrír fyrstu: 1 miðið Kristleifur, til vinstri Agnar Leví og *
Halldór bróðir Kristleifs. I
KR vann ÍR 61:48 og
aukaleikur nauðsynlegur
Á FIMMTUDAGSKVÖLD fékkst
loksins jákvætt svar við hinni
margtuggnu spurningu, „tekst
KR að sigra ÍR, já, KR sigraði
ÍR í æsispennandi leik, einum
þeim bezta, sem sést hefur í
körfuknattleik á íslandi. 61:48
fyrir KR eru þau úrslit sem
mesta athygli. vekja í íslands-
mótinu í körfuknattleik 1965.
Sex ára sigurgöngu ÍR hefur nú
verið hrundið, það er þó ekki
útséð hvar íslandsbikarinn iend-
ir, úr því fæst skorið í aukaleik
þessara liða föstudaginn 30. apríl
nk. Önnur úrslit þetta kvöld voru
að Stúdentar falla í II. deild eft
ir tap fyrir KFR 62:36 og þrjú
lið eru jöfn í I. flokki eftir að
stúdentar komu mjög á óvart og
sigruðu KR 39:37.
I. deild ÍR—KR 61:48
Það var góð stemmning að Há-
logalandi þegar leikurinn hófst,
klappkórar beggja félaga hvöttu
liðin óspart. Leikurinn var mjög
jafn allt frá upphafi og skildu
Laugaskóliiifi
vann Gagnfr.-
skóla Akur-
eyrar
Hin árlega keppni Laugaskóla
og Gagnfræðaskólans á Akureyri
í frjálsum íþróttum, sundi, knatt
spyrnu og skák fór fram að Laug
um sunnudaginn 11. apríl. Bóka-
forlag Odds Björnssonar gaf
bækur til verðlauna af mikilli
rausn eins og oft áöur, en auk
þess var keppt um bikar, sem
Olíudeild KÞ á Húsavák gaf. Úr
slit urðu þau, að Laugaskóli
sigraði með 83V2 stigi, ea G.A.
hlaut 59 ‘/2 stig.
aldrei meira en þrjú stig allan
fyrri hálifeik. Áttu bæði liðin
þá góðan leik, einkum þó KR-
ingar, sem sýndu mjög yfirveg-
aðan og vel útfærðan leik, og
gekk þeim vel að setja upp leik
aðferðir sínar. í hléi hafði KR
yfir 27:26. Sama spennan helzt í
í síðari hálfleik og gífurleg bar-
átta á báða bóga. Þorsteinn fær
sína fjórðu villu og er þá ekki
laust við að fari um ÍR unnendur,
því búast má við að liðið brotni
niður ef það missir Þorstein. Að
því kom svo þegar fjórar mínút-
ur eru til leiksloka að Þorsteinn
fær sína 5. villu og verður þá að
yfirgefa völlinn, staðan er 49:43
fyrir KR. Eftir þetta áfall fór leik
ur ÍR liðsins gersamlega í mola
og var ekki heil brú í aðgerðum
liðsins það sem eftir var leiksins.
Sendingar fóru til ónýtis, skotið
var í vonlausum færum og sam-
spil eins og óþekkt fyrirbrigði.
KR-ingarnir aftur á móti voru
aldrei ákveðnari en nú að glata
ekki þessu gullna tækifærí til
þess að láta langþráðan draum
rætast. Þeir léku mjög rólega og
yfirvegað og létu ekki ákafann
hlaupa með sig í -gönur. Höfðu
þeir algjöra yfirburði á þessum
síðustu mínútum og tryggðu sér
sigur, þrettán stiga sigur yfir ÍR.
Síðustu mtnúturnar skoruðu KR-
ingar 14 stig gegn 7 og skoraði
Einar Bollason 10 þeirra, flest úr
vítaskotum.
Liðin: ÍR-liðið sýndi ekki þann
leik, sem venjulega og gerir það
sjálfsagt sitt að þeir eru alls ó-
vanir að leika svona jafna leiki
og vera undir mestan hluta leiks
ins. Þeir sem bezt komast frá
leiknum eru Birgir, Hólmsteinn
og Þorsteinn, sem einnig var
stigahæstur í liðinu með 17 stig.
KR-ingar áttu skínandi leik og
sýndu að þeir vaxa við hverja
raun, t.d. voru bakverðirnir
þeir Gunnar og Kolbeinn miklu
öruggari nú en í fyrri leik lið-
anna, og létu þeir ÍR-ingana
aldrei ná að hleypa upp hraðan-
um, en hann er sterkasta vopn
ÍR-inga. Þáð er ekki fjarri lagi
að líkja saman baráttu þessara
'tveggja liða og Fram og FH i
handknattleik. Þar sem mætast
tvö lið og annað notar yfirvegað
og vandlega uppbyggt kerfisspil
en hitt beitir hraðanum meira.
Beztu menn KR-inga voru þeir
Eiriar með 24 stig, Gunnar, Kol-
beinn og Kristinn, einnig kom
Hjörtur á óvart þær mínútur,
sem hann var inná og skoraði
þýðngarmikil stig í fyrri hálf-
leik. Dómarar voru Guðjón Mag
nússon og Ólafur Thorlacius og
tókst þeim vel að dæma þennan
geysierfiða leik.
KFR—ÍS I. deild 62:36
KFR tók leikinn í sínar hend
ur þegar í upphafi, og hafði náð
26 stiga forskoti í hálfleik, 41:15.
Framhald á bls. 31
Knattspyrniin
heist 28. opríl
ÞAÐ HEFUR nú orðið að ráði að
Reykjavíkurmótinu í khatt-
spyrnu hefjist ekki fyrr en mið-
vikudaginn 28. apríl. Þá eiga að
leika KR og Þróttur.
Drengjahlaup
*
Armanns
DRENGJAHLAUP Ármanns fer
fram á sunnudaginn og hefst kl.
2 e.h. Hlaupið hefst í Hljómskála
garðinum og liggur síðan hlaupa
leiðin um mýrina sunnan skála
garðsins og aftur inn í hann og
endar við Hljómskálabygging-
una.
Það eru tilmæli til þátttak-
enda og starfsmanna að mæta kL
1,30 á Melavellinum, svo og til
keppenda að leiðin verður gengin
kl. 5 á laugardaginn.