Morgunblaðið - 27.01.1966, Blaðsíða 2
- f-
MORGU NBLAÐIÐ
Fimmtudagur 27. janúar 1966
Vegleg hátíðahöld á Ísafirði
á 100 ára afmælinu í gær
ísafirði, 26. janúar.
®’ÁNAR voru dregnir hér að hún
á Isafirði snemma í morgun í
íremur rysjóttu veðri, sem þó fór
Tbatnandi þegar á daginra leið.
TJm kl. 10.30 í m'orgun lagðist
’varðskipið Óðinn að bryggju en
jmeð því kom forseti íslands,
lierra Ásgeir Ásgeirsson til þess
sið vera viðstaddur hátíðarhöldin
í tilefni af aldarafmæli ísafjarð-
Isafjarðarkaupstaðar í dag.
Hátíðarfundur bæjarstjórnar
hófst hér í Góðtemplarahúsinu
kl. 14, og var hvert sæti full-
skipað. Meðal gesta voru forseti
Islands, Eggert G. Þorsteinsson,
Hannibal Valdimarsson, alþingis-
maður, forsetaritari. Þorleifur
Thorlacíus og oddvitar nokkurra
hyggðarlaga í nágrenninu.
Hátíðarfundurinn hófst með
|>ví, að Lúðrasveit skólanna und-
ir stjórn Þóris Þórissonar lék tvö
lög, en síðan söng Sunnukórinn
undir stjórn Ragnars H. Ragnars,
■við undirleik Sigríðar Ragnars-
dóttur, nokkur lög. Því næst setti
forseti bæjarstjórnar, Bjarni Guð
björnsson, bankastjóri, hátiðar-
fundinn, og bauð forseta íslands,
ráðherra, og aðra gesti velkomna.
A dagskrá hátíðarfundarins
voru tillaga um byggingu nýs
elliheifnilis, og tiliaga um sjóð-
stofnun til verðlauna fyrir náms-
afrek í væntanlegum mennta-
skóla á ísafirði. Forseti bæjar-
stjórnar lýsti þessum tillögum,
en síðan tók til máls Björgvin
Sighvatsson, bæjarfulltrúi, og
ræddi hann vandamál aldraðs
fólks, og rakti síðan sögu elli-
heimiiis á ísafirði, en fyrsta elli-
heimilið á landinu tók til starfa
á ísafirði árið 1923. Næstur talaði
Högni Þórðarson, bæjarfulltrúi,
Og skýrði frá aðdraganda og
undirbúning að byggingu fyrir-
hugaðs elliheimilis.
Var síðan samþykkt með níu
samhljóða atkvæðum eftirfarandi
tillaga bæjarráðs:
„Bæjarstjórn ísafjarðar sam-
þykkir, að byggt verði elliheimili
fyrir 40 vistmenn á sjúkrahúslóð-
inni og verði rekstur elliheimilis-
ins í tengslum við sjúkrahúsið.
Þegar á þessu ári verði efnt til
verðlaunasamkeppni um útlits-
og fyrirkomulagsteikningar elli-
heimilisbyggingarinnar.
Bæjarstjórnin samþykkir, að
bæjarsjóður leggi fram á þessu
ári hálfa milljón króna til elli-
heimilisbyggingar.
■ Frá því var skýrt á hátíðar-
! fundinum að áætlað væri að
j kostnaður við byggingu elli-
: heimilis myndi nema um 400 þús.
I krónum eða samanlagt 16 milljón
ir króna sú bygging sem fyrir-
huguð er fyrir 40 vistmenn. í
byggingarsjóði eru nú 2,4 millj.
króna.
Þá var tekin fyrir síðari dag-
skrártillagan og tók þá til máls
Halldór Ólafsson bæjarfulltrúi
og rakti stuttlega sögu mennta-
skólamálsins, og kvað það sam-
eiginlegt áhugamál allra ísfirð-
inga og Vestfirðinga, og hafið
yfir allan flokkdrátt. Var tillagan
síðan samþykkt með níu sam-
hljóða atkvæðum, en tillagan er
svohljóðandi: „í tilefni af aldar-
afmæli ísafjarðarkaupstaðar sam
þykkir bæjarstjórnin að veita á
fjárhagsáætlun þessa árs kr. 100
þús. til stofnunar sjóðs er varið
verði til verðlauna fyrir náms-
afrek nemenda í væntanlegum
menntaskóla á ísafirði. Sjóður-
inn beri nafnið: Aldarafmælis-
sjóður ísafjarðarkaupstaðar.
Verðlaun úr sjóðnum verði í
fyrsta sinni úthlutað, þegar
fyrstu stúdentar útskrifast frá
menntaskóla á ísafirði, en fyrir
þann tima verði sett reglugerð
fyrir sjóðinn og stjórn hans kos-
in.
Fram að þeim tíma, sem fyrsta
verðlaunaúthlutunin fer fram,
verði sjóðurinn ávaxtaður í
í Kjósarsýslu
AÐALFUNDUR F.U.S. í Kjósar-
sýslu verður haldinn að Hlé-
garði sunnudaginn 30. þ.m. kl.
2. e.h.
Dagskrá: Venjuleg aðalfundar-
störf.
Aliir félagsmenn eru hvattir
tiil að sækja fundinn og taka með
sér nýja félaga.
Aðalfundur fulltrúaráðs Sjál/f-
stæðisfélaganna í Kjósarsýslu
verður haldinn að Hlégarði
mánudaginn 31. þ.m. kl. 21.
Mál Ben Barka hefur
leitt ■ Ijós mistök
frönsku lögreglunnar
segir í yíirlýsingu frönsku stjórnarinnar
París, 26. jan. — NTB
t FRANSKA stjórnin hélt
. ráðuneytisfund í dag, þar
sem mál Marokkómannsins
Ben Barka var til umræðu.
Að fundinum loknum var gef-
in út opinber yfirlýsing, þar
sem sagði, að mál þetta hefði
komið upp um mistök frönsku
lögreglunnar og annmarka á
samskiptum hennar við aðra
réttaraðila ríkisins.
í yfirlýsingu stjómarinnar
sagði, að nokkrir starfsmenn lög-
reglunnar hefðu meðvitað eða ó-
meðvitað átt aðild að brottnámi
Ben Barka í París í október sl.
Hefði mál hans m.a. komið upp
um annmarka á skipulagi þeirrar
stofnunar lögreglunnar, er á-
byrg væri fyrir því að upplýsing-
ar bærust rétta boðleið milli
hinna ýmsu deilda hennar.
Útvarpið í Marokkó segir í dag,
að framkoma frönsku stjórnar-
innar í máli þessu, hafi verið
mjög ósæmileg og það hafi verið
til vanvirðu fyrir Frakka að
stjórn þeirra skyldi reyna að
varpa sökinni á brottnámi Ben
Barka á stjórn Marokkó. Segir
útvarpið að franska stjórnin hafi
reynt að gera sér Marokkóstjórn
að blóraböggli til þess að beina
athyglinni frá hinum skuggalega
þætti sínum í málinu. Var því
bætt við að sendiherra Frakka í
Marokkó, Robert Gillet, hefði í
nóvember sl. beint þeim tilmæl-
um til Hassam II. konungs, að
hann vísaði úr embætti Oufkir,
innanríkisráðherra landsins, á
þeirri forsendu, að hann hefði
tekið þátt í brottnámi Bens
Barka. Slík framkoma af hálfu
Frakka hefði verið móðgandi fyr-
ir Marokkó, enda hefði Oufkir
hvergi nærri ráni Barka komið,
sagði útvarpið.
vörzlu bæjarsjóðs ísafjarðar.
í fundarlok þakkaði forseti
bæjarstjórnar, öllum þeim mörgu
mönnum, sem starfað hafa í
bæjarstjóm kaupstaðarins á liðn-
um tímum, og risu bæjarfulltrúar
úr sætum í virðingarskyni við
þá. Að því loknu var hátíðar-
fundinum slitið, og Sunnukórinn
söng lagið ,,í faðmi fjalla blárra“
eftir Jónas Tómasson, en kvæðið
er eftir Guðmund skáld Guð-
mundsson, sem lengi var búsettur
á ísafirði. Stjórnandi var hið
aldna tónskáld Jónas Tómasson.
Athöfninni lauk með því að
Sunnukórinn undir stjórn Ragn-
ars H. Ragnars söng þjóðsönginn.
Að hátíðarfundinum loknum
hafði bæjarstjórnin móttöku í
Sjálfstæðishúsinu, og voru þar
ÉLJALOFT að norðan flæddi
af hafi inn yfir norður- og
austurströndina í gær. Það
var ekki eins kalt og undan-
farna daga, frostið því víðast
2—6 stig. Sunnan lands og við
Faxaflóa og Breiðafjörð var
úrkomulaust, en skýjað.
Suður af iandinu var austan
hvassviðri og rigning.
meðal gesta forseti íslands. Egg-
ert Þorsteinsson félagsmálaráð-
herra, og mikill fjöldi bæjárbúa.
Verzlunum og vinnustöðum var
lokað eftir hádegi í dag, og víða
í verzlunum eru myndarlegar
glnggaskreytingar og m. a. sýnd-
ar íjölmargar myndir af kaup-
staðnum á ýmsum tímum, og
myndir úr sögu hans. Síðdegis í
dag fór ylfingasveit skátafélags-
Framha'd á bls. 27
Mikilvægar aukakosningar
í Bretlandi í das
Gengur Wilson til
kosninga í marz?
í D A G fara fram auka-
kosningar til brezka þings-
ins í kjördæminu Norður-
Hull. Kosningar þessar eru
taldar hinar mikilvægustu,
því að tapi Verkamanna-
flokkurinn þingsætinu,
sem hann vann með naum-
um meirihluta í þingkosn-
ingunum 15. október 1964,
hefur hann ekki nema eins
atkvæðis meirihluta á
þingi. Getur því svo farið,
að Wilson neyðist til þess
að efna til nýrra kosninga
bráðlega, því að stjórninni
mun þykja ótryggt að eiga
framgang mála sinna á
þingi undir völtum stuðn-
ingi Frjálslynda flokksins,
sem gæti sett stjórninni ó-
þægileg skilyrði fyrir fylgi
sínu. Þó er talið ólíklegt, að
Wilson efni til kosninga
fyrr en í október, nema
Frjálslyndir verði stirðir
til samvinnu «g setji óað-
gengileg skilyrði.
Fari hins vegar svo,
að Verkamannaflokkurinn
haldi þingsætinu með yfir-
burðum, yrði það túlkað
sem ótvíræður stuðningur
þjóðarinnar við stefnu
brezku stjórnarinnar. Þá er
ekki ólíklegt, að forystu-
menn Verkamannaflokks-
ins hvetji Wilson til þess
að ganga til kosninga þeg-
ar í marz og freista þess að
vinna svo mörg þingsæti,
að aðstaða flokksins á þingi
verði traust. Stjórnin eigi
eftir að beita sér fyrir ýms-
um óvinsælum málum, og
sé ekki seinna vænna að
reyna að treysta þingfylgið
nú, áður en þau komist á
dagskrá. Afgreiðsla óvin-
sæls fjárlagafrumvarps er
einnig framundan.
Árið 1964 var Solomon,
Verkamannaflokksmaður,
sem lézt skömmu fyrir nýj-
ár, kosinn þingmaður í
Norður-Hull með 1.181 at-
kvæðis meirihluta. Hann
hlaut 20.664 atkvæði, fram-
bjóðandi íhaldsflokksins,
sem þá var J. M. Coulson,
hlaut 19.483 atkv., og frú
Millward, frambjóðandi
Frjálslynda flokksins þá
eins og nú, hlaut 7,570 at-
kvæði.
Nú eru frambjóðendurnir
sex. Þeir eru:
• Kevin McNamara, fram-
bjóðandi Verkamannaflokks-
ins. Hann er 31 árs gamall,
lektor í lögfræði við háskól-
ann í Hull. Hann gerir sér
vonir um 2000 til 3000 atkvæða
meirihluta, en framboð Gotts,
sem greint er frá hér síðar,
dregur úr sigurlíkum hans.
McNamara er talinn hafa unn
ið á meðal kjósenda síðustu
daga, en þó þykir mörgum
hann of háður flokksvél Verka
mannaflokksins í Transport
House í Lundúnum. Honum er
legið á hálsi fyrir að hafa eng-
ar sjálfstæðar skoðanir á
neinu máli en endursegja ræð-
ur Wilsons athugasemdalaust.
Þá var hann svo óheppinn að
segja, að 2000—3000 atkvæða
meirihluti í Norður-Hull
McNAMARA
millwawd
mundi verða „stórglæsilegur
sigur fyrir Wilson". Hull-búar
eru ekki sérstaklega h. ifnir af
Wilson um þessar mundir og
hafa reyndar aldrei verið, svo
að McNamara þykir hafa verið
seinheppinn. Mikil óánægja
ríkir nú í Bretlandi vegna
þess, að mikill rafmagns- og
gasskortur hefur gert fólki líf-
ið erfitt að undanförnu, auk
þess sem járnbrautarsamgöng-
ur hafa verið í megnasta ó-
lestri í vetur.
• Toby Jessel er frambjóð-
andi íhaldsflokksins. Hann er
31 árs gamall kaupmaður frá
Lundúnum, bráðduglegur, vell
ríkur og gáfaður maður, sem
hefur sýnt óvenjulegan dugn-
að í kosningabaráttunni. Hann
gengur milli húsa allan dag-
inn og talar við fólk, en á
kvöldin heldur hann ræður og
skrifar ávörp. Hann ræðst
harkalega á stefnu Verka-
mannaflokksins í innanlands-
málum, rafmagns- og gasleysi,
hækkandi verðlag á öllum lífs
nauðsynjum o. s. frv. íhalds-
menn eru mjög sigurvissir og
baráttuglaðir. Þykir það
stinga nokkuð í stúf við'kosn-
ingabaráttu Verkamanna-
flokksins, sem þykir hafa ver-
ið nokkuð þunglamaleg fram
til þessa. Hann talar með fyr-
irlitningu um „mútur Wilsons"
og á þar við loforð brezku
stjórnarinnar um ýmiss konar
framkvæmdir, endurbætur og
aukna fjárfestingu í Hull.
• Frú Laurie Millward
er frambjóðandi Frjálslynda
flokksins. Hún er húsmóðir í
Hull og á eina dóttur, korn-
unga. Hún er vinsæl í Hull,
en er ekki talin munu fá fleiri
atkvæði en 1964. Þá fékk hún
talsvert af atkvæðum ó-
ánægðra Ihaldsmanna, óflokks
bundins, ungs fólks og kven-
fólks. Hún vill engu spá um
úrslitin.
• Richard W. Gott býður
sig fram fyrir hið svonefnda
Rótæka bandalag („Radical
Alliance"). Gott er 27 ára
gamall blaðamaður, rauðhærð
ur og rauðskegg j aður, sem
hefur eiginlega ekki nema eitt
mál á stefnuskrá sinni: Að
vera á móti eindregnum
stuðningi brezku Verkamanna
stjórnarinnar við stefnu Banda
ríkjanna í Víetnam. Hann var
í Verkamannaflokknum og
segist hafa farið í framboð til
þess að vekja athygli á bar-
áttumáli sínu. Það hefur hon-
um tekizt, og honum er sama,
þótt framboð hans steypi
brezku ríkisstjórninni. Hann
segir, að Verkamannaflokkur-
Framhald á bls. 16