Morgunblaðið - 01.08.1965, Qupperneq 23
¥0*GUNBLAÐID
23
Sunnuðagvr 1. ágúst 196$
•f
Bandarískir kjósendur geta
fyrirgefið skilnað en ekki annað
hjónaband
Þetta kom glöggt fram í
kosningabaráttu Nelsons
Rockefellers 1964
TÍMARITIÐ „Li£e“ birtir
um þessar mundir útdrátt
úr nýútkominni bók eftir
bandaríska rithöfundinn
Theodore H. White, „Mak-
ing o£ the President—
1964“. Eftirfarandi grein
um Nelson Rockefeller,
ríkisstjóra í New York, er
hyggð á þeim kafla bókar-
innar, sem f jallar um skiln
a3 hans og hjónabönd, en
talið er að síðasta hjóna-
bandið hafi haft mikil á-
hrif á ósigur hans í barátt-
unni um útnefningu for-
setaefnis repúblíkana 1964.
• RÓ OG FRIÐUR
Heimili Rockefeller-fjölskyld
unnar á Pocantico-hæðum í
Tarrytown ber glaggt vitni
þrá hennar eftir að lifa í friði
og ró, fjarri forvitnum aug-
um. L#andareignin umhverfis
húsið er girt með lágum stein-
vegg, sem er svo lítið áber-
andi, að þeir sem aka fram
hjá taka ekki eftir hliðinu
nema þeim hafi verið bent á
það áður. Fögur tré og blóm
prýða landareignina umhverf-
is húsið, sem ættfaðirinn,
John D. Rockefeller, lét
byggja í Renaissance-stíl 1864.
Sumarið 1930 kom Nelson
Rockefeller til þessa húss með
brúði sína, Mary Todhunter
Clark frá Philadelphiu. Nel-
son hafði skömmu áður lokið
menntaskólaprófi og var að-
eins 21 árs. Fannst foreldrum
hans hann heldur ungur til að
kvænast, en þeim tók brátt að
líka mjög vel við tengdadótt-
ur sína, sem var af einni beztu
ætt Philadelphiu, gáfuð og
hlédræg, og eins sárt um
einkalíf sitt og öðrum í Rooke
feller-fjö'lskyldunni.
• HJÓNABANDIÐ NAFNIÐ
TÓMT 1 18 ÁR
Ekkert er opinberlega vitað
um ástæðuna til þess að hjóna
band Mary og Nelson fór út
um þúfur. í>au eignuðust
fimm böm, en nokkrum árum
eftir fæðingu tvíburanna,
Mary og Michaels 1936, varð
ljóst, að hjónabandið var ekki
nema nafnið eitt og þar við
sat næstu 18 árin. Þ>ví að
vegna barnanna ákváðu
Rockefeller-hjónin að halda
áfram sambúðinni, þótt ekk-
ert annað byndi þau.
Þegar Nelson rauf hina
hefðbundnu hlédrægni fjöl-
skyldunar 1958 og bauð sig
fram til ríkisstjóra í New
York, varð hið innantóma
hjónaband hans eins og fang-
elsi. Það þykir sjálfsagt í
Bandarikjunum, að eiginkon-
ur frambjóðenda taki þátt í
kosningabaráttunni, en þrátt
fyrir gáfur sínar og áhugann
á stefnunni, sem maður henn-
ar fylgdi, gat Mary ekki stað-
ið við hlið hans. Það var
henni mikil raun að hitta
margt ókunnugt fóllk í einu,
og þótt hún reyndi að gera
sitt bezta, kom allt fyrir ekki.
Frá upphafi hafði hún verið
andvíg því að Nelson sneri sér
að stjórnmálum og allt um-
stangið, sem því fylgdi, fyllti
hana heizkju.
1 nóvember 1961, kunn-
gjörði skrifstofa Rockefeller-
fjölskyldunnar í New York,
að Nelson ætlaði að skilja við
konu sína. Bandariskir kjós-
endur geta fyrirgefið hjóna-
skilnaði, fráskildir frambjóð-
endur eru kjörnir og endur-
kjörnir, og 1962 var Nelson
Rockefeller endurkjörinn rík-
isstjóri í New York.
• Böm FRÁSKILINNA
FOREUDRA
En málið feir að vandasf, ef
fráskilinn maður gengur 1
hjónaband á ný, og því víkj-
um við nú sögunni að hinni
óhamingjusömu Murphy-fjöl-
skyldu. Dr. James S. Murphy,
virtur vísindamaður, var með-
al góðvina Rockefeller-fjöl-
skyldunnar og starfaði við
Rockefellerstofunina. Murphy
var kvæntur Margarettu Fil-
er, sem var frá Philadelphiu
eins og Mary Rockefeller. í
bernsku hafði Margaretta
hlotið gælunafnið „Happy“,
því að hún leit út fyrir að
vera alltaf í góðu skapi. Lag-
leg og frískleg með hlýtt við-*
mót, virtist hún dæmigerð
bandrisk yfirstéttarkona, sem
hafði átt rólega og árekstrar-
lausa ævi. En svo var ekki.
Bæði hún og maður hennar
voru börn fráskilinna for-
eldra. Faðir Margarettu hafði
yfirgefið móður hennar, með-
an hún var barn, og Murphy
var ungur að árum, er foreldr
ar hans slitu samvistum. Þau
gengu í hjónaband í desem-
ber 1948, þegar Margaretta
var 22 ára. Vegna náinna
tengsla Murphys við hina vold
ugu Rockefeller-fjölskyldu,
varð hún brátt þungamiðjan
í lífi ungu hjónanna.
• AUGASTEINN
ROCKEFELLERS
Faðir Murphys hafði farið
með hann til sveitaseturs
Rockefeller-fjölskyldunnar í
Seal Harbour, þegar hann var
barn, og nú hélt hann sjálfur
þangað með brúði sína. Unga
frúin varð brátt augasteinn
Johns D. Rockefellers, hins
aldraða föður Nelsons, sem
hafði nýlega misst konu sína.
Hann var einmana og unga
konan kom honurn í dóttur-
stað. Hún gekk með honum
um skógana, ræddi við hann
tímunum saman og flutti birtu
og yl inn í líf hans. Og hylli
gamla mannsins var mikils
virði. Hann kom því til leið-
ar, að Murphy gat lagt stund
á það nám, sem hann óskaði,
Happy og Nelson Rockefeller á leið í brúðkaupsferð til Vene-
zuela í maí 1963,
og fengið vinnu við læknis-
fræðilegar rannsóknir hjá
Rockefeller-stofnuninni í San
Francisco, að námi lokmu. En
á sumrin dvaldist Murphy
með fjölskyldu sína í Seal
Harbour. Hann langaði til að
flytjast til New York, og ekki
leið á löngu þar til David
Rockefeller, sem hafði yfir-
umsjón með Rockefeller-stofn
unum, lét flytja Murphy til
höfuðstöðvanna í New York.
Það var einnig fyrir tilstilli
Davids, að Murphy-hjónin
fengu leyfi til að reisa hús á
landareign Rockefeller-fjöl-
skyldunnar á Pocantico-hæð-
um. En þau skilyrði voru sett,
að húsið félli sérlega vel inn
í umhverfið. Innan Rockefell-
er-fjölskyldunnar hafði Nel-
son mestan áhuga á húsagerð-
arlist. Hann hafði kynnzt
Happy Murphy og manni
hennar í Seal Harbor, og nú
ráðgaðist hún við hann um
framtíðarheimili sitt.
• SJÚKLEG
AFPRÝÐISSEMI
Nelson Rockefeller duldist
ekki lengi, að hjónaband
Happyar var óhamingjusamt,
engu siður en hans eigið. Jam
es Murphy var sjúklega af-
prýðissamur, þau rifust oft og
höfðu jafnvel slegizt. Happy
hafði leitað til sálfræðings til
að fá aðstoð við að koma
hjónatbandinu í lag. Hún vildi
forðast í lengstu lög, að börn
hennar yrðu að horfa upp á
foreldra sína skilja eins og
hún hafði sjálf orðið að gera.
En þrátt fyrir tilratunir henn-
ar, kom að því, að sál-
fræðingurinn sagði, að heilsu
siinnair vegrna yrði hún að
yfirgefa hann sinn. Frekari
tiiraunir til að bjarga hjóna-
bandinu væru vonlausar.
Þannig var ástatt 1958, þeg-
ar Happy Murphy bauðst til
að aðstoða Nelson Rockefeller
í kosningarbaráttunni í New
York. Eftir kosningarnar hélt
hún áfram að starfa fyrir
hann og stjórnmálin veittu lífi
hennar nýjan tilgang. Rocke-
feller barðist við Nixon um
útnefningu til forsetafram-
boðs fyrir Repúblikana 1960,
en vissi fyrir, að baráttan yrði
árangurslaus. Skömmu eftir
forsetakosiningarnar á k v a ð
hann að hefja baráttu fyrir
útnefningu 1964. Honum
fannst hann ekki geta beitt -
aftur sömu blekkingum varð-
andi einkalíf sitt og 1960, og
tilkynnti að hann ætlaði að
skilja við konu sína. Vonaðist
hann til að geta kvænst
Margarettu Murphy áður en
langt um liði.
En Happy var i miklum
varnda stödd. Hún átti fjögur
börn, sem maður hennar neit-
aði að láta af hendi. Átti hún
að reyna að þola hjónabandið
barnanna vegna eða rífa sig
lausa? Hún valdi siðari kost-
inn og vonaði, að dómstólamir
myndu dæma henni einhvert
barnanna, en sú von brást.
Murphy voru dæmd öll börn-
in, en þrátt fyrir það áttu
þau að dveljast hjá móður
sinni helming hvers árs.
• HJÓNABAND OG
FYLGISHRUN
Þessi harmleikur innan
Murphy-fjölskyldunnar og
kunningsskapur Happyar og
Nelsons var ekki á almanna
vitorði snemma árs 1963, er
Repúblikanar tóku að velta
því fyrir sér, hvern skyldi
kjósa sem forsetaefni. Ýmis
orðrómur var á kreiki, en
hann var óstaðfestur þar til
í maí 1963, er Happy og Nel-
son tilkynntu, að þau hefðu
gengið í hjónaband. Fregnin
barst um Bandarikin eins og
eldur í sinu, í verzlunum,
saumaklúbbum og kaffisam-
sætum myndaðist nær sam-
stundis skoðun, sem átti eftir
að glymja í eyrum frétta-
manna, er leituðu álits kvenna
á þessu máli næsta árið: „Ég
ætla ekki að kjósa forsetafrú,
sem hefur yfirgefið böm sín.“
Við fregnina um hjónaband-
ið kom afturkippur í kosninga
baráttu Rookefellers. í maí-
lok sýndu skoðanakannanir að
fylgi Goldwaters var 36%, en
Rockefellers aðeins 30%. 1
apríllok hafði Rockefeller
43%, en Goldwater 26%.
Þetta fylgishrun var meira en
jafnvel þeir svartsýnustu með
al samstarfsmanna Rockefell-
ers höfðu gert ráð fyrir, og
það virðist hana úrslitaáhrif
á framgamg hans i prófkosn-
ingunum, sem framundan
voru. Völd Rockefellers innan
, Framh. á bls. 30
Happy aðstoðar mann sinn íkosningabaráttunnl í New Hampshire 1964.