Morgunblaðið - 01.08.1965, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 01.08.1965, Blaðsíða 15
SunnuðagUT 1. águst 1965 MORCU NBLAÐIÐ 15 Hver er tilgangur útgáf u" The lce- Eandic Canadian"? Valdemar J. Líndal, dómari, svarar þeirri spurningu í SUMARHEFTI tímaritstns „The Icelandic Canadian“ sem Kcfið er út í Winnipeg, birtist evar ritstjóra þess, Valdemars J. Líndal, dómara, við spurningrunni um hver tilgani.gurinn sé með út- gáfu tímarita, er fyrst og fremst eigi erindi tii eins þjóðernishóps í Kanada. — í bréfi, sem Líndal dómari sendi Morgunblaðinu kveðst hann hafa orðið þess var á íslandi, að sumir íslendingar skildu ekki tilgang „The Iceland ic Canadian“, og væru jafnivel hræddir um að ritið flýtti fyrir því að V.-Íslendingar hyrfu í hringiðuna í Kanada. Hér á eftir birtist því svar Iándals dómara, þýtt úr sumar- hefti „The Icelandic Canadian“. Á fundi konunglegu nefndar- innar. sem fjallar um vandamál er risa af sambúð manna af tveimur þjóðernum í sama landi og gagnkvæm menningaráhrif því samfara, er haldinn var frá 17.—19. maí s.l., var lögð fyrir mip eftirfarandi spurning: „Uver er tilgangurinn með því, að í lCanada komi út rit eins og „The Icelandic Canadian" gefið út á ensku?“ Eftir því sem ég bezt man, var evar mitt á þessa leið: í>að er réttast að gefa fyrst svar við spurningunni almennt. Afkomendur þeirra landnema í Kanada, sem hvorki töluðu ensku né frönsku, hafa tvíþættum 'Iduim að gegna: 1) Gagnvart forfeðrum sínum ber þeim skylda til að varðveita jnenninguna, sem þeir fluttu með sér til Kanada og skipa henni eess meðal menningarverðmæta hins nýja lands. Tungan er mikil vægasta tækið til varðveizlu menningar og því ber afkomend- uf landnemanna skylda til að ®fla sér þekkingar á tungu feðra einna. 2) -En þetta fólk hefur einnig ckyldum að gegna við Kanada, 6kylðum sem ná lengra en til lög hlýðni og lífsbjargarviðleitni. Því ber skylda til að gegna borgara- legri þjónustu á öllum sviðum þjóðlífsins vel og drengilega. Árangur þessarar viðleitni má fyrst og fremst sjá í Kanada, en hans gætir einnig í landi forfeðr- anna. Kemur hann einkum fram í því, að skapa gleggri mynd af þjóðernishópunum og auka gagn- kvæman skilning þeirra. Öll þjóðernisleg tímarit og blöð stefna að því að veita þjón- ustu á þeim tveimur sviðum sem skyldur afkomenda landnemanna spanna. Sum eru eingöngu gefin út á tungu forfeðranna, önnur að hluta og þá á ensku eða frönsku jafnframt, og enn önn- Ur á ensku eða frönsku eingöngu. „The Icelandic Canadian“ fell- ur undir síðasta flokkinn og kem ur .út á ensku, en segja má að það sé bæði kanadískt og íslenzkt tímarit. Leitazt er við að það nái til fólks af íslenzkum uppruna, ekki aðeins vegna sameiginlegrar ÓLAFUR STEPHENSEN LÖGGILTUR SKJALAÞÝÐANDI ENSK BRÉFAVIÐSKIFTI HAFHARSTRÆTI 22 SÍMI 21285 Önnumst allar myndatökur, n • hvar og hvenaer sem óskað er. 4i LJÓSMYNDASTOFA ÞÓRIS LAUGAVEG 20 8 . SÍMI 15-60*2 „The Icelandic Canadian“ mið- ar að því að efla allar. tilraunir afkomenda íslenzku landnem- anna til að varðveita menningu forfeðra sinna hér í Kanada, og íyrst og fremst að viðhalda tung- unni okkar íslenzkunni. Blaðið greinir frá afrekum manna og kvenna af íslenzkum uppruna, fyrst og fremst á ritvellinum. Einnig reynir það að stuðla að því að V.-íslendingarnir glati ekki tengslunum hver við annan, þótt þeir dreifist víða um landið og giftist flestir fólki af öðrum þjóðennum. íslendingar eiga í ýmsum erfið leikum með að halda tungu sinni hreinni og lausri við erlend áhrif, og menningarleiðtogar frá íslandi sem heimsótt hafa Kanada og Bandaríkin og rætt við V-íslend inga, er heimsótt hafa íslamd, hafa ekki hikað við að láta í ljós THE ICELANDIC CANADIAN að dáum sína á þvi starfi, seim V- íslendingar í Kanada hafa unnið til varðveizlu menningar for- feðra sinna. Þeir hafa viðurkennt hreinskilnislega, að sá staðfesti ásetningur okkar að varðveita íslenzka menningu og tungu, hafi orðið þeim hvatning í baráttunni við erlent sjónvarp og önnur er- lend áhrif, sem aukizt hafa vegna þes sað ísland er nú í þjóðbraut milli heimsálfa. Á þessu sviði má líkja afkom- enduf íslenzku frumbyggjanna við útvarðarstöð. Sem borgarar þessa lands verðum við að hafa hugfast, að við erum lifandi dæmi um hinn’litla hóp íslend- inga í þessum heimi, en þeir eru aðeins um 200 þús. talsins. Og „The Icelandic Canadian" verður að minna lesendur sína á mikil- vægi þess að þeir haldi merkinu á lofti með virðingu. V.-lslendingar í Kanada eru sér fyllilega meðvitandi um skyld ur sínar gagnvart sínu nýja iandi og reyna að uppfylla þær með heiðarleik og göfugmennsku. „The Icelandic Canadian“ gerir sitt til að skýra lesendum sínum frá því, sem er að gerast í Kanada, ræða afrek þau er unn- in hafa verið í fortíðinni, og síð ast en ekki sízt breyfa þeiim mörgu vandamálum, sem nú steðja að Kanada. Því gegnir „The Icelandic Canadian“ hinu mikilvæga hlut- verki sínu með því að aðstoða afkomendur íslenzku landnem- anna við að inna af hendi hinar tvíþættu skyldur, sem á þeim hvíla. Forsíða sumarheftis „The Ice- landic Canadian“ Myndin er af landsstjórahjónunum í Kanada, hr. og frú Vanier. arfleifðar, heldur einnig til að gera það færara um að gegna hin um tvíþættu skyldum með sam- eiginlegu átaki. VERZLUNIN SIMI 12589 SKOLAVSTS NYKOMIÐ Danskar Barnakápur, terylene, rauðar — bláar, 2—4 ára. Hollenzkir nælongallar. Sængurgjafir í miklu úrvali. Skírnarkjólar — síðir — stuttir. — PÓSTSENDUM. — ^bankett ELDHÚSVIFTA BAHCO SILENT heimilisvifta RAUNVERULEG LOFTRÆSTINGI Ágæt eldhúsvifta - hentar auk þess alls staðar þar sem krafizt er GÓÐRAR HUÖÐRAR LOFTRÆSTINGAR FALLEG OG STILHREIN- FER ALLS STAÐAR VELI BAHCO ER BEZTI Audvefd uppsefning: Iódréft, iárétf, í horn, í rúdu II FONIXf SUÐURGÖTU 10 RAUNVERULFG LOFTR.TiSTING! Með Baheo fáið þér raunverulega loftræstingu, því auk þess að soga að sér og blása út matar- lykt og gufu, sér Bahco um eðlilega og heilnæma endurnýjun an drúmsloftsins i íbúðinni. ENGIN F.NDURNÝJUN Á SÍUM! Athugið sérstaklega, að Bahco þarfnast engrar endurnýjunar á lykt- og gufueyðandi síum, sem dofna með tímanum. I’ahcx. hefur engar slíkar, en heldur alltaf fullum afköstum — kostnaðarlaust. FITUSÍUR ÚR RYÐFRÍU STÁLI! Baheo Bankett hefur hinsvegar fitusíur úr ryðfríu stáli. sem varna bví, að fita setjist innan í út- hlástursstokkinn. Fitusíurnar eru einfaldlega þvegnar úr heitu sápuvatni stöku sinnum. INNBYGGT LJÓS, ROFAR OG LOKUNARBÚNAÐUR! Bahco Bankett hefur innbyggt Ijós. Bahco Silent hefur lokunarbúnað úr ryðfríu stáli. Báðar hafa vifturnar innbyggða rofa. GÓÐ LOFTRÆSTING ER NAUÐSYN — fækkar hreingerningum, ver veggi, loft, innréttingu og heimilistæki gegn fitu og ohrein- indum — og skapar létta lund, vinnugleði og vellíðan! BAHCO ER BEZT! Kynnið yður uppsetningarmöguleika tímanle ga. Við höfum stokka, ristar og annað, sem til þarf.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.