Morgunblaðið - 11.03.1966, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 11.03.1966, Blaðsíða 27
Föstuclagur 11. marr 1966 — Ghana Framhald af bls 1 Ghana 24. febrúar sl. einnig fryst allar bankainnistœður ráð- herra Nkrumah og eiginkvenna þeirra og sömuleiðis innistæður ýmissa annarra framámanna í stjórnartíð Nkrumah. Lögreglustjórinn í Ghana hef- ur tilkynnt að hann hafi gert ráðstafanir til þess að taka Nkrumah höndum og flytja til Ghana til þess að svara til saka fyrir dómstólunum. Lögreglu- stjórinn, J. W. K. Harley, sagði að ef Nkrumah leitaði 'hælis í siðmenntuðu landi myndi hann að sjálfsögðu afhentur og gert að mæta fyrir rétti í Ghana, „en verði skotið yfir hann skjólshúsi annars staðar, tm ég það skyldu xnína að koma á hann böndum og flytja hingað svo réttlætinu verði fullnægt", sagði Harley. Eins og kunnugt er, heldur Nkrumah sig nú í Conakry, höf- uðborg Guineu sem stallbróðir Sekou Touré forseta og hefur þar tign og völd á við hann. — Geimferð Framhald af bls 1 fari sínu og yfir í hitt meðan bæði hringsóluðu umthverfis jörðu. Sagði blaðið „Vecernje Novosti“, að sennilega myndi af þessari för verða í marzmánuði og taldi að hún myndi taka hálf- an mánuð. Eins og áður sagði, hefur eng- In staðfesting fengizt á orðrómi þessum, enda ekki háttur Rússa að segja eitt eða neitt um geim- ferðir sínar fyrr en geimförin eru komin á rétta braut og aldrei tilkynnt um tafir eða önnur frá- vik og frestun. Geimferðin í fyrra var sú er þeir fóru Pavel Beljajev og Alexei Leonov og varð hinn síð- arnefndi þá til þess fyrstur manna að skreppa úr geimfar- inu þar sem það var á braut sinni umhverfis jörðu og fá sér gönguferð í himingeimnum. — Indonesia Framhald af bls 1 fulltrúans, en hinir hafi verið hálfu fleiri er réðus't á aðalræðis- mannsskrifstofuna. Fóru stúdent arnir ránshendi um skrifstofurn- ar, söfnuðu saman öllum þeim skjölum er þeir gátu hendur á fest og brenndu þau, brutu rúð- tir og brömluðu allt innandyra og jafnvel þakið á húsi aðal- ræðismannsins. Einn sendimann- anna kínversku særðist af stein- kasti, eins og áður sagði, og öðr- um var fleygt út í skurð. Yfirráðasvæði aðalræðismanns ins var lokað og rammlegt járn- hlið fyrir, en stúdentarnir gerðu sér lítið fyrir og fengu stóran vöruflutningabil, sem komst auð veldlega gegnum þá fyrirstöðu. Þá stöðvuðu stúdentarnir alla umferð um götuna sem skrifstof- an er við og stungu gat á hjólbarða þeirra bifreiða, sem lögðu leið sína um hana. — Herlið var kvatt á vettvang og tókst um síðir að stilla til friðar og reka óspektarmennina af hönd um sér og Kínverjanna. Fjölmennur hópur stúdenta lagði einnig leið sína að sendi- ráði Kína í Djakarta, en þar var herlið á verði úti fyrir ramm- legri girðingunni, sem er um sendiráðsbygginguna. Einnig var settur vörður við brezka sendi- ráðið í borginni, ef eitthvað yrði þar til tíðinda nú, en bandaríska sendiráðið varð fyrir barðinu á stúdentum fyrir tveimur dögum. Sukarnó forseti átti í dag við- ræður við fulltrúa allra helztu stjórnmálaflokka landsins, sem eru átta eða níu talsins. Ræddu þeir hverjar ráðstafanir yrði að gera til þess að komast fyrir ó- eirðir stúdentanna, sem nú hafa staðið í 12 daga. Síðast hermd- arverka stúdentanna í gær var að ráðast á skrifstofur fréttastof- unnar Nýja Kína í Djakarta. Hin opinbera fréttastofa, Ant- ara, sagði í fréttum í dag að árásin á aðalræðismannsskrif- stofuna hefði verið svar indó- nesískra æskumanna við ögrun- um Peking-útvarpsins í garð Indónesíu. Ekki hefur verið til- kynnt um neitt mannfall í óeirð- unum í dag. ' — Samnings uppkast fundi hæstu daga um samnings- uppkastið. Sverrir Hermannsson, formað- ur LÍV, sagði í viðtali við Morg- unblaðið í gær, að hann teldi fullvíst, að hvergi kæmi til vinnustöðvunar hjá verzlunar- mönnum. Eg tel, að F.I. geti vel unað þessari lausn • • — segir Orn Johnson, for- * stjóri Flugfélags Islands VEGNA fréttarinnar um, að Flugfélagi íslands hafi verið heimilað Faereyjaflug hafði Mbi. í gær samband við Örn Johnsont, forstjóra F.f. og leit- aði umsagnar hans um af- greiðslu málsins. Örn sagði: — Þeir Birgir Þorgilsson og Einar Helgason fóru af hálfu félagsins sl. miðvikudag til Kaupmannahafnar til við- ræðna um þessi mál við danska samgöngumálaráðu- neytið. Fóru viðræðurnar fram í dag og komu þeir Birgir og Einar til Reykjavík- ur aftur í kvöld, fimmtudags- kvöld. — Ég tel, að Flugfélagið geti vel unað þessari lausn. Við sóttum ekki um neitt einkaleyfi á þessari leið, held- ur aðeins um að mega fljúga á henni. Og þessi lausn virð- ist einnig vera í samræmi við óskir Færeyinga sjálfra, þ.e. að báðum félögunum verði leyft að halda uppi flugsam- göngum við Færeyjar. — Flugfélag íslands mun hefja flugferðir um Færeyjar í maíbyrjun með Fokker- Friendship flugvél og er ráð- gert að þær samgöngur verði allt árið. — í sumar verður ferðum hagað þannig, að farið verður frá Reykjavík um Færeyjar til Bergen og Kaupmanna- hafnar og daginn eftir fer vél- in um Bergen til Færeyja og þaðan til Glasgow. Frá Glasgow fer vélin um Fær- eyjar til Reykjavíkur. — Að öðru leyti verður þessi Fokker-Friendship vél í innanlandsflugi eins og hin, en F.í. fær seinni Fokker- Friendship vélina núna í vor. MORGU N BLAÐIÐ 27" Nýjungar í skólamáium ræddar í Kennaraskóla Isl. — Dr. Edelslein sat í gærkvöld fund með kennurum og nemendum, og nokkrum gestum CM þessar mundir eru staddir hér á landi þeir Dr. Wolfgang Edelstein og Dr. Klaus Bahr, sem báðir starfa við Max Planek stofnunina í Berlín. Hér á landi dveljast þeir á vegum Efnahags- og framfara stofnunarinnar í París, OECD. Er dvöl þeirra og starf hér- lendis í samráði við ísl. Efna- hagsstofnunina og yfirvöld íslenzkra skóla- og mennta- mála. í gærkvöldi sat Dr. Edel- stein fund með kennurum og nemendum Kennaraskóla ís- lands, og svaraði fyrirspurn- um um rannsóknir og nýskip- an kennslumála, í samræmi við grundvöll þann, sem OECD leitast nú við að leggja að þeim málum, í flestum aðildarríkjum stofnunarinnar sem nú eru rúmlega tuttugu. Fundinn sátu nokkrir gestir þeirra á meðal Dr. Jónas Haralz og Torfi Ásgeirsson, hagfræðingur, fyrir hönd Efnahagsstofnunarinnar, svo og fræðslumálastjóri, Helgi Elíasson. Á undanförnum árum hef- ur verið unnið mikið og at- hyglisvert starf í meðlimalönd um EOCD, fyrir milligöngu stofnunarinnar og með að- stoð hennar, að hagræðingu og skipulagi skólamála. Er hér um að ræða nýjar aðferðir við mat skóla- og kennslumála, gagnasöfnun og forsagnir, sem miða að því að aðhæfa þennan mikilvæga þátt þjóðlífsins nútímaaðstæð- um. Dr. Edelstein, sem er ís- lendingur (ekki Þjóðverji, eins og ranglega var sagt í frétt á 2. síðu Mbl. í gær), er menntamálum gagnkunnur héc á landi. Hefur hann m.a. unnið að forsögnum um fjölg un ísl. skólafólks til næstu aldamóta. Dr. Klaus Bahr hefur kom- ið hingað til lands fjórum sinnum frá því 1962. Hefur hann til skamms tíma verið starfsmaður OECD, en starf- ar nú, ásamt Dr. Edelstein, við Max Planck stofnunina í Ber- lín. Dvöl þeirra og starf hér á landi nú er þó, eins og áður segir, á vegum OECD, sam- kvæmt sérstökum samningi. Yerður nánar sagt frá starfi þeirra, og þeim nýjungum, sem nú koma fram í mennta- málum meðlimalanda OECD, síðar, hér í blaðinr , , , — Færeyjaflug Framhald af bls 1 samráði við Faroe Airways. Með- al annars fær Flugfélagið að fljúga einu sinni í viku frá Fær- eyjum til Bergen og ennfremur hefur það orðið að samkomulagi að Flugfélagið noti Fokker Friendship til flutninganna en Faroe Airways fljúga DC-3 Dakota-vélum, sem aðeins taka 21 farþega í sæti. Forstjóri Kaupmannahafnar- deildar Fiugfélags Islands, Vil- hjálmur Guðmundsson sagði í kvöld að Flugfélagið teldi samn- ingana um Færeyjaflugið í allan stað fullnægjandi. Flugfélagið mun hefja flug til Færeyja 3. maí nk. og er ætlunin að síðan verði flogið þangað alla’n ársins hring. Faroe Airways hafa aftur á móti nú í kvöld gefið út yfir- lýsingu þess efnis að vafamál sé hvort rétt sé að iáta tvö flug- félög fá heimild til flugs á þess- ari leið og segir þar, að félagið muni ræða nánar við Flugfélagið áður en það taki afstöðu til þess hvort ráðlegt geti talizt að halda áfram flugi til Færeyja með þessum skilyrðum. Vilhjálmur Guðmundss. kveðst furða sig á þessum ummælum og segir: „Á fundinum í ráðuneytinu fannst mér á Jörgen Pedersen forstjóra Faroe Airways að þeim iþætti samningurinn . allt eins góður og okkur“. 1 yfirlýsingu Faroe Airways segir m. a. : „Á fundinum náðist samkomulag um að teknar skyldu upp viðræður milli, flug- félaganna um samvinnu eða sam- | eiginlegt flug á leiðinni án þess að þetta væri þó nokkrum fast- mælum bundið. Árangur þessara viðræðna mun skera úr um það, hvort Faroe Airways þykir ráð- legt að leggja út á braut sam- eiginlegs flugs. Við erum enn á sama máli og Kai Lindberg ráð- herra og fleiri dómbærir menn, sem um málið hafa fjallað, að flugleið þessi. geti í raun og veru aðeins borið uppi heimild til handa einu félagi að ánnast flug á henni. Ef viðræðurnar við Flugfélag- ið hafa ekki í för með sér sann- gjarna lausn mála gerir Faroe Airways sem haft hefur flug- leyfi á þessari leið um tveggja ára skeið, sér rökstudda von um að það leyfi verði endurnýjað, bæði vegna samningaviðræðna félagsins við tilhlýðileg yfirvöld áður en lagt var út í töluverða Bonn og London, 10. marz, NTB. LUDWIG Erhard, kanzlari V- Þýzkalands, hefur svarað bréfi De Gaulle Frakklandsforseta um málefni Atlantshafsbandalagsins. Segir Erhard í svari sínu, að Vestur-Þjóðverjar sjái sér ekki fært að hverfa frá þeirri grund- vallarreglu að allt herlið banda- lagsins verði undir sameiginlegri stjórn. Wilson, forsætisráðherra Breta, er sagður hafa til athugunar svipað bréf frá Frakklandsfor- seta og bæði eru bréfin sögð fjárfestingu í þessu skyni að hausti 1965 og vegna hins óarð- bæra vetrarflugs, en einnig með tilvísun til 77. greinar loftferða- laga þar sem segir að heimild til innanlandsflugs megi aðeins veita erlendu flugfélagi ef sér- staklega standi á“. Um ofangreinda yfirlýsingu Faroe Airways segir Vilhjálmur Guðmundsson: „Þessar aðstæður og þessi skilyrði koma mér mjög á óvart. En víst er um það að Flugfélagið mun fljúga til Fær- eyja“. Sagt er að við heimild Flug- félags íslands verði bætt ákvæði um að berist óskir um það frá erlendu flugfélagi að fá að fljúga á dönskum flugleiðum skuli taka heimild Flugfélags íslands til endurnýjaðrar yfirvegunar. mjög áþekk þeim sem De Gaulle sendi Johnson forseta Bandá- ríkjanna. Þá hefur Frakklands- forseti og sent ítölsku stjórninni bréf svipað hinum fyrrgreindu um framtíðaráform Frakka varð andi Atlants!hafsbandalagið. Bandarísk blöð eru harðorð nokkuð í garð De Gaulle og segja að vel geti svo farið, fyrir tilstilli hans að Frakkar verði á bmttu úr Atlantshafsbandalag- inu og eigi þangað ekki aftur- kvæmt og vandséð hverjum sé að því mestur skaðL — Rytgaard. Erhard svarar Wilson íhugar málió

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.