Morgunblaðið - 20.02.1966, Side 7
Sunnudagur 20. febrðar 1968
MORGUNBLAÐIÐ
7
VIETCONG uppreSsnarmaður úr KÓPAVOGI
„OG þá dró landinn upp
Morgunblaðið frá áramótum
og þýddi klausu úr áramóta-
‘ annál fyrir mexikönsku
landamæraverðina, benti á
mig, og sagði: „Þetta er Viet-
| Cong-uppreisnarmaður úr
Kópavogi“, og það var eins og
við manninn mælt; ég fékk
ekki að fara yfir landamær-
! in“.
I Það er Þórður Þorsteins-
' son, á Sæbóli sem segir svo,
þegar blaðamaður Morgun-
blaðsins hitti hann að máli
í gær, en Þórður var ásamt
konu sinni frú Helgu Sveins-
dóttur að koma vestan úr
hinu vilta vestri í gærmorg-
un og hafði frá mörgu að
segja.
„Já, þetta er satt með
Mexikanana, en sagan er sú,
að ég ætlaði suður yfir landa-
- , mærin, og hitti þá íslending
! þar, sem heilsaði mér glað-
I klakkalega og sagði: „Ertu þá
kominn aftur!“, síðan tók
hann annálinn í áramótamorg
unblaðinu, þar sem ég er
kallaður Víet-Cong uppreisn-
armaður úr Kópavogi, og fer,
sjálfsagt í gríni, að þýða þetta
fyrir landamæraverðina. Þeg-
ar ég svo setlaði að halda
för minni áfram, lögðu þeir
blátt ban.n við, nema ég hefði
til þess leyfi frá ræðismann-
inum í Reykjavík, og gátu
þess um leið, að það gæti tek-
ið 6 mánuði að afla þess.
En við vorum ekkert að
láta þetta á okkur fá, heldur
skruppum með það sama til
Hollywood og dembdum okk-
ur þar inn á Palladium leik-
húsið. Konan skipti úm bún-
ing og skartaði íslenzkum
þjóðbúningi, og sá vakti nú
athyglina, maður! Þarna voru
heimsfrægir skemmtikraftar,
sem sumir þekkjast hér úr
sjónvarpinu, t.d. Lawrence
Welk, sem er einn almesti
indælismaður, sem ég hefi
kynnst. Við kölluðum hann
Lárus. Hann minnti mig einna
helzt á Pál ísólfsson. Það var
ógnar kraftur í honum. Þetta
var alltaf áfram, hjá honum,
og hann lét okkur syngja með
eins og í þjóðkór. Indælis
maður, hann Lárus.
Þarna á Palladium var
fjörið geysilegt. Maður lifði
sig alveg inn í dansinn,
þetta minnti mann einna
helzt á hjónaball vestur í
Ögursveit, þegar maður dans
aði þar á torgi lífsins þar til
sól reis í austri að morgni.
Gömlu lögin voru spiluð, og
maður tók salinn í 4 stökk-
um í Mazurka eins og þeir
gerðu í Fætinuon undir Fótar
fæti í mínu ungdæmi vestur
þar. Og fólkið var einstak-
lega alúðlegt, og Bobby Bur-
gess dansari, sem þú sérð á
myndinni hérna, er prúður
piltur og mannsefni hið mesta.
Gaman var að sjá, þegar hann
dansaði við konu mína á þjóð
búningnum.
Við yfirgáfum þetta fólk
kl. 2, og nú skyldi haldið út
á galeiðuna, og skoða nætur-
lífið rækilega í Hollywood.
Við komum í draugaklúbb-
inn, þar sem allar skreyting-
ar eru lík og beinagrindur,
sem leggur af nályktina. Og
þar náði fjörið hámarki.
Þarna var unga fólkið, og
engu líkara en þarna væru
skot og sprengingar.
Þegar við fórum, reis upp
brúður ein í líkkistu, eins og
hún væri að vakna til lífs-
ins aftur. Óhuggulegra var
samt á einum góðum veitinga
stað, þar sem safnast saman
dreggjar þjóðlífsins, kynvill-
ingar, eiturlyfjaneytendur,
rónar og auðnuleysingjar.
Fólk sækir staðinn mikið til
að sjá þá, en þarna eru lög-
regluþjónar til taks, með
kylfurnar reiðubúnar, ef þessi
lýður ætlar að fara að ybba
sig við aðkomufólkið.
Mér var sagt, að fólk þetta
fengi 50 dollara á viku frá
bæjarfélaginu til að tóra. Ég
ætlaði varla að trúa því, að
svona nokkuð væri til. En ég
vil endilega geta þess, að
mér fannst unga fólkið á
skemmtistöðunum einstaklega
prúðmannlegt, stillt og siðað,
og virti'st lifa heilbrigðu lífi
og kunná að skemmta sér.
Annars fórum við út til að
hitta son okkar og tengda-
dóttur, Sigríði Lúthersdóttur
og Svein Þórðarson, verkfræð
ing, en hann er núna for-
seti íslendingafélagsins í Kali
forniu. Félagið ætlar að efna
til Þorrablóts 12. marz, og fær
matinn sendan héðan að heim-
an.
Við erum búin að vera 6
vikur í ferðalaginu, og þótt
okkur þyki gaman að ferðast,
er ósköp gott að vera komin
heim í heiðardalinn hér í
Fossvogi, Kópavogsmegin við
lækinn“.
Við bjóðum hjónin velkom-
in til íslands um leið og við
kveðjum, en þá segir Þórður:
„Hérna, taktu við nokkrum
bláberjum, sem ég tíndi
þarna vestur í Kaliforniu“,
og rétti okkur tvo pakka af
hraðfrystum bláberjum. Að
vísu hafði hann keypt þau í
búð, en söm var hans gerðin.
Fr. S.
Eins og bjósiisball í Ögursveit
Á þessari mynd má sjá Þórð á Sæbóli og Helgu konu hans,
sem er á íslenzkum búningi innan um hóp íslendinga, aðallega
Vestur-fslendinga, og að auki er þarna frægur dansari, Bobby
i Burgess, sem varff mikilt vinur þeirra hjóna. Meffal þeirra, sem
! j á myndinni sjást eru Guffrún og L. Bleackley, Agnes og Árni
Eggertsson, Margrét og Jack Carten, Ingibjörg Eggertsson,
Sveinn og Sigríffi Þórffarson, sonur og tengdadóttir þeirra hjóna,
í Dina Anderson, Nina Oddgeirsdóttir Guðrún Pétursdóttir og
| Bobby Burgess.
Þórffur og kona hans urffu miklir vinir frægra skemmtikrafta í Hollywood. Á þessari mynd má
þekkja Lawrence Welk, kunnan skemmtikraft úr sjónvarpinu hér, ásamt fleirum.
sá HÆST bezti
Þriggja ára snáði, sonarsonur eins þekktasta háls- nef- og eyrna-
læknis hér í borg, horfði lengi á móður sína og sagði svo:
„Heyrðu, mamma! Átt þú ekki háls- nef- og eyrnalokka?"
VISIJKORM
Björt og fögur bernskulönd
barnsins huga geymi,
Akranes mín æskuströnd
aldrei þér ég gleymi.
Kjartan Ólafsso^
íþúð óskast
Hver getur hjálpað ungum
hjónum með ungt barn,
sem eru á götunni. Upplýs-
ingar í síma 20531.
Innréttinfirar
í svefnherbergi og eldhús.
Sólbekkir. Isetning á hurð
um. Sími 50127.
íbúð óskast
Þerna á millilandaskipi
óskar eftir íbúð í Reykja-
vík. Tilboð merkt: „Lítið
heima — 8594“ sendist
afgr. Mbl.
Klæðum og gerum við
bólstruð húsgögn. 1. flokks
vinna. Sækjum og sendum.
Valhúsgögn, Skólavörðu-
stíg 23. Sími 23375.
PEUGEOT 404
Peugeot
er bíUinn, sem gengur lengur en hinir
PEUGEOT 404 station
Peugeot
Öryggi - Þœgindi - Sparsemi - Ending
Peugeot
PEUGEOT 204
Ritstjóri bílablaðsins Road & Track skipaði Peugeot i
bóp 7 beztu bíla heims. Hinir eru: Rolls Royce, Porsche,
Lincoln, Lancia, Mercedes og Rover. Svo Peugeot er í
góðum félagsskap. Verðið? Peugeot 40 kostar um 237
þús. kr. Og okkur er ánægja að selja yður þann ódýr-
asta af 7 beztu bílum heims.
Eigum á lager bíla af gerðinni 404.
HAFRAFELL HF.
Brautarholti 22. — Sími 22255.
Hið bezta í jarðvegslífi er lífrænt.
Þangið er dýrgripaskrín lífrænna efna.
MAXICROP
100% lífrænn blómaáburður.
Fæst í flestum blómabúðum.
MAXICROP þangvökvi hefur lengi verið notaður
í ríkum mæli af ræktunarsérfræðingum og blóma-
unnendum um heim allan.