Morgunblaðið - 11.03.1966, Qupperneq 2
MORCUNBLAÐIÐ
I
Fðstuðagur 11. marz 1966
Snjóruðningurinn á
þriðja metra á hæö
IVFiikið sézt af hreindýrum
Egilsstöðum, 10. marz.
HÉR er mikill snjór og sá
mesti sem komið hefur á upp-
héraði frá 1936, að því er fróð
ir menn telja. í gær var bú-
ið að moka snjó af Fagrádals-
braut til Reyðarfjarðar og
Eskifjarðar og var vegurinn
orðinn fær töllum bílum.
1 nótt skóf aftur á veginn
og er hann aftur lokaður fyr-
ir umferð.
Einnig var búið að ryðja
veginn út í Eiða og einnig
voru götur í Egilsstaðakaup-
túni mokaðar og var snjóruðn
ingurinn víða á þriðja metra
á hæð.
Víða um héraðið eru slóð-
ir eftir jarðýtur, sem færar
eru fyrir jeppa og dráttarvél-
ar. Hafa þær verið töluvert
notaðar til samgangna.
Elugsamgöngur hingað hafa
gengið nokkurn veginn sam-
kvæmt áætlun.
Hreindýr hafa ekki mikið
sézt á úthéraði í vetur ,e>n í
Fljótsdal hefir sézt mikið af
þeim. Virðast dýrin vera í
góðu ásigkomulagi, enda til-
tölulega minni snjór inn til
landsins.
— Þráinn
Piltur sætir öryggis-
gæzlu fyrir íkveikju
NÝLEGA var upp kveðinn I
Sakadómi Reykjavíkur af Ár-
manni Kristinssyni, sakadómara,
dómur í máli iiðlega tvítugs
pilts, sem sekur var fundinn um
að hafa valdið íkveikju við hús-
ið að Vesturgötu 46 í ágústmán-
uði sl. Var pilturinn dæmdur til
þess að sæta öryggisgæzlu, en
öryggisgæzludómar munu næsta
fátíðir hérlendis.
Nánari atvik voru þau, að
seinnipart ágústmánaðar sl. var
kveikt í timburskúr áföstum
við húsið Vesturgötu 46, sem
einnig er úr timbri. Var þetta á
fimmta tímanum um nóttina.
í húsinu voru eldri hjón, son-
ur þeirra og kona hans, og tvö
lítil börn, 4 ára og tveggja vikna
gömul. Var fólkið allt í fasta-
svefni, er maður, sem átti leið
þarna um, varð eldsins v>ar og
vakti það. Var slökkviliðið kvatt
til, og réði það niðurlögum elds
ins á nokkrum tíma.
Ljóst þótti, að hér myndi hafa
verið um íkveikju að ræða, og
náðist pilturinn, sem að þessu
var vald'ur, síðar um nóttina.
Pilturinn var úrskurðaður í
geðrannsókn, og var það sam-
hljóða álit viðkomandi geðlækn-
is og Læknaráðs, sem einnig
fjallaði um málið, að refsings
myndi tilgangslaus. Var það álit
þessara aðila að pilturinn gæti
ekki talizt sakhæfur.
Dómur féll nýlega í Sakadómi,
og var pilturinn dæmdur til þess
að sæta öryggisgæzlu, en það
merkir, að honum verður ekki
sleppt úr haldi fyrr en talið er
óhætt.
Dr. Selma Jónsdóttir, Kjarval og dr. Gylfi Þ. Gísiason.
Kjarvalssýning opnuð
Listusufni íslunds
í
í GÆR var opnuð i Listasafni
Islands við Melaveg, yfirlitssýn-
ing á 33 af þeim 36 málverkum
Kjarvals, sem eru i eigu safns-
ins. Hin þrjú málverkin eru er-
lendis, eitt þeirra er á málverka-
sýningu, en hin tvö eru í íslenzk-
um sendiráðum.
Viðstaddir opnun sýningarinn-
ar voru m.a. meistarinn Kjarval,
menntamálaráðherra, dr. Gylfi
Kjarval sæmd-
ur stórkrossi
Fálkaorðunnar
í TILEFNI af áttræðisafmæli
Jóhannesar S. Kjarval, list-
málara hefir forseti íslands
sæmt hann stórkrossi hinnar
íslenzku fálkaorðu í viður-
kenningarskyni fyrir lista-
verk hans;
Samkvæmt ósk listamanns-
ins hefur heiðursmerkið ver-
ið falið Listasafni íslands til
varðveizlu.
Fyrsta 200 manna flugvél Loft-
leiöa kemur um helgina
LENGINGU tveggja Rolls
Royce 400 flugvéla Loftleiða h.f.
er nú lokið og lengingu hinnar
þriðju verður lokið 1. maí n.k.
Fyrsta vélin, sem iengd var,
Bjarni Herjólfsson, kemur til
landsins um helgina. Flugvélar
þessar taka 189 farþega og ráð-
gert er að þær hafi 11 manna
áhöfn, svo í allt verða um borð
200 manns.
Loftleiðir eiga nú fjórar Rolls
Royce 400 flugvélar. Þegar tvær
síðari vélarnar voru keyptar af
Canadair var samið um að allar
fjórar skyldu lengdar, þannig,
að þær _ gætu, að lokinni leng-
ingu, flutt 189 farþega í stað 160.
3yrjað var að lengja fyrstu
flugvélina s.l. septembermánuð,
og var því lokið síðast í nóvemb-
er. Frá því hefir flugvélin verið
í reynsluflugi, og hafa flugeig-
inleikar reynzt mjög góðir. Þessi
flugvél, TF-LLT, mun bera heit-
ið „Bjarni Herjólfsson“.
TF-LLF, „Leifur Eiríksson"
hefir nú einnig verið lengd.
Þriðja flugvélin, TF-LLG, „Vil-
hjáímur Stefánsson“, verður til-
búin 1. maí n.k.
Fjórða flugvélin TF-LLH,
„Guðríður Þorbjarnardóttir"
verður lengd næsta vetur.
Meðfylgjandi mynd tók Ijós-
myndari Loftleiða, Lennart Carl-
én, fyrir nokkrum dögum, en
þar sést „Bjarni Herjólfsson" á
flugi yfir Montreal.
Fyrsta lengda flugvél Loft-
leiða er væntanleg til íslands
um næstu helgi.
Þ. Gíslason, og frú, svo og safn-
stjórnin, sem skipuð er þeim dr.
Selmu Jónsdóttur, Ásmundi
Sveinssyni, Gúnnlaugi Þórðar-
syni, Jóhannesi Jóhannessyni og
Þorvaldi Skúlasyni.
Dr. Selma gat þess við blaða-
menn, að lengi hefði staðið til,
að halda yfirlitssýningu á verk-
um Kjarvals í sambandi við átt-
ræðisafmæli hans, en að safn-
stjórnin hefði ákveðið að bíða
með hana þar sem bæði var hald
in sýning á verkum meistarans í
Listamannaskálanum og í
Menntaskólanum. Dr. Selma
sagði einnig, að safnstjórnin
hefði kosið að bíða með sýning-
una þar til daginn lengdi og
gestirnir gætu notið
anna í dagsbirtu.
málverk-
Ellefu af þeim 33 málverkum,
sem á sýningunni eru, hafa kom-
ið í safnið á seinustu fjórum ár-
um, eða frá því að reglugerð var
sett um Listasafn íslands.
Elzta málverkið á sýningunnl
var á sínum tíma í eigu Einars
Benediktssonar og hafði skáldið
keypt það af listamanninum.
Vegleg sýningarskrá hefur ver
ið gerð vegna sýningarinnar. Á
forsíðu hennar er fögur endur-
prentun af málverkinu „Hraun“,
er Kjarval málaði árið 1949. —
Prentun forsíðumyndarinnar
var gerð í Sviss og var málverk-
ið sent þangað út til myndatök-
unnar.
Sýningin verður opin fyrir
almenning í dag, föstudag, laug-
ardag og sunnudag frá kl. 13:00
til 22:00, en þar eftir verður hún
opin á venjulegum safndögum,
sem eru þriðjud., fimmtud., laug-
ard., og sunnudagar. Aðgangur
að sýningunni er ókeypis, en
sýningarskráin verður seld. Full
ástæða er til að hvetja fólk til
að sjá sýningu þessa, en hún
verður opin fram að páskum.
Alþýðuflokkurinn minnist húlfau
uldur uimælis síns
Morgunblaðinu barst í gær eft-
irfarandi tilkynning frá Alþýðu-
flokknum:
„Alþýðuflokkurinn minnist
hálfrar aldar afmælis síns með
margvíslegum hætti nú um helg-
ina, en á laugardag eru nákvæm-
lega fimmtíu ár liðin frá því
flokkurinn var stofnaður, og er
hann því elztur núverandi ís-
lenzkra stjórnmálaflokka.
Að kveldi föstudagsins 11.
marz verður efnt til afmælis-
hátíðar að Hótel -Sögu, stærsta
samkomuhúsinu í Reykjavík.
Þar mun varaformaður Alþýðu-
flokksins dr. Gylfi Þ. Gíslason
flytja ræðu, óperusöngvararnir
frú Sigurveig Hjaltested, Guð-
mundur Jónsson, og Guðmundur
Guðjónsson syngja einsöng og
tvísöng, og leikararnir Bessi
Bjarnason og Gunnar Eyjólfs-
son flytja skemmtiþátt. Að lok-
um verður dans stiginn til klukk
an tvö eftir miðnætti. Veizlu-
stjóri á afmælishátíðinni að
Sögu verður Benedikt Gröndal,
ritari Alþýðuflokksins.
Á sjálfan afmælisdaginn, laug-
ardaginn 12. marz verður hald-
inn hátíðarfundur í Iðnó, þar
sem jafnframt verður settur
flokkstjórnarfundur, sem fram
verður haldið daginn eftir.
A hátíðarfundinum mun for-
maður Alþýðuflokksins Emil
Jónsson flytja aðalræðuna, Gunn
ar Eyjólfsson leikari les upp,
þrír erlendir gestir flytja óvörp,
en þeir eru Albert Carthy fram-
kvæmdastjóri Alþjóðasambands
jafnaðarmanna, Erling Dinesen,
verkamálaráðherra Danmerkur,
sem er fulltrúi jafnaðarmanna-
flokkanna á Norður/indum og
Peter Mohr Dam form'aður jafn-
aðarmannaflokksins í Færeyjum.
Á fundinum mun forseti Sam-
bands ungra jafnaðarmánna,
Sigurður Guðmundsson flytja á-
varp og séra Sigurður Einars-
spn og Ragnar Jóhannesson cand
mag. flytja frumort ljóð.“ '
— Börn
Framhald af bls. 28
Hafði litla telpan fundið það,
tekið úr því 12,000 kr., en
drengirnir síðan fundið veskið
aftur.
Veskið var afhent eigand-
anum, sem brást við harla
glaður. Dró hann 5,000 kr.
upp úr veskinu, og bað rann-
sóknarlögregluna að að skipta
á milli barnanna, sem veskið
fundu.
FÉLAGSHEIMIU
Opið hús
í kvöld
HEIMDALLAR