Morgunblaðið - 27.02.1966, Blaðsíða 5
Sunnuctagur 27. feftrðar 1966
MORGU NBLAÐIÐ
5
ÚR
ÖLLUM
ÁTTUM
Óhætt er að segja, að á hókamarkaðinum sé eitthvað fyrir
alla, a.m.k. leyndi áhuginn sér ekki á andlitunum, ungum
sem gömlum. (Ljósm. Sv. Þorm.)
EF EINHVER dregur það í
efa að íslendingar séu bók-
elsk þjóð ætti sá hinn sami að
gera sér ferð niður í Lista-
mannaskála við fyrsta tæki-
færi. Samkvæmt áreiðanleg-
um heimildum eru þar nú um
3000 bókatitlar á bókamark-
aðinum og eintakafjöldi um
eða yfir 100.000. Afslátturinn
á bókunum er allt að 70%, og
því greinilega einstætt tæki-
Fólk streymdi til bókamarkaðsins strax á fyrsta degi.
A bókamarkaði
færi fyrir bókaunnendur að
gera góð kaup, en þarna eru
bækur fyrir fólk á öllum
aldri og við allra hæfi.
Og það var fólk á öllum
aldri í Listamannaskólanum
í gær, er fréttamaður og ljós-
myndari blaðsins litu þangað
inn. Mest bar þó á æskufólki,
sem 'kann vel að meta þetta
tækifæri til að birgja sig upp
af góðu og ódýru lestrarefni.
Fyrir. miðju skálans stóð með
flannastóru letri. — Gamla
krónan í fullu verðgildi —
og virðist það orð að sönnu.
Við rákum fyrst augun í stóra
og fallega bók — Þjóðhátíðin
1874, sem áður kostaði 242
krónur en kostar á markað-
inum 107.50, með söluskatti
vœntanlega.
Það er úr mörgu að velja á
bókamarkaðinum, skemmti-
sögum, háalvarlegum skáld-
r að James Bond hefði orðið að
gjalti við hliðina á þeim.
En það voru spæjarar víðar
á ferli í Listamannaskálan-
um en á gíðum sakamálaskáld
sagnanna. Okkur sýndist ekki
betur en þeir væru tveir á
ferli meðal fólks á bókamark
aðinum, enda er þar mikil
freisting fyrir veiklunduð
hjörtu, þótt bókaverðið sé hag
stætt og engurn ofviða að
kaupa sér eigulega bók.
Við hittum að máli tvo
kornunga pilta, sem tylltu sér
á tá og rýndu ákefðarfullir á
litskrúðugar bækur með fall-
egum myndum.
— Hvað heitið þið strákar?
— Óli, segir annar. Hinn
svarar ekki, en gýtur horn-
auga til myndavélarinnar.
— Eruð þið búnir að kaupa
margar bækur?
— Nei, svarar Óli boru-
brattur. — Mamma er að
kaupa handa okkur.
— Hvaða bók ætlar mamma
að kaupa handa ykkur?
— Margar bækur, gellur í
hinum, sem horfinn er allur
ótti við myndavélina. En nú
kallar mamma á drengina
sína og þeir hlaupa fagnandi
til hennar þar sem hún stend-
ur með bókastaflann í höndun
sögum, þjóðlegum fróðleik,
kristilegum smáritum, ljóða-
bókum og þannig mætti lengi
telja. Það vakti athygli okk-
ar, að fólk skiptist í hópa
eftir áhugamálum og bóka-
tegundum og hafði hver hóp-
ur greinileg séreinkenni.
Þannig stóð t.d. hópur ungra
stúlkna í kringum borð með
bókum eins og Óður hjart-
ans, BrúðaThringui'inn og
Æskuiþrá. Börnin f lykktust að
sjálfsögðu í kringum borðið
með stöflum af Möttu Maju
og Rósu Bennett bókunum,
en roskna fólkið var gjarnan
í námunda við bækur með
þjóðlegum fróðleik, þjóðsög-
um og íslenzkri fyndni. Ung-
ir piltar meðhöndluðu með
lotningu sagnir af hetjudáð-
um sjómanna á hafi úti og
skáldsögum um leynilögreglu
kappa svo kræfa og „kalda“,
um.
Aðra tvo heiðursmenn hitt-
um við að máli, að visu nokk-
uð eldri en þá fyrri.
— Er ekki spennandi að
skoða allar þessar bækur?
— Jú, jú, svöruðu þeir
fremur dræmt, enda ekki ör-
grannt um að myndavélin
eigi sinn þátt í fálæti yngri
kynslóðarinnar gagnvart
spurningum okkar.
— Pæst ekki James Bond
hiérna?
— Nei, hér eru ekkert nema
krakkabækur anzar annar
þeirra að bragði, sjálfur
nokkuð undir fermingu.
— Eruð þið búnir að kaupa
mikið?
— Við höfum ekki efni á
þvl Getið þið lánað okkur?
Spurningaleikurinn hefur
snúizt við og við sjáum okkur
þann kost vænstan að hverfa
á braut, — bókarlausir.
^túdentasam-
tök böiiinuð
Singapore 25. febr. — NTB.
tftvarpið í Djakarta til-
kynnti í dag að Sukarno, for-
seti Indónesíu, hafi lagt bann
4 við öllum mótmælaaðgerðum
í
r'
stúdenta í landinu. Hefur for-
setinn og bannað samtök stúd
enta (Kami), en þau hafa
staðið að baki hinum miklu
stúdentaóeirðum í Indónesíu
undanfama daga. Bannið gild
ir frá og með laugardeginum.
Mikil spenna ríkti í Jak-
arta í dag. Sveitir úr her
Indónesíu umkringdu í dag
forsetahöllina til þess að
vemda Sukarno fyrir stúd-
entum, sem höfðu uppi óeirð-
ir. Vegna þessa komst sá
orðrómur um kreik um tíma,
að Sukarno forseta hefði ver-
ið steypt af stóli. Þær fregn-
ir reyndust úr lausu lofti
gripnar.
Valdastöðum, 24. febr. ’66.
NÚ þessa daagna er verið að
flytja héðan allmikið af heyi,
sem fara á til Austurlandsins.
Mest er það frá einum bæ (Meðal
felli). Svo að jafnvel skiptir
hundruðum hestburða, að mér er
tjáð. Nokkuð var búið að senda
héðan fyrir áramót. Og ætlunin
mun vera að senda meira séu
bændur aflögufærir. Töluvert er
farið að bera á vatnsskorti á sum
um bæjum, og það sumsstaðar
fyrir alllöngu síðan.
Hér sést varla föl á jörð. Og
hefur svo verið í allan vetur.
Og má heita, að allir vegir séu
alauðir, fyrir utan, að dálítið
hefur vatn runnið yfir vegi á
stöku stað, og myndast þar
svelL
St.G.
Sjólfvirku
þvottavélin
k heitt eða kalt vatn
til áfyllingar
TÁ- stillanleg fyrir 8
mismunandi gerðir
af þvotti
k hitar — þvær —
3-4skolar — vindur
★ Verð kr. 18.846,—
ENGUSH ELECTRI0’
Liberator
k AFKÖST 3-3 % kg
af þurrum þvotti
í einu
-Ár Innbyggður hjóla-
búnaður
k Varahluta- og við-
gerðaþjónusta á
eigin rafmagns-
verkstæði
★ EINS ÁRS ÁBYRGÐ
OUIÍLŒI
lougavegi178 Slmi 38000
Sjúlfvirki
þurrkarinn
sjálfvirk tíma-
stilling
★ aðeins tveir stilli-
hnappar og þó al-
gerlega sjálfvirkur
★ Verð kr. 18.846,—