Morgunblaðið - 16.12.1965, Blaðsíða 1
32 slður
52. árgangur.
288. ibl. — Fimmtudagur 16. desember 1965
Frentsmiðja Morgunblaðsins.
HEIMSSÖGULEGUR VIÐBURÐUR
Tvö bandarísk geimför mættust í gær
í 300 kílómetra fjarlægö frá jörðu
Houston, Texas, 15. desember — AP-NTB
BANDARÍKIN náðu í dag stórum áfanga í því skyni að
senda mannað geimfar til tunglsins, er geimförin tvö, Gem-
ini VI. og Gemini VII. framkvæmdu vel heppnað „stefnu-
mót“ úti í himingeimnum. Geimförin svifu hlið við hlið í
tveggja metra fjarlægð hvort frá öðru og sýndu þannig í
fyrsta skipti tækni, sem er nauðsynleg vegna mannaðs tungl-
fars. Gemini VI. var svo nærri systurgeimfari sínu, að geim-
fararnir Walter Schirra og Thomas Stafford fullyrtu, að þeir
befðu getað séð 11 daga gamalt skeggið á félögum sinum,
sem í því voru, þeim Frank Bormann og James Lovell. —
Þannig svifu geimförin áfram með um 28.000 km hraða á
klukkustund. Stefnumótið átti sér stað kl. 18.28 að íslenzkum
tima í dag, er geimförin voru í um 300 km hæð yfir Mariana-
cyjum á miðju Kyrrahafi, en þá var þar bjartur dagur.
Rétt fyrir kl. 18 að ísl. tíma
byrjaði Gemini VI, sem skotið
bafði verið upp frá Kennedy-
Iböfða kl. rúmlega 12.30 fyrr um
daginn á síðasta undirbúningn-
um fyrir „írtefnumótið". Þá gat
áhöfn 'þess greinilega séð ljós-
nnerkin frá Gemini VII. Yfir
Tanarive á Madagaskar minnk-
eði Gemini VI. fjarlægðina á
milli geimfaranna niður í 45 km.
Gemini VI. var þá aðeins ofar en
Gemini VII. og nálgaðist síðar-
nefnda geimfarið óðfluga. Kl.
18.17 var aðeins 14 km fjarlægð
á milli geimfaranna. Kl. 18.3<5 til-
k.ynnti stjórnunarstöð geimferð-
erinnar, að bæði geimförin væru
»ú á sömu braut og flygju hvort
við hlið annars. Hefðu þau kom-
izt svo nálægt hvort öðru, að
að iokum hefðu ekki verið nema
2 m á milli þeirra.
Geimfararnir Schirra og Staf-
ford höfðu farið að öllu án nokk-
urs taugaæsings. Eftir því sem
yfirstjórn geimferðarinnar niðri
á jörðu sagði, höfðu þeir skotið
7 þrýstiloftsskotum til þess að
draga úr ferðinni. Þetta varð að
gera með feiknamikilli ná-
kvæmni. Er geimförin höfðu
nálgazt hvort annað sagði
Schirra: „Það er orðin mikil um-
ferð hérna uppi“. „Já“, svaraði
Bormann, „við þyrftum á um-
ferðarlögreglu að haida". Út-
varpssamband var á mil’lf geim-
faranna.
Bormann og Lowell höfðu í
dag verið 11 daga á lofti í Gem-
ini VII. en geimfari félaga þeirra,
Schirra og Staffords, var skotið
upp í dag samkvæmt framan-
sögðu. Var það þriðja tilraunin
til þess að skjóta geimfari þeirra,
Gemini VI., á loft, en báðar fyrri
tilraunirnar höfðu mistekizt
vegna tæknilegra galla. Er Gem-
ini VI. var skotið á loft kl. 12.37
að ísl. tíma var Gemini VII. í
162. hring sinum umhverfis jörðu.
Gert hafði verið ráð fyrir, að
Gemini VI. myndi lenda á morg-
un, fimmtudag á Atlantshafi, ef
tilraunin tækist vel, en Gemini
VII, yrði lengur á lofti.
Vísindamenn utan Bandaríkj-
anna hafa látið í ljós aðdáun
sína vegna hins vel heppnaða
„stefnumóts" Bandaríkjamanna í
geimnum, og segja að það tákni
stórt skref við að kanna geiminn.
Sir Bernard Lovell, forstöð'U-
maður JodrieOil Bank stjörnu-
rannsóknarstöðvarinnar í Bret-
landi sagði þannig m.a., að afrek
Bandaríkjamanna nú þýddi, að
iausnin á því að senda mannað
geimfar til tunglsins væri nú
iwnan sjónviddar.
Sjá skýringarmynd
á bis 31
Myndin er tekin, þegar eldflauginni með Gemini VI. var skotið
upp frá Kennedyhöfða í gærdag, en geimfarið flutti þá Walter
Schirra og Theomas Stafford á hringbraut umhverfis jörðu AP. -
Innan 5 ára mun Kína
ógna ríkjum Vestur-Evrópu
París, 15. des. — AP-NTB
R O B E R T McNamara, varnar-
málaráðherra Bandaríkjanna,
sagði á fundi ráðherranefndar
Atlantshafsbandalagsins, er varn-
armál voru þar til umræðu í da„%
Framsóknarflokkurinn andvíg-
ur stóriðjuframkvæmdum
Eysteinn Jónsson gaf yfirlýsingu þess efnis á alþingi í gærkvöldi
A FUNDI í alþingi í gærkvöldi
ílutti Jóhann Hafstein, iðnaðar-
inálaráðherra, skýrslu ríkisstjórn
prinnar um alúmiinmálið, og er
i»ún hirt í heild á öðrum stað í
þlaðinu.
Við umræðuraar um málið
gerðist það, að Eysteinn Jónssom
formaður Framsóknarflokksins,
lýsti andstöðu flokks síns við
málið, er hann í lok ræðu sinnar
sagði: „Niðurstaðan er sú, að
Framsóknarflokkurinn g e t u r
ekki samþykkt þessa samninga
um bvggingu alúmínvers á Is-
landi og raforkusölu til þess og
mun beila sér gegn þeim. Þetta
telur flokkurinn rétt og tíma-
bært að komi nú fram.“ Ræðu-
menn kommúnista ítrekuðu and-
stöðu flokks sdns gegn stóriðju-
framkvæmdunum.
Jóhann Hafstein, iðnaðarmála
ráðherra, kvaðst furða sig á því,
itð formaður Framsóknarflokks-
ins teldi nauðsynlegt að gefa
þessa yfirlýsingu núna, þar sem
nú væri unnið að skýrslugerðum,
sem þingmenn fengju á næstu
dögum, og málið væri enn til um-
ræðu í þingmannanefndinni.
Meginefni ræðu Eysteins Jóns-
sonar er rakið hér á eftir, en um-
ræðnanna verður að öðru leyti
getið síðar. I upphafi máls síns
sagði formaður Framsóknar-
flokksins:
„Framsóknarflokkurinn hefur
jafnan fylgt fram þeirri megin-
stefnu, að atvinnurekstur í land-
inu sé rekinp af landsmönnum
sjálfum. Þó hefur flokkurinn tal-
ið og telur enn, að komið geti
til mála að gera undantekningu
frá þessu með sérstökum samn-
ingi og löggjöf hverju sinni, ef
til þess þætti eðiilegt að grípa
til þess að leysa veigamikil verk-
efni í þjóðarþágu, sem að öðrum
kostí. væri ekki mögulegt að
leysa á viðunandi hátt. í þessa
stefnu hafa flokksþing Fram-
sóknarmanna ályktað um langt
árabil." Þá gat ræðumaður um
samþykktir flokksins í þessu efni
og sagði síðan m. a. :
„Það liggur óvefengjanlega fyr
ir, að hægt er að virkja myndar-
lega við Búrfell í Þjórsá án þess
að alúmínver komi til. . . Það
hefur engar undirtektir fengið að
staðsetja alúmínverið þannig, að
það gæti stuðlað að jafnvægi í
byggð landsins, en haldið fast
við þá staðsetningu, sem hlyti að
auka byggðavandamálið mjög frá
því, sem nú er, og er það þó
þegar eitt alvarlegasta vandamál
þjóðarinnar.
Meðal höfuðeinkenna efnahags-
lífsins um þessar mundir eru óða-
verðbólga, dýrtiðarflóð, ofþensla
og vinnuaflsskortur. Er það vax
andi vandamál að sinna atvinnu
rekstri íslendinga sjálfra og
aukningu hans- í mörgum grein-
um og koma í framkvæmd nauð-
synlegustu þjónustuframkvæmd-
um svo sem skólum, sjúkrahús-
um, samgönguframkvæmdum, —
svo dæmi séu nefnd. Enginn
vottur er stefnubreytingar til a'ð
ráða fram úr þessum vanda, enda
er það óhugsandi nema með því
að taka upp nýja stefnu í efna-
hagsmálum, atvinnu- og fjár-
festingarmálum“.
Þá sagði Eysteinn Jónsson að
uppi væru ráðagerðir um inn-
flutning erlends vinnuafls og
lauk ræðu sinni þannig:
„Me’ð innflutningi erlends
verkafólks til þess að byggja
upp stóriðju erlendra aðila í land
inu, yrði skapað nýtt vandamál,
stórfelldara og fjölþættara en
svo, að afleiðingarnar verði séð-
ar fyrir í fljótu bragði og mundi
það bætast við ærinn vanda hlið
stæðrar tegundar, sem fyrir er.
Einstök atriði samninganna
mun ég ræða siðar, ef eða þegar
/ Framh. á bls. 3
að lönd bandalagsins í Evrópu
yrðu innan fimm ára að gera ráð
fyrir, að öryggi þeirra stafaði
hætta aí Kinverska alþýðulýð-
veldinu.
MeNamara sagði, að eftir
fimm ár gæti ríkjum Vestur-
Evrópu stafað jafn mikil hætta
og Bandaríkjunum af Kína. Það
sem gera þyrfti, væri að gera nú
áætlun um að mæta þessari
hættu. Kínverskir kommúnistar
myndu ráða yfir birgðum öfiugra
kjarnorkuvopna innan tveggja
ára og eldfiaugum af meðalstærð
til þess að flytja þau. Árið 1975
mætti gera ráð fyrir, að kínversk
ir kommúnistar hefðu ekki að-
eins smíðað eldflaugar, sem
skjóta mætti milli heimsálfa held
ur myndu þeir þá þegar hafa
komið siíkum eldflaugum fyrir á
stóru svæði. Slíkar eldflaugar
gætu hitt skotmörk allt frá San
Franeisco til Berlínar og staði
þar á milli.
Frá 1962 hefði Kína varið 10%
allra þjóðartekna sinna til hern-
aðarþarfa, borið saman við, að
iönd sem Indland, Pakistan og
Brasilía hefðu varið aðeins um
2% þjóðartekna sinna í þessu
skyni, en þetta væru lönd á svip-
uðu efnahagslegu stigi og Kína.
Enn væri Kina ekki það stór-
veldi, að það gæti ógnað ríkjum
Atlantshafsbandalagsins. Herafli
þess var nú um 2.3 millj. manna
og hinn stærsti í heimi. Flugher
þess væri talsverður en hernaðar
máttur hans væri ekki að sama
skapi, vegna þess að flugvélarnar
væru úreltar. — í flughernum
væru m.a. um 1500 Mig-flugvél-
ar, byggðar í Sovétríkjunum.
McNamara sagði ennfremur, að
fastanefnd Atiantshafsbandalags-
ins ætti að fara að taka til athug-
Framhald á bls. 31.
«