Morgunblaðið - 27.01.1966, Qupperneq 1
28 síður
Steward og Healy
ræða landvarnamál
Bretlancls í Washingtcn
Tíondon, 26. jan. NTB — AP.
• Ulanríkisráöherra Bretlands
og landvarnaráöherra, þeir
Michael Stewart og Denis Heal-
ey fóru í dag til Washington, þar
sem þeir munu dveljast næstu
daga og ræöa viö bandaríska
rá'öamenn um hernaðarlegar
skuldbindingar Bretlands á lands
svæöum austan Suezskurðar. Er
haft eftir áreiðanlcgum heim-
ildum, að þeir muni leita fjár-
hagsaðstoðar frá Bandarikja-
Btjóra til þess að geta staðið við
þessar skuldbindingar.
Báðherrarnir fóru hivor með
sinni flugvélinni og vildi hvor-
ugur segja neitt, sem máli skipti,
um erindið til Wasihington. Þó
sagði Stewart, að það gæfi auga
leið, að Bretar yrðu að hafa eitt-
hvert samræjni miUi hernaðar-
legra skuldibindinga, er þeir
tækjust á hendur og fjórhags-
möguleika sinna.
Árangursins af þessum viðræð
um er beðið með nokikurri eftir-
væntingu, — ekki sízt vegna
úilfaþyts þess, er varð út af grein
er brezka sunnudagstolaðið OiB-
SERVER birti um sl. helgi um
Framhald á bls. 16
STORAUKINN FRJÁLSINNFLUTNIHGUR
Timbur, jorn, eldhúsinnrettingar,
golfteppi o. II. ú Irílista
RlKISSTJÓRNlN hefur nú á-
kveðið að stórauka frjálsan
innflutning til landsins með
því að stækka hinn svonefnda
frílista. Gylfi Þ. Gíslason, við-
skiptamálaráðherra, skýrði
frá því í fréttaauka í gær, að
hér væri um að ræða stærsta
spor, sem stigið hefði verið
til aukningar frílistans síðan
í maí 1960, þegar hreytt var
stefnu í innflutningsmál-
wm.
HeTztu vörur, sem nú bætast á
írílistann eru: timbur, járn, stál,
eldhúsinnréttingar og skápar,
pípuhlutar, skyrtur, nærfatnaður
úr baðmull, karlmannasokkar,
gúmmískófatnaður og gólfteppi.
Innflutningur þeirra vöruteg-
unda ,sem nú bætast á frílistann
nam á árinu 1964 395 millj. kr.
og var 7% heildarinnflutnings á
því ári. Jafnframt stækkun frí-
listans er innflutningskvóti nokk
urra vörutegunda aukinn og eru
helztu vörur, sem það á við, hús-
gögn og sement og nýjar vörur,
sem nú fá smávægilegan innflutn
ingskvóta, eru óhrennt kaffi og
nokkrar sælgætistegundir.
Með þessari stækkun frílistans
eykst hlutdeild frjáls innflutnings
úr 79,2% í 86,2% heildarinnflutn-
ings. Meira en helmingur þess
innflutnings, sem enn er háður
einhvers konar leyfisveitingum
er benzín og brennsluolíur, sem
eingöngu er flutt frá A-Evrópu-
löndunum.
Viðskiptamálaráðherra sagði í
fréttaauka í útvarpinu í gær, að
þessar ráðstafanir í viðskiptamál-
um, væru þáttur í þeirri stefnu
ríkisstjórnarinnar, að vöxtur
þjóðarframleiðslu, bætt gjald-
eyrisstaða og betri lífskjör und-
Washington, 26. jan. NTB-AP
• Sennilegt er nú talið, að
Bandaríkjaforseti, Lyndon B.
anfarinna ára héldu áfram að
móta íslenzkt efnahagslíf.
Ræða viðskiptamálaráðherra,
Gylfa Þ. Gíslasonar, í fréttaauka
Útvarpsins í gær, fer hér á eftir í
heild:
í Loghirtingablaði, sem út kom
í dag, er birt tilkynning frá við-
skiptamálaráðuneytinu um stækk
Johnson, muni innan skamms
láta hefja á ný Ioftárásir á Norð-
ur-Vietnam. Bill Moyers, blaða-
! Mynd þessi var tekin, er
■ frú Indira Gandhi sór embætt
; iseið forsætisráðherra Ind-
» lands, — annars f jölmennasta
; ríki heims, er telur ’tæpar
: fimm hundruð milljónir íbúa.
; Forseti landsins, Sarvapelli
: Radakrishnan, las henni eið-
■ stafinn í forsetahöllinni í
; Nýju Delhi.
un hins svonefnda frílista, þ.e.a.s.
fjölgun þeirra vörutegunda, sem
ekki þarf innflutnings- og gjald-
eyrisleyfi til þess að mega flytja
Framhald á bls. 16
fulltrúi forsetans, sagði að vísu
við fréttamenn í dag, að ekkert
hefði verið ákveðið um slikt enn
þá. Hann sagði, að forsetinn hefðí
rætt ýtarlega bæði í gær og i dag
við helztu ráðherra sína, þing-
leiðtoga og ráðgjafa og hefði
komið fram í viðræðunum nokk
uð mismunandi afstaða til á-
standsins í Vietnam.
• Hinsvegar herma áreiðan-
legar heimildir að þolinmæði
forsetans sé nú á þrotum. Hann
telji, að 34 daga hlé á loftárás-
um á N-Vietnam og sieituiausar
Framhald á bls. 16
Kínversk vetnis-
sprengja
fyrir 1970
Washington, 26. jan. — NTB.
BANDARÍSKGR prófessor,
Ralph Powelt að nafni, sem
er sérfræðingur í inátefnum
Austurlanda fjær, hefur skýrt
bandarískri þingnefnd svo
frá, að Kínverska alþýðulýð-
veidið muni eignast vetnis-
sprengju fyrir árið 1970. Enn-
fremur muni Kínverjar þá
hafa komið sér upp nokkrum
birgðum meðaldrægra eld-
flauga til þess að flytja
sprengjurnar að marki.
Það lekur víðar en í
Listamannaskálanum
MVNDIRNAR, sem hér fylgja,
eru frá sýningarsalnum í
Charlottenborg, þar sem mál-
verkasýning Grönningen
stendur yfir um þessar mund-
ir — eri þar eru meðal annars
málverk eftir Svavar Guðna-
son svc sem sjá má á annarri
myndinni. Myndir þessar voru
teknar um það bil, er lista-
mennirnar voru að hengja
Jistaverk sín upp — við að-
stæður, sem svipar nokkuð til
Listamannaskáians í Reykja-
vík.
Eitt dönsku blaðanna skrif-
aði frétt með þessum mynd-
um, þar sem sagði, að lista-
mennirnir hefðu orðið að vera
á stöðugum hlaupum með
myndirnar sínar til þess að
forða þeim undan lekanum úr
loftinu og aðrir sífellt orðið
að hTaupa til með vatnsfötur
til aö taka við mesta flóðinu.
Bláðið hefur eftir einum
listamannanna, að ástandið
sé nú með versta móti — en
raunar sé það orðið tilheyr-
andi að opna málverkasýning
ar í Charlottenborg með
vatnamúsik. Það klingi hátt í
vatnsfötunum, þegar droparn
ir detti ofan í þær og busl
hljómarnir, þegar gengið sé í
pollunum á gólfinu, séu eig-
inlega ekki sem verstir.
Haft er eftir hinum konung
lega byggingaeftirlitsmanni,
arkitektinum og prófessornum
Preben Hansen, að ástand sýn
ingasalarins í Charlottenborg
sé hreint hneykslanlegt — hús
ið sé eins og sia. Hann segir,
að margar áætlanir hafi verið
gerðar á síðastliðnum árum
um lagfæringar á húsinu en
svo iítið fé hafi verið veitt til
þeirra, að ekki hafi verið
Framhaid á bls. 3
Þessl mynd er tekin í heiðurssal Charlotteriborgarsýningarinn
ar. Málverkið hjá vatnsfötunni er eftir Svavar Guðriason.
Senn vænzf loftárása á N-Vietnam á ný
Þofinmæði Bandaríkja
stjórnar á þrotum...?