Morgunblaðið - 27.01.1966, Blaðsíða 6
6
MORCUNBLAÐIÐ
Fimmtudagur 27. januar 1966
LOKIÐ er nú landsliðskeppni
Bridgesambands íslands og hafa
nú valizt 6 pör í opna flokkinn
og 3 pör í kvennaflokkinn til
keppni í Norræna bridgemótið í
BRIDGE
vor.
Kvenna- og karla
landsliöin á
Noröurlandamót hér
íslenzka kvennasveitin, sem tekur þátt í Norðurlandamótinu í
bridge: Elín Jónsdóttir, Kristjana Steingrímsdóttir, MargrétJóns-
dóttir, Ósk Kristjánsdóttir og Rósa Þorsteinsdóttir. Á myndina
vantar Magneu Kjartansdóttir.
Karlasveitln: Vinstra megin í stiganum, talið neðan frá: Einar Þorfinnsson, Símon Símonarson,
Þorgeir Sigurðsson, Hjalti Elíasson, Benedikt Jóhannsson, Sigurður Helgason og Jóhann Jóns-
son. Hægra megin: Gunnar Guðmundsson, Ingólfur ísebarn, Agnar Jörgensson, Ásmundur Páls-
son og Jón Arason.
Keppnin var mjög jöfn allan
tímann og fór svo að lokum, að
ekki skildi að 6. og 7. par í karla
flokknum nema eitt stig og í
kvennaflokknum urðu 3. og 4. par
jöfn að stigum, en hlutfallstala
unninna og tapáðra EBL-stiga
látinn ráða röð.
Eftirgreind sex pör unnu rétt
til að keppa í opna flokknum:
Nr. 1 Ásmundur Pálsson/
Hjalti Elíasson 74 stig
— 2 Benedikt Jóhanns-
son/Jóhann Jónsson 72 —
— 3 Símon Símonarson/
Þorgeir Sigurðsson 71 —
— Agnar Jörgensson/
Ingólfur Isebarn 70 —
— 5 Einar Þorfinnsson/
Gunnar Guðmundsson 68 —
— Jón Arason/ Sig-
urður Helgason 66 —
Hjá konunum unnu eftirgreind
þrjú pör sér rétt til að keppa í
kvennaflokknum:
Nr. 1 Kristjana Stein-
grímsdóttir/Margrét
Jensdóttir 86 stig
— 2 Ósk Kristjánsdóttir/
Magnea Kjartansd. 74 —
— 3 Elín Jónsdóttir/
Rósa Þorsteinsdóttir 68 —
Allt eru þetta þekktir spilarar
og hafa sumir þeirra keppt oft
fyrir íslands hönd í milliríkja
leikjum. Að öðru leyti urðu úr-
slit þessi: Karlar: Nr. 7 Steinþór/Þorsteinn 65 stig
— Eggert/V ilhjálmur 63 —
— 9' Hilmar/Jakob 61 —
— 10 Stefán/Þórir 58 —
— 11 Jón/Gunnar 56 —
— 12 Júlíus/Tryggvi 53 —
— 13 Jóhann/Lárus 51 —
14 Ólafur/Sveinn 50 —
— 15 Guðjón/Eiður 42 —
Konur:
Nr. 4 Soffía/Viktoría 68 stig
— 5 Ásta/Guðrún 67 —
— 6 Vigdís/Hugborg 66 —
— 7 Sigríður/Kristrún 59 —
— 8 Sigríður/Unnur 59 —
— 9 Kristín/Dagbjört 58 —
— 10 Júlíana/Louise 57 —
— 11 Steinunn/Þorg. 55 —
— 12 Rósa/Sigríður 54 —
— 13 Eggrún/Guðríður 51 —
— 14 Ásgerður/Laufey 49 —
— 15 Margrét/Guðrún 47 —
— 16 Ingibjörg/Sigríður 42 —
Mjög bráðlega ver'ða valdir
þrír fyrirliðar fyrir sveitirnar og
munu þá hefjast reglulegar æf-
ingar til þess að við getum sem
bezt verið undirbúnir að mæta
hinum norrænu þjóðunum í mal
n.k.
London, 25. janúar — AP.
— NTB.
Harold Wilson, forsætisráð-
herra Bretlands, sagði í dag,
að stjórn sín myndi ekki
ganga til samninga við upp-
reisnarstjórn Ian Smith, í
Rhódesíu. Sagði Wilson, að
um framtíð landsins yrði að
semja við ábyrga aðila.
Sagði Wilson stjórn sína
þegar hafa gert áætlun um,
hvernig Rhódesíu yrði stjóm-
að ,er stjórn Smith hefði
hrökklazt frá. Taldi forsæt-
isráðherrann brezki til greina
koma að setja þá á laggimar
bráðabirgðastjóm, e.t.v. und-
ir forystu Sir Humphrey
Gibbs, landstjóra.
SÁ MISSKILNIN GUR varð í
blaðinu í gær, að Hafliði Jónsson
var talinn formáður Félags garð-
yrkjumanna. Er það Steingrím-
ur Benediktsson, garðyrkjufræð-
ingur, sem nú er formaður félags-
ins. Eru hlutaðeigendur beðnir
velvirðingar á mistökunum.
Læknarómantík
Læknir nokkur skrifaði
grein um iæknisfræðileg efm
í Morgunblaði’ð í fyrri viku og
réðst á þessa svonefndu lækna-
rómantík — og sagði:
Það vaða uppi hvítsloppaðar
hetjur síbjargandi mannslífum
með hnífum og kyngimögnuð-
um töfralyfjum milli þess að
þeir elska hjúkrunarkonur, sem
ýmist eru engilmildar draum-
konur eða rauðhærðar kynbomb
ur. Flestum læknum er lítíð um
þess háttar reyfarasögur . . . “
Ég veit satt að segja ekki
hvernig læknarnir mundu kom-
ast af, ef læknarómantíkin væri
ekki váðandi uppi í heimilis-
blöðum og „bókmenntum“ vor-
um. Ætli þeim fækkaði ekki,
ungu stúlkunum, sem hæfu
hjúkrunarnám, ef draumurinn
um „hvitsloppuðu hetjurnar“
með öll sín töfralyf yrði tekinn
frá þeim? Okkur skilst, að ekki
séu það launin, sem láði ungar
stúlkur að atvinnunni — jafnt
þær engilmildu og hinar rauð-
hærðu.
íslenzk stundvísi
Og svo kemur hér bréf
frá „Útvarpshlustanda."
„Mig furðar oft á því að sjá
aldrei á prenti athugasemdir
um óstundvísi Ríkisú.tvarpsins.
Þeir, sem fylgjast að verulegu
leyti með dagskránni, komast
ekki hjá því að verða varir við
þá óstundvísi, sem á sér stað
á hinum ýmsu dagskrárliðum.
Til dæmis hefjast framhalds-
sögurnar mjög sjaldan á aug-
lýstum tíma og eru oftast fram
yfir, eins og á kvöldin, en þá
eiga seinni fréttir að hefjast kl.
10. Oftast er klukkan orðin
fimm og tíu mínútur yfir. Lest-
ur Kiljans er þó hrein undan-
tekning. Um fleiri dagskrárliði
mætti sama segja, eins og flest-
ir verða vafalaust varir við.
— En þó kemur stundum það
merkilega fyrir, að þulur til-
kynnir að næsti dagskrárliður
hefjist eftir 10—15 sekúndur.
Þá má ekki miklu muna.
Ég, sem þetta rita, hef gaman
af að hlusta á margt, sem fram
fer í útvarpinu, og til sums er
vel vandað. En þessi óstundvísi
á dagskrárliðunum — sem getur
komið sér illa, ef maður vill
hlusta á eitthvað sérstakt —.
þekkist ekki í neinni útvarps-
stð, sem ég hef hlustað á. —
Þar — svo sem í BBC — skakk-
ar ekki nema nokkrum sekúnd-
um á að dagskrárliðirnir hefjist
á réttum tíma. Það hlýtur að
vera hægt að kippa þessu í lag
— það kostar að vísu talsverða
vinnu, en við svo búið má ekki
lengur standa.
Þá má það ekki koma fyrir,
að auglýst lög í síðdegisútvarpi
séu hreinlega felld niður, sök-
mu þess að ekki vinnst tími
fyrir klukkan fjögur að leika
þau. Það hefur hins vegar kom-
ið tvisvar fyrir, að lög leikin
á píanó af Rubinstein og Horo-
witz, sem auglýst voru síðast á
efnisskránni fyrir kl. 4, voru
ails ekki leikin, vegna þess að
ekki vannst tími til þess. —
Að minnsta kosti á þulurinn að
biðjast afsökunar, en ekki láta
sem ekkert sé og þetta sé sjálf-
sagður hlutur.“
„Ú tvarpshlustandi.“
Höfum flutt vcrzlun vora og
verkstæði að
LÁGMÚLA 9
Símar:
38820 (Kl. 9—17)
38821 (Verzlunin)
38822 (Verkstæðið)
38823 (Skrifstofan)
Bræðurnir Ormsson hf.
Vesturgötu 3, Lágmúla 9.
Sími 38820.