Morgunblaðið - 29.07.1965, Side 27
#fmmtur1agíir 29. 'iúlí 1965
M * *> C U N B L A«’1Ð
27
E.B.E.
Löndin 5 standa
nú fast saman -
en Frakkar sýna enn engan
samningsvilja
Brússel, 28. júlí — AP
AMINTORE Fanfani, utan-
ríkisráðherra Ítalíu, sem jafn-
framt er for'.naður ráðherra-
nefndar Efnahagsbandalags
Evrópu, lýsti því yfir á fundi
með fréttamönnum í Brússel
í dag, að það hefði verið rangt
af frönsku stjórninni að hætta
þátttöku í umræðum um
vandamál þau, sem nú steðja
að bandalaginu. „Það voru
enn fyrir hendi ýmsir mögu-
leikar til samkomulags“, sagði
Fanfani.
Walter Hallstein, formaður
framkvæmdanefndar banda-
lagsins, tók í sama streng.
Hallstein mótmælti harðlega
árásum þeim á framkvæmda-
nefndina, sem fram komu í út-
varpsviðtali við Georges Pompi-
dou, forsætisráðherra Frakk-
lands, í fyrrakvöld
„Við höfum hagað starfi okkar
í samræmi við Rómarsáttmál-
ann“, sagði Hallstein, „og aldrei
farið út fyrir það starfssvið, sem
hann setur“.
Hallstein varði aðgerðir nefnd-
arinnar, þær, sem leiddu til, að
upp úr samkomulagsumleitunum
slitnaði 1. júlí sl., svo og miðlun-
artillögu þá, sem nýlega var rædd
í ráðherranefndinni, án þátttöku
Frakka.
Hallstein sagði enn fremur, að
tillagan um eflingu Evrópuráðs-
ins í Strassborg hefði verið til
umræðu um árabil. Benti hann á,
að hollenzka þingið hefði sýnt
mikinn áhuga á þessu máli. Hins
vegar vísaði Hallstein á bug full-
yrðingunum um, að framkvæmda
nefndin hefði brugðizt hlutverki
CÍnu.
f lok ræðu sinnar sagði Hall-
*tein, að menn yrðu að varast að
gera deilurnar innan bandalags-
ins að deilum um einstaka menn.
Jafnframt taldi hann, að næsta
tollalækkun innan bandalagsins,
lOVo lækkun, myndi fara fram
samkvæmt áætlun, 1. janúar 1966.
Fanfani, utanríkisráðherra,
kvað fulla einingu hafa náðst
— Wilson
Framh. af bls. 1
að stefna stjórnarinnar hafi vak-
ið mikla óró. Þó það sé að vísu
þýðingarmikið, að hægt sé að
viðhalda tiltrú erlendra viðskipta
manna Breta á sterlingspundið,
iþá verði slíkt tillit ekki keypt
með atvinnuleysi innanlands.
Talsmenn sambandsins sóttu
heim fjármálaráðherra stjórnar-
innar, James Callaghan, í dag,
og færðu honum orðsendinguna.
í fyrstu fréttatilkynningunni,
sem Heath hefur sent frá sér,
eftir að hann tók við formennsku
íhaldsflokksins, segir hann, að
flokkurinn hafi í hyggju að auka
velferð landsmanna, og auka
áhrif Breta á gang heimsmál-
anna.
Fréttastofur í Bretlandi hafa
mikið rætt atburði síðustu daga
í stjórnmálum landsmanna. Gæt-
ir þar víða ummæla á þá leið,
að einnig sú, sem þessa dagana
virðist ríkja innan íhaldsflokks-
ins, sé í algerri andstöðu við á-
standið í Verkamannaflokknum,
þar sem hver höndin virðist uppi
á móti annarri. Tetja flestir
stjórnmálafréttaritarar, að stjórn
arandstæðingar munj nú herða
sókn sína, og megi búast Við
meiri háttar átökuna á þitigi á
næstunni.
milli landanna — nema Frakka,
sem ekki tóku þátt — er ráðherra
fundur var haldinn fyrr í þessari
viku. Fundurinn hefði verið lög-
legur, þótt Frakkar hefðu ekki
tekið þátt í honum.
Sagði Fanfani, að allir hefðu
verið sammála um það á þessum
fundi, að nauðsynlegt væri, að
eðlileg samskipti landanna héldu
áfram, þrátt fyrir deilur þær,
sem nú standa. Samkomulag
hefði náðst um, að nýskipan land
búnaðarmála skyldi gilda frá og
með 1. júlí sl., þótt samningagerð
hefði ekki verið lokið á þeim
tíma.
Fanfani lýsti því loks yfir, að
hann vonaðist til, að Frakkar
myndu senda fulltrúa til fundar-
halda þeirra, sem hefjast 7. októ-
ber nk.
SAMKVÆMT bráðabirgðatölum
Hagstofu íslands var vöruskipta
jöfnuðurinn í júní óhagstæður
um 843 millj. króna. Flutt var
út fyrir 492 millj. en inn fyrir
975 millj. þar af skip og flug-
vélar fyrir 468 millj. Á sama
tíma í fyrra var vöruskiptajöfn-
viðurinn óhagstæður um 593
millj. Útflutningur nam þá 442
millj., en innflutningur 1.035
millj. kr. þar af skip og flugvél
ar fyrir 581 milli.
Á fyrra helmingi þessa árs
hefur vöruskiptajöfnuðurinn ver
ið óhagstæður um 371 millj., en
70 árcr
Þorsteinn
Guðmundsson
frá Reynivöllum
Höfn, Hornafirði 28. júlí.
70 ára er á morgun Þorsteinn
Guðmundsson, fyrrverandi hrepp
stjóri frá Reynivöllum í Suður-
sveit. Þorsteinn er fæddur að
Skálafelli, sonur hjónanna Sig-
ríðar Aradóttur frá Borg og Guð-
mundar Sigurðssonar. Þorsteinn
ólst upp hjá Þorsteini Arasyni
oddvita á Reynivöllum. Þorsteinn
bjó á Reynivöllum frá 1925 til
1963 að hann fluttist á Höfn.
Hann var hreppstjóri Borgar-
hafnarhrepps í 20 ár og hefur
unnið mikið að félagsmálum er
formaður Skógræktarfélags A-
Skaftfellinga. Kona Þorsteins er
Arelí Þorsteinsdóttir frá Reyni-
völlum. Eiga þar tvó syni á lífi.
— Gunnar.
— Útsvarsálagning
Framhald af bls. 28
ert tekjuútsvar á gjaldendur
eldri en 70 ára.
Hæstu útsvarsgreiðendur eru:
Einstaklingar:
Magnús Bergmann kr. 129.800.00
Sævar Brynjólfsson — 121.000.00
Halldór Brynjólfsson - 104.000.00
Fyrirtæki:
Keflavík h.f. — 235.400.00
Ægir h.f. _ 134.500.00
Eldey h.f. _ 113.900.00
Hæstu aðstöðugjaldsgreiðend-
ur eru:
Kaupfélag Suðurnesja 592.000.00
Hraðfrystihús Keflavíkur
•<s----------------------
Drengur slasast
AKRANESI 28. júlí. — Það var
í fyrrinótt, að fjórtán eða
fimmtán ára. drengur var að
vinna í mjölhúsinu og var að
sauma fyrir mjölpokana. Stakkst
þá nálin ofan til í þumalfingur
á hægri hendi og risti fram úr
nálægt beini og hefur hann nú
fingurinn reifaðan vegna þessa.
Drengurinn heitir Hjörtur Júlíus
son til heimilis að Merkurteigi8.
— Oddur.
var á sama tíma í fyrra óhag-
stæður um 586 millj.
Harður árekstur
i Hafnarfirði
HARÐUR árekstur varð í gær
kl. 15.15 á mótum Strandgötu og
Sniðgötu í Hafnarfirði. Rákust
þar saman bifreiðarnar A-2082
og P-768. Ætlaði A-2082 að aka
fram úr hinni á gatnamótunum,
en bifreiðarnar skullu saman og
hvolfdi A-2082. Meiðsli munu
hafa orðið á fólki, sem í bifreið-
unum var, en Hafnarfjarðarlög-
reglunni var ekki kunnugt um,
hversu alvarlegs eðlis þau voru.
Samið á
Keflavíkur-
flugvelli
SAMNINGAR tókust í gær án
milligöngu sáttasemjara milli
fjögurra verkalýðsfélaga í um-
hverfi Keflavíkurflugvallar og
íslenzkra aðalverktaka. Er það
á grundvelli samninga milli
verkalýðsfélaganna og Vinnuveit
endafélags Suðurnesja.
Jarlinn lestar
sement
AKRANESI 28. júlí. _ M.s. Jarl-
inn liggur hér við verksmiðju-
bryggjuna og lestar 600 tonn af
sementi,sem hann flytur til Húsa
víkur Kópaskers Raufarhafnar,
Þórshafnar, Borgarfjarðar og
Seyðisfjarðar. Skipstjóri á Jarl-
inum er Magnús Bjarnason,
1. stýrimaður Harry Steinsson og
2. stýrimaður Ásgeir Þórarins-
son. — Oddur.
Hvolfdi austan
Krísu'x/Jkui*
í GÆR kl. 14.10 var Hafnar-
fjarðarlögreglunni tilkynnt, að
bifreiðin G-3026 hefði farið út af
veginum og hvolft austan Krísu-
víkur. Kona, sem var í bifreið-
inni, mun hafá meiðzt, en ekki
alvarleg meiðsli
Um helgina 10.—11. júlí slÁ
var mikill asi á fólki, sem ^
sótti heim Atlavík í Hallormst
staðaskógi. Þessi mynd sýnir/
þó, að kapp er bezt með forsjá.T
(Ljósm.: Hákon Aðalsteinss.) J
Brotizt inn í
sumnrbústnð
FYRIR nokkru síðan var brotizt
inn í sumarbústað skammt frá
Reykjalundi í Mosfellssveit og
stolið þaðan nýlegu segulbands-
tæki (Tandberg) í tilheyrandi
tösku, transistor útvarpstæki (lít
ið Telefunken), nýrri myndavél
(Voigtlánder) í leðurtösku, kíki,
koparstaupum, loftriffli o. fl.
Innbrot þetta mun hafa verið
framið að nóttu um helgina 17.
eða 18. júlí sl. í fjarveru eig-
enda. Bendir margt til að þarna
hafa verið unglingar að verki.
Þeir, sem kynnu að hafa orðið
varir við einhverja af framan-
greindum munum, ættu að gera
lögreglunni í Hafnarfirði við-
vart.
Lestar 600
tonn hvalkjöts
AKRANES 28. júlí. — Dragnótar
bátarnir, þilfarstrillan Andey og
trillan Björg fiskuðu hvor um
sig í gær 1 þús. kg. Það er aðal-
lega rauðspretta og ýsa og svo-
lítið af smálúðu.
M. s. Dettifoss varvhér í nótt
og lestaði 250 tonn af hvalkjöti.
Fór hann í morgun, en kemur
aftur og tekur meira. Alls á
Dettifoss að lesta hér í þessari
lotu rúm 600 tonn hvalkjöts.
Hluta dvalastyrki
Menntamálaráðs
RITHÖFUNDASAMBAND ís-
lands hefur úthlutað dvalar-
styrkjum frá Menntamálaráði ís-
lands til rithöfunda,
Styrki hlutu að þessu sinni
rithöfundarnir Friðjón Stefáns-
son og Ingimar Erlendur Sig-
urðsson, kr. 10.000,00 hvor.
— Grikkland
Framhald af bls. 1
ar umræður fara þá fram um
stjórnmálaástandið í landinu.
I morgun, miðvikudag, var boð
að til allsherjarverkfalls í
stærsta bænum á Krít, Herakli-
on, og er öll umferð og viðskipti
í bænum nú lömuð. Það er á
Krít, sem forsætisráðherrann
fyrrverandi, Papandreou, nýtur
mests fylgis.
Verkamannasambönd, sem vin
veitt eru stjórn Novas, efndu í
dag til gagnráðstafana gegn and-
stæðingum stjórnarinnar í Salon
iki. Hefur verið boðað til fundar
í borginni, en hann verður að
fara fram innan dyra, því að úti
fundir hafa verið bannaðir.
Stjórnarandstæðingar þar hafa
þó látið að því liggja, að þeir
xnuni virða bannið að vettugL
Loflur Torfason
hóndi látinn
Akranesi, 28. júlí: —
MÁNUDAGINN 26. júlí lézt hér
í sjúkrahúsinu Loftur Torfason,
bóndi í Vík, Hafnarhólmi á Sels-
strönd. Strandasýslu, eftir. sam
felld eins árs veikindi. Var hann
fyrst skorinn upp í Roykjavík og
síðan á nýári hefur hann dval-
izt í sjúkrahúsinu hér. Eftirlif-
andi kona hans er Hildur Gests-
dóttir. Hjónin eignuðust 13 börn,
níu þeirra eru á lífi átta synir
og ein dóttir. Ingimunduf býr á
Hafnarhólmi, Guðbrandur í
Hveravík, tveir sýnirnir eru bú-
settir hér í bæ, tveir í Reykjavík,
einn á Stað í Steingrímsfirði og
einn er heima í Vík. Dóttirin
Lineik Sóley er í Bæ á Sels-
strönd. — Oddur.
- 50,000
Framhald af bls. 1
anna, U. Thant, bréf sitt, þar
sem þess væri beiðzt, að S.Þ.
gerðu allt, sem í þeirra valdi
stæði, til að finna friðsamlega
lausn á vandamálunum í Viet-
nam.
• „Við viljum hvorki ógna
neinum né ofbjóða með styrk
okkar“, sagði Johnson, „en við
munum ekki láta undan. Fyrsta
takmark okkar í Vietnam er að
sýna kommúnistum, að með
vopnavaldi verður ekki á okkur
unnið þar.“
Þá gerði forsetinn grein fjrrir
því, að auknar aðgerðir Banda-
ríkjanna í Vietnam myndu kosta
aukið fé. Myndi varnarmálaráð
herrann, Mc Namara, leggja
nauðsynlegar tillögur fyrir þing-
ið í þeim efnum.
Ekki nefndi Johnson neina
beina upphæð í þessu sambandi,
en fréttastofur greina frá þvi, að
nokkru áður en forsetinn kom
til blaðamannafundarins, hafi
formaður fjárveitinganefndar
þingsins lýst því yfir á þingi, að
forsetinn myndi fara fram á
einn milljarð dala til að standa
straum af auknum hernaðarút-
gjöldum.
Ræða forsetans var alllöng, og
þar sagði hann m.a.: „t þremur
styrjöldum, sem Bandaríkin hafa
tekið þátt í á minni ævi, höfurn
við lægt, að undanlátssemi veitir
ekki öryggi, og ekki grið. Við
eigutn í styrjöld, sem N-Vietnam
stendur fyrir, með stuðningi
Kína. Tilgangur þessara aðila er
að leggja undir sig S-Vietnam,
buga Bandarikin í viðleitni sinni
þar, og gera kommúnismann að
ríkjandi stefnu í gervallri Asíu.“
Forsetinn lauk ræðu sinni með
því að segja: „Svo lengi, sem
til eru menn, sem stjórnast af
hatri og eyðileggingarhvöt, þá
verða Bandarikin að hafa bol-
magn til að veita mótspyrnu.
Annars verðum við öll að fórna
frelsj okkar. Við verðum að
tryggja, að slíkt geti ekki gerzt.
Því stöndum við föstum fótum í
Vietnam".
Að lokinni yfirlýsingu sinni
svaraði Johnson, forseti, spurn-
ingum fréttamanna. Forsetinn
var m.a. spurður að því, hvort
hann héldi, að styrjöldin í S-
Vietnam gæti staðið í 5—7 ár.
Hann svaraði: „Ég held, að
bandaríska þjóðin geri sér grein
fyrir því, að lausn á þessu máli
verður ekki fundin í einni svip-
an“. Hins vegar vildi hann ekki
nefna neinar ákveðnar tölur, eða
árafjölda. Þó sagði hann, að sva
lengi, sem hann gegndi embætti
forseta, yrði veitt öll nauðsynleg
mótspyrna gegn árásum.
Þá var forsetinn að þvi spurð-
ur, hvort hann héldi, að hægt
væri að binda styrjöldina við
þann hluta heims, eða þær þjóð-
ir, sem nú berðust, eða hvort
hann teldi, að Sovétríkin myndu
fyrr eða síðar gerast þátttak-
andi.
„Ég vona, að til þess komi
aldrei. Við munum gera allt, sem
í okkar valdi stendur til að koma
í veg fyrir slík stórátök“, sagði
Johnson.
Vöruskiptajöfnuðurinn
303.000.00
Vélbátatrygging Reykjaness
var vitað hve
250.000.00 i hennar voru.