Morgunblaðið - 01.08.1965, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 01.08.1965, Qupperneq 18
18 MORCUNBLAÐIÐ Sunnuclagur 1. Sgúst 1905 Tízkufréttir frá Gunnari Larsen Regnföt úr vínyl Pelsar úr kanínuskinni Hausttízkan fyrir þær ungu ÞAÐ verður sérstaklega gam- ain að fylgjast með hausttízk- unni í París nú i ár. Nokkrar sýningaor hafa verið haldnar og hafa þær allaar boðið upp á eitthvað skemmtilegt, o.g fjöldi nýjunga komið fram á flestum þeirra, og þá sérstak- lega fyrir yngri kynslóðina. M.a. má geta alls konar regnfatnaður úr vinyl. Regn- kápumar eru yfirleitt í sterk- um litum, gulum, hvítum og svörtum. í>að var Michele Rossier frá V de V sem fyrst- ur kom fram með að nota vin ylefni í regnföt, og er það þeg ar orðið mjög vinsælt. Vinyil- efnið er bæði skemmtilegt og praktískt, og þegar stúlkumar sýna sig í regnkáþunum sín- um, gera þær gráa og ömur- lega regnið að litrikum sjón- leik. >á gerir ekki mikið til þótt hann rigni — maður kemst í gott skap bara af því að sjá stúlkurnar. SíSsumarferð til Brighton í byrjun september efnir Ferðaskrifstofan SAGA til þriðju hópferðarinnar til Brigh- ton á hinni sólríku suðurströnd Englands. Flogið verður beint til London 3. septem- ber og ekið þaðan suður til Brighton, þar sem dvalizt verður á góðu hóteli við strönd ina í eina viku. Á heimleið verður höfð við staða í London í þrjá daga, en til Reykja- víkur verður komið aftur 12. september. Verð ferðarinnar er kr. 9.875,00, en inni- falið í því eru flugferðir til og frá London, bílferðir til og frá Brighton, vikudvöl í BRIGHTON ásamt öllum máltíðum, ferð um suður England og gisting í London með morgunverði. Ferðaskrifstofan gegnt Gamla Bíói — Símar: 17600 og 17560. Svartur og hvítur jakkl og buxur úr vinyl. Allir þessir pelsar eru úr kanípuskinni og kosta allir um 5 þúsund krónur íslenzkar. Svartur jakki frá V de V. Pelsar fyrir þær ungu Hingað til hafa ekki allar konur fengið tækifæri til að sveipa utan um sig sín- um eigin minkapels. Einungis „ríku“ dömiurnar hafa haft efni á því að líta á verð- miðaina sem fylgja pelsun- um. Bn nú er öldin ö-n.nur. Tízkufrömuðurnir í París hafa fundið út, að kainínuskinn er upplaigt í peisa, ag ekki nóg með það, heldur er það svo ódýrt, . að flestar ungar kon- ur ættu að hafa efni á að kaupa sér þá. Öll frönsk tízku húsin eru nú fariin að selja pelsa, sem kosta ekki meira en 4 til 5 þúsund krónur (ís- lenzkar). Pelsamir eru í gul- um, orange, bláum og hvítum lit, og reglulega skemmtilegir í sniðinu. Gulur og svartur jakki og gular buxur og hattur. Haust- tízkan 1965-66. Rauð kápa og húfa úr vinyl. Pelsarnir eru frá V de V, framleiddir af Michele Rossi- er, og eru teiknaðir af Euna- nuelle Kahn. Islenzk börh og æskufólk prófad fyrir sænska sjónvarpið Sænska sjónvarpið tekur upp nokkrar dagskrár á Islandi í ágúst og septem- ber, þar á meðal skemmtidagskrá fyrir börn, sem íslenzkt æskufólk teivur þátt í. Prófun fyrir þennan sjónvarpsþátt fer fram í útvarpssalnum Skúla- götu 4 16. ágúst. Til greina kemur söngur, hljóðfæraleikur, dans og fleira, og miðast þátttaka jafnt við einstakling, kór, hljómsveit eða hvaðeina. Aldurs- takmörk eru frá fimm árum til tvítugs. Veitið því sérstaka athygli, aó vió viljum gjarnan að framlag hvers og eins hafi á sér þjóðiegan blæ. Tilkynnt verði um þátttöku til Ríkisútvarpsins eigi síðar en 6. ágúst, annað hvort bréflega eða simleiðis. Síminn er 22260, og fyrir svörum verður Balclur Pálmason. — Verið veikomin. SVERIGES RADIO/TV.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.