Morgunblaðið - 01.08.1965, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 01.08.1965, Blaðsíða 22
MORGUNBLAÐIÐ Sunnudagur 1. águst 1965 Dúkkur í þjóðbúningum Lönguhlíð milli Miklubrautar og Barmahlíðar. Öllum vinum og vandamönnum, sem sýndu mér hlý- hug, á ýmsan hátt á sjötugsafmæli mínu 29. júlí s.L, þakka ég af alhug. — Lifið heil. , Páll P. Christiansen, Patreksfirði. Hjartkær móðir okkar, ÞURÍÐUR MAGNtíSDÓTTIR Sólvallagötu 43, lézt að Landsspítalanum 30. júlL Börn hinnar látnu. Utför eiginkonu minnar ÁGÚSTU SVEINBJÖRNSDÓTTUR Brekkustíg 19, er lézt 28. júlí fer fram frá Fríkirkjunni miðvikudaginn 4. ágúst kl. IV2 e.h. — Blóm vinsamlega afbeðin. Einar Hróbjartsson. MaðuTÍnn minn og faðir okkar KRISTINN INGVARSSON organleikari, verður jarðsunginn miðvikudaginn 4. ágúst frá Laugar- neskirkju, athöfnin hefst kl. 1,30. Guðrún Sigurðardóttir og dætur. Eiginmaður minn, -aðir, tengdafaðir og afi KARL MAGNÚSSON járnsmíðameistari, verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju miðvikudaginn 4. ágúst kl. 2 síðdegis. Eiginkona, börn, tengdabörn og barnabörn. Systir okkar GUÐRÚN GÍSLADÓTTIR Smyrlahrauni 9, Hafnarfirði, verður jarðsungin frá Hafnarfjarðarkirkju þriðjudag- inn 3. ágúst kl. 2. Guðmunda Gísladóttir, Úrsula Gísladóttir, Ingibjörg Gísladóttir. Innilegt þakklæti fyrir auðsýnda hluttékningu við andlát og útför konu minnar, móður, tengdamóður og ömmu SIGRÍÐAR INGIMUNDARDÓTTUR Hörpugötu 41. Guðjón Eyjólfsson, Emil Rúnar Guðjónsson, Inga Guðmundsdóttir, Birgír Berndsen, og barnabörn. Hjartanlega þökkum við öllum er auðsýndu okkur vinsemd og samúð við andlát og útför móður okkar, tengdamóður og ömmu GUÐRÚNAR GUÐBRANDSDÓTTUR frá Holtsmúla. Guð blessi ykkur öll. Börn, tengdasonur og barnaböm. ——iw—■—1 1—n n 1 ■■■ 11 ■ 11 111 ———1 1 n Alúðar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hluttekningu við andlát og jarðarför GUÐMUNDAR HELGASONAR trésmiðs. Sérstakar þakkir viljum vér færa stjórn og starfsfólki Kirkjugarða Reykjavíkur. Guðrún S. Benediktsdóttir, böm, tengdaböru og barnabörn. Vaktin, sem við röbbuðum við, taldir frá vinstri: Sigurgeir Benediktsson varavarðstjóri; Sveinn Ólafsson varðstjóri; Helgi Schev ing, Þorkell Guðmundssoni, Ólafur Kjartansson; Ottó Jónasson, Einar Gústafsson, Bjarni Mathiesen, Sigfús Svavarsson og Birgir Guðjónsson. (Ljósm.: Sv. Þ.). - Slökkviliðið Framhald á bls. 12 þessi ógurlegi gnýr dynur við eyru og reykjarbólstrar liðast til lofts. Þá var ekki um að villast, að þetta var ísaga. — Já, og þegar við komum á staðinn, segir Bjami Mathie- sen, mætti ég þar lögreglu- þjóni, sem sagði við mig, að við skyldum koma okkur í burtu, hér væri allt að fara af stað og svo hljóp hann eins og fætur toguðu, líklega til að sinna skyldustörfum. — Hefur aldrei komið upp misskilningur, þegar þið takið á móti uppiýsingum um elds- voða t.d. um síma? — Jú, svo sannarlega. Einu sinni var hringt til okkar og okkur sagt að eldur væri að Vesturgötu 2. Við fórum á staðinn, en fundum engan eld. Stuttu seinna kom maður inn á slökkvistöðina í Hafnarfirði og spurði hissa, hvers vegna þeir kæmu ekki, það væri að brenna að Vesturgötu 2. Sá, sem kallaði á slökkviliðið hafði sem sagt hringt á slökkviliðið í Reykjavík í misgáningi. Vest- urgata 2 er næsta hús við slökkvistöðina í Hafnarfirðí. — Svo hefur fólk hringt og sagt, að kviknað hafi í hjá hon- um Einari, hvort við vildum ekki koma þangað o.S.frv. Það hefur svo sem ýmislegt spaugi- legt komið fyrir, þó að starf- ið sem slíkt sé að sjálfsögðu allt annað en spaug. — Viljið þið ekki setjast hér við borðið og taka einn slag, svo að við getum teki ðaf ykk- ur mynd, þegar þið eruð að spila? —Nei, við höfum einu sinni lofað ljósmyndara að taka mynd af okkur við spilaborðið, en það gerum við ekki aftur, segja þeir og kima hver til ann ars. — Eruð þið ekki ástríðufull- ir bridsspilarar? spyrjum við. — O, nei ekki svo, segir Sveinn. — Hvað gerið þið ykkur til dundurs annað en að spila? — Hlustum á útvarp, horfum á sjónvarp, sumir lesa o.s.frv. Og nú kemur inn úr dyrun- 0,83. Hann segir okkur einnig, að til þess að annast eftirlit á um Egill Hjörvar, er vinnur hjá eldvarnareftirlitinu. Egill segir okkur, að íslend- ingar séu hæstir í fjölda bruna á einstakling af öllum Norð- urlöndum. f Bandaríkjunum séu 2,7 brunaverðir á hverja þúsund íbúa, en hér aðeins olíukyndingum I heimahúsum, samkomuhúsum og hinum ýmsu athafnasvæðum borgar- innar þurfi a.m.k. 10 menn og eftir því sem þjóðfélagið stækki muni nauðsynlegt að skipuleggja allt eldvarnarkerfi borgarinnar, enda muni það gert í sambandi við íyrirhug- við Tjamargötu. aða breytingu. — Hefur þú aldrei lent í ein» hverju minnisstæðu atvikL sem brunavörður, Egill? — Jú, reyndar, en það var áður en ég kom til slökkviliðs- ins. Ég átti heima í Fjalakett- inum þegar Hótel ísland brann. og varð einna fyrstur til þess að verða brunans var. Menn voru hræddir um, að eldurinn næði næstu húsum, svo að menn tóku að bjarga eigum sínum úr húsunum. Ég man, að bróðir minn bar stóran bóka poka út í Suðurgötu um nótt- ina. Daginn eftir æ.tlaði hann með hann til baka heim, en þá loftaði hann ekki pokanum, svo þungur var hann. Svona getur hræðslan gert menn sterka. Og nú kveðjum við þá fé- laga, þar sem þeir sitja og eru fyrir alvöru farnir að tala um gamla tíma. Við vonum, að þeir megi bera gæfu til að bjarga sem flestum frá því að verða eldi að bráð, eða frá þvi að standa uppi slyppir ög snauðir. Megi gæfan fylgja þeim í góu starfi. Allur er varinn góður. Það fór betur en á horfðist í fyrstu. Flug vélin lenti án stórvægilegra ske mmda. Gamla slökkvistöðin Vaktin sem kvödd var út á flugvöll, taldir frá vinstri: Bjarni Mathiesen, Ragnar Sólonsson, Val- ur Þorgeirsson, Óskar Sigurðsson, Sigurjón Kristjánsson, Björn He rmanoisson, Kristinn 6. Kristins- son, Sigurbjörn Ævarr Jónsson, Sigurþór Þórðarson, varavarðstj óri og Loftur Erlendsson varðstj.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.