Morgunblaðið - 01.08.1965, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 01.08.1965, Blaðsíða 19
r Sunnudagur t. ligðst 1965 MORGUNBLAÐID 19 Styrjöldin í Vietnam í myndum Her bíður gamall skeggjaður maður með allar eigur sínar á bak- inu, eftir að verða fluttur um borð í þyrilvængju ásamt þorps- búum og fluttur til nýrra heimkynna. Hann var meðal 2.600 þorpsbúa frá Khe Tre, er fluttir voru til nýs þorps vegna árása skæruliða Viet Cong. Þorpið Khe Tre er nyrzt í Suður-Vietnam. Vietnam móðir hlúir að tveimur börnum sinum meðan byssu kúlurnar þjóta skammt undan. Þau höfðu lent fyrir tilviljun í miðri víglínu bandarískra hermanna og Viet Cong skæru- liða, en það kemur ósjaldan fyrir Hér er verið að binda tvo menn, er grunaðir voru um að vera i •lagtogi með Viet Cong skæruliðum. Þeir voru handteknir ná- lægt Tam Loc. Riffillinn, sem bandariski hermaðurinn heldur á var meðal hluta, er fundust í fórum þéirra. Uoi á flótta uadaa skæruliðum Viet Cong. Þau eru þung sporin, sem íbúar Dong Xoai þurfa að taka hér. Skæruliðar Viet Cong höfðu gert árás á þorp þeirra og gjöreyðilagt flest heimilin. Meira en helmingur 3000 íbúa, er þorpið byggðu, létu lífið eða særðust að meira eða minna leyti í árásinni. Tvær grátandi Vietnam konur fylgjast með, er líkum eiginmanna þeirra er lyft upp úr skot- gröfum, þar sem þeir létu lífið, er þeir voru að verja þorp sítt gegn skæruliðum Viet Cong. — Hermaðurinn lengst til vinstri er úr stjórnarhernum. Hér sjást nokkrir bandarískir sjóliðar stíga á land við Da Nang-flóa í Suður-Vietnam. Þeir voru hluti 3.500 manna liðs, er sent var til þess að verja Da Nang-flugvöllinn fyrir árásum Viet Cong skæruiiða. Flugvöiiurinn er um 12 kílómetra frá ströndinni, þar sem „ormennarnir gengu á land.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.