Morgunblaðið - 20.02.1966, Qupperneq 31

Morgunblaðið - 20.02.1966, Qupperneq 31
Sunnudagur 20. feb'rúar 1966 MORGUNBLAÐIÐ 31 FÍ flutti 136.793 farþega á sl. ári UPPSEIT 115 AR EL.LA Fitzgerald er á leiðinnl til slands, og um næstu helgi ætlar hún að -syngja af fjölun- um í Háskólabíói. Það er sannar- lega skemmtilegt að þessi fræga söngstjarna skuli leggja lykkju á leið sína til að kynna fyrir okkur list sína. Það er og hefur verið erfitt fyrir svo fámenna þjóð sem okk ur íslendinga að ná hingað heims frægum listamönnum. I>eir eru eins og flestar dauðlegar verur þannig gerðar, að þeir taka því tilboði, sem bezt er fjárhagslega. þessvegna er það mjög erfitt að fá hingað fólk á borð við Louis Armstrong og Ellu Fiztgerald. Hefur heyrzt að Ella sé dýrasti skemmti'kraftur, sem hingað hef- ur verið fenginn til hljómleika- halds, dýrari en Satchmo gamli, sem skemmti hér í fyrra og margir eiga góðar endurminn- ingar um. Ella hefur „oft verið á leið til íslands", þe. samningaumleit- anir hafa staðið yfir, en skyndi- lega hefur slitnað upp úr þeim, eða að þeir sem ætluðu að fá hana hingað gáfust hreinlega upp vegna þess hve dýrt er að fá hana til skemmtanahalds. Nú hefur hinsvegar verið gengið frá öllum hnútum og kl. 18 á fimmtudag mun Ella Fitz- geraid og félagar hennar, tríó hins vel þekkta Jimmie Jónes lenda á Keflavíkurflugvelli í áætlunarþotu Pan American- flugfélagsins. Frá flugvellinum heldur Ella með fylgdarliði sínu til hótel- herbergja sinna á Hótel Sögu, en þar verða til reiðu tvær fbúð- ir og einstaklingsherbergi fyrir hana og hljómsveitina.' Ella er að ljúka við söng- ferðalag sitt, sem hefur staðið frá 23. janúar s.l., en hún hefur nú sungið við húsfylli á hverju kvöldi í nær heilan mánuð í Miinchen, Hamborg, París, Kaup mannahöfn og Gautaborg, en nú síðast var hún í London. í»að er raunar ekkert nýnæmi fyrir Ellu Tveir sóttu um að horfa fram í salinn og sjá hvert sæti skipað. Þannig hef- ur það verið á tónleikum henn- ar í 15—16 ár — alltaf fullt hús, og færri komizt að en vildu. Nú síðast fréttist það af Ellu að hún var komin til Lundúna þar sem færri en vildu fengu miða í Royal Festival Hall, því mið- arnir höfðu selzt upp nokkrum vikum áður. Hér í Reykjavík verða fjórir tónleikar haldnir, en upphaflega hafði verið samið um tvenna tónleika, en nú hefur tekizt að fá Ellu til að halda tvenna til viðbótar. Fyrri tónleikarnir eru laugardaginn 26. febrúar kl. 7.15 og aftur kl. 11.15 og síðan sunnudaginn 27. febrúar á sömu tímum. íslenzk jazz-hljómsveit kemur fram á tónleikunum, en það er hljómsveit Gunnars Ormslev, sem er þekktastur innlendra jazzleikara. — Ungverjaland Framh. af bls. 1. ingum sínum í Ungverjalandi að efla til öflugrar stjórnarand- stöðu heima fyrir til að koma á sundrungu með aðstoð erlendu aðilanna í þeim tilgangi að hrifsa til sín völdin þegar tímabært þætti. Meðal hinna handteknu eru nokkrir kaþólskir prestar. Og einn kaþólskur prestur var á síð- asta ári dæmdur til níu ára fangelsisvistar fyrir undirróðurs- starfsemi. Er það dr. Lazslo Emo- edyi, sem einnig var fangelsaður fyrir sömu sakir árið 1961, en náðaður 1963. Hann er þekktur guðfræðingur og fyrrum náinn samstarfsmaður Mindszentys kardínála, sem leitaði hælis í bandaríska sendiráðinu í Búda- pest 1956 og hefur búið þar síðan. Er dr. Emoedyi talinn einn af leið togum byltingarmannanna. Ekkert hefur verið látið uppi um nöfn annarra leiðtoga, sem handteknir hafa verið. pióiessors- embættið UMSÓKNARFRESTUR um próf eessorsmbætti í meina- og sýkla- fræði rann út 15. þ. m. Umsæk j endur eru: Bjarki Magnússon, læknir, og dr. Ólaf- ur Bjarnason, settur prófessor. (Frá Menntamálaráðuneytinu). — Efnahagsaðstoð Framhald af bls. 1 istan hafi lýst sig fúsa, að mæta kröfum Bandaríkjanna., Bæði löndin hafa átt við mikla fjár- hagsöruðleika að stríða, frá þvá í september s.l., er Banda- ríkin hættu allri efnahagsaðstoð við þau, en það var gert vegna styrjaldarinnar sem þé brauzt út vegna Kashmir. Ella Fitzgerald er nú orðin 47 ára gömul, fæddist í Newport í Virginíu 25. apríl 1918. Hún hóf að sygja með Chick Webb og hljómsveit hans 1934 og var með honum næstu 5 árin. Heims- frægð hefur hún fyrir löngu hlotið túlkun sína á jazz og dæg- urtónlist og það er ekki sjald- gæft að heyra hana syngja í óskalagaþáttum hinna ýmsu útvarpsstöðva. Ella var gift hljómlistarmanninum Ray Brown, en þau skildu 1953 og á hún einn son, Ray að nafni. Hefimili hennar er á fögrum stað á Long Island í New York, en þegar hún sezt um kyrrt á heimili sínu syngur hún gjarn- an í heimsfrægum skemmtistað, sem heitir BASIN STREET East, og þá bregðzt það ekki að þar er múgur og margmenni til að hlusta á Ellu. Ella hefur hlotið fjöldan allan af verðlaunum og viðurkenning um fyrir söng sinn og þau eru orðin fá löndin, sem hún hefur ekki heimsótt í ferðum sínum. Island er eitt þeirra, sem bætizt nú á listann hennar og sannar- leg'a er ástæða til að fagna því. Chaudhry Mohammed Ali, fyrrum forsætisráðherra Pak- istan, réðst harkalega á forseta landsins, Ayuto Khan á laugar- dag, og sagði að Tashkent sátt- málinn hafi verið afleiðing af þvingunum, sem stórþjóðirnar hefðu breytt Pakistan. Hann krafðist þess, að stríðinu við Indland yrði haldið áfram, og fór fram á stuðning íbúanna í baráttunni fyrir rétti landsins. Fjórir af flokkum stjórnarand- stæðinga í Pakistan, hafa tekið upp þessa stefnu og vilja þeir enga friðarsáttmála halda við Indland. Nýr bdtur til Bolungurvíkur Bolungarvík 19. febr. í morgun landaði Sólrún 1700 tunnum af loðnu hér í Bolung- arvík, en loðnuna fékk hún sunn an við Jökul. Sólrún landaði svipuðu magni af loðnu hér í fyrradag. Annar bátur hefur einnig landað hér, Sigurkarfi frá Keflavík, sem var með 1100 tunnur. Loðnan fer þll í bræðslu Nýr bátur er nú að bætast við flotann í Bolungarvík. Heitir hann Páll Pálsson frá Sandgerði en Einar Guðfinnsson h.f. keypti bátinn þaðan. Verða þá fimm bátar á neturn frá Bol- ungarvík og hafa aflað vel, frá 10-22 tonn í hverri veiðiferð. Einn bátur er á línu og er afli heldur tregur. FLUGREKSTUR Flugfélags íslands gekk mjög vel árið 1965 og fluttu flugvélar félagsins fleiri farþega en nokkru sinni fyrr á einu ári. Veruleg aukning var einnig á vöruflutningum og póstflutningum. Allmörg leigu- flug voru farin á árinu. Félagið annaðist allt flug á árinu með eigin flugvélum, en að undan- förnu, hafa verið leigðar flug- vélar erlendis frá yfir mesta annatímann. Frá mánaðamótun- um maí — júní var hin nýja Friendship skrúfuþota félagsins að fullu í áætlunarflugi innan- lands. MILLILANDAFLUG Farþegar félagsins í áætlunar- flugi milli landa voru árið 1965 42.986, en voru 36.952 árið áður. Aukning er 16,3%. Vöruflutning- ar milli landa jukust einnig, Flutt ar voru 437 lestir af vörum á móti 412 árið áður og er aukning 6%. Póstflutningar milli landa námu 137 lestum á móti 115 lest um árið áður. Aukning 19%. INNANL AND SFLU G. f áætlunarflugi innanlands fluttu flugvélar félagsins 88.064 farþega á móti 69,834 árið áður. Aukning er 26%. Vöruflutningar innanlands námu 1288 lestum á móti 1049 lestum árið áður, aukn ing 22,7%. Póstflutningar innan- lands jukust einnig verulega. Fluttar voru 177 lestir, en 128 Vatnslítið á Skaga Akranes 19. febr. UM þriggja mánaða skeið hafa haldizt sífelld frost og þurrk- viðri. Meinið er ,að alltaf hefur frosið á auða jörð. 1 hásveitum skapar þetta bændium feikna örðugleika. Brunnar þorna og bæjarlætkir botnfrjósa og fólkið verður að sækja vatn í ár og vötn stundum langar leiðir og með ærinni fyr- irhöfn. Svo nær sé litið verður Gunnar bóndi í Lambhaga að sækja um 1000 potta af vatni handa kúnum á degi hverjum. Ekur hann því á tunnum á bíl eða traktor og fer í þetta megn- ið af deginum. Hér í bæ hefur a.m.k. í tvær vikur verið tregða á vatni. Berjadalsá er orðin mjög lítil en Óslækur drýgstur. Ós- lækur nýtur svo margra kalda- vermsla. Gjöf til Styrktar- íél. vangefinna Systurnar Margrét og Helga Finnbogadætur, Birkimel 6 Reykjavík hafa gefið Styrktar- félagi vangefinna 10 þús. kr. til minningar um 100 ára afmæli móður þeirra, frú Gróu Guð- mundsdóttur. Styrktarfélagið hefur beðið Mbl. um að færa þeim systrum alúðarþakkir' fyr- ir þessa góðu gjöf og vinsemd þeirra í garð félagsins. Ranglega farið með föðurnafn RANGLEGA var farið með föðurnafn bóndans að Unhóli í Þykkvabæ, sem slasaðist s.l. fimmtudag, er jeppi hans valt. Hann heitir Kristján Pálmars- son. Eru hluataðeigendur beðn- ir velvirðingar á þessu. lestir árið á undan. Aukning 38,2%. FLUGIÐ f HEILD. Samanlagður fjöldi farþega Flugfélags íslands á áætlunar- flugleiðum innanlands og milli landa árið 1965 var því 131.050, en voru 106.786. Aukning farþega í áætlunarflugi er 22,7%. Allmarg ap leiguflugferðir voru farnar á árinu, og voru í þeim ferðum fluttir 5743 farþegar. Samanlögð tala farþega fluttra á áætlunar- flugi og leiguflugi sl. ár er því 136.793. Sem fyrr segir gekk starfsemi félagsins vel á árinu. Flugvélar þess voru á lofti sam- tals 10.796 klst. og flugu á fjórðu milljón kílómetra. (Frétt frá F. í.). — Nýjung Framhald af bls. 32. Starfsemi þessa kerfis geng- ur þannig fyrir sig, að síld- inni er dælt upp úr bát eða skipi með 10” miðflóttaaflsdælu (centrifugal), og er notað vatn til þess að flytja síldina. Dæl- an skilar síld og vatni upp í forskiljarann, og síðan í „roter- andi“ skiljara, sem skilur vatn- ið frá hráefninu, þannig að síld- in fer áfram inn á vigtina, og síðan inn í þró, en vatnið fer í þar til gerðan tank. — Mynduð er svo hringrás á vatnið úr tankinum, þannig að sama vatnið er notað eins oft og mögulegt er, eða þartgað til að það er orðið svo þykkt af hráefnum, að það verður erfitt að dæla því. Dæluvatninu er síð an dælt inn í verksmiðjuna gegnum 4“ íför, og hraðsjóðara, sem hitar þetta vatn upp í 85 gráður. á C, sem síðan rennur beint inn í slammið, og loks í gegnum skilvindur til frekari vinnslu. Eins og sjá má á þessu, er þetta kerfi þannig útbúið, að þar tapast hvorki hráefni né blóðvatn. Við erum nú þegar reiðubúnir að fara gefa tilboð og tæknilega upplýsingar um löndunar- og vigtunarkerfi þetta. — Þá má einnig nefna það til nýjunga, að við munum nú kappkosta við að Útvega síldar- bátum síldardælur með mótor, sem knúinn er áfram með vökva- kerfi bátsins. Þessar dælur eru byggðar upp líkt og löndunar- kerfið, nema hvað þær eru mun minni, og dæla aðeins úr nót- inni upp í bátanna. — Við höfum framleitt olíu- spil sl. 10 ár, og erum nú farnir að smíða spil, sem getur lyft allt að 16 tonnum, og er það langstaarsta spil sem hér hefur verið framleitt. Það mun láta nærri að um 250 bátar og skip hér á landi séu með spil sem við höfum smíðað eða Norwich- verksmiðjurnar í Bergen, sem smíða eins spil. Hvort það bíði okkar mörg verkefni? Já, það er óhætt að segja það, því að við erum nú með framleiðslu- verkefni, sem þurfa að vera til- búin fyrir vorið, fyrir 4-5 millj- ónir króna. — Og fleiri nýjungar mætti nefna, sem við erum nú að fara af stað með. Til dæmis erum við komnir með nýja gecð af olíudælum, sem knýr áfram spil in, en dælur þessar hafa mögu- leika til þess að auka afköst, spilanna um 25%. Dælur þessar hafa það að auki fram yfir aðrar dælur, að snúingshraði aflvél- arinnar setur þeim ekkert tak- mark. Þetta eru skrúfudæitur með alla gangfleti herta, og er það fyrst og fremst til þess að forðast skemmdir á olíukerfi skipanna. Dælur þessar geta líka knúið áfarm síldardælu skipsins.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.