Morgunblaðið - 11.03.1966, Blaðsíða 21
! Föstudagur Tf. tnarz 1966
MORCU NBLAÐIÐ
Hæsti vinning-
ur kom á
liálfmiða
FIMMTUDAGINN 10. marz var
dregið í 3. flokki Happdrættis
Leiðrétting
í BRÉFT Sigurbjarnar Einars-
sonar, biskups, um að Jóns Víta-
líns verði minnst, sem birtist í
blaðinu í gær, varð prentvilla í
18. línu 3. dálki. Þar átti að
standa: Ólíklegt er, að neinn geti
dregið það í efa, að sú hugsjón
og viðleitni að gera Skálholt að
miðstöð kristinna mennta á landi
voru, sé í samræmi við ævistarf
Jóns biskups ....
— Kvikmyndir
Framhald af bls. 12
líf eða dauða skáldverks, né um
gildi þess eða gildisleysi yfir-
leitt, hvort veruleikinn er þar
sýndur í sinni nákvæmustu og
hversdagslegustu mynd, og raun
ar ekki um raunsæi eða óraun-
sæi listamannsins heldur.
Hin unga, franska leikkona,
Leslie Caron, leikur frönsku
stúlkuna, og er oss tjáð, að hún
Ihafi verið kjörin bezta leikkona
ársins (1964?) í Bretlandi fyrir
leik sinn í þessari mynd. Skil ég
þá ekki í því, að hún sé í mikilli
þörf fyrir meðmæli frá mér, jafn
vel þótt eimhver kynni að taka
mark á þeim. — Tom Bell, Broch
Peters og fleiri leikarar eiga
þarna einnig ágætan leik.
Að Jokum ræð ég fólki ein-
dregifFtil að sjá mynd þessa. Hún
er með íslenzkum texta, og sýn-
ingartími er um 2 klukkustund-
ir og 40 mínútur.
Prof. A. Joll-
vet látinn
Háskóla íslands. Dregnir vorn
2.000 vinningar að fjárhæð kr.
5.500,000.
Hæsti vinningurinn, 500.000 kr.
kom á hálfmiða númer 21.897.
Einn hálfmiðinn var seldur í um
boði Guðrúnar Ólafsdóttur, Aust
urstræti 18, en þrír hálfmiðar
voru seldir í umboðinu í Verzlun
Valdimars Long í Hafnarfirði.
Einn hálfmiðinn, sem kom upp
í Hafnarfirði, var í 50 miða röð,
sem starfsmannafélag eitt á. Fá
þeir einnig báða aukavinning-
ana.
100.000 krónur komu á heil-
miða númer 41.026. Voru báðir
heilmiðarnir seldir í umboðinu í
Keflavík.
10.000 krónur:
180 1017 2887 3649 8307
9894 12212 16065 18421 2189«
21898 22524 35020 37568 4024Í
40938 42456 45242 50424 50829
51153 51508 51512 51782 5208«
53122 59140
(Birt án ábyrgðar).
SIGURÐAR SAGA FOTS
■*- Teikningar: ARTHUR OLAFSSON
Ásmundur stóð þá upp og mælti: „Ekki
mun þér duga dráttur sá lengur við mig.M
en hún gerir hvorki að neita né játa.
Ásmundur mælti þá: „Nú skulu það all-
— Gengur hann þar að, sem hún situr, ir mega frétta, að ég skal þig með bar-
og tekur í hönd Signýjar og fastnar hana,
Ætla ég að sækja hingað brúðkaup aS
hausti.“
Síðan gekk Ásmundur til skipa og
daga verja, hver sem þig vill fá, því að sigldi heim til Húnalands.
mig þykir sá sýnt vilja óvingast við mig.
JAMES BOND
James Bond
II IAN FLEMINE
BMWINÍ BV JOHN McLUSKY
->f'
Eftir IAN FLEMING
Svo Bond komst á leiðarenda í dráps- þegar við höfum athugað hvað landkrabb- Ég vildi að við mættum vera að því a®
gildruna, ha? Nú gæti ég ímyndað mér, arnir gera við stúlkuna. sjá kolkrabbann ganga í skrokk á herra
að Dr. No yrði áhugasamur. Núna er hann að fylgjast með, þegar Bond.
Já . . . við segjum honum það seinna, gúanóinu er skipað út.
JÚMBÖ
-K— — *
—X—
Teiknari: J. M O R A
— Hvernig hafa skipbrotsmennirnir
það? spurði skipstjórinn. Og aumingja
Júmbó var tilneyddur að svara: Vel, því
að hann þorði ekki að segja skipstjóran-
um frá því, hverjir það voru, sem þeir
höfðu bjargað. — Ef hann fær að vita það,
kastar hann þeim samstundis fyrir borð
aftur, hugsar Júmbó með sér.
SANNAR FRÁSAGNIR
Hann skipti því fljótt um umræðu-
efni, og spurði í þess stað, hvort skip-
stjórinn hefði tekið stefnuna aftur á
næstu höfn. — Já, senor Júmbó, svaraði
skipstjórinn, og velti því fyrir sér hvort
nokkuð væri að .......Júmbó var eitthvað
svo alvarlegur á svipinn.
Litlu áður en skipstjórinn ætlaði að
ganga niður, sagði Júmbó snöggt. — Já,
skipstjóri, ég gleymdi að segja yður að
nýju farþegarnir eiga að hjálpa til hér
um borð. Skipstjórinn botnaði ekki neitt
í neinu, en í huganum sór hann það, að
komast að því hvað amaði að Júmbó.
Eftir VERUS
ÞÆR FREGNIR hafa borzit til
íslands, að prófessor Alfred Joli-
vet, sem lengi kenndi m.a. ís-
lenzk fræði við Sorbonne há-
skóla í París, hafi látizt 20. febr.
sL í Danmörku.
Prófessor Jolivet var mörgum
lslendingum kunnur og hefur
unnið mikið og merkt kynningar
starf fyrir íslenzku og íslenzkar
bókmenntir í Frakklandi. Hing-
að kom hann tvisvar sinnum, ár-
ið 1931 og aftur 1947, er hann
hélt fyririestra á íslenzku í Há-
skóla íslands. Prófessorinn þýddi
m.a. Sölku Völku Halldórs Lax-
ness á frönsku á árunum fyrir
heimsstyrjöldina og lengi vann
hann að íslenzk-franskri orða-
bók til notkunar við íslenzku-
nám í Frakklandi. Hann þýddi
einnig mikið úr öðrum Norður-
landamálum á frönsku.
Jolivet prófessor stundaði upp
haflega nám í forngermönsku og
kenndi germönsk mál við Sor-
bonne. íslenzku kenndi hann þar
lengi. Hann var fyrir nokkrum
árum hættur kennslu fyrir ald
urs sakir. Frú Jolivet lifir mann
sinn, en tvö börn þeirra búa í
Bretlandi og í Danmörku.
Prófessor Jolivet
8.
Hafstraumar eru flokkaðir
undir heita og kalda strauma,
yfirborðs- og djúpsjávar-
strauma. Vísindamenn álíta að
straumar ákvarða veðurfar og
hafa þar af leiðandi mikinn á-
huga á þeim. Þekking á straum
um er einnig lífsnauðsynleg
fiski- og farmönnum. Af kort-
inu hér að ofan má sjá, að
straumar norðan miðbaugs
hreyfast réttsælis en straumar
sunnan hans hreyfast rang-
sælis. Þetta stafar af þremur
öflum. Hreyfingu jarðarinnar í
austur, staðvindum og sólar-
hitanum. Sólin hitar yfirborð
sjávarins við miðbaug og þenst
það út af þeim sökum. Þensian
gerir sjóinn léttari og hann
hækkar eilítið yfir sjávarmál.
Af þessum sökum rennur hann
„niður á við“ í átt til pólanna.
Yfirborðsstraumar, sem Maury
kortlagði á sínum tíma, um
1850, hafa verið gaumgæfiiega
rannsakaðir. Uppgötvunin árið
1952 á djúpsjávarstraumnum í
Kyrrahafinu, sem rann undir
norður-núðbaugsstrauminn, í
gagnstæða átt, var vísinda-
mönnum mikið undrunarcfni.
Á hæla þessarar uppgötvunar
kom önnur, sem sýndi að svip-
aður straumur rann undir Golf-
strauminn. Það er einnig geysi-
mikið „flóð“ af köldum íshafs-
straum, sem rennur með botnl
Atlantshafsins yfir miðbaug og
inn í Suður-Atlantshafið. Hraði
þessa straums er umdeildur.
Segja sumir visindamenn, að
það taki hann 300 ár að komast
frá íshafinu til miðbaugs, en
aðrir segja 1500 ár.