Morgunblaðið - 27.01.1966, Blaðsíða 16
16
MORG U N B LAÐIÐ
Fimmtudagur 27. janúar 1966
Nýi frílistinn
HÉR FER á eftir skrá yfir þær
vörur, sem nú hafa verið settar
á frílista, svo og listi yfir inn-
flutningskvóta nokkurra vöruteg
unda 1966:
Nýi frílistinn
Malt, óbrennt eða brennt.
Kartöflusterkj a.
Sikoriurætur, nýjar eða þurrk-
aðar, heilar eða sundurskornar.
Humall og humalmjöl.
Steinsykur (kandís).
Drúfusykur (glúkósi).
Ávextir, frystir með sykri.
Gips, anhydrít, brennt gips,
einnig litað eða lítils háttar bætt
mýkingarefni.
Eldspýtur (þó ekki bengalskar
eldspýtur).
Annar trjávfður úr barrtrjám,
sagaður.
Annar trjáviður úr barrtrjám,
heflaður.
Gólfteppi, hnýtt.
Önnur góifteppi.
Sokkar, þó ekki heilsokkar
kvenna úr silki eða gerviþráðum.
Sokkar, leistar, sokkahlífar og
annað þ.h. úr baðmull.
Nærfatnaður, prjónaður úr
baðmull.
Nærfatnaður karla (þar meðt.
skyrtur) úr baðmull.
Nærfatnaður kvenna úr baðmull.
Annar skófatnaður me'ð ytri sóla
úr gúmmi.
Kvenskór með ytri sóla úr gúmmí
Hællausir strigaskór.
Annar skófatnaður með ytri sóla
úr gúmmí.
Flöskur, ámur, krukkur o. fl.
Vörur úr asfalti (þó ekki vegg-
og gólfflísar).
Plötur, flísar, hellur og þess hátt
ar vörur úr jurtatrefjum, viðar-
spónum, límt saman með sementi
eða gipsi.
Vörur úr sementi (þar með talið
gjallsement úr steinsteypu.
Vörur úr asbestsementi, úr sellu-
lósasementi.
Vörur úr steini eða jarðefnum
(þó ekki búsáhöld).
Pípur, rennur og pípuhlutar
(fittings).
Stálvír í nagla.
Annar stálvír.
Stengur úr járni eða stáli, heit-
vaJsaðar, slegnar, þrykktar eða
kaldunnar.
Prófíljárn og stál, heitvalsað,
þrykkt eða kaldunni'ð.
Þynnur og plötur úr járni eða
stáli, heit- eða kaldvalsaðar, yfir
4,75 mm að þykkt.
Þynnur og plötur úx járni eða
stáli 3—4,75 mm.
Þynnur og plötur úr járni og
stáli minna en 3 mm. að þykkt.
Þynnur og plötur, tina'ðar.
Aðrar þynnur og plötur.
Járn og stálvír, einnig húðaður.
Stállegeringar og koJefnisríkt
stál, vírstengur og stangajárn.
Stállegereingar og kolefnisríkt
stál. Prófíljárn og stál.
Stállegeringar og kolefnisríkt
stál. PJötur og þynnur yfir 4,75
mm. að þykkt.
Plötur og þynnur minna en 3 mm.
þykkt úr kolefnisríku stáli.
Aðrar vörur úr gleri.
Plötur og þynnur 3—4,75 mm.
að þykkt úr stállegeringum.
Plötur og þynnur minna en 3mm.
áð þykkt, ekki plettaðar, húðaðar
eða klæddar, úr kolefnisríku
stáli.
Plötur og þynnur, minna en 3
mm. að þykkt, ekki plettaðar,
húðaðar eða klæddar, úr stál-
legeringum.
Plötur og þynnur, minna en 3
mm. að þykkt, pletta’ðar, húðað-
ar og klæddar úr kolefnisríku
stáli.
Plötur og þynnur, minna en 3
mm. að þykkt, plettaðar, húðað-
ar og klæddar úr stállegeringum.
Vír úr kolefnisríku stálL
Vír úr stállegeringum.
Pípur úr steypujárni, þó ekki
nikkel- og krómhúðaðar og vatns
lásar.
Pípur úr járni (nema steypu-
járni) e’ða stáli, þó ekki rafmagns
pípur og nikkelhúðaðar eða króm
aðar pípur.
Pí; hlutar (fittings) t.d. hólkar,
hné, tengi og nipplar, úx járni
eða stáli þó ekki fittings fyrir
rafmagnspípur.
Gaddavír úr járni eða stáli, snún
ar gjarðir eða flatur vír, laus-
snúinn tvöfaldur vír til girðinga.
Steypustyrktar- og múrhúðunar-
net.
Vír, ekki einangraður og gadda-
vír úr alumíni.
Jarð- og sæstrengir.
Eldhúsinnréttingar skápar til
múr- og naglfestingar.
Sæti í bifreiðar.
Aukinn innflutningskvóti
(Krónutalan fyrir aftan táknar
innflutningskvóta 1966 fyrir
hvern vöruflokk).
Mjólkurafurðir, fuglaegg, kr.
150.000.
Kartöflur, nýjar, kr. 3.000.000.
Óbrennt kaffi, kr. 10.000.000.
Molasykur, strásykur, kr. 15,-
000.000.
Tyggigúmmí, húðað með sykri
og óhúðað, kr. 2.000.000.
Ávextir, ávaxtahýði með syk-
urhúð, kr. 4.000.000.
Portlandssement, alúmínatsem-
ent, slaggsement og annað hydrol
iskt sement, einnig litað eða sem
sementsgjall, kr. 10.000.000.
Steinkol, kr. 700.000.
Koks og hálfkoks úr steinkol-
um, brúnkolum eða mó, krónur
300.000.
Krossviður, spónlagður trjávið
ur og aðrar límdar plötur, einnig
í sambandi við önnur efni, inn-
lagður viður (með áteiknuðu eða
máluðu mynstri); holplötur (lam
elplötur), einnig lagðar ódýrum
málmum; gervitrjáviður úr spón-
um o. s. frv., þó ekki plasthúðað-
ar plötur, kr. 20.000.000.
Byggingaplötur úr viðartrefj-
um eða öðrum jurtatrefjum, einn
ig límdar með náttúrulegum
harpix, gerviharpix eða öðrum
þess háttar bindiefnum, þó ekki
plasthúðaðar plötur, kr. 12.000.-
00.
Heilsokkar kvenna og aðrir
sokkar, leistar, sokkahlifar og
annað þess háttar úr silki eða
gerviþráðum, kr. 15.000.000.
Óunnið, steypt eða valsað gler,
teygt eða blásið, kr. 12.000.000.
Rafhreyflar og spennar (trans-
formatorar) þó ekki spennar
(ballats) fyrir fluorescentljós, kr.
8.000.000.
Vopn og skotfæri og hlutar til
þeirra, þó ekki línubyssur, hval-
veiðibyssur og skutlar og slcot ,í
hvalveiðibyssur og línubyssur,
kr. 6.000.000.
Húsgögn og hlutar til þeirra,
rúmbotnar, dýnur, púðar og þess
háttar stoppaður húsbúnaður, þó
ekki eldhúsinnréttingar og skáp-
ar til múr- og naglfestingar, sæti
í bifreiðar og aðrar vörur, sem
eru á frílista, kr. 12.000.000.
Burstagerðarvörur, þó ekki
burstar, sem eru hlutar af vélum,
málningarrúllur, gúmmíþvögur á
skafti, skaftþvögur, tannburstar
og listmálunarpenslar, kr. 2.000,-
000.
Listaverk, safnmunir, forngrip-
ir, kr. 500.000.
Vörur, sem falla undir önnur
tollnúmer og ekki er frjáls inn-
flutningur á, kr. 500.000.
Færi og línur til fiskveiða, 300
tonn.
Kaðlar, þó ekki grastóg og vír-
manilla, 600 tonn.
Fyrri hluta ársins 1966 vprður
gerð úthlutun til innflutnings á
rafgeymum og efni í þá (85.04.01;
85.04.09) fyrir allt að 1% milljón
króna en innflutningur á þeim
vörum verður frjáls frá 1. júlí
1966.
Ofangreindir innflutningskvót-
ar gilda um vörukaup frá öðrum
löndum en jafnkeypislöndum
(Áustur-Þýzkalandi, Brazilíu, Pól
landi, Sovétríkjunum, Tékkósló-
vakíu og Ungverjalandi).
— Frjáls innfluin.
Framh. af bls. 1
inn.Enn fremur er tilkynnt um
stækkun á svonefndum innflutn-
ingskvótum fyrir ýmsar vörur,
þ.e.a.s. aukið er það vörumagn,
sem heimilt er að flytja inn frá
útlöndum af ýmsum vörutegund-
um, sem heildarinnflutningur er
takmarkaður á. Ekki er hér unnt
að nefna allar þær vörur, sem
nú bætast á frílistann. Það yrði
of langur lestur. Hinar helztu
þeirra eru timbur, járn og stál,
eldhúsinnréttingar og skápar
pípuhlutar, skyrtur, nærfatnað-
ur úr baðmull, karlmannssokkar,
gúmmískófatnaður og gólfteppi.
Á árinu 1964 nam innflutningur
þeirra vörutegunda sem nú bæt-
ast við frílistann 395 millj. kr.
og var 7% heildarinnflutnings á
því ári. Hér er um að ræða
stærsta spor, sem stigið hefur
verið til stækkunar frílistans,
síðan í maí 1960, er breytt var
um stefnu í innflutningsmálum í
samræmi við s) irnarsáttmála
núverandi stjórnarflokka, þegar
þeir komu sér saman um mynd-
un ríkisstjórnar í árslok 1959.
Jafnframt eru innflutningskvót-
ar nokkurra vörutegunda auknir.
Helztu vörurnar, sem það á við
um, eru húsgögn og sement, og
nýjar vörur, sem nú munu fá
smávægilegan innflutningskvóta,
eru óbrennt kaffi og nokkrar
sælgætistegundir.
Hlutdeild algjörlega frjáls inn
flutnings mun nú aukast úr
79,2% í 86,2% heildarinnflutnings
eins og hann var 1964. Meira en
helmingur þess innflutnings, sem
enn er háður einhvers konar
leyfisveitingu, er benzín og
brennsluolíur, sem eingöngu eru
Gylfi Þ. Gíslason
fluttar frá Austur-Evrópulðnd-
um, en innflutningur þaðan er
ekki takmarkaður á. Aðrir -vöru-
flokkar, sem enn eru háðir leyf-
um, eru m.a. sykur, kaffi, kven-
sokkar krossviður bg húsgögn.
En allar þessar vörur er frjálst
að flytja inn án nokkurra tak-
markana frá jafnkeypislöndun-
um. Innflutningur erlendrar land
búnaðarvöru, sem keppa mundi
við innlenda landbúnaðarfram-
leiðslu, er hins vegar bannaður.
Þessar ráðstafanir, sem nú hef-
ur verið lýst, eru liður í þeirri
stefnu ríkisstjórnarinnar að veita
neytendum kost á æ fjölforeytt-
ara vöruúrvali og stuðla að auk-
inni samkeppni í verzluninni.
Aukið vöruúrval gerir neytend-
um auðveldara að fullnægj þörf-
um sínum, og aukin samkeppni
ætti smám saman að hafa í för
með sér stöðugra verðlag. Á hinn
bóginn hefur ríkisstjórnin viljað
gæta þess vandlega, að aukinn
vöruinnflutningur frá frjálsgjald-
eyrislöndum og minnkaður vöru-
innflutningur frá jafnkeypis-
löndum stofnaði ekki útflutnings
mörkuðum þjóðarinnar í jafn-
keypislöndunum í hættu. En á
síðari árum hafa viðskipti okkar
við jafnkeypislöndin og þá eink
um löndin í Austur-Evrópu
smám saman verið að breytast
þannig, að kaup þeirra á íslenzk
um afurðum hafa minnkað meira
en kaup okkar á þeirra
vörum. Ef litið er á jafnkeypis-
löndin í heild, keyptum við
meira frá þeim á s.l. ári en þau
af okkur, svo að staða okkar
gagnvart þeim versnaði á s.l. ári.
Bendir þetta eindregið til þess, að
óhætt sé að draga úr þeirri vernd
sem þessir útflutningsmarkaðir
hafa notið. Þá hefur það sjónar-
mið verið haft í huga á undan-
förnum árum, að stO'fna ekki
réttmætum hagsmunum íslenzks
iðnaðar í hættu með því að fella
innflutningshöft snögglega úr
gildi á vörum, sem framleiddar
eru innanlands. Tillit hefur enn
verið tekið til þessa atriðis, en
þess ber jafnframt að gæta, að
íslenzkur iðnaður nýtur yfirleitt
mikillar tollverndar. í þeim
greinum, þar sem tollverndin er
mest, á iðnaðurinn ekki að
þurfa að óttast erlenda iðnaðar-
vöru, þótt innflutningur hennar
sé frjális. Oft er tollverndin raun
ar svo mikil, að full ástæða er
til þess að draga smám saman úr
henni í því skyni að lækka vöru-
verð £ landinu, þótt slíkt verði
að sjálfsögðu að gera smám sam-
an, þannig að iðnfyrirtækin eigi
þess kost að laga sig að breytt-
um aðstæðum.
í kjölfar þessara ráðstafana í
viðskiptamálum mun á næst-
unni sigla aukið vöruframboð á
ýmsum sviðum og aukin sam-
keppni í viðskiptalífinu. Það er
skoðun ríkisstjórnarinnar, að með
þessu sé stefnt í rétta átt. Það,
sem fyrst og fremst hefur gert
kleift að gera þessar ráðstafanir,
er sú staðreynd, að afkoma þjóð-
arinnar út á við er mjög góð. Á
síðastliðnu ári hélt gjaldeyris-
varasjóður þjóðarinnar áfram að
aukast. Hann jókst úr 1600 millj.
kr. í ársbyrjun í 1900 millj. kr.
í árslok. Án þessarar þróunnar
hefði hvorki verið unnt né ráð-
legt að stíga þau spor í viðskipta
málum, sem nú hafa verið stigin.
Þannig eru bein tengsl milli
þeirrar stefnu í bankamálum og
efnahagsmálum yfirleitt, sem
stuðlað hefur að aukningu gjald-
eyrisvarasjóðsins, óg þeirra ráð-
stafana í viðskiptamálum, sem
nú er verið að gera.
Á hinn bóginn er ríkisstjórn-
inni Ijóst, að þessar ráðstaíanir
einar sér nægja ekki til þess að
draga úr þeirri þenslu, sem nú er
í íslenzkum efnahagsmálum og
ríkisstjórnin telur brýna nauðsyn
til að vinna af alefli gegn. I því
sambandi er sérstaklega þýðing-
armikið að heilbrigt samstarf
geti tekizt á milli launþegasam-
taka og ríkisvalds um að tryggja
jafnvægi í efnahagsmálum þjóð-
arinnar, samfara því, að laun-
þegum sé tryggð réttmæt hlut-
deild í aukningu þjóðarfram-
leiðslunnar. Ríkisstjómin mun
framvegis eins og hingað til
leggja á það megináherzlu, að sá
vöxtur þjóðarframleiðslu, sá bati
á gjaldeyrisstöðu og sú lífskjara-
bót, sem verið hefur einkenni
efnahagsþróunarinnar undanfar-
in ár, haldi áfram að móta ís-
lenzkt efnahagslíf, og að það
jafnvægi, sem er undirstaða slíkr
ar þróunar, raskist ekki til fram-
búðar. Þær ráðstafanir í við-
skiptamálum, sem tilkynnt hef-
ur verið um nú i dag, eru einn
þáttur í viðleitni ríkisstjórnar-
innar til þess að ná þessu mark-
miði.
— Þolinmæði
Framh. af bls. 1
tilraunir Bandaríkjastjórnar til
þess að koma á friðarviðræðum
hafi engan jákvæðan árangur
borið. Á hinn bóginn sé ijóst af
ljósmyndum, er honum hafi hor-
izt frá Vietnam, að Norður-
Vietnam-stjórn hafi notað
síðustu daga og vikur til sívax-
andi liðsflutninga til S-Vietnam.
Lagði forsetinn myndir þessar
fram á fundi í Hvíta húsinu í
dag.
Það sem m.a. þykir renna stoð
um að þeirri skoðun, a'ð loftárás
ir verði teknar upp á ný, er heim
sókn bandaríska sendiherrans í
Tókíó, Johns Emersons í morg-
un, til aðstoðar-utanríkisráðherra
Japans. Segir eftir áreiðanleg-
um heimildum, að Emmerson
hafi tjáð rá’ðherranum, að Banda
ríkjastjórn gæti ekki lengur beð-
ið þess, að stjórnin í Hanoi sýndi
einhver merki vilja um frið-
samlega lausn Vietnam málsins.
Dean Rusk, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, hélt ræðu á fundi
utanríkisnefndar Bandaríkjaþings
í dag og fór þess á leit, að veitt
yrði aukið fé til aðstoðar S-Viet-
nam bæði hernaðarlegrar og efna
hagslegrar, sem væri ekki síður
mikilsvert í baráttunni gegn
kommúnistum. Rusk sagði, að í
Vietnam væri um það að ræða
að ákveða, hvort láta ætti undan
yfirgangsstefnu. Hann kvaðst
stundum furðu lostinn yfir þeim
tvískinnungb sem ríkti í mati
manna á atburðum í Vietnam.
Það væri lagður mismunandi
mælikvarði á sprengjur eftir því
hverjir vörpuðu þeim og hvern-
ig. Kvaðst hann sjálfur ekki sjá
annað en að sprengja væri
sprengja — hvort sem henni væri
varpað úr lofti eða af landi og
ihvort sem það væru bandariskir
hermenn eða kommúnískir
skæruliðar, sem vörpuðu þeim.
Rusk fór fram á 415 milljón
dollara fjárveitingu þingsins,
sem að mestu á að ganga til S-
Vietnam.
Raeða Suslovs í Róm
í NTB-frétt frá Rómaborg seg-
ir frá ræðu, er Mikhail Suslov
hugtakafræðingur sovézka komm
únistaflokksins hélt þar í borg í
dag. Þar sagði hann m.a., að Sov
étstjórnin hafði veitt stjórn N-
Vietnam verulega aðstoð í bar-
ábtunni gegn bandarískum heims
veldasinnum, sem hann réðist
harkalega á. Suslov sagði það
meginstefnu Sovétstjórnarinnar
að vinna að friðsamlegri sambúð
þjóða — en jafnframt að veita
aðstoð þjóðum, er ber’ðust gegn
kúgun og yfirgangi heimsvalda-
sinna. Hann kvað það reynslu
sína, að eftir því sem samheldni
þjóða heimsveldasinna minnkaði,
því meira ykist stríðshættan í
heiminum. Árásaröflin spöruðu
hvorki fé né mannafla til þess að
reyna áð stöðva óhjákvæmilega
þróun heimssögunanr.
Frá Vietnam berast fregnir um
hörð átök og árásir af beggja
hálfu. Stjórnin í Saigon tilkynnti
í dag, að hún hefði ákveðið að
láta lausa 20 stríðsíanga frá N-
Vietnam í tilefni áramótahátíðar
Vietnambúa. Að vísu sagði stjórn
in, að ráðamenn í Hanoi hefðu
neitað því að í liði S-Vietnam
væru hermenn frá N-Vietnam —
en engu að sfður yrði mönnunum
sleppt við Ben Hai brúna við
landamæri N- og S-Vietnam.
Sáttanefnd
Fregnir frá Addis Abeba
herma, að stjórnin í Somalíu hafi
lagt til að skipuð verði nefnd full
trúa Asíu og Afríkuríkja, er hafi
á hendi sáttatilraunir í deilunni
um Vietnam. Sendiherra Somaliu
í Addis Abeba sagöi á fundi með
fréttamönnum í dag, að hlutverk
slíkrar nefndar ætti að vera að
koma á viðræðum allra hlutað-
eigandi aðila, fá sami'ð vopna-
hlé, fá erlent herlið flutt burt, er
lendar herstöðvar lagðar niður
og sjá um, að frjálsar kosningar
yrðu haldnar í öllu landinu.
Arekstur
ÁRBKSTUR varð um hádegis-
bilið í gær á móts við Suðurgötu
39 milli bifreiðarinnar E-81 og
Volgufoíls úr Reykjavók. Aðeins
ökumennirnir voru í bifreiðun-
uim og meiddisit hvorugur, en
báðar bifreiðarnar skemmdust
lítillega. Hálka á veginum olli
árekstrinium, að því að talið er.
— Oddur.
— Landvarnarm.
Framliald af bls. 1
landvarnamál Bretlands yfirleitt
og þó einkum í löndum austan
Súez. Sagði þar, að kæmi ekki til
rífleg aðstoð Bandaríkjanna,
gætu Bretar efkki staðið við
ýmsar hernaðarlegar skuldlbind-
ingar á því svæði, m.a. yrðu þeir
þá að draga úr aðstoð við Ind-
land og Pakistan, kalila burt her-
styrk sinn frá Persaflóa og verða
brott frá Aden, áður en langt
um liði.