Morgunblaðið - 18.07.1965, Síða 16
10
MORGUNBLADIÐ
Sunnudagur 18. júlí 1965
Útgefandi: Hf. Árvakur, Reykjavík.
Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson.
Ritstjórar: Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Matthías Johannessen.
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Ritstjórnarfulltrúi: Þorbjörn Guðmundsson.
Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson.
Ritstjórn: Aðalstræti 6.
Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480.
Áskriftargjald kr. 90.00 á mánuði innanlands.
í lausasölu kr. 5.00 eintakið.
HAGUR Bu
¥ Tm það munu allir sann-
^ gjarnir menn sammála, að
í tíð núverandi ríkisstjórnar
og undir forustu Ingólfs Jóns-
sonar, landbúnaðarráðherra,
hefur ötullega verið unnið að
ræktun í landinu og búskap-
arhættir á íslandi færðir í nú-
tímahorf. Árangur þessa
starfs er nú greinilega að
koma í ljós.
í Árbók landbúnaðarins
i965, ritar Arnór Sigurjóns-
son grein, um landbúnaðinn
1964, og í lok hennar ræðir
hann um fjárhagsafkomu
bænda á sl. ári og segir svo:
„Ekki er unnt að gera full-
nægjandi grein fyrir reikn-
ingslegri afkomu bænda á sl.
ári, fyrr en búnaðarskýrslur
berast Hagstofu íslands. En
yfirleitt láta bændur betur af
hag sínum, en við reiknings-
lok næstliðinna ára. Þrátt fyr-
ir litla slátrun á sl. hausti,
telja þeir bændur er sauðfjár-
rækt stunda, hag sinn hafa
heldur en hitt vænkazt á ár-
inu. Svo virðist þó, að bættur
hagur þeirra hafi einkum kom
ið fram í því, að þeir hafi auk
ið bústofn sinn á haustnótt-
um og kostað meiru til um-
þóta á jörðum sínum, en
næstu ár á undan. Vegna væn
leika sauðfjárins á sl. hausti
og hagstæðara verðs á afurð-
unum, jókst mörgum sauðf jár
bændum hugur og yfirleitt
virðist bændastéttin bjart-
sýnni um sinn hag, en verið
hefur um hríð“.
Þessi orð Arnórs Sigurjóns-
sonar eru hin athyglisverð-
ustu, og sýna svo ekki verður
um villzt, að áróðursskrif
Framsóknarmanna, um léleg-
an hag bændastéttarinnar,
hafa við engin rök að styðj-
ast. Enda er það svo, að Fram-
sóknarmenn gera sér nú grein
fyrir þeirrf staðreynd, að hag-
ur bænda hefur eflzt mjög
undir forustu núverandi land
búnaðarráðherra, og að þeim
þýðir ekki að halda öðru
fram. Bændurnir sjálfir vita
að þetta er rétt og þeir sinna
því ekki áróðursskrifum, sem
reyna að koma því inn hjá
mönnum, að þessu sé öðruyísi
farið en í raun er.
Það er vissulega mikið á-
nægjuefni, að þessi vitnis-
burður kemur fram í Árbók
landbúnaðarins. Landbúnað-
urinn er okkur Íslendingum
mikilvægur og þótt mjög hafi
fækkað þeim, sem hann
stunda, hefur landbúnaðar-
framleiðslan samt sem áður
aukizt mikið. Hér er um að
ræða þróun, sem orðið hefur
í öllum hinum þróuðu lönd-
um. Með aukinni tækni og
vaxandi ræktun geta færri
menn fráíhleitt til muna
meira, en fleiri gátu áður.
Okkur íslendingum er nauð
synlegt að fylgjast vel með
tæknivæðingu landbúnaðar-
ins, og skynsamlegt er að
kanna allar nýjungar, sem
fram koma á þessu sviði er-
lendis, með það fyrir augum
að nýta það, sem hæfir okkar
aðstæðum.
Vafalaust mundi það einnig
verða til bóta, ef bændur
ættu kost á því í ríkari mæli
en nú er, að ferðast um land-
búnaðarhéruð erlendis, hjá
þeim þjóðum, sem náð hafa
mestri fullkomnun í þeim
efnum, og kynnast vinnu-
brögðum og atvinnuháttum í
landbúnaðinum þar. í land-
búnaðinum, eins og öðrum at-
vinnugreinum, er nauðsyn-
legt að fylgjast vel með öllum
framförum og nýjungum. —
Með því er hægt að auka
framleiðnina, bæta hag bænd-
anna og framleiða ódýrari
vöru.
VILJA
EYÐILEGGJA
ÁRANGUR
SAMNINGANNA
IV ommúnistar halda enn á-
fram árásum sínum vegna
hækkana þeirra, sem nýlega
voru sámþykktar í borgar-
stjórn, á gjaldskrám SVR og
Hitaveitunnar. Á það hefur
margsinnis verið bent hér í
blaðinu og skal enn gert, að
þessar hækkanir eiga rót sína
að rekja eingöngu til hækk-
ana á reksturskostnaði, sem
voru komnar til fyrir ný-
gerða kjarasamninga, vegna
launahækkana og hækkunar
á söluskatti, sem orðið hafa
síðan í desember 1963, þegar
núverandi gjaldskrár tóku
gildi. Þessar gjaldskrárhækk-
anir standa því í engu sam-
bandi við þá kjarasamninga,
sem nýlega hafa verið gerðir.
Um þetta er enginn ágreining
ur í borgarstjórn. Jafnvel,
borgarfulltrúi kommúnista,
Guðmundur Vigfússon, varð
að viðurkenna, að full nauð-
syn væri á hækkun gjaldskráa
Strætisvagnanna og Hitaveit-
unnar, en hann var hinsvegar
þeirrar skoðunar, að fresta
bæri hækkuninni í nokkra
mánuði. — Borgarfulltrúar
Framsóknarflokksins voru
einnig sammála borgarstjórn-
armeirihlutanum úm nauð-
syn þess að hækka gjaldskrár
þessara borgarfyrirtækja og
greiddu atkvæði með því í
borgarráði og borgarstjórn.
Guðmundur Vigfússon hélt
því fram, á börgarstjórnar-
fundi sl. fimmtudag, að jafn-
lauk siðustu för sinni á flugvelli nærri Folkestone um síðustu helgi. Með flugvélinni voru 48
manns, en engan sakaði. Flugvélin, tveggja hreyfla, stakkst á nefið, skömmu eftir lendingu.
Báðir vængir brotnuðu af, og vélin gerónýttist. Þykir með eindæmum, að ekki skyldi stórslys
af hljótast.
íbúar heims árið 2000
í NÝRRI skýrslu um vænt-
anlega fólksf jölgun í heim-
inum fram til ársins 2000
hafa sérfræðingar Samein-
uðu þjóðanna auk hins
venjulega líkindareiknings
beinlínis reiknað með „á-
framhaldi á ríkjandi til-
hneigingu", þ.e.a.s. að síð-
ustu tölur um fæðingar í
heiminum muni verða svip
aðar í framtíðinni. — Þá
mundi íbúatf jöldi heimsins
um næstu aldamót verða
orðinn 7,4 milljarðar eða
tvisar og hálfu sinni meiri
en hann var árið 1960. —
Fólksfjöldinn í vanþróuð-
um löndum hefði þrefald-
azt og væri kominn upp í
Year 2000“, var samia af
manntalsnefnd Sameinuðu
þjóðanna. Þróunina fram til
srsins 2000 má áætla með
þremur mismunandi reikn-
ingsaðferðum. Allar eru þær
innan takmarka sennileikans.
Sú aðferð, sem gerir ráð fyr-
ir hægastri þróun, gefur
þannig útkomuna 5,2 millj-
arða um næstu aldamót, en
sú sem reiknar með örasrri
þróun gefur útkomuna 6.8
milljarða manna í heiminum
árið 2000. Milli þeirra liggur
svo talan, sem álitin er senni
legust, 5,9 milljarðar. Ein-
stök atriði má sjá á töflunni
hér að neðan.
í skýrslunni segir, að veru
legar breytingar muni verða
á skiptingu jarðarbúa milli
hinna ýmsu svæða. Vanþró-
uð lönd munu fá hærri hlut-
fallstölu en þau hafa nú, eða
með öðrum orðum hlutfalls-
tala þeirra mun vaxa úr 67
upp í 76 af hundraði allra
jarðarbúa á árunum 1960—
2000. Mest verður þéttbýlið
í Austur- og Suður-Asíu. Þar
sem í Asíu eru víðáttumikil
svæði, sem ekki er hægt að
nýta til neinnar hlítar, og
þar sem tæknin er á tiltölu-
lega frumstæðu stigi í Asíu,
mun hin mikla fólksfjölgun
skapa geigvæsleg vandamál
þar.
Svæði
Væntanleg fólksfjölgun á árunum 1960—2000
(Sennilegasta þróun)
íbúafjöldi i milljónum
Árleg auknlng
5,8 milljarða. 1960 1980 2000 1960/1980 1980/21
Margir búast hins vegar Allur heimurinn 2.990 4.269 5.965 1,80 1,68
við, að draga muni úr frjó- Þróuð lönd 976 1.195 1.441 1,02 0,93
seminni á þeim svæðum sem skemmst eru á veg komin. Vanþróuð lönd Helztu svæði 2.014 3.074 4.524 2,16 1,95
Sú tala sem sérfræðingar SÞ Austur-Asía 793 1.038 1.284 1,35 1,07
telja sennilegasta um næstu Suður-Asía 858 1.366 2.023 2,36 1.99
aldamót er 5,9 milljarðar, og Evrópa 425 479 527 0,61 0,47
mundi þá íbúátala vanþró- Sovétríkin 214 278 353 1,31 1,21
aðra landa verða 4,5 milljarð Afríka 273 449 768 2,52 2,72
ar. Norður-Ameríka 199 262 354 1,40 1,4«
Hin nýja skýrsla, „World Rómanska Ameríka i 212 374 624 2,86 2,60
Population Prospects up to Ástralía 15,7 22,6 31,9 1,80 1,74
vel þótt full rök lægju til þess
ara hækkana og þær stæðu í
engu sambandi við nýgerða
kjarasamninga, væri þó hætta
á, að þær yrðu mistúlk-
aðar gagnvart almenningi
og taldar stafa af nýgerð-
um kjarasamhingum. Það er
nú komið greinilega i, ljós
hvaðan sú hætta stafau. Sú
hætta stafar fyrst og fremst
frá' Guðfhúndi' Vigfússyní
sjálfum, og málgagni hans,
Þjóðviljanum.
Kommúnistaklíkan, undir
forustu Einars Olgeirssonar,
beitti málgagni sínu mjög ein-
dregið gegn þeirri samnings-
gerð, sem nýlega er lokið við
verkalýðsfélögin hér í Reykja
vík, og nú er alveg ljóst, að
þeir hyggjast gera allt sem
þeir geta til þess að eyðileggja
árangurinn af samningúnum.
Með því að mistúlka þær
hækkanir, sem gerðar hafa
verið á s gjaldskrám hinna
tveggja fyrrnefndu borgar-
fyrirtækja, eru kommúnistar
og málgagn þeirra að ýta und-
ir aðra aðila með verðhækk-
anir. Hér er um að ræða ó-
svífna tilraun til þess að eyði-
leggja þann árangur, sem
verkalýðsfélögin hafa náð í
þessum samningum með nýrri
stefnu og nýjum baráttuað-
ferðum. Það er nauðsynlegt,
að verkafólk og launþegar í
landinu geri sér fulla gréin
fyrir tilgangi kommúnista
með þessum skrifum. Þeir
vílja eyðileggja árangur samn
inganna. í þessum ' skrifum
kemuf greinílega fram hugur
kommúnista til hagsmuna
verkafólks, og er þess að
vænta, að almenningur allur
láti þessi ábyrgðarlausu skrif
engin áhrif hafa á sig.
EINSTÆTT
VÍSINDAAFREK
/^eimfar Bandaríkjamanna,
^ „Mariner 4“, hefur nú
sent til jarðar fyrstu mýndir
af MarS. Er hér um að ræða
mikið og einstætt yísindaaf-
rek, sem verða mun mikil
lyftistöng bandarískri geim-
ferðarstarfsemi, og er þeira
vísindamönnum, bandarísk-
um, sem að því hafa unnið,
mikill sæmdarauki. Geim-
rannsóknum fleygir nú óð-
fluga fram og hafa tekið ó-
trúlegum framförum frá því
fyrsta gervihnettinum var
skotið á loft af sovézkum vís-
fndamönnum 1957. Menn sjá
nú fyrir þann möguleika, að
innan nokkurra ára muni
fyrsta geimfarið frá jörðunni
lenda á tunglinu.
Fyrir aðeins einum áratug
hefðu fáir trúað því að jarðar
búar lentu á tunglinu innan
20 ára, en nú bendir allt til
þess að svo muni verða.
Geimferð „Mariners 4“ og
Ijósmyndasendingar hans til
jarðar sýna svo ekki verður
um villzt, að bandarískir vís-
indamenn hafa nú náð góðum
tökum á geimferðatækni, og
verður vissulega gaman að
fylgjast með þróun þessara
mála á næstu árum.