Morgunblaðið - 22.01.1966, Blaðsíða 28
Langstærsta og
fjölbreyttasta
blað landsins
Helmingi útbreiddara
en nokkurt annað
íslenzkt blað
Sjómaður drukknar
Wngeyri, 21. janúar.
EB vélbáturlnn Þorgrímur fór
í róður héðan í fyrrakvöld féll
einn skipverja, Garðar Gunnars-
son, Miðbæ, Haukadal í Dýra-
firði, fyrir borð. Var báturinn þá
staddur um 8 mílur út af Dýra-
firði. Veður var gott.
Skipverjar sáu ekki atburð-
inn, en þeir urðu fljótlega varir
við, að Garðar var horfinn. Var
bátnum þegar snúið við og sást
á' reki á sjónum sígarettupakki
og fleira smádót, sem talið var
fuilvíst að Garðar hefði haft á
sér.
Báturinn fór inn til Þingeyrar
eftir að hafa leitað að Garðari í
ca. þrjá klukkutíma.
Garðar Gunnarsson var 25 ára
að aldri, ókvæntur, sonur. hjón-
anna Unnar Þórarinsdóttur og
Gunnars Einarssonar að Miðfoæ.
Magnús.
Mikið tjón í bruna
á bænum Finnmörk
Hvammstanga, 21. janúar.
ÍBÚÐARHtlSID að Finnmörk
í Vestur-I | inavatnssýslu brann
til kaldra kola sl. nótt. Einnig
brann innbú allt ásamt geymslu
og í henni brann meðal annars
Volkswagen bifreið.
Á fjórða tímanum sl. nótt
vaknaði fólkið að Finnmörk við
að bærinn var að brenna. Það
bjargaðist fáklætt út, en heima
voru hjónin Jóhannes Kristó-
fersson og Soffia Pétursdóttir,
ásamt tveimur ungum börnum
þeirra og vetrarmaður, seim þar
er.
Jóhannes gat komizt í síma og
gert aðvart á næstu bæi og það-
an var slökkviliðinu á Hvamms-
FramhaH á bls. 27
Siökkvibíll í árekstri
á leið á brunastað
Eldur í gr!pahúsi á Akureyri
Aikureyri, 21. janúar.
EEDUR kviknaði í gripahúsi efst
í Rúðargili (við Lækjargötu)
skömmu eftir hádegi í dag. Mað-
ur, sem var að sinna skepnum
sínum í nágrenninu, varð eldsins
var og gerði hvorttveggja að
hleypa út hestum, sem þar voru
inni, og gera orð eiganda húss-
ins, Sigurði Stefánssyni, Lækjar
götu 16.
Hann kom svo að vönmu spori
ásamt bróður sínum og kom þá
í ljós, að einn hestur af þremur
var enn eftir inni í húsinu.
Þeim tókst þó að ná hestinum
út án þess að honum hefði orðið
meint af reyknum, sem orðinn
var mikill.
Slökkviliðið kom skömmu síð-
ar og siökkti eldinn, en húsið var
hóOffónýtt áður en það tækist.
Á leið sinni á brunastað lenti
siökkvibíllinn í árekstri við
jeppa á gatnamótum Hafnarstræt
is og Kaupvangsstrætis. Siökkvi
báMinn kom neðan Kaupvangs-
stræti og fór yfir Hafnarstrætið
og í sömu andrá og jeppinn kom
sunnan að, en Hafnarstræti er
aðalbraut. Ökumaður jeppans
varð slöktkvibílsins ekki var fyrr
en ihann skall á hlið hans.
Slökkvlbíllinn ók yfir aðaibraut
ina bæði með rauðum ljósum og
sírenu.
Skemimdir urðu litlar á slökkvi
bílnum en jeppinn skemmdist
mikið. Slys urðu ekki á mönnum.
— Sv.P.
Guðrún með barnabarnabörn sín.
(Ljósm.: Sv. Þorm.)
Man vel ævi sína í eina ðld
Guðrúti Rósíi IHagnúsdúftir 100 ára
GUÐRÚN Rósa Magnúsdótt-
ir er 100 ára gömul. Við hitt-
um hana aðeins í gær á heim-
ili Svanborgar dóttur hennar
á Dirganesvegi 54 í Kópa-
vogi og tókum af henni með-
fylgjandi mynd. — Það er
ósköp gaman að fá mynd af
sér í blöðin. En ég er hissa
á að þið skulið vilja hafa
hana, sagði gamia konén. —
Hún er ákaflega ern, þrátt
fyrir þennan háa aidur, hef-
ur fótavist dag hvern og
klæðir sig sjálf. Dóttir henn-
ar sagði að hún færi svo
snemma á fætur á morgnana,
að henni þætti nóg um, og
væri oft á rjátli fram undir
miðnætti.
Guðrún er fædd í Austari-
Krókum á Flateyjárdalsheiði,
dóttir Magnúsar Árnasonar
og Þórunnar Helgadóttur. —
Fæðingardagurinn er nú eig-
inlega 20. janúar, en skrif-
finnskan hefur fært hann aft-
ur um tvo daga. Þar sem ekki
tókst einu sinni að breyta því
á skýrslum að tvíburadætur
hennar fengju að hafa sama
fæðingardag, þá hefur Guð-
rún ekkert verið að standa í
stimabraki við skýrslugerð-
ina. í dag er því haldið upp
á afmælisdaginn og verður
Guðrún stödd í Sjálfstæðis-
húsinu £ Kópavogi á Borgar-
holtsbraut 6 í dag kl. 3.
Guðrún var gift Ingvari
Ingvarssyni, trésmið og eign-
uðust þau fjögur börn. Af
þeim eru 3 dætur á lífi. Þau
Guðrún og Ingvar bjuggu sin
fyrstu búskaparár á Bárðar-
tjörn í Höfðahverfi, en flutt-
ust til Akureyrar 1904, þar
sem þau bjuggu lengst af á
Gránuféiagsgötu 7. Þau flutt-
ust til Reykjavíkur 1933, en
mann sinn missti Guðrún
Framhald á bls. 12
Enn ókunnugt um afdrrf
Flugsýnarflugvélarinnar
Áherzla lögð á leit norðan lands
- i dag
LEITIN að hinni týndu flugvél Flugsýnar bar ekki árangur í
gær, en henni verður haldið áfram í dag. Alls leituðu 16 flug-
vélar úr lofti í gær og mörg hundruð manns á landi. Akjósan-
legt leitarveður var, bjart og gott skyggni. í dag verður lögð
áherzla á Ieit norðan lands.
1 gær var leitað mjög gaum-
gæfilega um Austfirðina — bæði
á landi og úr lofti — allt frá
hálendinu sunnan Héraðsflóa og
178.583 farþegar um
Keflavíkurflugvöll ’65
ALLS lentu 2.389 farþegaflug-
vélar á Keflavíkurflugvelli árið
1965, en 1548 árið 1964, að því
er segir í fréttatilkynningu frá
Flngmálastjórninni þar.
í henni segir ennfremur, að
um völlinn hafi alls farið 178.583
farþegar (92.834 árið áður),
1590.4 tonn af vörum (857.8 tonn
árið áður) og 227,7 tonn af pósti
(97.4 tonn árið áður).
til Hornafjarðar. Ennfremur vár
leitað úr lofti á flugleiðinni frá
Egilsstöðum til Akureyrar, þar
sem fólk á bænum Ariiarstöðum
í Bárðardal taldi sig heyra til
flugvélar þetta þriðjudagskvöld.
Þá var einnig leitað mjög ræki
iega úr lofti í austanverðum
Vatnajökli og kringum Snæfell,
en þar var ekki hægt að leita
í fyrradag sökum þoku. Fiug-
vélar flugu yfir Hofsjökul og
Langjökul, og könnuðu mjög
vandlega svæðið á milli þessara
jökla og jaðra þeirra.
• Leitað á MýrdalsjökJi.
Sömu sögu er að segja um
Mýrdalsjökul — þar voru ílug*-
Framhald á bls. 27
Elarfsfólk fró Keílovtkurflugvelli
við fromkvæmdir í Hvalfirði
FYRIR nokkru birti dagbiaðið
Þjóðviljinn frétt þess efnis, að
íslenzkir aðalverktakar væru nú
að leita eftir vinmuafli til fyrir-
Arinbjörn Kolbeinsson
endnrkjörinn iorm.FÍB
AÐALFUNDUR Félags íslenzkra
hifreiðaeigenda, FÍB, var hald-
inn í Tjarnarbúð í gærkvöldi. —
Var fundurinn mjög fjölsóttur
og urðu margir að standa úti á
gangi, þar sem salurinn var þétt-
skipaður.
Úr stjórn félagsins áttu að
ganga dr. Arinbjörn Kolbeins-
son, formaður, og Magnús
Höskuldsson, ritari. Voru þeir
báðir endurkjörnir nfleð yfirgnæf
andi meirihluta atkvæða.
Stjórn félagsins skipa nú eftir-
taldir menn:
Dr. Arinbjörn Kolbeinsson,
formaður, Valdimar Magnússon,
gjaldkeri, Magnús . Höskuldsson,
ritari, Haukur Pétursson, með-
stjórnandi og Gísli Hermannsson,
meðstjórnandi.
Varastjórn skipa þeir Gisli
Sigurðsson og Ingvar Sigmunds-
son.
(Sjá starfsskýrslu formanns,
sem þirt er á blaðsíðu 6).
hugaðra framkvæmdi í Hval-
firði og biðu verkamönnum
kr. 60 á tímann, auk ýmissa frið-
inda.
Mbl. hefur snúið sér til Gunn-
ars Gunnarssonar hjá íslenzkum
aðalverktökum og skýrði hann
svo frá, að frétt þessi hefði við
engin rök að styðjast. Nú eru
starfandi á vegum íslenzkra aðal
verktaka 8 menn, en á næstu
mánuðum mun að sjálfsögðu
verða um verulega aukningú að
ræða. Þar verður fyrst og fremst
um að ræða starfsmenn, sem nú
eru í þjónustu Islenzkra aðal-
verktaka á Keflavíkurflugvelli,
en Gunnar sagði að einnig mætti
gera ráð fyrir, að nokkur hópur
skólafólks starfaði á vegum fyrir
tækisins í Hvalfirði í sumar.
Gert er ráð fyrir, að þegar
mesta vinnuaflsþörfin er, verði
um 200 manns starfandi á veg-
um Islenzkra aðalverktaka i
Hvalfirði