Morgunblaðið - 24.04.1965, Side 31
MORCUNBLAÐID
31
Laugardagur 24. apríl 1965
Stapafel! braazt
til jyc&sreyrar
Umhleypingar Ný laegð var að myndast aust
Alldjúp laegð við Reykja- ur a£ Nýfundnalandi og mun
nes á hreyfingu ANA-eftir. hún nálgast suðurströnd ís-
Vindur var yfirleitt austan- lands á morgun. Um hádegi í
stæður hér á landi og NA gær var hlýjast á Akureyri 9
storhiíð á Vestfjarðarmiðum. st. en 5-7 st. hiti sunnanlands.
3. IV I9Í.5- kl.ll
■/
* Tónlistarskólinn í Reykja-
L vík heldur nemendatónleika í
Háskóiabíói í dag kl. 3. Nem-
endakór og Hljómsveit Tón-
listarskólans flytja verk eftir
Corelli, J.S. Bach, Mozart,
!Paul Hindemith og Benjamin
Britten. Stjómendur verða
Björn Ólafsson og þrir nem-
endur úr Söngkennaradeild,
Jón Stefánsson, Þorgerður
Ingólfsdóttir og Þórir Bald-
ursson. Einsöngvarar með
kórnum verða Ásgeir Guðj-
ónsson og Guðfinna EVóra
Ólafsdóttir. Auk þess leikur
Jón H. Sigurbjörnsson einleik
á flautu.
Aðgangur að tónleikunum
er ókeypis og öllum heimill
aðgangur á meðan húsrúm
leyfir.
Á myndinni stjórnar Jón
Stefánsson nemendahljóm-
sveit og kór.
— íbróttir
Framhald af bls. 30
Síðari hálfleikur var mun jafnari
og endaði leikurinn með sama
mun eða 62 gegn 36, og var þar
með gert út um dvöl stúdenta í 2.
deild riæsta ár. Beztir hjá KFR
voru Sigurður, Ólafur og Þórir,
og hjá Stúdentum þeir Logi og
Guðjón.
Þetta varð öllum á óvart geysi-
spennandi leikur. KR-ingar
mættu greinilega með það eitt
fyrir augum að hirða tvö auðfeng
in stig, en hinir gamalreyndu
leikmenn stúdenta reyndust harð
ir í horn að taka og á síðustu
mínútu skorar Páll Eiríksson úr
tveimúr vítaskotum, þannig að
stúdentar hafa yfir 39:37, KR-
ingar ná boltanum og æða upp
að körfu stúdenta í örvæntingar
fullri tilraun til að jafna metin,
og fjórum sinnum skoppar bolt-
inn i körfuhringnum, þar sem
hálfur sentimetri skilur á milli
stigs og afbrennslu, en gæfan
var stúdentum hliðholl, bjallan
glymur án þess að KR-ingar
skori. Þrjú félög Ármann, Stúd
entar og KR eru þjá jöfn í I.
flokki og verða að leika til úr-
slita um efstu sætin. Að öllum
líkindum fer síðasti þeirra leikja
fram 30. þ.m. sama kvöld og ÍR
og KR bítast um íslandsbikarinn.
HANDTÖKUR
I BÚLGARÍU
Sofía, Búlgaríu, 23. apríl (AP)
ORÐRÓMUR hefur verið á sveimi
um að gera hafi átt stjórnarbylt-
ingu í Búlgaríu fyrr í þessum
mánuði, en ekkert hefur heyrzt
Bruni
í Kópavogi
í GÆRDAG kom upp eldur i
húsi númer 52 við Nýbýlaveg í
Kópavogi, þar sem Þórður Ás-
mundsson býr ásamt fjölskyldu
sinni. Þegar Slökkviliðið í Reykja
vik kom á vettvang um kl. 4, var
talsverður eldur í risherbergi á
austurgafli hússins. Var hann
nokkuð erfiður viðureignar, þar
sem húsið er úr timbri og klætt
trétexi, en þó tókst að hefta út-
breiðslu hans og slökkva á u.þ.b.
einni klukkustund.
Talsvert miklar skemmdir urðu
í risinu af völdum eldsins og á
neðri hæðinni af völdum vatns.
Auk þess sem trétexið er eld-
fimt, drekkur það í sig mikið vatn.
Hins vegar tókst að verja innbúið
á neðri hæðinni að mestu með
því að breiða yfir það segl, áður
en tekið var að sprauta vatni á
eldinn.
Sett var fjögurra manna vakt í
húsinu, eftir að slökkvistarfi
lauk. Um klukkustund síðar varð
vart neista í þekjunni cig átti því
áð halda vaktinni áfram a.m.k.
til miðnættis.
Eldsupptök munu sennilega
vera í rafmangstöflu, sem í ris-
herberginu er.
FJARSKIPTAHNÖTTUR
Moskvu, 23. aprít (AP)
TILKYNNT var í Moskvu í
dag að sovézkir vísindamenn
hefðu skotið á loft fjarskipta
hnetti, „Molniya 1“, sem á að
annast sjónvarpssendingar frá
Moskvu til Vladivostok. Fjar-
laegðin milli borganna er um
6.500 km.
r.pinberlega um málið fyrr en í
gær. Þá tilkynntu yfirvöldin að
nokkrir háttsettir flokksleiðtog-
ar og herforingjar hafi verið
handteknir fyrir „lögbrot“.
í tilkynningu stjórnarinnar er
hinsvegar borið á móti því að
menn þessir hafi ætlað sér að
steyjKi stjórn Todor Zhivkovs
forsætisráðherra og flokksleið-
tetga kommúnista.
Búlgarska fréttastofan BTA
birti tilkynningu stjórnarinnar
og segir fréttir um fyrirhugaða
byltingu „furðulegan tilbúning
og rætinn áróður“, því sökúdólg-
arnir hafi aðeins verið handtekn-
ir fyrir að „brjóta lög landsins".
Ekki eru nöfn hina handteknu
birt, en hinsvegar segir frétta-
stofan eftir „áreiðanlegum heim-
ildum“ að meðal þeirra séu
Tsvetko Anev, hershöfðingi, og
Tsolo Krustev, starfsmaður utan-
ríkisráðuneytisins og fyrrum
sendiherra í Norður-Kóreu. Þá
segir fréttastofan að Ivan Todor-
ov-Gorunya, sem átti sæti í mið-
stjórn flokksins, hafi tekið svo
nærri sér þegar upp komst um
starfsemi hans að hann framdi
sjálfsmorð.
Allir þessir menn höfðu komið
við sögu í fréttum um fyrirhug-
aða byltingu í Búlgaríu. En lausa-
fréttir þessar sögðu að bæði að-
ilar úr frjálslyndari armi flokks-
ins og stuðningsmenn stefnu Kín-
verja stæðu að bylingarfyrirætl-
uninni. BTA fréttastofan tók
fram að allar þessar lausafréttir
væru langt frá sannleikanum, og
að engin bylting hafi verið fyrir-
huguð í Búlgaríu. Enginn hefði
fallið, og enginn flúið land. „Rík-
isstjórnin nýtur stuðnings alþjóð-
ar. Landamærum Búlgaríu hefur
ekki verið lokað, og það er ekki
ætlunin að loka þeim“, sagði
BTA.
Akureyri, 23. apríl.
EKKERT flutningaskip hefur ,
komið til Akureyrar síðan Stapa-
fell kom hinjiað 23. marz, fyrr en
það kom hingað aftur í morg-
un. Fréttan-aður Morgunblaðsins
hitti skipstjórann, Bernharð Páls-
son, og bað hann segja undan og
ofant af ferðalaginu.
— Við fórum frá Reykjavík
um hádegi á þriðjudag, .sagði
Bernharð, og komum til Húsa-
víkur á miðnætti í nótt. Þar los-
uðum við gasolíu og benzín og
komum svo til Krossaness í morg
un með svartolíu og hingað í dag
og losuðum bensínfarm. Við
mættum fyrstu ísjökunum norð-
ur af Papey, en þaðan var greið-
fært í björtu norður með Aust-
fjörðum, nema að smáspöng var
út af Kambanesi. Þó var einn og
einn smájaki sunnan við Seley.
Þegar við vorum norðaustur af
Gerpi skellti yfir svarta þoku,
og þegar ég sá einn jakann koma
aftur með skipshliðinni, stöðvaði
ég skipið og lét reka, þar til þok-
unni létti nokkuð. Þá var haldið
áfram með hægustu ferð norður
fyrir Norðfjarðarhorn, en þar
birti og sást talsvert ísrek.
— Á Norðurfjarðarflóa skall
þokan yfir aftur og hélzt norður
fyrir Dalatanga. Þar beið varð-
skipið Þór eftir okkur til þess
að fylgja okkur norður fyrir
Langanes. Okkur kom saman um
að halda áfram um nóttina til
að vera komnir sem næst aðal-
ísnum, þegar birti. Við gátum
siglt fulla ferð um tíma, en urð-
um þó varir við jaka og jaka.
Kl. 11 vorum við komnir norður
undir Gletting, en þá kallaði ég
á varðskipið og sagðist ekki
hætta á að sigla áfram, af því
að ég væri með bensín um borð.
Biðum við þar til kl. 4 um morg-
uninn. Þaðan reyndist siglinga-
leið greið og við sáum lítið til íss
fyrr en komið var norður fyrir
Digranes, þá fór ísrekið að þétt-
ast,-
— Norður á Eyoisvík komu-m
við að isheliunni, sem var*sam-
felld eins langt og sást til norð-
urs og austurs. Þór fór á und’atx
og ruddi brautina, en við sigldum.
í kjölfarið. Þegar við vorum
skammt sunrian við Eont, virtist
hellan v.era gersamlega samfe.Ild
og þá beygðí Þór þvert upp að
Langanesi og brauz.t þar í gegn
0,4 sjómílur frá laridi Og norður
fyrir nesið. Þarna á Eyðisvikinni
hefði e'kkert af verzlunarskipun-
um faiið hjálparlaust í gegn.
— Frá Fonti var siglt fyr-
ir Svínalækjartanga breytriega
stefnu þangað til komið var all-
langt norður af Grenjanesi. Þar
tróðust við i gegnum ísinn aftur
og komumst út úr honum norðan
til á Kollavík. Alltaf voru haðþök
að sjá til norðurs alla þessa leið.
Frá Kollavík var hægt að sigla
á auðum sjó í einnar mílu breiðri
rennu með landinu norður á móts
við Raufarhöfn. Þar þéttist Lsinn
aftur. svo að sigla varð m;jög
hæga ferð gegnum spöngina. Svo
var greiðfært vestur undir Rauðu
núpa. Þar skildi Þór við okkur,
en við héldum áfram til Húsa-
víkur. Allmikið ísrék var á Axac
firðþ en þaðan dreifðir jakar inn
undir Lundey.
— í morgun fórum við gegnum
íshrafl við Flatey og síðasta
spöngin var norðaustur af Gjögr-
um. Nokkrir jakar voru á Eyja-
firði inn undir Hrísey.
— Við förum svo héðan í
kvöld sömu leið, en spáin er ekki
góð, svo að ég veit ekki hvernig
það gengur. Þór mun vera kom-
inn austur fyrir aftur, að mér er
sagt, til að hjálpa Bakkafossi og
einhverju útlendu skipi norSur
fyrir Langanes og svo' okkur aust
ur fyrir, ef með þarf.
Sv.P.
Æíingonámskeið
iyrii veiðimenn
NÝTT kastæfinganámskeið
Stangaveiðifélagags Reykjavíkur
hefst í KR húsinu í dag, kl. 1 (til
2.40). Áskriftarlistar hjá kast-
nefndarmönnum SVFR og verzl
ununum Sport og Vesturröst.
Þegar veður leyfir er æft úti á
grasvöllum KR. og geta þá allir
sem óska verið með, þótt þeir
séu ekki skráðir í þetta námskeið.
Síðustu æfingar í núverandi
námskeiði SVFR eru n.k. fimmtu
dagskvöld. Kastæfingar SVFR
vi’ð Rauðavatn verða í Maímán-
uði ,011 þriðjudags og fimmtu-
dagskvöld.
Is
FYRIR skömmu kom
Reykjavíkurhöfn sovézkur
' verksmiðjutogari, Z. ANE
I ARETIS. Blaðamönnum var í
gær boðið að skoða skipið, en
í dag verður nokkrum út-
gerðarmönnum boðið í ferð
út fyrir landhelgi, þar sem
| þeim verður kynnt starfsemi*
I sú, sem fram fer á skipinu
Z. ANEARETIS er fimm(
ára gamalt skip, 3170 tn. að (
stærð. Hver veiðiferð tekurj
I að meðaltali 135—140 daga.
| Aðspurður sagði skipstjórinn '
að engin vandræði væru að |
fá menn til starfa á skipinu, |
þar sem mikil aðsókn væri á (
fiskyeiðiflotann.
Skipið er byggt hjá Sudoim
port, en það fyrirtæki flytur
auk þess út alls konar tækii
1 fyrir skip. Borgarey h.f. hef-
7 ur umboð fyrir vörur þessa
I fyrirtækis hér.