Morgunblaðið - 27.01.1966, Blaðsíða 13
Fimmtadagur 27. jaíúar 1966
MOHGUNBLAÐID
13
varla boltann fyrir hárinu
Fjörugir leikir unga fólksins
að Hálogalandi
1 vonbrigðum, því Keflvíkingar
hafa á undanförnum árum átt
góðan II. flokk karla. Trú hef
j ég á að þeir séu aefingarlitlir.
Færri urðu leikir yngri flokk
•* iR — ÍBK í 3 fl.
Afiðvikudaginn 19. janúar
Miðvikudaginn 19. janúar
léku í III. fl. A-riðli, Í.R. og Í.B.
K. Leikur þessi var mjög fjör-
ugur og skemmtu hinir ungu á-
horfendur sér vel, og hvöttu sína
menn dyggilega.
Í.R.-ingarnir skoruðu tvö
fyrstu mörk leiksins, en Í.B.K.
skoraði sitt fyrsta mark úr víta-
kasti. Eftir það varð leikurinn
m jög jafn og skiptust liðin
að skora. í hálfleik var staðan
5:5.
Strax á fyrstu mínútu seinni
hálfleiks skora liðin sitthvort
markið og enn er jafntefli 6:6.
Í.R.-ingarnir komast yfir 7:6, en
Í.B.K. jafnar úr vítakasti. Leik-
urinn heldur áfram og Í.R.-ing-
arnir eru yfirleitt fyrri til að
komast yfir en Í.B.K. tekst alltaf
að jafna.
hað er ekki fyrr en á síðustu
mínútu leiksins að Í.R.-ingarnir
tryggja sér sigurinn, og áttu þar,
þeir Ásgeir og Örn skemmtileg-
an samleikskafla og komust í
opið færi á línu, og sendi Örn
boltann viðstöðulaust í netið.
Í.R.-liðið er svo sem áður hef-
ur verið sagt hér, mjög efni-
le.gt, leikið með boltann en er
þó ekki nærri nógu yfirvegað í
leik. Beztir voru þeir Örn og
Ásgeir. Í.B.K.-liðið stóð vel í Í.R.
ingunum og nýttust tækifæri
þeirra vel. Þeir spila þó full
hratt miðað við leikni. Hinir
hárprúðu markmenn beggja liða
stóðu sig vel, en smeykur er ég
um að „bítlahárið" hái þeim.
★ Þróttur — ÍBK. 2. fl.
karla 17—8.
Sama dag léku í II. fl. karla
B-riðli Þróttur og Í.B.K.
Leikurinn hafði staðið yfir í
fjórar mínútur er fyrsta markið
var skorað og voru þar Í.B.K. að
verki.
Þróttararnir jafna það míntúu
síðar úr vítakasti.
Á 6. mínútu skora bæði lið-
in sitthvort markið og er jafn-
tefli 2:2.
7. mínúta er einnig notuð vel
ef báðum liðum og bæta þau
við sig einu marki. Eftir það
tekur Þróttur leikinn í sínar
hendur og skorar á síðustu átta
mínútum fyrri hálfleiks 3 mörk
á móti 1 frá Í.B.K.
Seinni hálfleikur var svipaður
og seinnihluti fyrri hálfleiks
Þróttararnir voru óstöðvandi og
settu hvert markið á fætur öðru.
Á fyrstu fjórum mínútumim
skoruðu Þróttararnir 3 mörk án
þess að Í.B.K. svaraði fyrir sig.
Eftir það komast t.B.K. (Kefl-
víkingamir) aðeins í gang og
skora tvö mörk á móti tveim
frá Þrótti.
En Þróttararnir láta ekki þar
við sitja og bæta við sig 6 mörk-
um á móti 2 frá Í.B.K. Endaði
leikurinn með yfirburða sigri
Þróttar 17:8.
Þessi sigur Þróttar var næsta
auðveldur og ef til vill lítið hægt
að dæma Þróttarliðið eftir leikn
um Þó eru þeir seigir, nokkuð
jafnir, leika ekki af neinum
hamagangi, utan einn. Mark-
mennimir báðir eru efnilegir. í.
B.K.-liðið olli mér nokkrum
Kristinn FH skorar hér eitt af mörkum FH í leiknum gegn ÍBK
Kappleikir unga fólksins
anna um helgina, en í upphafi
var ætlað þar sem stúlkur Vest-
mannaeyjaliðanna, fengu ekki
ferðaleyfi vegna prófa, varð því
að fresta leikjum þeirra um ó-
ákveðinn tíma.
Fyrsti leikurinn á sunnudag-
inn var leikur í II. fl. kvenna A-
riðli.
fimm mörk gegn einu frá Í.B.K.
Það var ekki fyrr en á síðustu
9 mínútum sem að Í.B.K. veitti
F.BL einhverja mótspyrnu. A
þeim tíma skora bæði þrjú
mörk hvort, en þetta dugði
skammt því F.H.-ingarmr höfðu
áður tryggt sér átta marka for-
skot.
Það var barist af karlmen nsku í leik ÍR og KA í 2. fl.
Aðdáendur hvetja sína menn
f.A. — Fram 3:8.
Stúlkur Í.A. Akranesi mættu
þá til leiks gegn hinu sterka liði
Fram. Svo sannarlega má segja
að Í.A.-stúlkurnar hafi komið
nokkuð á óvart í fyrri nálfleik,
en þá höfðu þær yfir 3:2.
Seinni hálfleikur gekk ekki
eins vel hjá þeim því ekki tókst
þeim að skora hjá Fram. Þrátt
fyrir ítrekaðar tilraunir.
Fram-stúlkurnar náðu sér
loks á strik í seinni hálfleik og
skoruðu fimm mörk gegn engu
frá Í.A. Leikurinn endaði því
með sigri Fram 8:3. Þetta var
ágætlega af stað farið hjá Í.A.-
stúlkunum, en þær skortir
greinilega meiri keppnisreynslu.
Fram-stúlkurnar voru daufar
í fyrri hálfleik, en sýndu síðan
í seinni hálfleik hvað þær eiga
til, vörnin var ágæt og sóknar-
leikurinn góður síðustu tíu min-
úturnar.
II. flokkur karla B-riðill.
★ F.H. — I.B.K. 18:10.
Leikur þessi var sæmilega
leikinn af báðum liðum.
F.H. liðið var ákveðnara frá
byrjun leiksins, og hafði yfir í
hálfleik 10:6. í síðari hálfleik
komu yfirburðir F.H. betur í
ljós. Á fyrstu 6 mínútum þess
hálfleiks skoruðu F.H.-ingarnir
Úrslittölur leiksins urðu 18:
10 F.H. 'í vil. Þorvaldur í F.H.-
liðinu skoraði rúmlega helming
marka F.H. F.H.-liðið var betri
aðilinn, lék betur og átti betri
skyttur, Í.B.K.-liðið virtist eins
og áður hefur verið sagt, ekki
vera enn í nægilega góðri æf-
ingu.
Bæði liðin sýndu slappan
varnarleik.
II. fl. karla A-riðill
I.R. — K.R. 12:8.
Liðin voru mjög jöfn í byrjun
og gættu sín vel í sókn og vörn.
Það var ekki fyrr en 5. mínútur
að Í.R.-liðið tók af skarið og
skoraði fyrsta mark leiksins af
línu, og tveim mínútum síðar
bættu þeir við tveim mörkum.
K.R.-liðið lét það ekkert á sig
fá og gætu þeir sín vel í sókn,
á 8. mínútu skora þeir sitt fyrsta
mark af línu.
Litlu síðar bæta Í.R.-ingarnir
við sig fjórða markinu.
Og þar á eftir fylgja svo tvö
mörk sem bæði eru skoruð úr
vítaköstum. K.R.-ingarnir skor-
uðu á síðustu mínútu fyrra hálf
leiks eitt mark. Staðan í hálf-
leik var því 6:2 Í.R. í vil.
Seinni hálfleikur var jafnari
og voru K.R.-ingarnir þá heldur
djarfari í skotum. Eftir fimm
mínútna leik er staðan orðin 8:
5. A síðustu tíu mínútunum
skoruðu I.R.-ingarnir 4 mörk
gegn 3 frá K.R. K.R.-ingarnir
misnotuðu eitt vítakast. Leikur-
inn endaði því með sigri Í.R.
12:8.
Í.R.-liðið lék nokkuð vel og
vörn liðsins var ágæt sérstaklega
í fyrri hálfleik, K.R.-liðið er
gott lið þeir léku nú rólega og
fóru sér að engu óðslega, voru
þó full rólegir á köflum í fyrri-
hálfleik.
IH. flokkur karla A-riSiIl.
★ I.B.K. — Fram 8:11.
í,3.K.-liðið mætti nú Fram í
III. flokki og stóðu sig veL
Strax í byrjun leiksins skora
bæði liðin sitthvort markið, við
mikinn fögnuð aðdáenda sinna
sem létu heyra rækilega í sér.
Framararnir taka sig nú til og
skora tvö næstu mörkin. Þá taka
Keflvíkingarnir við og skora
mark. Ekki létu Framaramir sér
það vel líka og sóttu stíft á,
Keflvíkingarnir vörðust vel, en
fengu dæmí á sig vítakast og
notuðu Framararnir sér það vel
og skoruðu úr því.
Strax upp úr því skora Kefl-
víkmgarnir mark af línu og
Staðan er orðin 4:3. Litlu síðar
bæta Keflvíkingarnir enn við
sig marki og jafna nú metin 4:4.
Framararnir skora á síðustu
þrem mínútum fyrri hálfleiks 2
mörk gegn 1 frá Í.B.K. Staðan
í hálfleik 6:5 fyrir Fram.
Framararnir náðu sér veru-
lega vel upp á fyrstu fjórum
mínútunum í seinni hálfleik og
skora þá fjögur glæsileg mörk
aflínu. Eftir þessa góðu byrjun
Framaranna taka Keflvíkingarn
ir við og skora tvö mörk. Stað-
an 10:7, bæði liðin bæta við sig
einu marki fyrir leikslok og end
ar leilourinn með réttlátum sigri
Fram 11:8. Þetta var skemmti-
legur leikur hjá báðum liðum.
IH. flokkur karla B-riðiII.
ic Breiðablik — Ármann 8:8
Þessi lið léku fimmta leik
kvóldsins. Þetta var jafnteflis-
legur leikur frá byrjun til loka.
Ármenningarnir skoruðu tvö
fyrstu mörk leiksins, en þá tóku
Breiðablik-piltarnir við og skor-
uðu þrjú næstu mörk og komust
þar með yfir. En Ármanns-pilt-
unum tókst að jafna á 9. mín-
útu með marki af línu. I hálf-
leik jafntefli 3:3. Seinni hálfleik
ur var jafn og spennandi, Ár-
mannspiltarnir komust fyrr í
gang og skoruðu á þrem mínút-
um þrjú mörk, en á sama tíma
skoraði Breiðablik eitt. í lok-
in hertu Breiðablikspiltarnir sig
og skoruðu fjögur mörk á móti
tveim frá Armanni. Leikur þessi
endaði með jafntefli 8:8, og eru
það úrslit sem bæði liðin mega
vel við una. Það er ánægjulegt
með bæði þessi félög að þau
skuli nú koma með III. flokks
Framhald á bls. 27
„Bítlarnir“ í mörkunum sáu