Morgunblaðið - 01.08.1965, Síða 1
32 siðtir
!0ícjpwMaM!Í»
$2. árgangur.
172. tbl. — Sunnudagur 1. ágúst 1965
Prentsmiðja Morgunblaðsini.
iiailormsstaðaskógur er án efa einn af yndislegustu stöðum þessa lands, og eflaust hafa margir leitað þangað nú um verzlunar-
mannahelgina. í baksýn er I.agar fljót og Snæfell, eitt hið tigulegasta fjall á Austfjörðum.
Lægra verð á islenzku
síldarlýsi en dönsku
- Danir kaupa það og selja með
ágóða til Bretlands
SKV. upplýsingum, sem Mbl.
hefur aflað sér er markaðs-
verð í Bretlandi á íslenzku
síldarlýsi til seljenda bér á
landi, tH muna lægra, en
á sambærilegri vöru danskri.
Jafnframt hafa orðið miklar
breytingar á þeim mörkuð-
um, sem við höfum selt síld-
arlýsi til. í samtali við Mbl.
í gær sagði Sigurður Jónsson,
frkvstj. Síldarverksmiðja rík-
isins, að ástæðan til verð-
munarins væri sú, að 10%
lollur værí lagður á íslenzkt
síldariýsi í Bretlandi en það
danska væri tollfrjálst. Margt
benti til þess að Danir keyptu
íslenzkt síldarlýsi og seldu
það með ágóða til Bretlands-
Eins og kunnugt er eiga Dan-
ir ©g Bretar aðild að Frí-
verzlunarbandalagi Evrópu
(EFTA) og af þeim sökum
nýtur danskt síldarlýsi toll-
fríðinda í Bretlandi.
íslenzka síldarlýsið er nú selt
á £ 77 og 10 sh. tonnið en á
sama tima er danskt síldarlýsi
selt á £ 84 tonnið.
Til skamms tíma voru Bretar
Stjórn Harmels hlýtur
traust þingsins
Hollendingar og Norðmenn aðal
kaupendur á íslenzku síldarlýsi.
Þannig keyptu Bretar 13.500
tonn af síldarlýsi árið 1963, en
1964 keyptu þeir aðeins 1500
tonn.
Danir keyptu ekkert magn af
síldarlýsi hér á landi 1963, en
1964 bregður skyndilega svo við,
að þeir kaupa 8.750 tonn, en Dan
ir flytja mikið síldarlýsi út til
Bretlands.
Mbl. sneri sér í gær til Sigurð-
ar Jónssonar, framkvæmdastjóra
Síldarverksmiðja ríkisins og
spurði hann, hvernig stæði á þess
um verðmun á islenzku og
dönsku síldarlýsi á Bretlands-
! markaði, og hverjar orsakir
| lægju til þeirra breytinga á mörk
uðum fyrir síldarlýsi, sem orðið
hafa síðasta árið.
Brússel, 31. jú.lí — NTB.
NEÐRI deild belgiska þingsins
samþykkti i nótt traust á hina
nýju rikisstjórn Pierre Harmel,
úr kristilega sósíalistaflokknum.
Samþykkti þingið traust á stjórn
ina með 131 aktvæði gegn 65
eftir 13 tima umræður. Efri deild
þingsins á nú eftir að samþykkja
traust á sjtórnina, ©g þar verður
stefna stjórnarinnar, þar á meðal
tillögur hennar til að binda enda
á hið alvarlega tungumálastrið
í landinu, tekin til umræðu í
næstu viku.
Harmel-stjórnm var gagnrýnd
mjög harðlega af stjórnarand-
stöðunni í umræðunum á þingi
í gær og nótt, og hélt foringi
Frjálslyndra, Réne Lefvre, því
fram að stjórnin myndi ekki geta
leyst efnahagsmálavanda Belgíu,
heldur myndi hún aðeins halda
áfram á sömu braut og fyrri
stjórn Theo Lefevre. Harmel-
stjórnin er likt og stjórn Lefevre
samsteypustjórn kristilega sósíal
istaflokksins og sósíalistaflokks-
ins, og eru það sósíalistar, sem
gegna heistu lykilstöðum varð-
andi efnahagsmálin.
Sigurður Jónsson sagði, að
ástæðan til verðmunarins væri
sú, að greiða yrði 10% toll af
islenzku síldarlýsi, sem selt væri
til Bretlands, en danskt síldar-
lýsi væri tollfrjálst, þar sem Dan
ir ásamt Bretum eru aðilar að
EFTA, Fríverzlunarbandalagi Ev
rópu.
Sigurður Jónsson sagði einnig,
að hin miklu kaup Dana á ís-
lenzku síldarlýsi bentu til þess,
að þeir blönduðu íslenzku síldar
lýsi saman við það danska og
seldu það síðan með ágóða til
Bretlands, en þeir kaupa síldar-
lýsið af okkur á £ 77 og 10 sh.
og selja það til Bretlands fyrir
£ 84 tonnið. — Til þess að
danska sildarlýsið njóti tollfríð-
inda í Bretlandi þarf það ein-
ungis að vera 51% dönsk fram-
leiðsla.
London, 31. júlí — NTB
EINN vinstrisinnaðasti með-
limur þingflokks brezka
Verkamannaflokksins Willi-
am Warbey, krafðist þess í
gærkvöldi að Harold Wilson,
forsætisráðherra, segði af sér
forinennsku í Verkamanna-
flokknum, og hótaði Warbey
því jafnframt að hann myndi
ekki kjósa með stjórninni á
þingi eftir helgina, en þá á
þingið að taka afstöðu til van
trauststillögu frá íhalds-
flokknum-
í yfirlýsingu sinni, sem afhent
var brezku blöðunum, sagði
Warbey að Wilson hefði svikið
þrjú mikilvægustu kosningálof-
orð sín, þ.e. varðandi nýjar til-
raunir til að koma á friði, ódýru
húsnæði og tryggum ellilaunum.
Segir Warbey að þetta séu ástæð
urnar til þess að hann krefjist
þess að Wilson segi af sér sem
flokksforingi. Segist Warbey
vera þess fullviss, að margir
framámenn í þingflokki Verka-
mannaflokksins séu sér sammála
í þessum efnum.
Þessi hótun William Warbley
eru fyrstu merki þess að í upp-
siglingu sé opinber uppreisn í
Verkamannaflokknum, sem nú
hefur setið við völd í Bretlandi
í níu mánuði. Hefur flokkurinn
aðeins 3 atkvæða meirihluta í
Neðri málstofunni, og getur
þannig minnsti klofningur í þing
flokki Verkamannaflokksins
haft hinar alvarlegustu afleiðing
ar fyrir ríkisstjórn Wilsons.
Ræddu ekki við
Kínverja
Peking, 31. júlí — NTB.
SENDINEFND frá Ghana, sem
verið hefur í N-Vietnam, hélt í
dag áleiðis til London eftir að
hafa átt næturdvöl í Peking.
Talsmaður frá Ghana hefur sagt
að nefndin hafi enga viðræður
átt við kínverska ráðamenn á
meðan dvöld hennar stóð í
Peking.
Gríska stjórnin neitar
að segja af sér
Papandreou gengux d fund Konstantíns
Aþenu, 31. júlí. — (NTB)
GRISKA stjórnin, undir for-
I ystu Novas forsætisráðherra,
i neitaði seint í gærkvöldi að
beygja sig fyrir kröfuni for-
seta þingsins um að segja af
sér, og ríkir nú óvissa mikil
í hiifuðborg landsins um
stjórnmálaástandið. Er þing-
ið átti í gær að hefja umræð-
I ur um stefnu stjórnar Novas,
kom á daginn að færri en
% hluti þingmanna var við-
staddur og þingið því óstarf-
hæft samkvæmt stjórnar-
skránni.
í kröfu sinni lagði þingforseti,
Emmanuel Kaklatzis, áherzlu á
að Novas-stjórnin hefði nú haft
tvær vikur til að koma til þings
og gera grein fyrir stefnu sinni,
og úr því að hún gæti ekki enn
aílað sér svo mikils fylgis á
þingi, að það væri starfhæft, yrði
að telja stjórnina failna. í yfir-
iýsingu stjórnarinnar í gær-
kvöldi sagði, að Baklatzis hafi
tekið sér stjórnmálavöld í hend-
ur með yfirlýsingunni um að
stjórnin væri fallin.
Óvist er hver næsti leikur verð
ur í stjórnmálakreppunni í Grikk
landi, en talið er að Novas, for-
sætisráðherra muni ganga á
fund Konstantíns konungs við
fyrsta tækifæri. Konstantín kom
] til Aþenu frá Korfu í gær. Einnig
er talið að Baklatzis muni æskja
þess að ganga á fund konungs.
I Þingfundurinn í gær stóð í
aðeins örfáar mínútur, og á
meðan hann stóð, hrópuðu þús-
undir manna, aðallega stúdentar
Framhald á bls. 2
Krefst
þess að
Wilson
fari frá