Morgunblaðið - 01.08.1965, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 01.08.1965, Blaðsíða 16
 Útgefandi: Framkvæmdastjóri: Ritstjórar: Ritstjórnarfulltrúi: Auglýsingar: Ritstjórn: Auglýsingar og afgreiðsla: Áskriftargjald kr. 90.00 í lausasölu kr. Hf. Árvakur, Reykjavík. Sigfús Jónsson. Sigurður Bjarnason frá Vigur. Matthías Johannessen. Eyjólfur Konráð Jónsson. Þorbjörn Guðmundsson. Árni Garðar Kristinsson. Aðalstræti 6. Aðalstræti 6. Sími 22480. á mánuði innanlands. 5.00 eintakið. MIKIL FERÐAHELGI ITerzlunarmannahelgin er " vafalaust ein mesta ferða helgi ársins. Geysilegur f jöldi fólks, bæði úr Reykjavík og öðrum kaupstöðum og kaup- túnum, taka sig upp með fjöl- skyldur sínar og reyna að komast sem lengst frá borg og bæjum. Um miklar ferðahelgar er einkum þrenns að gæta. Um- ferðarinnar, umgengni ferða- fólks um landið og óhóflegrar áfengisneyzlu unglinga, sem stöku sinnum hefur vakið mikla athygli um slíkar helg- ar. Umferðin á þjóðvegunum er að sjálfsögðu geysimikil nú um helgina og hafa lögreglu- yfirvöld og Vegaþjónusta FÍB gert margvíslegar ráð- stafanir til að umferðin geti gengið hindrunarlaust og þeir, sem lendi í erfiðleikum oig bilunum með bifreiðar sínar eigi kost á aðstoð. í þess um efnum hefur Vegaþjón- usta FÍB unnið þarft verk á undanförnum árum. Stundum hefur viljað brenna við, að illa væri geng- ið um fagra staði út um land, matarleifar og umbúðir skild- «r eftir á víðavangi, en vafa- laust hefur umgengni manna á náttúrufögrum stöðum batnað mikið síðustu árin. í>að verður ekki nógsamlega brýnt fyrir ferðafólki um helgina, að ganga vel um þá staði, sem það dvelst á og gæta þess, að skilja ekki eftir . pappírsrusl og annað slíkt. | Landið okkar verður ljótt, ef við göngum ekki vel um það. Sjálfsagt hefur stundum verið gert óþarflega mikið úr drykkjuskap unglinga um helgar eins og verzlunar- mannahelgina, en þó er ástæðá til að unga fólkið í- hugi með sjálfu sér, hvort skemmtunin og ánægjan af útiverunni verður ekki miklu meiri, ef áfengið er ekki með í ferðinni. íslenzk náttúra er fögur og fjallaloftið tært. Það er öllum hollt að kynnast þessu hvoru tveggja og njóta þess, en úr áfengisneyzlu unga fólksins um helgar sem þessar, getur það eitt dregið og einungis ef það tekur það upp hjá sjálfu sér. Ferðalög æskufólks, sem annarra, um landið hafa auk- izt mikið á undanförnum ár- ( um og er það vel. Við eigum að leggja áherzlu á, að kynna unga fólkinu okkar fegurð landsins og náttúruundur. Því betur sem upprennandi kynslóðir þekkja landið sitt, þeim mun vænna þykir þeim um það. En áfengisneyzla hæfir ekki útiveru í íslenzkri nátt-, j úru. Þetta ætti unga fólkið okkar að hafa í huga um þessa helgi og jafnan, þegar það leggur land undir fót. Vonandi verður þessi verzl- unarmannahelgi öllum til ánægju og sóma og það verð- ur hún, hafi menn í huga þau atriði, sem hér hafa verið gerð að umtalsefni. VANDASAMT HLUTVERK TVTú hafa rektorsembættin við 1 ’ menntaskólana í Reykja- vík, hinn gamla og hinn nýja, verið veitt, og er vonandi að vel hafi til tekizt. Einar Magnússon, sem skip- aður hefur verið rektor gamla menntaskólans, hefur verið kennari þar í hátt á fimmta áratug. Hann hefur jafnan verið einn af atkvæðamestu kennurum þessarar virðu- legu menntastofnunar. Þann- ig má segja, að fyrir liggi eðlileg rök, þegar hann nú hefur tekið við þessum gamla skóla, sem hann svo lengi hefur starfað við. Þar hafa jafnan setið andans jöfrar, forvígismenn á sviði menn- ingar og skólamála. Er von- andi að hinum nýja rektor takist að halda á lofti merki þeirrar fortíðar. Með það í huga eru honum færðar árn- aðaróskir. Guðmundur ArnTaugsson hefur um langt skeið verið kennari við Menntaskólann í Reykjavík og hefur hann nú verið skipaður skólameistari hins nýja menntaskóla, sem rísa á við Hamrahlíð. Guð- mundur Arnlaugsson hefur getið sér gott orð í starfi sínu sem menntaskólakennari. — Hann fær nú það vandasama hlutverk að móta nýja skóla- stofnun frá upphafi og er þess að vænta að hæfileikar hans og mannkostir njóti síh á þeim vettvangi. En þar eiga ekki að vera nein vettl- ingatök. Nýr menntaskóli í Reykjavík er merk stofnun, sem hlúa þarf að frá upphafi og gera þannig úr garði, að hann verði í senn mótaður af rótgrónum menningararfi og nýjum viðhorfum í skóla- og menningarmálum. í mennta- skóla á að vera hátt til lofts og vítt til veggja. — Von- andi tekst skólameistara hins nýja skóla að skapa slíkt and- rúmsloft þar sem viðhorfin byggjast á því bezta í nútímr- anum, en ekki á misjafnlega flóknum kennisetningum. — Skóli er ekki stöðuvatn, held- ur fljót. MORCU N BLADIÐ Sunnudagur 1. ágúst 1965 Þessar myndir eru frá kapp- takandans, Norms Hall, rakst aksturskeppni í Indianapolis á girðingu umhverfis aksturs- og sýna, er bifreið eins þátt- brautina, tókst á loft og datt í sundur í marga hluta. Hall særðist illa í veltunni. Sænsk menning í pökk um seldist mjög illa Verður nú seld með aíslætti á útsölu Stokkhólmi í júlí — NTB TILRAUN til þess að selja ferðamönnum „ n i ð u r - lagða“ sænska menningu í pökkum, hefur farið út um þúfur og er fyrirtækið nú gjaldþrota að heita. Til- raun þessi var gerð í sænska smábænum Skövde og verður nú „menningin“ seld á útsölu, til að bjarga því, sem bjargað verður. Aðgöngumiðar að listahátíð- inni í Skövde áttu að seljast í pökkum á 175 kr. stykkið, og áttu að gilda fyrir tvéggja daga dvöl þar, en til þessa hafa aðeins 25 slíkir miða- pakkar verið seldir, og þeir munu ekki margir, sem áhuga hafa á því að sjá „Fröken Júlíu” Strindbergs setta á svið á ensku, né heldur kvikmynd- ir Bergmanns, balletsýningar, listaverkasýningar og annað hástemmt listahátíðaefni. Nú verður „kúltúrinn" sett- ur á útsölu, og pakkarnir snar lækkaðir í verði. Tveggja daga pakki kostar nú aðeins 120 kr. sænskar og einsdagspakki 50 kr. Úr því að erlendir ferða menn hafa ekki áhuga á sænskri menningu, á nú að reyna að pranga henni inn á sænskt tjaldbúðafólk og ýmsa aðra. Yerður menningarhátíð- in því með öllu meira sænsku sniði en ráðgert hafði verið, og á m.a. að setja upp „Frök- en Júlíu“ á sænsku eftir 5. ágúst og þar til „menningar- il festivalinu“ lýkur 14. ágúst. í Á blaðamannafundi í Sköv- 1 de héldu forsvarsmenn menn- w ingarhátíðarinnar því fram, il að það hafi verið sölukerfið á í menningarpökkunum erlendis, I sem hefði brugðizt. Auglýs- f ingaefni hefði ekki verið í dréift nógu víða og það hefðf J ekki komið til ýmissa ferðá- i skrifstofa fyrr en fjórum dög- f um áður en menningarhátiðiíl il átti að hefjast. Söfðu forsvars- A mennirnir að menningin og 1 menningarpakkarnir hefðú f heldur ekki sætt nógu góðri U meðferð í Svíþjóð. J Bæjarsjóður Skövde hefur J tf-yggt 100,000 kr. og kaupsýslu 1 menn í bænum 300,000 kr. 1 sænskar af þeim 400.000 kr., fl sem fengnar voru að láni til áð setja menningarhátíðiná upp. Engispretturnar á undanhaldi EyðHeggingar af völdum engisprettufaraldra hafa ver- ið óverulegar á liðnu ári, og á það einkum við um Norður- Afríku. Aðeins frá Indlandi, íran og Pakistan hafa borizt tilkynningar um tjón af völd um þeirra, en það hefur ver- ið tiltölulega lítilvægt. Þess- ar upplýsingar er að finna í nýútkomnu yfirliti frá Mat- væla- og landbúnaðarstofnun S.Þ. (FAO). Hin sérstaka nefnd þessarar stofnunar, sem stýrir baráttunni gegn engi- sprettum, telur nú fullreynt, að orsakirnar til þessa séu fyrst og fremst nýjar baráttu aðferðir, sem beitt hefur verið í stórum stíl bæði á alþjóð- legum vettvangi og innan ein- stakra ríkja. Nefndin bendir á, að nú sé fyrir hendi ein- stæður möguleiki til að halda engisprettuplágunni í skefj- um um ókomna tíð. Af þessum sökum hef ur for- stjóri FAO liagt á það ríka á- herzlu við stjórnarvöild hlutað- eigandi landa, að hafit veiði vakiandi auga með engisprett- unium, og að brugðið verði við skjófct, ef þær sýna tilhneig- ingu til að hópast sam&n. Eins og stendur beitir FAQ sér fyrir baráfctu gegn engi- sprefctuplágunni með tilstyrk Framkvæmdasjóðs Sameinuðu þjóða.nna, og er hér um að ræ'óa sex ára áætlun, sem 37 lönd í Afríku og Asíu eiga aðild að, og leggja þau einnig fé af mörkum til baráfcfcunnair. Áætlunin fcekur m.a. til körtm- unar á þeim klaksfcöðvum sem eng ispretfcur mar nota, rann- sókna á árangursríkum bar- áttuaðferðum, þjálfunar starfs liðs, funda sérfræðimga, bygg- mgarranmsóknaistiöðva og aukm ingar á sórsfcöku viðvörunar- kierfi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.