Morgunblaðið - 11.03.1966, Qupperneq 5
FðstuiSagur If. marz 198«
MORGU NBLAÐIÐ
5
ÚR
ÖLLUM
ÁTTUM
Á SL. ÁRI hefur Vegagerð
ríkisins unnið að því að end-
urbyggja veginn upp í Þjórs-
árdal, lagfæra hann og gera
nýjan veg áfram í fyrirhugað-
an virkjunarstað við BúrfelL
Er iþarna kominn tvíbreiður,
vel ofan í borinn vegur allt
frá Suðurlandsvegi neðst á
Skeiðunum og alla leið upp á
Sámsstaðamúla við virkjun-
Nýr70km
skolvegur
3 nýjar brýr og sú fjórða
fyrirhuguð.
Fréttamenn Mbl. vpru í
flugferð á þessum ’sióðum
fyrir skömmu, og fengu þá
'með sér Björn ólafsson, verk-
fraeðing, sem hefur haft á
höndum þetfa verk fyrir
Vegágerðina, en hún hefur
annazt lagningu vegarins fyr-
ir Landsvirkjun, sem leggur
Búrfellsvegur, einkavegur
virkj unarinnar.
Bf við fylgjum veginum allt
neðan frá Suðurlandsvegi,
þar sem hann liggur með
bjórsá að vestan, upp Skeið-
in og Hreppana, þá sjáum við
strax eftir vegamótin, hvar
fyrsta stóra S-!beygjan hefur
verið tekin af. Hefur vegur-
inn þarna upp sveitirnar
Vegurinn liggur upp á Sámsstaðamúla í stórum sveigjum
vegna brattans og endar við inntak virkjunarinnar á fjallinu
og við jöfnunarþró, sem þar verður.
Nýi vegurlnn teyglr slg eftir Þjórsárdal. Myndin er
höfði, en Ásólfsstaðir eru inn með fjallinu til hægri.
tekin í suðvestur. Tii hægri er Gauks-
Björn Ólafsson,
verkfræðingur
arstað, eða 70 km. vegalengd.
Þar af eru 59 km. þjóðvegur-
inn upp að Asóifsstöðum. Ekki
er þessari fi-amkvæmt þó lok-
ið, en vegur fyrir þungaflutn.
inga þarf að vera tiibúinn áð-
ur en virkjunarframkvæmdir
hefjast í sumar. Á þessum
vegi hafa þegar verið gerðar
út fyrir honum, í bili a.m.k.
— Við byrjuðum verkið í
ágúst 1964 og undirbyggðum
þá veginn milli Sandár og
Fossár, sem er 7 km. vega-
lengd, sagði Björn. Hitt hefur
verið unnið á árinu 1965. Hef-
ur verið unnið í nær allan
vetur, aðeins gert hlé á frá
17. desember til 5. janúar.
Haustrigningarnar töfðu okk-
ur þó og einnig frostið í vet-
ur, en snjóþyngsli hafa ekki
komið í veg fyrir að við gæt-
um unnið. Að vísu er ekki
unnið af fullum krafti nú,
aðeins einn vegavinnuflokk-
ur þarna. En þegar mest var
í sumar voru þarna í einu að
störfum 3 vegavinnuflokkar
og 2 brúargerðarflokkar.
Vegurinn er 6 m. á breidd,
þannig að bílar eiga að geta
mætzt allt að Iþví hiklaust og
hann á að bera sama þunga
og Suðurlandsvegur að Hvols
velli, þ.e. 9% tonn á öxul eða
15 tonn á tvöfaldan öxul. Og
hvað kostar þessi vegagerð?
Björn segir okkur, að um 20
milljónir séu komnar í þess-
ar framkvæmdir, þar í um 5
millj. í gerð þriggja brúa.
Á þeim hluta vegarins, sem
er í byggð, var aðallega þörf
á að styrkja gamla þjóðveg-
inn, taka af krappar beygjur
og brekkur, en um leið notað
tækifærið til að lagfæra veg-
inn allan, jafnframt því sem
leggja þurfti nýjan veg nær
óslitið frá Haga að Búrfelli,
eða um 20 km. leið. Síðustu
10 km, eru hinn eiginlegi
aðallega verið hækkaður,
breikkaður og borið ofan í
hann, hlykkir af honum tekn-
ir og sums staðar hefur hann
verið færður til á löngum
köflum. Mest er það á tveim-
ur stöðum. Neðri staðurinn
er á 4 km. löngum kafla frá
Brautarholti að Skeiðaréttum.
Við sjáum úr lofti hvar veg-
urinn beygir niður að ánni
hjá Brautarholti, og liggur
þráðbeinn og sker sig
úr landslaginu með klaka
í brúnunum. Þarna er
þó ólagður kafli frá Þrándar-
holti að Kálfá, sem tekinn
verður nú í vor. Hinn nýi
kaflinn er 9 km. vegur frá
Kálfá og inn undir Haga.
Þarna er vegurinn færður
niður undir ána, til að losna
við Hamarsheiðina, en þar
sjáum við hvar gamli vegur-
inn snýr sig upp á heiðina í
erfiðum hlykkjum. Þarna
með ánni er reyndar gamla
leiðin upp með Þjórsá, sem
nú er aftur upp tekin. Eftir
að komið er að Haga tekur
við nær óslitinn nýr vegur,
um 20 km. leið, upp á Sáms-
staðamúla, þar sem virkjun-
in er. Aðeins við Gauks-
höfða, sem allir þekkja af
myndinni á 100 kr. seðlunum,
var lítið svigrúm til breyt-
inga. Fyrir ofan efstu bæi í
byggð, Ásólfsstaði og Skriðu-
fell, sveigir vegurinn í austur
og liggur að Búrfelli.
Nýju brýrnar þrjár eru
eínfaldar og stílhreinar. í bak-
sýn við nýju brúna á Þverá,
sem ekki er búið að tengja á
veginn, sést gamla brúin.
Norðar á veginum hefur ver-
ið gerð ný brú á Sandá, 35
m. á lengd. Og uppi undir
Búrfelli er hin lengsta af nýju
brúnum, 50 m. löng, á Fossá.
Ótalin er þá óbyggð brú á
Kálfá. Og að auki er áformað
að setja ræsi á Sandlækjarós.
Vegurinn, sem búið er að
leggja þarna, klofnar í end-
an í þrjá vegi. Einn liggur
að fyrirhuguðu stöðvarhúsi á
bakka Fossár undir Sáms-
staðarmúlanum, annar ligg-
ur í stórum sveig upp snar-
brattan múlann og endar við
inntak virkjunarinnar uppi á
fjallinu og þriðji endinn klýf-
ur sig frá honum á brúninni
og liggur að fyrirhugaðri
jöfnunarþró virkjunarinnar.
Sámsstaðamúli liggur norður
úr Búrfelli og gegnum hann
á að leiða vatnið í göngum
að stöðvarhúsinu. En frá
þessum vegum má aka eftir
slóðum yfir að fyrirhugaðri
stíflu og upp með Þjórsá.
Þarna höfum við nú fylgt
þessum endurbyggða og ný-
gerða vegi, þar sem hann
liggur upp Skeiðin, Gnúp-
verjahrepp fram hjá efstu
bæjum í Þjórsárdal og yfir að
virkjunarstað við Búrfell, alls
Framhald á bls. 19
Við Minna-Núp er endinn á nýjum kafla í veginum, sem verið er að vinna að. Þar er veg-
urinn færður niður undir Þjórsá, til að losna við að fara upp á Hamarsheiðina, eins og sá
gamli.